Morgunblaðið - 19.02.2009, Page 37

Morgunblaðið - 19.02.2009, Page 37
Minningar 37 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. FEBRÚAR 2009 Karl Jónasson ✝ Karl Jónassonfæddist í Rima- koti í A-Landeyjum 19. febrúar 1909. Hann andaðist 15. apríl 1980. Hann var sonur hjónanna Jónasar Þorvaldssonar, f. 30.8. 1849, d. 21.11. 1911, og Þorgerðar Guðmundsdóttur, f. 23.8. 1877, d. 10.10. 1968. Alsystkini Karls voru: Guðjón, Jó- hann og Sigurveig, samfeðra Páll og sammæðra Aðalsteinn. Öll látin. Nokk- urra vikna gamall fór Karl í fóstur hjá Ár- sæli Ísleifssyni og Önnu Þórðardóttur sem bjuggu á Önundarstöðum í A- Landeyjum, sonur þeirra og uppeld- isbróðir Karls var Þórður Ársælsson sem lengi bjó á Borg á Eyrarbakka. Á Önund- arstöðum ólst Karl upp uns hann flutti að heiman um tvítugt. Karl kvæntist 23.11. 1930 Aðalheiði Gestsdóttir, f. í Pálshúsum á Stokkseyri 15.11. 1907. Foreldrar hennar voru hjónin Gestur Sigurðsson, formaður í Sandvík á Stokkseyri, f. í Brattholtshjáleigu í Stokkseyrarhreppi 1.5. 1877, d. 24.5. 1943, og Guðríður Guðlaugsdóttir, f. á Hrafnkelsstöðum í Hrunamannahreppi 14.9. 1876, d. 2.10. 1971. Börn Karls og Aðalheiðar: a) Ársæll, f, 28.8. 1931, lát- inn. b) Gestur Karl, f. 14.6. 1933. látinn. c) Jónas, f. 13.10. 1934, látinn. d) Krist- inn, f. 4.10. 1936. e) Drengur, f. andvana 13.1. 1938. f) Magnús, f. 6.3. 1939. g) Agnes, f. 23.6. 1942. h) Gunnar Vífill, f. 19.9. 1948. i) Jón Ólafur, f. 19.9. 1948. Fósturdóttir Karls og dóttir Aðalheiðar var Hrafnhildur Margrét Viggósdóttir sem er látin. Karl gekk í farskóla í Landeyjum, tók minna mótorvélstjórapróf á Stokkeyri 1929 og sveinspróf í bifvélavirkjun 1942. Hann nam einnig úrsmíði í fjögur ár. Hann var vélamaður hjá ýmsum útgerð- armönnum í Vestmannaeyjum 1929-34 og hjá útgerðarmönnum á Stokkseyri 1934-37, en bifvélavirki hjá KÁ á Selfossi 1937-54, vann í Vélsmiðju Kristjáns Gíslasonar í Reykjavík til 1961 en síðan hjá Sveini Öfjörð og í Vélsmiðju Guðjóns Öfjörð. Strax sem unglingur vakti Karl athygli fyrir handlagni og útsjónarsemi og var þá þegar farinn að gera við klukkur og saumavélar og önnur þau tæki sem þá þekktust í sveitinni. Karl og Aðalheiður hófu búskap á Stokkseyri, byggðu síðan hús á Selfossi og bjuggu þar í nokkur ár, fluttu svo til Eyrarbakka og bjuggu þar til æviloka og hvíla þar í kirkjugarðinum. Meira: mbl.is/minningar Minningar á mbl.is ✝ Ásta Ágústsdóttirfæddist á Urð- arbaki í Vesturhópi í V-Hún. 9. júlí 1925. Hún lést á líknardeild Landspítalans í Kópa- vogi að morgni sunnu- dagsins 8. febrúar síð- astliðins. Foreldrar hennar voru hjónin Bjarni Ágúst Bjarna- son bóndi Urðarbaki, f. 1890, d. 1981, og Marsibil Sigurð- ardóttir, f. 1896, d. 1942. Systkini Ástu eru Helga, f. 1917, d. 2004, gift Jóni Húnfjörð Jónassyni, f. 1914, d. 1995; Unnur, f. 1921, d. 2003, gift Þorvaldi Björnssyni, f. 1919; Valgeir, f. 1924, d. 1995, kvæntur Náttfríði Jósafats- dóttur, f. 1927; Eiður, f. 1925, d. 1981; Héðinn, f. 1928, kvæntur Ingi- björgu Gísladóttur, f. 1926, d. 1994; og Bjarni, f. 1932, d. 2005. Hálf- systkini Ástu, samfeðra, eru Heimir, f. 1944, kvæntur Þóru Þormóðs- dóttur, f. 1948, og Marsibil, f. 1946, gift Birni Levi Péturssyni, f. 1943. Hinn 9. júlí 1953 giftist Ásta Egg- erti Óskari Þórhallssyni múr- arameistara, f. 1. júlí 1926. For- eldrar hans voru Þórhallur Lárus Jakobsson bóndi á Syðri Ánastöð- um, f. 1896, d. 1984, og Ólöf Ingi- björg Ólafsdóttir, f. 1903, d.1997. Börn og afkomendur Ástu og Eggerts eru: 1) Hafdís sjúkraliði, f. 21.2. 1954, gift Sveini Eyþórssyni, f. 1952, börn þeirra eru a) Ásta, f. 1973, gift Kára Samúelssyni, f. 1973, börn þeirra eru Krist- ófer Daði, f. 1999, og Birna Karen, f. 2006, b) Hilmar, f. 1979, í samúð með Ásrúnu Ýr Rúnarsdóttur, f. 1985, barn þeirra er Daníel Snær, f. 2008, 2) Ólaf- ur jarðfræðingur, f. 5.10. 1964, kvæntur Heiðu Vernharðs- dóttur, f. 1965, börn þeirra eru Arnór, f. 1987, Ágúst, f. 1991, og Aron Eggert, f. 2003. Ásta ólst upp á Urðarbaki í Vest- ur-Húnavatnssýslu, stundaði barna- skóla í sveitinni, fór í nám og vist til Reykjavíkur á veturna og bjó þá hjá föðurbróðir sínum Hálfdáni Bjarna- syni. Veturinn 1945-1946 stundaði Ásta nám við Kvennaskólann á Blönduósi. Eftir skólavistina á Blönduósi fluttist Ásta til Reykja- víkur, dvaldist fyrst um sinn í vist hjá frænku sinni Ástríði Sigurð- ardóttur (Ástu frænku) og manni hennar Kristni Guðnasyni og stund- aði ýmis störf. Ásta kynntist Eggert nokkrum árum eftir komu sína til Reykjavíkur. Þau bjuggu fyrst í Mávahlíð 14 en byggðu fljótlega hús í Njörvasundi 22, ásamt Jakobi, bróður Eggerts og konu hans, Guð- nýju. Árið 1971 fluttu Ásta og Egg- ert í Ljósaland 5 og bjuggu þar í 30 ár, þar til þau fluttu í Miðleiti 4. Útför Ástu fer fram frá Bústaða- kirkju í dag og hefst athöfnin klukk- an 13. Mig langar með nokkrum orðum að minnast tengdamóður minnar, Ástu Ágústsdóttur. Ég var 18 ára þegar ég kynntist Óla og fór að venja komur mínar á heimili Ástu og Edda í Ljósa- landi. Mér var strax vel tekið. Þegar við Óli eignuðumst Arnór, frumburð- inn, bjuggum við í góðu yfirlæti hjá þeim þar til við fluttum í eigið hús- næði. Þegar við síðan fluttum til Sví- þjóðar í nám vorum við alltaf velkom- in að gista heima hjá þeim þegar við komum til landsins og alltaf tekið á móti okkur með opnum faðmi. Ásta vildi ekki láta hafa fyrir sér en vildi allt fyrir aðra gera. Hún var hæglát í fasi og ég sá hana aldrei skipta skapi og aldrei reiðast neinum. Hún var mikið fyrir handavinnu og þeir voru ófáir vettlingarnir og sokk- arnir sem hún prjónaði á syni mína. Eftir að Ásta og Eddi fluttu í Mið- leiti var það orðinn fastur liður á föstudögum að koma heim til þeirra í kaffi og hafði ég alltaf Aron Eggert, yngsta soninn, með mér. Það var ekki bara kaffi í boði heldur var borðið ávallt hlaðið kræsingum. Það var allt- af notalegt og þægilegt að heimsækja Ástu og maður var alltaf velkominn. Ég kveð Ástu með söknuði og þakka henni margar góðar stundir um liðin ár. Heiða. Elsku amma. Ég finn engin orð til að lýsa því hvernig mér líður núna, söknuðurinn er sár. En ég trúi því að þér líði vel á hinum nýja stað. Minningarnar um þig leita á mig hvort sem er í svefni eða vöku. Það er gott að rifja upp góð- ar stundir með þér, þú hefur alltaf verið mér sem önnur móðir. Ljósa- landið á alltaf sérstakan sess í hjarta mínu og ég sé enn í dag eftir að hafa ekki keypt húsið ykkar þegar þið fluttuð í Miðleitið. Í Ljósalandinu á ég mínar bestu minningar um þig. Ólst þar upp mína fyrstu mánuði og fékk bestu meðhöndlun sem hugsast get- ur. Þér fannst óendanlega gaman að gefa mér að borða, hvort sem ég var nýfædd eða 35 ára og minningarnar um þig eru mikið til tengdar góðum ömmumat og sætabrauði. Heimili þitt var mér alltaf opið og það var alltaf gott að leita í faðm þér. Ég vissi alltaf að þú talaðir beint frá hjartanu og það var gott að vita af því að ekkert færi framhjá þér, hvort sem það var eitt og eitt aukakíló eða ný peysa. Þegar ég hugsa til baka er mér einnig mjög minnisstætt að í gegnum alla mína skólagöngu hafði ég greiðan aðgang að ykkur afa. Ég var ávallt mætt með bækurnar til ykkar þegar prófin nálguðust. Hjá ykkur leið mér svo vel og það var gott að hafa ákveðna rútínu, matar- og kaffitímar ávallt á sínum ákveðna tíma. Tíminn sem við eyddum saman í sumarbú- staðnum er okkur fjölskyldunni líka ákaflega dýrmætur og það verður tómlegt án þín þar í sumar. Amma kær, ert horfin okkur hér, en hlýjar bjartar minningar streyma um hjörtu þau er heitast unnu þér, og hafa mest að þakka, muna og geyma. Þú varst amma yndisleg og góð, og allt hið besta gafst þú hverju sinni, þinn trausti faðmur okkur opinn stóð, og ungar sálir vafðir elsku þinni Þú gættir okkar, glöð við undum hjá, þær góðu stundir blessun, amma kæra. Nú hinstu kveðju hjörtu okkar tjá í hljóðri sorg og ástarþakkir færa. (Ingibjörg Sigurðardóttir.) Ég þakka þér, elsku amma, fyrir allt og allan þann tíma sem við áttum saman. Þetta eru mér dýrmætar minningar í dag. Þín Ásta. Elsku langamma. Mikið söknum við þín. Það er tóm- legt að koma í Miðleitið. Engin langamma sem tekur á móti okkur með opnum örmum og góðri pönnu- kökulykt. En við vitum að þú fylgist með okkur þegar við komum til lang- afa í heimsókn. Okkur finnst gott að hugsa til þín og rifja upp allar heimsóknirnar, sumarbústaðaferðirnar og allar góðu stundirnar okkar. Takk fyrir alla vettlingana og sokk- ana sem þú prjónaðir handa okkur. Við elskum þig, langamma. Kristófer Daði og Birna Karen. Ásta Ágústsdóttir Sveit FME Reykjanesmeistari Sveit FME sigraði í Reykjanes- mótinu í brids sem fram fór um helgina. Tíu sveitir spiluðu í mótinu, þar af var ein Reykjavíkursveit. Í sigursveitinni spiluðu Garðar Garðarsson, Kristján Kristjánsson, Runólfur Jónsson, Karl G. Karlsson og Gunnlaugur Sævarsson. Lokastaðan í mótinu varð þessi: Karl Sigurhjartarson Rvík 169 Sveit FME 164 Sveit Einars Sigurðssonar 163 Sv. Bernódus Kristinssonar 134 Sveit Erlu Sigurjónsdóttur 134 Sveit Hrundar Einarsdóttur 131 Fimm efstu sveitirnar fengu rétt til að spila í undankeppni Íslands- mótsins og sveit Hrundar mun vera fyrsta varasveit á landsvísu. Í Butlerútreikningi urðu sveitarfé- lagarnir úr FME efstir, Karl Grétar með 1,29, Runólfur með 1,03 og Gunnlaugur með 0.98. Keppnisstjórinn og Sandgerðing- urinn, Guðni Sigurðsson sá um að allt færi eftir settum reglum sem gilda í brids á Íslandi og fórst honum það verk frábærlega vel ásamt öllum tölvuútreikningi. Aðaltvímenningur Í Hafnarfirði Aðaltvímenningur Bridsfélags Hafnarfjarðar er nú rétt hálfnaður og eru 26 pör í þeirri skemmtilegu keppni. Þegar búnar eru 13 umferðir af 25 hafa Hermann Friðriksson og Jón Guðmar Jónsson tekið nokkuð örugga forustu með 62%, ríflega 5 prósentum hærra skor en næsta par. Þeir tóku forustuna strax á fyrsta kvöldi með 67,7% en á öðru kvöldi náðu Ingvar Ingvarsson og Skeggi Ragnarsson hæsta skori, 62,9%. Staðan eftir tvö kvöld af fjórum: Jón G. Jónsson – Hermann Friðrikss. 774 Sveinn Stefánsson – Guðm. Skúlason 708 Ingvar Ingvarss. – Skeggi Ragnarss. 687 Bergur Reyniss. – Reynir Pálsson 670 Sveinn R. Þorvaldsson – Guðlaugur Sveins- son/Magnús Sverrisson 667 Aðaltvímenningur BR Hér er staðan í Aðaltvímenningi BR eftir 2 kvöld af 4 Friðj. Þórhallss. - Páll Valdimarss. 58,3% Jón Baldurss. - Þorlákur Jónsson 58,0% Gísli Steingrss. - Sigtryggur Sigurðss. 57,7% Sveinn Eiríkss. - Hrannar Erlingss. 56,5% Ómar Olgeirss. - Júlíus Sigurjónss. 56,1% Gullsmárinn Spilað var á 11 borðum sl. mánu- dag, 16. febrúar. Úrslit í N/S Sigurður Gunnlss. – Gunnar Sigurbjss. 215 Hrafnh. Skúlad. – Þórður Jörundss. 202 Jón Hannesson – Samúel Guðmss. 192 A/V Eysteinn Einarss. – Björn Björnss. 199 Guðrún Gestsd. – Lilja Kristjánsd. 194 Páll Ólason – Elís Kristjánss. 189 Sigurður Björnss. – Ólafur Gunnarss. 189 Reykjavíkurmót í tvímenningi Reykjavíkurmót í tvímenningi 2009 verður haldið laugardaginn 28. febrúar í Síðumúla 37. Spilamennska hefst kl. 10. Skrán- ing á Skrifstofu BSÍ í síma 587-9360. Íslandsmót kvenna í sveitakeppni 2009 Hið skemmtilega Íslandsmót kvenna í sveitakeppni verður háð helgina 21.-22. febrúar nk. Keppnis- gjald er 14.000 krónur á sveit. Skrán- ing er hafin og er hægt að skrá sig á bridge.is og í síma 587 9360. Núver- andi Íslandsmeistarar eru sveit Plastprents með þeim Arngunni Jónsdóttur, Guðrúnu Jóhannesdótt- ur, Hrafnhildi Skúladóttur og Soffíu Daníelsdóttur. Fjórar efstu sveitirnar úr Íslands- mótinu eig rétt á því að spila um sæti í landsliði kvenna fyrir Norðurlanda- mótið sem haldið verður í Finnlandi 5-7. júní. Fyrirkomulagið verður þannig að 1. sætið tekur með sér 12 stig, 2 sætið tekur með sér 8 stig, 3 sætið tekur með sér 4 stig og 4 sætið tekur með sér 0 stig. Spilað verður um þetta sæti helgina 14. og 15. mars nk. Nánari upplýsingar er hægt að fá á skrifstofu BSÍ. Bridsdeild Breiðfirðingafélagsins Nú er lokið hjá okkur í Breiðfirð- ingabúð fimm kvölda tvímennings- keppni með öruggum sigri Magnúsar Sverrissonar og Halldórs Þorvalds- sonar sem hlutu 1.791 stig. Röð efstu para varð annars þessi: Sveinn Ragnarss. – Runólfur Guðmss. 1.747 Garðar V. Jónss. – Þorgeir Ingólfsson 1.724 Freyst. Björgvinss. – Kristín Óskarsd. 1.717 Birgir Kristjánss. – Jón Jóhannss. 1.705 Ólöf Ólafsdóttir – Unnar A. Guðmss. 1.703 Sunnudaginn 15.2. var spilað á 13 borðum. Hæsta skor kvöldsins í N/S: Lilja Kristjánsd. – Óskar Sigurðsson 374 Magnús Sverriss. – Halldór Þorvaldss. 367 Friðrík Jónss. – Jóhannes Guðmannss. 367 A/V: Ragnar Haraldss. – Bernhard Linn 358 Garðar V. Jónsson – Þorgeir Ingólfss. 358 Þorbj. Benediktss. – Sveinn Sigurjónss. 331 Næsta sunnudag verður spilaður eins kvölds tvímenningur en sunnu- daginn 1. mars hefst þriggja kvölda hraðsveitarkeppni. Upplýsingar hjá Sturlaugi í síma 869-7338. Spilað er í Breiðfirðingabúð, Faxa- feni 14, á sunnudögum klukkan 19. BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson| norir@mbl.is Í dag kveðjum við elskaða systur okkar, hana Grétu. Hún var elst okkar systkina, orðin nær 80 ára gömul. Við eigum mjög góðar minn- ingar um hana. Hún var ein af þess- um hversdagshetjum sem hljótt er um en hún skilaði hlutverki sínu í líf- inu af mikilli prýði. Hún gekk ekki heil til skógar á æskuárum sínum, fékk lömunarveiki og lamaðist svo að hún bar þess aldrei bætur. Þrátt fyrir það skilaði hún meira dagsverki en margir aðrir. Hún eignaðist 12 heilbrigð börn sem hún og eiginmaður hennar, hann Steini, komu til manns og öll hafa spjarað sig í lífinu með miklum sóma. Auk þess að koma þessum barnahópi upp vann hún í áraraðir hjá Sjónvarp- inu við hreingerningar og snyrtingu. Nú, þegar við kveðjum hana systur okkar, þá hafa örlögin hagað því svo til að við erum 3 systkinin stödd á Kanaríeyjum. Engar lausar ferðir Margrét Jónsdóttir ✝ Margrét Jónsdóttirfæddist á Þórodds- stöðum í Ölfusi hinn 19. mars 1929. Hún lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð í Kópavogi miðvikudaginn 28. jan- úar síðastliðinn. Margrét var jarð- sungin frá Kópavogs- kirkju 9. febrúar sl. eru héðan svo ekki er mögulegt að koma heim og vera við útför systur okkar. En hug- ur okkar er hjá að- standendum hennar, sérstaklega honum Steina, sem sér á eftir mikilhæfri konu. Við trúum því að dauðinn sé aðeins áfangi á lengri vegferð og að við eigum í fyllingu tímans eftir að hitta hana og aðra gengna ástvini, þar sem ríkir eilífur friður og kyrrð. Við sendum Þorsteini og afkomend- um þeirra Grétu okkar bestu kveðjur frá Kanaríeyjum og biðjum Guð að blessa þau Þorsteinn, Arnheiður og Tómas. Elsku systir mín, þegar þú kveður er margs að minnast á svona stundu, bæði í gleði og sorg. Kaffisopinn hjá þér var góður ásamt kleinunum, við spjölluðum við eldhúsborðið um liðna daga. Þú varst Ölfusingur, sveitastúlka sem vann flest sveitastörf eins og þá var siður. Þú varst í skóla í Hveragerði, og fórst svo í Húsmæðraskólann á Hverabökkum. Þú ferð til Reykjavíkur og eignast þitt heimili og börn, móðir 12 barna. Nóg að gera á þeim bæ. Lífið heldur áfram, börnin stækka og þú ferð að hreyfa þig. Minnisstæðast er mér þegar við vorum á Akureyri, við Biggi minn fengum íbúð í viku. Þú, Edda og Steini komuð í heim- sókn. Það var gott veður, sól og logn. Við fórum í bíltúra með kaffi á brúsa og brauð. Mývatn var fyrsti staðurinn, svo Húsavík. Þú hafðir aldrei komið þangað. Næst fórum við í Eyjafjörðinn, skoðuðum Jólahúsið og þar um kring, þú skemmtir þér mjög vel. Ég var með Vegahandbókina og lýsti bæjum með bókina á röngunni. Þá var nú mikið hlegið. Það var svo gaman, þetta var svo skemmtilegt ferðalag. Ég ætla ekki að skrifa eitthvert æviágrip, bara um smá tíma sem við áttum saman. Við komum til þín fyrir jólin, systk- inin og áttum yndislega stund með þér í Sunnuhlíð. Jón Davíð var með okkur. Guð geymi þig. Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Sveinbjörn Egilsson.) Elsku Steini, börn og aðrir ættingj- ar. Innilegar kveðjur til ykkar. Guðrún og Birgir. ALDARMINNING

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.