Morgunblaðið - 19.02.2009, Side 24

Morgunblaðið - 19.02.2009, Side 24
24 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. FEBRÚAR 2009 Einar Sigurðsson. Ólafur Þ. Stephensen. Forstjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal. Útlitsritstjóri: Árni Jörgensen. Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ Bankahruniðhefur haftafgerandi áhrif á fjárhag Ís- lendinga og nú bendir ýmislegt til þess að afleiðingarnar gætu einnig orðið heilsufarslegar. Í Morgunblaðinu í gær og í fyrradag hefur verið fjallað um dæmi þess að fólk afpanti rannsóknir og aðgerðir lækna. Ástæðurnar eru peninga- skortur, atvinnuleysi og óör- uggt ástand á vinnumarkaði. Stefán E. Matthíasson, sem situr í nefnd sjálfstætt starf- andi lækna, sem hefur með höndum samninga við Sjúkra- tryggingar, sagði í samtali við Morgunblaðið á þriðjudag ljóst væri að fólk drægi að fara í aðgerðir, sem mætti fresta: „Maður heyrir út und- an sér að fólk hefur ekki pen- inga á milli handanna. Sumir eru atvinnulausir og aðrir eru hræddir við að taka sér frí frá vinnu.“ Stefán tekur dæmi frá Svíþjóð þar sem það sama gerðist eftir hrun og nú er að gerast hér. Matthías Halldórsson land- læknir sagði í samtali við Morgunblaðið á sama stað að sérstaklega væri fylgst með komum til lækna og yrði sam- dráttur viðvarandi þyrfti að grípa til ráðstafana. Ingibjörg S. Benedikts- dóttir, formaður Tannlækna- félags Íslands, sagði í Morg- unblaðinu í gær að tölur hjá Sjúkra- tryggingum sýndu að komur barna, öryrkja og aldr- aðra til tann- læknis hefðu verið færri í jan- úar á þessu ári en í janúar í fyrra. Heilsa fólks er mikilvæg og það er ömurlegt til þess að hugsa að kreppan verði til þess að fólk neyðist til að láta hana sitja á hakanum. Ef ástandið bitnar sérstaklega á þeim sem lítið hafa milli hand- anna og minnst mega sín í þjóðfélaginu er afleiðingin beinlínis á skjön við fyrir- heitið um jafnan aðgang allra að heilbrigðisþjónustu óháð efnum og aðstæðum, en um það grundvallaratriði má segja að ríkt hafi nokkurs konar þjóðarsáttmáli á Ís- landi. Ekki er hægt að bjóða borg- urum landsins upp á slíkar vanefndir auk þess sem það mun á endanum verða heil- brigðiskerfinu dýrkeyptara síðar meir þegar tilfellin, sem nú má fresta, breytast í bráða- tilfelli. Niðurskurðar er þörf í heilbrigðiskerfinu, en hann verður að leiða til raunveru- legs sparnaðar, ekki mismun- unar. Það er því full þörf á því að grannt sé fylgst með ástandinu og gera verður kröfu um það að brugðist verði við ef stefnir í óefni. Tilfellin sem nú má fresta gætu síðar orðið bráðatilfelli } Bankahrun og heilsa Alvarlegastifylgifiskur bankahrunsins á Íslandi var hrap íslensku krón- unnar, sem gerði það að verk- um að skuldir við útlönd blésu út, verðbólga fór úr böndum og verðtryggingin skall af fullum þunga á einstakling- um, sem tekið höfðu lán miðað við allt aðrar forsendur. Færa má rök að því að þetta hefði ekki gerst hefðu Íslendingar verið búnir að taka upp evru. Ástandið í nýmarkaðs- ríkjum Austur-Evrópu minn- ir um margt á Asíukreppuna 1998. Erfiðleikar Evrópusam- bandsríkjanna í austri sem ekki eru með evru eru um- fjöllunarefni á forsíðu dag- blaðsins International Herald Tribune í gær. Aðeins tvö ríki, Slóvakía og Slóvenía, af tíu nýjum aðildarríkjum ESB eru meðal ríkjanna 16 á evru- svæðinu. Seðlabanki Evrópu fer með málefni evrunnar og setur peninga í kerfið með því að lána gegn veði. Þessi starf- semi hefur færst mjög í vöxt eftir að samdrátt- urinn hófst. Evru- ríkin hafa haft forgang, en fleiri hafa komist að og hafa til dæmis seðlabankar Póllands og Ungverjalands fengið lán. Seðlabanki Evr- ópu hefur hins vegar ekki boðið nýju aðildarríkjunum, sem ekki eru á evrusvæðinu, upp á gjaldeyrisskiptasamn- inga líkt og Bandaríkjamenn gerðu við Brasilíu, Mexíkó, Singapore og Suður-Kóreu í október. Þá vill Seðlabanki Evrópu ekki veð í ríkisskuldabréfum, sem gefin eru út í mynt Aust- ur-Evrópuríkjanna. Fyrir vikið hafa gjaldmiðlar þess- ara ríkja hrapað meira en ella og þótt það ætti að koma sér vel fyrir fyrirtæki í útflutn- ingi kemur á móti að þau þurfa að flytja inn vörur til að halda áfram framleiðslu og hafa jafnvel tekið lán í er- lendri mynt til að fjármagna sig. Hljómar eitthvað af þessu kunnuglega? Verulega þrengir að í Austur-Evrópu }Erfitt líf án evru V ið erum hrædd og ringluð, leitum að útgönguleið, sumir segja að lausnin sé að ganga í Evrópusam- bandið. Þá komumst við í skjól. Það verði auðveldara hjá okkur að takast á við harðan heim ef við njótum stuðn- ings þessa volduga bandalags sem vill verða risaveldi. Kannski er þetta rétt en mér finnst að allt of lítið hafi verið gert af því að spyrja Olli Rehn og aðra Brussel-menn hvað valdi því að ESB vilji endilega fá okkur inn. Hvað er svona spennandi við Ísland og Íslendinga? Ég trúi því alveg að margir Norður- landabúar vilji okkur inn af einskærri um- hyggju fyrir okkur. En varla er manngæskan orðin svo mikil hjá öðrum aðildarþjóðum að þær vilji ekki neitt í staðinn, ekki einu sinni í kreppu þar sem valdhafar hugsa mest um eigin kjósendur, reiða og örvæntingarfulla. ESB-leiðtogar eru auðvitað engar skepnur (allavega flestir) en þeir hljóta að taka ákvarðanir sem þeir telja að gagnist eigin þjóðum og sambandinu í heild, í þessari röð. Þeir eru í stjórnmálum. Góður samningur er alltaf þannig að báðir aðilar hagn- ast. Ef þetta er svona frábært fyrir okkur vil ég að einhver sanni fyrir mér að þetta sé líka frábært fyrir ESB, annars verður þetta vondur og ótraustur aðildarsamningur sem þeir í Brussel munu sjá eftir. Ekki viljum við að það gerist. Athyglisvert er að fylgjast með umræðum þeirra sem velta fyrir sér viðbrögðum í ESB ef aðildarríki standa frammi fyrir því að fara bókstaflega á hausinn. Seðlabank- inn okkar gat eðlilega ekki bjargað bankakerfi sem var a.m.k. 10 sinnum stærra en árleg þjóðarfram- leiðsla. Það fór á hliðina. Ekkert bendir til að íslenskir bankamenn hefðu hagað sér skyn- samlegar ef við hefðum verið í ESB. Kannski hefðu þeir orðið enn stórtækari, hugsað með sér að ef illa færi myndi stóri bróðir, Evrópski seðlabankinn, bjarga í horn. Litla Ísland yrði ekki skilið eftir á köldum klaka. Ráðamenn á Írlandi voru stórhuga og kannski nokkuð óvarkárir í haust þegar þeir settu lög um að ríkið myndi ábyrgjast allar innistæður, án undantekninga, í öllum írskum bönkum. Þeir sitja nú uppi með að sam- anlagðar ábyrgðir ríkisins eru orðnar miklu hærri hlutfallslega en hjá okkur. Niðurstaða: skuldatryggingaálag Írlands hefur snarhækk- að og rætt um að ríkið gæti orðið gjaldþrota. Engin hætta, ESB bjargar málunum. Eða er það svo? Maastricht-sáttmálinn frá 1992 er enn undir- staðan í samstarfinu. Þar er í grein 104 kveðið á um tak- mörk skuldbindinga sem sambandið hafi gagnvart aðild- arríki, greinin er oft kölluð á ensku „The no-bailout clause“, þ.e. greinin bannar að ráðherraráðið skeri eitt að- ildarríkjanna úr snörunni vegna alvarlegs fjármálavanda. Stundum er sagt að grein 104 sé ekki trúverðug, ríki í myntsamstarfinu, EMU, ábyrgist í reynd skuldir aðild- arríkjanna þótt orðanna hljóðan sé önnur. Vonandi heldur Írland velli. Vonandi reynir ekki á samstöðuna á löngum næturfundum í Brussel þar sem allir óttast innst inni að skapað verði stórhættulegt fordæmi með því að bjarga litlu aðildarríki úr klóm gjaldþrots. kjon@mbl.is Kristján Jónsson Pistill Okkur langar svo í öruggt skjól FRÉTTASKÝRING Eftir Ómar Friðriksson omfr@mbl.is F lestir sem skilað hafa viðskiptanefnd umsögn- um við seðlabankafrum- varpið gera athuga- semdir við það skilyrði að seðlabankastjórinn, sem forsætis- ráðherra á að skipa að undangenginni auglýsingu, skuli hafa lokið meistara- prófi í hagfræði. Þetta er talið allt of þröngt skilyrði. Álfheiður Ingadóttir, formaður við- skiptanefndar, svaraði því játandi er hún var spurð í gær hvort nefndin mundi leggja til að þetta yrði rýmkað. „Af hálfu ríkisstjórnarflokkanna stendur ekki til að gera breytingar á tveimur meginatriðum frumvarpsins, að fækka bankastjórum úr þremur í einn og að setja upp formlega pen- ingastefnunefnd með aðkomu utanað- komandi aðila. Hitt er allt til skoðun- ar og með það að markmiði að gera Seðlabankann enn betri.“ Viðskiptanefnd hefur fengið á þriðja tug umsagna um frumvarpið og fjöldi gesta hefur komið á fund henn- ar. Farið var yfir ábendingar og at- hugasemdir við frumvarpið á fundi viðskiptanefndar í gær. Álfheiður vonar að frumvarpið verði afgreitt úr nefndinni fyrir helgi. Þröngar og óljósar kröfur Þeir Davíð Oddsson, formaður bankastjórnar Seðlabankans, og Ei- ríkur Guðnason seðlabankastjóri setja fram hvassa gagnrýni á frum- varpið í umsögn sinni. Kröfur sem gerðar eru til seðlabankastjóra í frumvarpinu séu of þröngar og óljós- ar til að geta þjónað markmiðum um að tryggja farsæla yfirstjórn þeirra verkefna sem honum eru falin í lög- um. Vísa þeir líka til þess að skilyrðið um meistarapróf stangist á við at- hugasemdir Alþjóðagjaldeyrissjóðs- ins (AGS), sem hafi tekið sérstaklega fram að embættispróf í lögfræði ásamt víðtækri reynslu af efnahags- málum sé fullnægjandi skilyrði til að geta gegnt embætti seðlabankastjóra. Í athugasemdum AGS er því m.a. haldið fram að lög um yfirbankastjóra seðlabanka í öðrum löndum kveði al- mennt ekki á um hvaða menntun hann eigi að hafa, heldur sé almennt gerð krafa um viðurkennda þekkingu og reynslu. Í öðrum löndum séu yfir- leitt einn eða tveir aðstoðarbanka- stjórar og samskonar skilyrði eigi að gera um hæfi þeirra og hvernig þeir eru valdir til starfans og til seðla- bankastjóra. Davíð og Eiríkur benda að í gild- andi skipulagi bankans sé einn aðal- bankastjóri og tveir bankastjórnar- menn með honum. „Í raun er verið að gera þá breytingu að í stað þriggja manna nefndar kemur fjölmennari nefnd, og störf tveggja bankastjóra, sem hvorugur er aðalbankastjóri, eru lögð niður. Starf aðalbankastjóra/ formanns bankastjórnar er hins veg- ar enn til staðar, og þó að framvegis muni hann taka ákvarðanir um beit- ingu stjórntækja í peningamálum með fjórum öðrum en ekki tveimur eins og nú, og að niður séu lögð störf þeirra tveggja bankastjóra sem nú deila með honum völdum, gefur sam- þykkt fyrirliggjandi frumvarps ekk- ert tilefni til nýrrar auglýsingar starfs aðalbankastjóra, enda er starf hans ekki lagt niður með frumvarp- inu.“ Samtök atvinnulífsins hafa gagn- rýnt Seðlabankann harðlega og sagt hann trausti rúinn. SA telur þó í um- sögn sinni að mikið skorti á vandaðan undirbúning við gerð frumvarpsins. Aðalatriði óbreytt en kröfurnar rýmkaðar Morgunblaðið/Kristinn Ósætti Stjórnin segir breytingar forsendu þess að Seðlabankinn ávinni sér traust. Bankastjórarnir vara við illa grunduðum breytingum og óskilvirkni. Þingmenn Samfylkingarinnar lögðu fram tillögu á sínum tíma, þegar núgildandi lög um Seðla- bankann voru sett, um að bankastjóri við bankann yrði einn og ákvarðanir um beitingu stjórntækja bankans í peninga- málum yrðu teknar af peninga- stefnunefnd. Þetta náði ekki fram að ganga en á þinginu 2003/04 lögðu Ingibjörg Sólrún Gísla- dóttir, Jóhanna Sigurðardóttir og Lúðvík Bergvinsson fram frumvarp til „að tryggja, eins og kostur er, að fagleg sjónarmið ráði við skipan í embætti seðla- bankastjóra og að ráðherra geti ekki komið sér undan því að rökstyðja ráðninguna,“ sagði í greinargerð. Lögðu þau til að forsætisráð- herra skipaði formann banka- stjórnar og aðra bankastjóra til sjö ára í senn, líkt og gert er ráð fyrir í frumvarpinu sem nú ligg- ur fyrir þinginu. Einnig að skylt yrði að auglýsa eftir umsóknum og aðeins yrði heimilt að skipa sama mann bankastjóra tvisvar sinnum eins og nú er lagt til í seðlabankafrumvarpinu. Tillögur ganga aftur

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.