Morgunblaðið - 27.04.2009, Síða 11

Morgunblaðið - 27.04.2009, Síða 11
Fréttir 11INNLENT MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. APRÍL 2009 Hlíðasmára 14 sími 588 2122 www.eltak.is Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum mesta úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum Hafðu samband líðas ára 14 Sí i 588 2122 .eltak.is Eftir Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is GUÐMUNDUR Örn Jensson er stofnandi og framkvæmdastjóri Atals í Mosfellsbæ, og hefur hann- að nýja tölvustýrða hakkavél, eða öllu heldur fræsara, sem er gríð- arlega öflug. Vélin er ætluð til að farga beinum og kjöti og öllum öðr- um lífrænum úrgangi frá mat- vinnslufyrirtækjum, sláturhúsum, frystihúsum og hjá endurvinnslu- fyrirtækjum. Vélin tekur við öllu sem að kjafti kemur, ekki bara kjöti og beinum, heldur einnig gær- um og húðum, nokkuð sem sam- bærileg tæki á markaðnum hafa átt í vandræðum með. Nýjasta útgáfan hjá Atal er sú stærsta og öflugasta til þessa og er á góðri leið með að seljast úr landi til fyrirtækisins Daka í Danmörku, með atbeina alþjóðlega fyrirtæk- isins Alfa Laval. Lokaprófanir eiga eftir að fara fram hjá Daka og að þeim loknum gerir Atall sér vonir um að kaupin nái fram að ganga. Afköst vélarinnar eru um 30 tonn á klukkustund af forhökkuðum úr- gangi, í litlum teningum á við fing- urbjörg. Þó að vélin láti ekki mikið yfir sér er hún um sjö tonn að þyngd. Fyrir hafði Atall látið fram- leiða níu fræsara og hakkavélar sem allar eru í notkun hér á landi. Innanlandsmarkaðurinn er mett- aður og fyrirtækið hyggur á mark- aðssókn erlendis með aðstoð Alfa Laval í Kaupmannahöfn og fleiri aðila austan hafs og vestan. Galdurinn á bakvið hönnunina hjá Guðmundi er að vélin sker úr- ganginn hárfínt með hringlaga sigðarhnífum eða tönnum, hreyf- anlegum og kyrrstæðum, sem ganga á tveimur tromlum. Alls eru um 240 tennur í hverri vél. Fer úr- gangurinn niður á milli tromlanna þar sem tennurnar taka við honum, hvort sem það eru kjötleifar eða heilu beinagrindurnar af stórum skepnum. Er vélin tölvustýrð og notar mun minna rafmagn en sam- bærilegir fræsarar. Er Morgunblaðið heimsótti þá Guðmund og Pálmar Ólafsson stjórnarformann var ekki búið að ljúka samsetningu vélarinnar en blaðamaður fékk að sjá myndband af því hvernig ein eldri útgáfan japlar á nautshaus eins og ekkert sé. Ekkert sérlega lystaukandi sjón en sést vel að græjan virkar eins og hún á að gera! Einkaleyfi á hönnuninni Væntanlegur kaupandi í Dan- mörku sér mikið hagræði í nýju vélinni frá Atal. Fyrirtækið hefur verið að nota tvær hakkavélar þar sem aðeins hefur verið hægt að nota aðra í einu, á meðan verið er að gera við slit í hinni. Fræsarinn sem Guðmundur hannaði þarf mun minna viðhald og getur gengið mánuðum saman. Einkaleyfi hefur fengist á framleiðsluna á heimsvísu en íslenskar vélsmiðjur og fyr- irtæki hafa framleitt hluti í vélina, einkum Martak í Grindavík og Baa- der á Íslandi. Einnig hefur verið leitað ráðgjafar hjá fyrirtækjum eins og Mannviti. Þeir Guðmundur og Pálmar telja mikil tækifæri fyrir markaðs- setningu á svona vélbúnaði í Evr- ópu. Á því svæði eru um tvö þús- und sláturleyfishafar, svo dæmi sé tekið, og enn fleiri fyrirtæki sem notast við vélar af þessu tagi. Atall er smátt fyrirtæki og ætlar sér ekki stóran hluta af markaðnum. Getur vel annað 2-3 vélum á ári. Vélbúnaðurinn er dýr en fram- leiðslan á honum skapar engu að síður fjölmörg störf hér innanlands. Þeir óttast hins vegar að skortur á fjármagni geti orðið til þess að sambærileg fyrirtæki erlendis til- einki sér þessa tækni sem Atall hefur þróað og verði á undan í samkeppninni. „Því lengur sem við erum að koma okkur af stað út á markaðinn því líklegra er að við hittum sam- keppnina fyrir,“ segir Pálmar. Sprotafyrirtæki þurfa sterk bein og fjármagn Það er nefnilega meira en að segja það að koma sprotafyrirtæki á legg hér á landi, til þess þarf sterk bein og einnig fjárhagslega aðstoð. Pálmar segir Atal vera að breytast úr litlu sprotafyrirtæki í fullþroska fyrirtæki með bjarta framtíð. En erfiðlega gengur að fá fjármögnun til frekari vaxtar. Guð- mundur segir Nýsköpunarsjóð hafa stutt fyrirtækið með ráðum og dáð og allir hafi tröllatrú á búnaðinum. „Þetta hefði ekki verið hægt án Nýsköpunarsjóðs og Impru,“ segir Pálmar en telur að aðgengi sprota- fyrirtækja að fjármagni og stuðn- ingi mætti engu að síður vera að- gengilegra. Undir það tekur Guðmundur og bendir á að frum- kvöðlar endi oft á tíðum sem litlir hluthafar í sínum fyrirtækjum og sem slíkir fái þeir litla sem enga fyrirgreiðslu í bönkunum í dag. „Sprotafyrirtæki eins og Atall, sem er langt komið í sinni þróun, fær ekki fjármögnun í bönkunum þar sem verið er að selja afurðina úr landi. Á sama tíma er ekkert mál að fá fjármagn til kaupa á vinnu- vélum,“ segir Guðmundur og von- ast þeir félagar til að stjórnvöld standi við gefin loforð um að hlúð verði enn frekar að nýsköpunar- og sprotafyrirtækjum, stórum sem smáum. Hakkari sem étur allt  Tölvustýrð hakkavél Atals fargar lífrænum úrgangi og hefur vakið athygli erlendis  Nýjasta vélin á leið til Danmerkur og frekari markaðssókn fyrirhuguð Morgunblaðið/RAX Nýsköpun Guðmundur Örn Jensson, framkvæmdastjóri Atals í Mosfellsbæ, við nýja fræsarann sem er á góðri leið með að vera seldur úr landi, til fyrirtækisins Daka í Danmörku. Fyrst munu lokaprófanir fara fram áður en það klárast. Atall er lítið sprotafyrirtæki sem Guðmundur Örn stofnaði í Mos- fellsbæ fyrir fimm árum, hét áð- ur GÖJ hönnun & ráðgjöf. Ný- sköpunarsjóður kom inn í fyrirtækið fyrir um tveimur árum og er ásamt Guðmundi orðinn stærsti eigandi Atals. Alls eru eigendur 10 talsins, m.a. nokkrir einstaklingar og Pálmar er þeirra á meðal. Atall er að koma sér fyrir í nýjum húsakynnum að Flugumýri 32 í Mosfellsbæ. Að sögn Pálmars Ólafssonar, stjórnarformanns Atals, hefur eftirspurn aukist eftir endur- unnum lífrænum úrgangi til vinnslu á þurrefni, fóðri, fituefn- um og lífdísel. Því fínni sem úr- gangurinn er því betur hentar hann til áframhaldandi úr- vinnslu. „Það er æ meira farið að líta á sláturúrgang sem nýtanlega af- urð, sem hægt er að endurvinna til manneldis,“ segir Pálmar og nefnir sem dæmi beinaúrgang sem notaður er til að framleiða gelatín og fitu sem notuð er í matvælaframleiðslu. Víða er svo farið að nota úrganginnn í fram- leiðslu á lífdíselolíu. Úrgangurinn æ eftirsóttari

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.