Morgunblaðið - 27.04.2009, Síða 1

Morgunblaðið - 27.04.2009, Síða 1
Mjög margt af okk- ar stuðningsfólki vildi fullvissu um að við stæðum á okkar stefnu í Evrópumálum. »6 Það er ekkert að því að ræða það mál [að gefa kost á sér í ríkisstjórn um ESB- aðildarviðræður] »5 »Persónulegu árásirnar sem gengu á milli manna í flokknum hafa þar vegið þungt. »8 Mér sýnist nið- urstaðan fela það í sér að við framsókn- armenn verðum í stjórn- arandstöðu. »9 Hinir flokkarnir urðu mjög sammála um að kenna Sjálfstæð- isflokknum um allt sem aflaga hafði farið. »8 ið góð fyrirheit um framhald þeirra. „Þetta var ágætur fundur. Við fór- um vítt og breitt yfir málin og þess- um viðræðum verður haldið áfram á morgun,“ sagði Jóhanna. Þingflokkar Samfylkingar og VG funda á morgun klukkan 13:30. Þar munu forystumenn flokkanna óska eftir umboði til þess að leiða stjórn- armyndunarviðræður til lykta og er stefnt að fyrsta formlega fundinum um eftirmiðdaginn. Að sögn heimildarmanna Morgun- blaðsins er mikil áhersla lögð á það meðal þingmanna Samfylking- arinnar að áformum um að sækja um aðild að ESB verði haldið til streitu. Þingmeirihluti sé fyrir því og Vinstri grænir í engri samningsstöðu. „Eng- inn afsláttur verður gefinn.“ FRÉTTASKÝRING Eftir Magnús Halldórsson og Pétur Blöndal LAUSLEGA var rætt um Evr- ópumál á fundi forystumanna VG og Samfylkingarinnar á heimili Jó- hönnu Sigurðardóttur, formanns Samfylkingarinnar, í gær. Sam- kvæmt heimildum Morgunblaðsins var þó aðeins rætt almennt um stefnu flokkanna og þá hvort mögu- legt væri að sætta ólíkar áherslur þeirra. VG er á móti aðild að Evrópu- sambandinu en Samfylkingin vill óska eftir aðild að ESB sem allra fyrst. Steingrímur J. Sigfússon, formað- ur VG, og Jóhanna tókust á um málið í umræðuþætti í Ríkissjónvarpinu í gær. „Þetta verður erfiðasta málið að leysa,“ sagði Jóhanna og tók fram að ekki væri rétt að lítið bæri í milli. Undir það tók Steingrímur, sem sagði Evrópumálin vera „stórt, erfitt, óbrúað ágreiningsmál“. Eins og til að undirstrika það áttu þau síðan hvöss og snörp orðaskipti í þættinum. Strax í sambandi Strax í gær komst skriður á við- ræður milli forystumanna Vinstri grænna og Samfylkingar um áfram- haldandi samstarf flokkanna, nú ekki í minnihluta heldur fimm þingmanna meirihluta. Eftir að úrslit í kosningunum lágu endanlega fyrir, upp úr klukkan 9:00 í gær, ákváðu forystumenn flokk- anna að hefja óformlegar viðræður. Um klukkan hálfþrjú hittust Stein- grímur og Jóhanna, ásamt varafor- mönnunum Katrínu Jakobsdóttur og Degi B. Eggertssyni, á heimili Jó- hönnu við Hjarðarhaga. Reidd voru fram vínber og ostar. En Stein- grímur fékk sér ekki grænt te, held- ur kaffi. „Hann svaf svo lítið um nótt- ina; hann þurfti að halda sér vakandi,“ segir viðmælandi blaðsins. Ekki kom annað til tals í gær en að Jóhanna yrði forsætisráðherra og er gengið út frá því af hálfu Samfylk- ingar. Eftir um þriggja tíma fund skildi leiðir. Jóhanna sagði að loknum fundi að viðræðurnar hefðu gengið vel og gef- Ég svara ekki „ef-spurningum“ af því að ég er staðráðin í að leysa þetta mál með Vinstri grænum. »6 Óbrúuð gjá í ESB-máli Morgunblaðið/Ómar Tilhugalíf Steingrímur J. Sigfússon smellir kossi á Jóhönnu Sigurðardóttur fyrir viðræðurnar í gær.  Þingflokkar hafa verið kallaðir saman  Stefnt að form- legum viðræðum flokkanna í dag Þingmenn Samfylkingarinnar vilja engan afslátt gefa af kröfu um aðildarumsókn að ESB sem fyrst Í HNOTSKURN » Jóhanna hittir Ólaf Ragn-ar Grímsson, forseta Ís- lands, seinna í dag og lætur hann vita í hvaða farvegi við- ræðurnar eru. » Áhersla er lögð á það aðkalla fljótlega saman Al- þingi, sem mun „óhjákvæmi- lega“ starfa í nokkrar vikur.  Þingmeirihluti | 12 »»»» M Á N U D A G U R 2 7. A P R Í L 2 0 0 9 STOFNAÐ 1913 112. tölublað 97. árgangur Landsprent ehf. MBL.IS Morgunblaðið hvar sem er hvenær sem er 95 ára mbl.is «12 SÍÐNA AUKABLAÐ ÚRSLIT2009 «DÝRASTAPLATAN SORORICIDE-PLATA SELDIST Á 500.000 Helstu möguleikana sem Samfylk- ingin hefur á að mynda stjórn má sjá á myndunum hér að ofan. Einn- ig er inni í myndinni að framsókn- armenn komi inn í meirihluta- samstarf með Samfylkingu og VG.                             Samfylkingin getur val- ið úr stjórnarmynstrum   »

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.