Morgunblaðið - 19.02.2009, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 19.02.2009, Blaðsíða 18
18 FréttirERLENT MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. FEBRÚAR 2009 Um 70 rannsóknaverkefni verða kynnt í erindum og veggspjöldum Föstudagur, 20. febrúar 2009 9 00 – 9 25 Setning og ávarp. Sjávarútvegs- og landbúnaðarráð- herra Steingrímur J. Sigfússon. 9 30 Gestafyrirlestur: Stephen J. Hawkins, prófessor í sjávarvistfræði við Háskólann í Bangor, UK. Under- standing climate driven changes in marine biodiver- sity and ecosystems: the value of long-term studies. 10 40 – 12 00 Atferli og líffræði þorsks 13 00 – 14 50 Sérstæðir ferlar 15 30 – 16 50 Hvalir í vistkerfi íslands Laugardagur 21. febrúar 2009 9 00 – 10 20 Hafsbotn og djúp 11 00 – 12 40 Firðir og strandsjór 13 40 – 15 00 Vistfræði og tími 15 00– 15 20 Umræður og ráðstefnuslit Ráðstefnan er öllum opin meðan húsrúm leyfir Opin ráðstefna Hafrannsóknastofnunarinnar „Sjór og sjávarlífverur“ 20. og 21. febrúar 2009, í bíósal á Hótel Loftleiðum Sjá nánar á www.hafro.is/ hafradstefna ATVINNULEYSI í Danmörku hefur stóraukist á skömmum tíma og í sumum greinum, til dæmis í bygg- ingariðnaði, ýmissi þjónustu og flutninga- starfsemi, hefur störfunum fækk- að um 70-80%. Ekki eru til nýrri tölur um atvinnuleysið en frá í desember en þá voru 59.000 manns án at- vinnu. Vitað er, að það hefur auk- ist mikið síðan en það mun skýr- ast með nýjum tölum í næstu viku. Talið er nú, að fimmta hvert danskt fyrirtæki sé á gjaldþrots- brúninni eða nærri 40.000 alls. Þá hefur gjaldþrotum fjölgað meira í Danmörku en í öðrum löndum Evrópusambandsins að Spáni ein- um undanskildum. Að mati sér- fræðinga er meginástæðan sú, að í Danmörku var fasteignabólan meiri en annars staðar og þess vegna urðu afleiðingarnar þeim mun meiri er hún sprakk. svs@mbl.is Kreppir að í Danmörku Atvinnuleysi vex Ráðhústorgið Eftir Boga Þór Arason bogi@mbl.is BARACK Obama, forseti Bandaríkj- anna, kynnti í gær áform um að verja 75 milljörðum dollara í aðgerðir til að afstýra því að allt að níu milljónir fjöl- skyldna missi heimili sín. Obama skýrði frá áformunum í Phoenix, höfuðstað Arizonaríkis, eftir að hafa undirritað lög um aukin rík- isútgjöld og skattalækkanir til að örva efnahaginn, en áætlað er að þær aðgerðir kosti ríkissjóð 787 milljarða dollara. Talið er að aðgerðirnar beri ekki tilætlaðan árangur nema hægt verði að binda enda á kreppuna á hús- næðismarkaðnum sem varð til þess að efnahagurinn tók að dragast sam- an á síðasta ári og um tíma var útlit fyrir að hún leiddi til þess að banka- kerfið hryndi. Veðlánum skuldbreytt Fasteignaverð hefur lækkað um 23% að meðaltali í Bandaríkjunum frá því að það var hæst um mitt árið 2006. Milljónir Bandaríkjamanna standa nú frammi fyrir því að veð- skuldir þeirra eru orðnar hærri en gangverð fasteigna þeirra og millj- ónir til viðbótar hafa misst heimili sín eða eiga það á hættu vegna hærri vaxta, lægri tekna eða atvinnuleysis. Samkvæmt nýrri áætlun Obama er gert ráð fyrir því að stjórn hans dæli fé í veðlánafyrirtæki sem lækki vexti – og þar með mánaðarlegar afborg- anir – af lánum húseigenda sem geti ekki staðið í skilum. Heimildarmaður fréttastofunnar AP sagði að einnig væri gert ráð fyrir því að minnka greiðslubyrði húseig- enda með því að skuldbreyta veð- lánum ef skuldirnar eru orðnar hærri en verð fasteignarinnar. Ennfremur ætti að auka svigrúm dómara til að skuldbreyta veðlánum. Um 2,3 milljónir fjölskyldna í Bandaríkjunum misstu heimili sitt á síðasta ári, um 81% fleiri en árið áður. Obama boðar aðgerðir til að bjarga húseigendum 75 milljörðum dala varið til að afstýra því að milljónir manna missi heimili sitt Reuters Loforð Obama segir frá áætlun sinni í ræðu í Arizona. REYNT AÐ ÖRVA EFNAHAGINN Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, hefur staðfest lög um aukin útgjöld og skattalækkanir til að örva efnahag landsins. Aðgerðirnar eru metnar á 787 milljarða dollara. Færri en 50.000 50.000 - 99.999 100.000 - 199.999 Fleiri en 200.000 Teningur táknar 1 milljarð $ Allar tölur í milljörðum $ Aðstoð við ríki og sveitarfélög Útgjöld Annað Til verndar illa stæðum fjölskyldum Menntun og starfsþjálfun Samgöngur og vísindi M.a. 27,5 milljarðar í þjóðvegaframkvæmdir 8,4 milljarðar í almenningssamgöngur 9,3 milljarðar í lestasamgöngur, m.a. hraðlestir 7,2 milljarðar til að bæta aðg. að háhraða nettengingu 4,2 milljarðar til að bæta orkunýtingu Heilbrigðismál Meðal annars 19 milljarðar til að endurbæta tækni 10 milljarðar til líftæknirannsókna Orkumál M.a. 11 milljarðar til að endurbæta rafdreifikerfið 6,3 milljarða styrkir til orkusparnaðarverkefna 6 milljarða lánaábyrgðir vegna vind- og sólarorkuverkefna Skatta- lækkanir 499 144 111 81 59 53 43 8 288 787 HVERT FARA PENINGARNIR? ÁÆTLUÐ ÁHRIF Á ATVINNULÍFIÐ WA OR CA AK HI NM TX OK KS CO UT AZ NV ID MT ND SD NE WI MN IA MO AR MS AL LA GA FL TN IL IN MI NY PA KY WY OH VA WV VT ME NC SC DC NH MA RI CT NJ DE MD Fjöldi starfa sem búin eru til eða vernduð Heimild: Recovery.gov Bandarísku bílafyrirtækin General Motors og Chrysler hafa beðið Bandaríkjastjórn um lán að and- virði 21,6 milljarða dollara til við- bótar þeim 17,4 milljörðum dollara sem þau hafa þegar fengið. General Motors hefur kynnt áform um að fækka starfsmönnum fyrirtækisins um 47.000, þar af 26.000 utan Bandaríkjanna, og loka fimm verksmiðjum í Banda- ríkjunum. Fyrirtækið stefnir að því að það verði rekið með hagnaði eftir tvö ár og að lánið verði end- urgreitt að fullu fyrir árið 2017. Chrysler hyggst segja upp 3.000 manns og hætta fram- leiðslu þriggja bíltegunda. Bílafyrirtækin þurfa meiri aðstoð ÍTALSKIR herlögreglumenn við bráðabirgðabúðir fyr- ir afríska innflytjendur á smáeynni Lampedusa, milli Sikileyjar og Túnis, í gær. Þeir sem komast til eyjar- innar verða að bíða í búðunum meðan yfirvöld fara yfir mál þeirra og ákveða hvort þeir fá leyfi til að setjast að í landinu og atvinnuleyfi. Um 100 manns, sem höfðu fengið boð um að þeir yrðu sendir aftur heim, efndu til mótmæla, kveiktu í einu af húsunum og reyndu að brjótast út úr búðunum. Allmargir særðust lítillega og nokkrir fengu með- höndlun á sjúkrahúsi vegna reykeitrunar. Ár hvert reynir fjöldi ólöglegra innflytjenda frá Afr- íku að komast frá Túnis eða Líbíu til Ítalíu með því að sigla á smábátum til eyjanna milli landsins og Túnis. Um 31.700 komust til Lampedusa í fyrra og var það 75% fjölgun frá árinu á undan. Reuters Örvænting á Lampedusa STJÓRN Angelu Merkel, kanslara Þýskalands, hefur áður lýst vantrú á þeirri aðferð Breta að hlaupa undir bagga með illa stöddum einkabönkum með ríkisábyrgðum. En nú ætlar hún að setja lög sem heimila henni að leggja tímabundið hald á hlutabréf banka sem eiga í fjárhagsvandræðum. Er ætlunin að koma þannig í veg fyrir að þeir hrynji, samkvæmt drögum að frumvarpinu. Lögin eiga meðal annars að gera þýska ríkinu kleift að þjóðnýta fasteignalánabankann Hypo Real Estate. Hann á enn í miklum fjár- hagserfiðleikum þótt hann hafi síð- an í október fengið alls um 102 milljarða evra ábyrgðir hjá ríkinu og öðrum bönkum. kjon@mbl.is Þjóðnýting?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.