Morgunblaðið - 19.02.2009, Qupperneq 40
40 Dagbók
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. FEBRÚAR 2009
Sudoku
Frumstig
6 3 4 7
9 7 8 6 3
8 4 6 9
5 9 1
8 7 4 3
4 5 3
9 4 3 6
1 2 9 5 4
5 1 2 9
7 5 9 2
9 1 7
2 9 4 1
5 4 2
1 7 5 2 3 9 6
9 8 5
1 3 2 5
2 7 9
6 5 1 7
8 9 3 4
3 7 8
7 8 3
5 2 7
7 2 9 6
6 7 8
1 8 2
6 9 4
7 1 8 5
6 9 3 5 1 4 7 2 8
4 7 2 3 9 8 6 1 5
8 5 1 2 7 6 9 3 4
1 3 5 6 8 7 4 9 2
7 6 9 4 3 2 8 5 1
2 4 8 9 5 1 3 7 6
5 1 6 7 4 9 2 8 3
9 8 4 1 2 3 5 6 7
3 2 7 8 6 5 1 4 9
1 9 6 7 5 4 8 3 2
5 7 4 3 8 2 9 1 6
8 3 2 1 6 9 5 7 4
4 6 3 8 9 5 1 2 7
7 2 5 4 3 1 6 9 8
9 1 8 2 7 6 4 5 3
2 8 1 5 4 7 3 6 9
3 5 9 6 2 8 7 4 1
6 4 7 9 1 3 2 8 5
4 9 8 3 2 7 5 1 6
7 1 5 9 8 6 3 2 4
6 3 2 1 5 4 7 9 8
8 5 4 2 1 3 6 7 9
1 6 3 5 7 9 4 8 2
2 7 9 6 4 8 1 5 3
9 8 6 7 3 5 2 4 1
5 4 1 8 6 2 9 3 7
3 2 7 4 9 1 8 6 5
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er fimmtudagur 19. febrúar,
50. dagur ársins 2009
Orð dagsins: Faðir, gjör mig nú dýr-
legan hjá þér með þeirri dýrð, sem ég
hafði hjá þér, áður en heimur var til.
(Jh. 17, 5.)
Víkverji dagsins er kona. Vanga-veltur um kynhlutverk hafa
ekki þvælst mikið fyrir honum í
gegnum lífið en þó er Víkverji nú
farinn að velta því fyrir sér að byrja
að hugsa um sjálfan sig í karlkyni.
Því eftir allt saman er kona nú einu
sinni kvenmaður.
Í morgunútvarpinu á leið í vinnu í
gærmorgun heyrði Víkverji tvo
kvenmenn kveðja og segja eitthvað á
þá leið að sjálfir yrðu þeir við hljóð-
nemann morguninn eftir. Og Vík-
verji hugsaði með sér: auðvitað! Við
erum nú einu sinni öll menn.
x x x
Annað sem lítið hefur þvælst fyrirVíkverja í gegnum tíðina er
veðurfar. Alla daga er veður, gott
veður og gola, vont veður og rok,
vont veður og rok og rigning eða
gott veður og logn, þó að það sé frek-
ar sjaldgæft.
Víkverji uppgötvaði nýlega að
honum þykir veðrið alltaf gott. Þó að
logn sé sýnu betra veður en þegar
vindar blása. Logn er sjaldgæft á Ís-
landi, enda er það besta veðrið,
hvernig svo sem tíðin er að öðru
leyti. Tíu stiga frost og logn: frá-
bært. 20 stiga hiti og logn: stórkost-
legt. 4 stiga hiti og logn: mjög gott.
Og svo mætti lengi telja. Lognið er
alltaf gott.
Þegar farið er út að ganga í roki
og rigningu líður fólki ákaflega vel á
eftir. Sérstaklega að afloknum
strembnum vinnudegi. Þá er eins og
streita og þreyta fjúki af mönnum og
líðanin verður eins og hjá nýhreins-
uðum hundi. Þess vegna þykir Vík-
verja rok og rigning líka gott veður.
x x x
Svo í lokin verður Víkverji að verapínulítið neikvæður. Kreppu-
fréttir hafa tröllriðið fjölmiðlum,
eðlilega, undanfarna mánuði. Til að
byrja með hlustaði Víkverji á allar
fréttir, las öll blöð og rann kalt vatn
milli skinns og hörunds við inntöku
allra fréttanna. Nú er Víkverji hins
vegar orðinn svo leiður á svona frétt-
um að hann slekkur á útvarpi og
hleypur yfir slíkar fréttir í blöðum.
Nú er kominn tími á eitthvað já-
kvætt. víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 tignarheitið, 8
pannan, 9 slæman, 10
greinir, 11 tekið, 13
skyldar, 15 ljómi, 18
henda, 21 ílát, 22 liðna,
23 krossblómategund,
24 í nauðum.
Lóðrétt | 2 niðurfelling,
3 óhróðurinn, 4 guð, 5
ígulbjallan, 6 bráðum, 7
snjór, 12 fag, 14 hæða,
15 blær, 16 koma í veg
fyrir, 17 vik, 18 styrk, 19
tími, 20 virða.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 snuða, 4 fants, 7 aurum, 8 nýtin, 9 tog, 11 taða,
13 baka, 14 keipa, 15 hæna, 17 keng, 20 ónn, 22 gepil, 23
ólíkt, 24 aular, 25 tauti.
Lóðrétt: 1 snart, 2 umráð, 3 aumt, 4 föng, 5 nytja, 6
senna, 10 opinn, 12 aka, 13 bak, 15 hugsa, 16 Nepal, 18
Elínu, 19 gutti, 20 ólar, 21 nótt.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. d4 Rf6 2. c4 g6 3. Rc3 Bg7 4. e4 d6 5.
h3 0-0 6. Bg5 Ra6 7. Bd3 e5 8. d5 De8 9.
g4 Rc5 10. Bc2 a5 11. Rge2 Bd7 12.
Rg3 b5 13. cxb5 Bxb5 14. Dd2 Ba6 15.
0-0-0 Rfd7 16. Bh6 f6 17. h4 Rb6 18. b3
a4 19. Hdg1 axb3 20. axb3 Bd3 21.
Bxg7 Kxg7 22. De3 Bxc2 23. Kxc2 Ha3
24. Hb1 Dd7 25. De2 Hb8 26. g5
Staðan kom upp á Skákþingi
Reykjavíkur – Skeljungsmótinu sem
lauk fyrir nokkru í húsakynnum Tafl-
félags Reykjavíkur í Faxafeni 12. Sig-
urvegari mótsins, Þorvarður F. Ólafs-
son (2.182) hafði svart gegn Atla Frey
Kristjánssyni (2.105). 26. … Rxb3! 27.
gxf6+ Kf7 28. Hxb3 Hxb3 29. De3
Ra4! 30. Dh6 Hxc3+ 31. Kd2 Hb2+ 32.
Kd1 Dg4+ 33. Ke1 Hb1+ 34. Kd2
Df4+ 35. Dxf4 Hb2+ og hvítur gafst
upp.
Svartur á leik
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Hvað ef?
Norður
♠4
♥ÁK97
♦8
♣ÁK98732
Vestur Austur
♠62 ♠K10753
♥G2 ♥864
♦K10975 ♦ÁG3
♣D1054 ♣G6
Suður
♠ÁDG98
♥D1053
♦D642
♣--
Suður spilar 6♥.
Í úrslitaleik NEC-bikarsins létu kín-
versku konurnar 4♥ duga, en hinir
slemmusæknu landsliðsmenn Japana,
Takayama og Teramoto, rúlluðu sér í
6♥ á hinu borðinu. Ekki reyndi á úr-
spilstæknina, því Takayama fékk út
spaða upp í gaffalinn. Hann gat því
hent tígli úr borði og fríspilað laufið.
En hvað gerist með tígli út og meiri
tígli í öðrum slag til að stytta blindan?
Vel heppnað væri að taka ♣Á-K og
trompa lauf. Spila síðan ♥10 á ásinn og
trompa lauf með drottningu. Spila loks
hjarta að ♥K9 með þeirri áætlun að
svína níunni, sem reynist óþarfi þegar
gosinn sýnir sig. Unnið spil.
Annar möguleiki er að svína í spaða
og reyna svo að fá átta slagi á hjarta
með víxltrompun. En það gengur ekki
upp, því vestur mun á einhverjum
tímapunkti yfirtrompa lauf með ♥G.
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Þér kann að þykja það erfitt
hversu vinur þinn er hikandi við að
standa við sinn hluta af skuldbindingum
ykkar. Fjárfestu.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Þú skalt búast við töfum, bilunum
og alls kyns vandræðum í vinnunni í dag.
Vertu ákveðinn og fastur fyrir.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Þú ættir að velta því fyrir þér
hvað þú getur gert til að bæta samband
þitt við maka þinn og nánustu vini. Sam-
bönd við maka og aðra koma þér að
gagni núna.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Krabbinn nýtur þess einstaklega
mikið að bjóða upp á þjónustu sem aðrir
þurfa á að halda. Krabbinn lifir fyrir
augnablikið.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Hlaupabraut atvinnulífsins reynir
meira á en vanalega. Hið sama gildir um
áætlanir tengdar útgáfu og fjölmiðlun.
Leyfðu vinum þínum að umvefja þig
kærleika.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Dagurinn hentar sérstaklega vel
til samræðna við vini og kunningja.
Haltu þig þar sem mótstaðan er minnst.
Það er öruggast.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Þú þarft að stinga við fótum og
standa fast á þínu máli þótt að þér sé
sótt úr öllum áttum. Láttu það þó ekki
slá þig út af laginu og haltu þínu striki.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Það reynir á stjórnunarhæfi-
leika þína og þá ríður á miklu að þú
bregðist rétt við. Léttlyndið er mál dags-
ins, ekki alvaran.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Ferðaáætlanir og viðræður
við fólk frá öðrum löndum eða menning-
arsvæðum ber hátt í dag. Hnýttu lausa
enda.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Þú ert óvenju opin/n fyrir um-
hverfi þínu. Raðaðu hlutunum í for-
gangsröð og taktu eitt verkefni fyrir í
einu.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Ástalífið er nú meiri lognmolla
en þú kýst. Stundum er besta ákvörð-
unin sú að ákveða ekki neitt. Ekki stytta
þér leið.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Einhver kemur þér í opna skjöldu
með því að vera með leiðinlegar at-
hugasemdir í þinn garð. Gerðu þitt besta
til að afstýra leiðindum.
Stjörnuspá
19. febrúar 1870
Ádeilukvæðið Íslend-
ingabragur eftir Jón Ólafsson
ritstjóra birtist í blaði hans
Baldri. Kvæðið var ort við lag
franska þjóðsöngsins og var
„mjög meinyrt í garð Dana,“
segir í Árbókum Reykjavíkur.
Jón hlaut dóm fyrir birt-
inguna.
19. febrúar 1992
Kvikmyndin Börn náttúrunn-
ar var tilnefnd til Ósk-
arsverðlauna sem besta er-
lenda kvikmyndin. Hún hlaut
þó ekki verðlaunin.
19. febrúar 2000
Knattspyrnuhöllin í Reykja-
nesbæ var vígð. Í fyrirsögn
íþróttablaðs Morgunblaðsins
stóð: „Bylting fyrir íslenska
knattspyrnu.“ Húsið var byggt
á níu mánuðum og er 8.344
fermetrar.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson
Þetta gerðist …
Gefin voru saman í hjónaband
Ingunn Valdís Sveinsdóttir og Lars-
Ole Østbø Enoksen í Høilandskirke
í Sandnes, Noregi 3. janúar síðast-
liðinn. Martin Enoksen, afi Lars-
Ole gaf brúðhjónin saman.
Brúðkaup
JÓN Hjálmarsson, starfsmaður Vegagerðarinnar í
Vestur-Skaftafellssýslu, lætur lítið uppi um með
hvaða hætti hann hyggst fagna fimmtugsafmæl-
inu.
„Eins og ég hef sagt fjölskyldunni og vinnu-
félögum, þá er ekkert gefið upp. En maður verður
alla vegna ekki heima,“ segir Jón, sem er búsettur
í Vík og er auk starfsins hjá Vegagerðinni hluta-
maður hjá slökkviliði Mýrdalshrepps. Þegar á
hann er þrýst kveðst hann þó ætla að njóta dagsins
með sinni nánustu fjölskyldu.
Jón segist engu að síður líka hafa gaman af
stærra veisluhaldi, þó að hann hafi valið að hafa fimmtugsafmælið á
lágstemmdum nótum. Fertugsafmælið sé honum þannig mjög eft-
irminnilegt. „Þá hélt ég skemmtilega veislu með vinum og vanda-
mönnum,“ segir hann.
Tvíburasystir Jóns, Anna Matthildur Hjálmarsdóttir sem búsett er
á Egilsstöðum, fagnar einnig fimmtugsafmælinu á morgun. Í æsku,
segir Jón að jafnan hafi verið haldið upp á afmæli þeirra í samein-
ingu. „En við höfum gert lítið af slíku eftir að við urðum fullorðin.“
annaei@mbl.is
Jón Hjálmarsson er fimmtugur í dag
Ekkert gefið upp
Nýirborgarar
Reykjavík Hekla Rakel
fæddist 23. nóvember kl.
6.02. Hún vó 3.470 g og
var 50 cm löng. Foreldrar
hennar eru Andrea Þ.
Guðnadóttir og Jón B.
Jónsson.
Reykjavík Gabríel Þór
fæddist 10. desember kl.
13.21. Hann vó 16 merkur
og var 54 cm langur. For-
eldrar hans eru Karen Eir
Birgisdóttir og Steindór
Þórarinsson.
Reykjavík Andrea Berg-
mann fæddist 25. nóv-
ember kl. 1.27. Hún vó
3.995 g og 50 cm löng. For-
eldrar hennar eru Sigrún
Hafsteinsdóttir og Guð-
mundur Andri Skúlason.