Morgunblaðið - 15.02.2009, Blaðsíða 50
50 Dagbók
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15. FEBRÚAR 2009
Sudoku
Frumstig
4 1 8 2 6
8 6 9
2 5 7
6 4 3
3 7 9 2 1 4 6
5 8 7
3 2 5
6 8 3
4 8 1 6 9
5 1 2 3
4 3 1
2 8 4 7
7 4
1 7 4 9 5 3
5 3
5 9 4 6
6 4 7
1 7 3 2
9 4 3 5
1 9 3
1 5 7
1 4 7 5
9 8
4 5 8 6
1 9 2
6 9 7
2 8 9 6
3 5 8 9 6 7 1 4 2
6 7 2 4 3 1 8 9 5
4 9 1 2 8 5 3 7 6
8 1 5 6 2 9 4 3 7
7 6 4 3 1 8 2 5 9
2 3 9 5 7 4 6 8 1
5 8 3 1 9 6 7 2 4
9 2 6 7 4 3 5 1 8
1 4 7 8 5 2 9 6 3
6 7 9 1 5 4 2 3 8
8 5 3 7 6 2 4 1 9
1 2 4 9 8 3 5 7 6
4 6 5 3 9 8 7 2 1
3 1 8 6 2 7 9 4 5
7 9 2 5 4 1 8 6 3
9 4 1 8 7 6 3 5 2
2 8 6 4 3 5 1 9 7
5 3 7 2 1 9 6 8 4
2 7 3 1 9 8 6 4 5
9 8 6 2 4 5 7 3 1
5 4 1 7 6 3 2 8 9
7 9 8 4 2 1 3 5 6
3 2 4 8 5 6 9 1 7
1 6 5 9 3 7 8 2 4
4 5 2 3 7 9 1 6 8
6 1 7 5 8 2 4 9 3
8 3 9 6 1 4 5 7 2
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig töl-
urnar 1-9 og aldrei má tví-
taka neina tölu í röðinni.
Í dag er sunnudagur 15. febrúar,
46. dagur ársins 2009
Orð dagsins: Hvern þann sem kann-
ast við mig fyrir mönnum, mun og ég
við kannast fyrir föður mínum á
himnum. (Mt. 10, 32.)
Nexus á Hverfisgötu er ein afþessum skringilega skemmti-
legu búðum sem ekki mega hverfa.
Víkverji lítur alltaf öðru hvoru inn í
þessa búð, yfirleitt til að skoða úr-
valið af DVD-myndum sem þar eru í
boði, en ýmiss konar kvikindi sem
þar eru til sölu hafa sömuleiðis vakið
athygli hans. Um daginn keypti Vík-
verji sér til dæmis gríðarlega flottan
dreka með þrjú höfuð sem ungur
maður, sem Víkverji kann ekki nafn
á, hafði málað og sett í sölu hjá versl-
uninni. Drekinn á sér nú samastað
við heimilistölvu Víkverja og er ógn-
vekjandi og glæsilegur í senn. Vík-
verji er sömuleiðis farinn að kaupa
alls kyns lítil skrímsli í Nexus og
gefur síðan litlum fjögurra ára vini
sínum sem er afar elskur að
skrímslum. Það sem er ógnvekjandi
er mjög heillandi í huga Víkverja og
fjögurra ára vinar hans.
x x x
Á krepputímum er mikilvægt aðeyða ekki peningum í óþarfa.
Víkverji hefur yndi af því að fara á
veitingastaði en vill vera viss um að
maturinn sé góður. Það er ákveðin
hætta á því í slæmu árferði að veit-
ingastaðir dragi úr þjónustu og veiti
ekki alveg jafn góðan mat og áður.
Og þá er betur heima setið en af stað
farið. Víkverji fer stundum á Sólon í
hádeginu og fær sér þá yfirleitt fisk-
rétt dagsins. Víkverja til mikillar
ánægju hefur þar ekkert verið slegið
af gæðum. Maturinn er vel útilátinn
og sósa og kartöflur fylgja, sem er
algjör nauðsyn, og svo er einnig
hrúgað á diskinn ágætis salati. Vík-
verji mælir með Sólon í hádeginu.
x x x
Víkverji nennir ekki að lifa lífinuvolandi. Þess vegna er hann bú-
inn að fá alveg nóg af sífelldum
kreppufréttum. Besta ráðið til að
losna við þær er að horfa ekki á sjón-
varpsfréttir og kveikja ekki á út-
varpinu þegar fréttatími er yfirvof-
andi. Víkverji finnur ekki annað en
að fólk í kringum hann sé jafnleitt og
hann sjálfur á neikvæðum fréttum.
Stöðugt væl er einfaldlega þreyt-
andi. víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 af háum stig-
um, 8 yrkja, 9 hyggur,
10 slít, 11 síðla, 13 hitt,
15 höfuðfats, 18 starfið,
21 veðurfar, 22 skot, 23
skurðurinn, 24 veik-
burða.
Lóðrétt | 2 ávísun, 3
dökkt, 4 ólán, 5 vondan,
6 lof, 7 veiðidýr, 12
gagn, 14 miskunn, 15
haltran, 16 veisla, 17
verk, 18 sér eftir, 19
hlussulegan kvenmann,
20 baktali.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 dugir, 4 ríkja, 7 álkan, 8 kurls, 9 dís, 11 nösk,
13 árar, 14 ósatt, 15 gróp, 17 tjón, 20 fim, 22 teyga, 23
ögrar, 24 rotin, 25 linar.
Lóðrétt: 1 djásn, 2 gikks, 3 rönd, 4 ryks, 5 kúrir, 6 ans-
ar, 10 Ítali, 12 kóp, 13 átt, 15 getur, 16 ólykt, 18 jaran,
19 nárar, 20 fann, 21 mögl.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. e4 c5 2. c3 d5 3. exd5 Dxd5 4. d4 Rf6
5. Rf3 e6 6. Ra3 cxd4 7. Rb5 Dd8 8.
Dxd4 a6 9. Dxd8+ Kxd8 10. Re5 Ke7
11. Rc7 Ha7 12. Be3 b6 13. Bxb6 Hb7
14. Bc5+ Kd8 15. Bxf8 Hxf8 16. Rxa6
Rxa6 17. Bxa6 Hxb2
Staðan kom upp á Skákþingi
Reykjavíkur – Skeljungsmótinu sem
lauk fyrir skömmu. Hallgerður Helga
Þorsteinsdóttir (1.951) hafði hvítt
gegn Tinnu Kristínu Finnbogadóttur
(1.660). 18. 0-0-0+! sígilt bragð sem
tryggir að hvítur vinnur lið. Fram-
haldið varð eftirfarandi: 18. … Kc7 19.
Kxb2 Bxa6 20. Hd4 Rd5 21. Kc2 f6 22.
Rd3 Ha8 23. Rb4 Rxb4+ 24. cxb4 Bb7
25. Kb2 Bxg2 26. Hg1 Bd5 27. Hxg7+
Kc6 28. a3 h5 29. Hh7 Bf3 30. Hf4 Bg4
31. Hxf6 Hd8 32. f3 Bf5 33. Hxh5
Hd2+ 34. Kc1 Hd5 35. Hhxf5 Hxf5 36.
Hxf5 og svartur gafst upp.
Hvítur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Óvenjuleg sniðganga.
Norður
♠Á74
♥G9
♦Á102
♣Á10863
Vestur Austur
♠K952 ♠G106
♥753 ♥84
♦KDG9 ♦87543
♣G9 ♣KD2
Suður
♠D83
♥ÁKD1062
♦6
♣754
Suður spilar 4♥.
Það var bjartsýnn sagnhafi sem
lagði til atlögu við tíunda slaginn: drap
tígulkóng vesturs, tók þrisvar tromp
og spilaði svo laufi að blindum. Hug-
myndin var að fría laufið. Austur átti
fyrsta laufslaginn á drottninguna og
notaði innkomuna vel með því að skipta
yfir í ♠G. Sagnhafi lét smátt heima og
tók á ásinn í borði, stakk tígul, spilaði
laufi að blindum og dúkkaði gosa vest-
urs. En austur var með á nótunum, yf-
irdrap gosann og spilaði banvænum
spaða í gegnum drottningu suðurs.
Einn niður.
Ekki illa spilað, en sagnhafi átti kost
að fallegri sniðgönguspilamennsku,
sem felst í því að DÚKKA útspilið, tíg-
ulkónginn! Og líka ♦D ef hún kemur í
kjölfarið. Þá verður leikur einn að fría
og nýta laufið án þess að austur komist
inn til að spila spaða.
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Þú munt verja skoðanir þínar af
miklum krafti í dag og sömuleiðis rétt
þinn til einhvers. Foringinn gefur merki,
næstum óafvitandi.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Það er auðveldara en þig grunar að
sleppa sér lausum í kaupum á yfirdrifn-
um munaðarvarningi. Efastu ekki um
hæfileika þína. Gakktu því ótrauður til
verks.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Hjól hugans snúast og spinna
og þeytast á meðan þú hugsar um nýjar
aðferðir til þess að sjá þér farborða. Ef
þér finnst eitthvað bogið við ástandið, er
það líklega rétt.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Það þýðir lítið að stinga við fótum
þegar allt er á fleygiferð í kringum þig.
Hættu þessu og horfðu þess í stað fram
á við með djörfung og dug.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Það er mikil togstreita innra með
þér svo að þú átt erfitt með að einbeita
þér. Nú er sú törn á enda og komið að
því að þú njótir næðis um stund.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Dagurinn hentar vel til nákvæmr-
ar skipulagningar og verkefna sem krefj-
ast vandvirkni og þolinmæði.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Einbeittu þér að því sem máli skipt-
ir og láttu önnur mál lönd og leið. Stund-
um er betra að vinna saman en að reyna
að kollvarpa öllu.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Vertu heiðarlegur við sjálfan
þig, því þú veist að ef þú slærð hlutunum
á frest verða þeir aðeins erfiðari við-
ureignar. Mundu að aðgát skal höfð í
nærveru sálar.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Þér var kennt að hætta strax
við óraunsæ markmið – gleymdu þeim
ráðum. Það er hætt við að viðræður við
foreldra þína og aðra fjölskyldumeðlimi
fari í hringi.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Einhverra hluta vegna tekst
þér ekki að einbeita þér að því sem máli
skiptir. Nú taka við betri tímar.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Það er í góðu lagi að hafa áhrif
á fólk með framkomu sinni ef þú bara
gætir þess að fæla það ekki frá við nán-
ari kynni.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Þér finnast aðrir horfa um of yfir
öxlina á þér. Einhver ókunnur maður
kemur með erindi sem þú þarft að
bregðast við.
Stjörnuspá
15. febrúar 1917
Kristín Ólafsdóttir lauk
læknaprófi fyrst íslenskra
kvenna og varð þar með fyrsta
konan sem lauk embættisprófi
frá Háskóla Íslands.
15. febrúar 1923
Ingibjörg H. Bjarnason, fyrsta
konan sem kosin var á löggjaf-
arþing Íslendinga, tók sæti á
Alþingi. Hún sat á átta þingum
og var jafnan eina konan.
15. febrúar 1940
Sigurður Nordal flutti fyrsta
útvarpserindið af sex undir
heitinu Líf og dauði. Þetta
varð „einn frægasti erinda-
flokkur í sögu Ríkisútvarps-
ins“, segir í bókinni Útvarp
Reykjavík.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist …
Frú Ragnheið-
ur Guðbjarts-
dóttir, Höfða-
grund 22,
Akranesi er ní-
ræð í dag, 15.
febrúar. Hún er
að heiman á af-
mælisdaginn.
90 ára
Hörður Guð-
mundsson,
Holtsgötu 19,
Hafnarfirði
verður áttræður
á morgun, 16.
febrúar. Hann
og fjölskylda
hans taka á móti
vinum og ætt-
ingjum á afmælisdaginn í félags-
heimilinu Garðaholti á milli kl. 18
og 21.
80 ára
„ÞESSI afmælisdagur verður nú líklega með
þeim rólegri. Ég skellti í nokkrar kökur og mín-
um nánustu ættingjum er boðið að gæða sér á
kræsingunum á heimili mínu,“ segir Sigurður
Aðalsteinn Þorgeirsson nemi í tækniteiknun
sem heldur upp á 27. afmælisdag sinn í dag. Sig-
urður Aðalsteinn segist nokkuð liðtækur þegar
kemur að kökugerð en á þó von á að njóta lið-
sinnis konu sinnar þegar kemur að fínni þáttum
bakstursins.
Sigurður Aðalsteinn tók að vísu forskot á sæl-
una og hélt veglega veislu um liðna helgi með
vinum og vandamönnum. Hann segir þá ákvörðun hafa verið tekna af
persónulegum ástæðum, en kona hans er við störf þessa helgi.
Þegar hann er spurður út í eftirminnilega afmælisdaga er Sigurður
fljótur til svara. „Það var náttúrlega þegar ég fagnaði 25 ára afmæl-
inu mínu í Víetnam, en við vorum fjórir á ferðalagi í nokkra mánuði í
Asíu.“ Sigurður og félagar hans voru staddir í borginni Dalat, í há-
löndum Víetnam, á afmælisdaginn og leigðu sér mótorhjól til að skoða
blómagarða, búddahof og glæsileg vötn sem eru á svæðinu.
andri@mbl.is
Sigurður A. Þorgeirsson nemi er 27 ára
Tók forskot á sæluna
Nýirborgarar
Reykjavík Ólafur Haukur og Kristinn Þór fæddust 25.
ágúst. Kristinn Þór fæddist kl. 8.53. Hann vó 2.800 g og
var 48 cm langur. Ólafur Haukur fæddist kl. 8.54. Hann
vó 3.325 g og var 50 cm langur. Foreldrar þeirra eru
Ólöf Kristín Sívertsen og Sævar Kristinsson.
Reykjavík Kristþór fædd-
ist 19. júlí kl. 11.17. Hann
vó 3.730 g og var 53 cm
langur. Foreldrar hans
eru Magnea Brynja Magn-
úsdóttir og Guðni Vil-
mundarson.