Morgunblaðið - 27.04.2009, Page 23

Morgunblaðið - 27.04.2009, Page 23
Minningar 23 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. APRÍL 2009 ✝ Elskulegur bróðir okkar og frændi, BALDUR JÓNSSON frá Fjósatungu, búsettur á Akureyri, lést á dvalarheimilinu Hlíð fimmtudaginn 16. apríl. Útför hans fer fram frá Akureyrarkirkju þriðjudaginn 28. apríl kl. 13.30. Systkini hins látna og fjölskyldur. ✝ Halldór Her-mannsson tækni- fræðingur fæddist í Vík í Mýrdal 14. 1. 1931. Hann lést í Sví- þjóð 3. apríl síðastlið- inn. Halldór var eldra barn hjónanna Her- manns Einarssonar bílsjóra, f. 27. 1. 1903 að Arngeirsstöðum í Fljótshlíð, d. 6. 3. 1941, og konu hans Ágústu Tómasdóttur saumakennara, f. 3. 8. 1906 í Vík, d. 3. 4. 2001. Systir Hall- dórs er Guðlaug Hermannsdóttir sagnfræðingur, f. 15. 2. 1936. Hennar maður er Brynjar Skarp- héðinsson, f. 18. 11. 1931. Börn þeirra eru: a) Harpa, leikskóla- kennari, f. 5. 11. 1957, börn hennar Foreldrar Ingveldar voru: Hall- fríður Pálsdóttir, f. 25. 3. 1907, d. 15. 1. 1987 og Höskuldur Björnsson listmálari, f. 26. 7. 1907, d. 2. 11. 1963. Halldór eignaðist góða og samhenta fjölskyldu með Ingu og afkomendum hennar. Börn hennar eru: a) Hallfríður, f. 17. 9. 1957. Maki: Veigar Óskarsson, f. 7. 5. 1948. Börn þeirra: Margrét Inga, Berglind og Kristjana Ósk. Fyrir átti Veigar eina dóttur Brynhildi. Barnab. Benedikt Gylfi og Margrét Lilja . b) Gunnar Þór, f. 18. 2. 1959. Maki; Guðný Jensdóttir, f. 26. 1. 1963. Börn þeirra: Lovísa Þóra og Eyþór Jens. Barnab. Sævar Þór. c) Ástvaldur, f. 25. 10. 1962. Maki: Martha Jónasdóttir, f. 7. 10. 1963. Þeirra börn: Óskar, Margrét Björg og Ingvi, fyrir átti Ástvaldur einn son, Svavar Frey. d) Helga, f. 20. 12. 1963 , d. 25. 3. 1967. e) Helgi, f. 9. 5. 1869. Inga og Halldór bjuggu síðustu 20 ár á Skáni í Suður- Svíþjóð. Þar lést Halldór 3. apríl síðastliðinn. Útförin fer fram frá Vídal- ínskirkju í Garðabæ mánudaginn 27. apríl og hefst athöfnin kl. 13.00. eru Brynjar Már, Tinna Dögg, Elsa Lind og Kolfinna Mist. Barnab. Alex- ander Máni, Dagur Dan og óskírður drengur b) Hermann Ágúst viðskiptafræð- ingur, f. 15. 6. 1960. Maki: Ragna Gerður Jóelsdóttir, f. 25. 3. 1984. Dóttir Her- manns af fyrra hjóna- bandi er Guðlaug. c) Sigrún María lög- fræðingur, f. 27. 8. 1973. Maki: Jason Brickner f. 26. 4. 1975. Fyrri kona Halldórs var Birna Þórðardóttir, dóttir hennar er Ellen. Þau slitu samvistum. Seinni kona Halldórs er Ingveldur Höskuldsdóttir, f. 10. 10. 1937. Þau gengu í hjónaband 21. 12. 1985. Elsku bróðir minn, – svo hún mamma kom að sækja drenginn sinn á dánardaginn sinn 3. apríl, en hún lést þennan mánaðardag fyrir 8 árum. Halldór bróðir minn ólst upp í Vík í Mýrdal í skjóli foreldra sinna til 10 ára aldurs, en þá drukknaði ástkær faðir og fyrirvinna heimilis- ins og alvara lífsins tók við. Halldór gekk í barnaskóla og unglingaskóla í Vík og var þá mikið hjá Tómasi afa og Margréti ömmu, því mamma hélt saumanámskeið víða um Suð- urland og ég, litla systir, fylgdi henni. Haustið 1945 innritaðist Halldór í annan bekk Gagnfræða- skólans í Vestmannaeyjum og við bjuggum í Eyjum þennan vetur. Þetta var góður og gjöfull tími og ræddi fjölskyldan um að flytja þangað búferlum og hefði það án efa létt lífsbaráttuna mikið, þar sem nóga atvinnu var að fá í Eyjum. Af þessu varð nú ekki, þar sem fjöl- skyldan varð fyrir öðru áfalli. Við mæðgurnar fengum lömunarveiki haustið 1946, sem hafði þær afleið- ingar að fjölskyldan tvístraðist al- veg um tíma.Veikindi mömmu voru mjög alvarleg og að áliðnum vetri 1947 var hún flutt á Farsóttarhúsið í Reykjavík og þar dvaldi hún næstu árin. Þetta var erfiður tími fyrir okkur öll og fjárhagsgrundvöllur fjöl- skyldunnar hruninn. Fyrir Halldór var þetta afar alvarlegt og mennta- skólanám var úr sögunni. Þennan vetur vann Halldór fyrir sér í fiski í Eyjum og tók landspróf með ágæt- iseinkunn vorið 1947. Næstu árin stundaði Halldór ýmis störf, t.d. verslunarstörf, byggingarvinnu o.fl. Halldór flutti til Svíþjóðar 1962 og vann hjá byggingafyrirtæki og lauk þar prófi í tæknifræði með mjög góðum vitnisburði, enda hafði hann alltaf verið afburða námsmað- ur og jafnvígur á raungreinar og tungumál. Seinna fór hann í há- skóla og bætti við sig því sem þurfti í verkfræðinginn. Svíþjóð varð að- alstarfsvettvangur hans til fjölda ára og þar eyddi hann síðustu 20 árunum með Ingveldi konu sinni á fallegu og ástríku heimili þeirra á Skáni. Það var yndislegt að dvelja hjá þeim þar og voru þau ákaflega samhent og gestagangur var því mikill hjá þeim allt sumarið, en þá voru þau alltaf heima að annast fal- lega garðinn sinn og fjölmarga góða vini og skyldmenni sem komu til að njóta gestrisni þeirra og vináttu. Elsku bróðir minn, margar ljúfar minningar á ég frá æsku okkar í Vík, þú að lesa fyrir mig um dverg- inn vonda Rauðgrana og Dísu ljósálf, jólin sem þú gafst mér fal- lega dúkkurúmið, sem þú smíðaðir og mamma saumaði sængurfatnað í, þú bókaormurinn að lesa og ekki í kallfæri, kvöldin þegar við söfnuð- umst í kringum útvarpið, sem pabbi kom með rétt áður en hann dó, og borðuðum síðbúinn kvöldmat og hlustuðum á Helga Hjörvar lesa um kotbýlið og kornsléttuna. Okkur leið þá vel, þrátt fyrir lítil efni, því við áttum góða og ástríka móður. Nú er komið að leiðarlokum í bili og lýk ég þessum fátæklegu orðum í þeirri fullvissu að við eigum öll eftir að sameinast á ný. Elsku Inga, það var mikið lán fyrir bróður minn og okkur öll að þú komst inn í fjölskylduna. Guð veri með þér og þínu góða fólki. Guðlaug Hermannsdóttir. Þegar ég kveð frænda minn og jafnaldra Halldór Hermannsson er margs að minnast. Hann var uppal- inn í litlu gulu húsi í Vík í Mýrdal ásamt Guðlaugu systur sinni. Ágústa móðursystir mín bjó þar með manni sínum Hermanni, rétt hjá afa okkar og ömmu, Tómasi og Margréti. Umhverfið var ævintýri líkast. Svartur sandur rétt fyrir sunnan húsin, Reynisfjall og Reyn- isdrangar, Mýrdalsjökull skýldi fyr- ir norðanáttinni og Heiðarvatn í dalnum þar á milli, þar sem við fengum lánaðan bát hjá Margréti móðursystur okkar til að veiða sil- ung í vatninu. Frændgarðurinn var stór, allt frá Sólheimum, þar sem Lilja móðursystir okkar bjó, að Breiðabólstað á Síðu, þar sem for- eldrar mínir bjuggu. Veturinn 1930- 31 fæddust 6 drengir systrasynir. Erlingur á Sólheimum sonur Lilju, Sigurður í Framnesi sonur Krist- ínar, Kjartan á Heiði sonur Mar- grétar, Halldór í Vík, Björn í Mör- tungu sonur Sigríðar og undirritaður á Breiðabólstað sonur Guðbjargar. Nú eru 4 látnir, en við Erlingur eftirlifandi. Náttúrufegurð er mikil á svæðinu og andstæður miklar, Sólheimasandur og Mýr- dalssandur voru þá svartir, Mýr- dalsjökull og Öræfajökull hvítir og Skaftáreldahraun úfið og niðurgraf- inn vegur hlykkjaðist í gegnum hraunið. Árnar á Síðunni voru óbrúaðar og hestar aðalsamgöngu- tækið. Við Dóri undum okkur við að veiða silung á stöng í nálægð Breiðabólstaðar, klifra í klettunum í Hvamminum, fara í heimsókn til Siggu frænku í Mörtungu. Eftir að við vorum fluttir til Reykjavíkur fórum við stundum í heimsókn til Sigurðar Einarssonar föðurbróður hans á Hverfisgötuna, en hann var þá dósent við guðfræðideildina, síð- ar prestur í Holti og skáld. Halldór frændi hefur búið meir en hálfa æv- ina erlendis, mest í Svíþjóð, en komið reglulega í heimsókn og einnig höfum við Bryndís farið í heimsóknir út. Frændi var svo lán- samur að kynnast góðri konu, Ingu Höskuldsdóttir, og hefur átt með henni mörg farsæl ár. Hann var góðum gáfum gæddur og hafði ljúft skap og góða nærveru og þakka ég honum fyrir áralanga vináttu. Ég bið góðan Guð að blessa og styrkja Ingu og Guðlaugu og fjölskyldur þeirra. Guðmundur Snorrason og fjölskylda. Ég ætla að skrifa nokkur orð um móðurbróður minn sem féll frá 3. apríl síðastliðinn. Hann bjó mestan hluta ævi minnar í Svíþjóð, þannig að það voru fjölmargar ferðirnar sem farnar voru yfir hafið til að heimsækja Dóra frænda. Margar góðar minningarnar eigum við börnin mín fjögur frá heimsóknum okkar til hans. Margt kemur upp í hugann þegar ég hugsa til baka, en ein minning er mér afar hugleikin. Þegar ég var 17 ára og var í skóla í Svíþjóð um tíma, fór ég oft til Dóra og man ég vel þegar við sátum á kvöldin og borðuðum kvöldsnarl fyrir framan sjónvarpið. Kvöldsnar- lið hans frænda var engu líkt. Það var alltaf gott að heimsækja hann og Ingu konuna hans á Skáni þar sem þau bjuggu síðustu æviár hans og minnast stelpurnar mínar oft at- vika frá heimsóknum okkar til Dóra og Ingu. Ég og börnin mín komum alltaf til með að minnast frænda sem góðs og greiðvikins manns. Megi hann hvíla í friði. Harpa og börn. Halldór Hermannsson  Fleiri minningargreinar um Hall- dór Hermannsson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. ✝ Hafsteinn Ólafs-son fæddist í Reykjavík 25. febr- úar 1923. Hann lést á Líknardeild Landakotsspítala 7. apríl sl. Foreldrar hans voru Vilborg Magn- úsdóttir frá Innri- Ásláksstöðum á Vatnsleysuströnd, f. 2. apríl 1892, d. 21. nóvember 1983, og Ólafur Kristinn Teitsson frá Hlöð- versnesi á Vatnsleysuströnd, f. 15. ágúst 1891, d. 27. júlí 1974. Systkini Hafsteins: Ingibjörg, f. 1915, d. 2006; Gróa, f. 1916, d. 2007; Ólafur Kristinn, f. 1918, d. 1938; Vilborg, f. 1919, d. 2006, Valdimar Hlöðver, f. 1921, d. 1944 og Eggert, f. 1926, d. 1969. Börn Hafsteins eru Ægir, f. 1943, Helga Sólveig, f. 1945, d. 1968; Ólafur, f. 1948, Hafdís, f. 1959; Vilborg, f. 1962; Hanna Gróa, f. 1965 og Hafsteinn, f. 1970, d. 1988. Barnabörnin eru orðin 11 og langafabörnin 17. Fyrri eiginkona Haf- steins var Gíslína Vilhjálmsdóttir, f. 1922, d. 1995. Fyrr- um sambýliskona Hafsteins var Elín Haraldsdóttir, f. 1935 , d. 2005. Eft- irlifandi eiginkona Hafsteins er Dís Guðbjörg Ósk- arsdóttir, fædd 1943. Hafsteinn stundaði sjómennsku og bifreiðaakstur, hann sá um veitingarekstur í Fornahvammi á 8. áratugnum og var vitavörður í Garðskagavita á þeim níunda. Hann stundaði lax- veiði og hestamennsku, og var virkur í félagsstörfum, sat m.a. um skeið í fulltrúaráði Sjálfstæð- isflokksins á 6. áratugnum. Hafsteinn verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju mánudaginn 27. janúar og hefst athöfnin kl. 15. Elsku Hafsteinn, ég vil trúa því að þú sért kominn á betri stað. Það var sárt að sjá þig svona veikan. Veistu, þú hefur alltaf verið afi minn. Ég á eftir að sakna létta skapsins og allra þinna fyndnu kommenta, það hefur alltaf verið stutt í grínið hjá þér. Þú munt alltaf eiga stað í hjarta mínu. Hvíldu í friði afi. Þín Eydís. Elsku Hafsteinn, við munum alltaf vera þakklát fyrir tímann okkar saman og góðar minningar eins og þegar við fengum að trélita skeggið þitt blátt og augabrúnirnar rauðar. Það var líka gaman að horfa á bíó- myndir með þér, þú lifðir þig svo inn í þær. Þú hefur alltaf verið afi okkar. Hvíldu í friði, Svandís, Heiða, Brynjar og Bjarki. Hafsteinn Ólafsson ✝ Anna Dóra Harð-ardóttir fæddist á Akureyri 15. janúar 1940. Hún andaðist á heimili sínu í Aust- urbergi 6 19. apríl sl. Foreldrar hennar voru Marta Jóns- dóttir, f. 20. janúar 1920, og Hörður Har- aldsson húsasmiður, f. 28. febrúar 1916, d. 29 júlí 2007. Þau skildu er Anna var fjögurra ára. Alsystir Önnu er Kristín Huld, f. 1. nóvember 1941. Anna átti tvö hálfsystkini sammæðra: Egil Eðvarðsson, f. 1947, og Elsu Friðriku, f. 1954. Anna átti einnig fjögur hálfsystkini samfeðra: Ólöfu Kolbrúnu, f. 1949, Harald, f. 1950, Björk Lind, f. 1954, og Hörpu, f. 1960. Anna ólst upp á Akureyri með móður sinni og stjúpföður Eð- varð Sigurgeirssyni, sem reyndist henni sem besti faðir. Árið 1963 kynntist Anna eftirlif- andi maka sínum Hjörleifi Ein- arssyni sjómanni, f. 4. maí 1943. Þau giftu sig 14. ágúst 1965 og eign- uðust tvær dætur; Mörtu Ríkeyju, f. 23. apríl 1965, og Sig- urveigu, f. 31. maí 1967. Þau stofnuðu heimili í Reykjavík og þar bjuggu þau að mestu leyti. Samtímis heimilis- og uppeld- isstörfum vann hún ýmis störf og lengst af á Landspítalanum í Fossvogi. Anna eignaðist sjö barna- börn sem syrgja ömmu sína sárt. Marta Ríkey giftist Braga Jóns- syni, f. 1962, og eignuðust þau þrjú börn. Þau eru Hjörleifur, f. 1992, Nanna Dóra, f. 1995, og Hrafnhild- ur, f. 2000. Sigurveig giftist Rafael Q. Sillero, f. 1962, og eru börn þeirra fjögur: María Araceli, f. 1990, Francisco Ari, f. 1993, Rafael Þór, f. 1997, og Gabríel Freyr, f. 2000. Útför Önnu Dóru fer fram mánudaginn 27. apríl frá Fella- og Hólakirkju kl. 13.00. Elsku mamma, við Veiga sendum þér nokkrar línur. Við þökkum þér fyrir öll árin saman. Hún móðir okkar naut sín best þegar báðar fjölskyldurnar komu saman í kaffi eða mat til þeirra. Þeg- ar heilsa leyfði hjá henni söng hún oft og spilaði á gítar með barnabörn- unum sínum. Mamma við þökkum þér fyrir allt, þó að við trúum varla að þú sért farin frá okkur. Kveðja, Marta Ríkey og Sigurveig. Á fenjamýrum gróa strá og stör, sem stormar kaldir næða um og sveigja, uns rosar haustsins rætur þeirra feyja, og regnið lamar þrá og æskufjör. En yngri gróður erfir sömu kjör, og allir verða sama stríð að heyja, því öllum var það áskapað að deyja, svo allt er lífið sífelld jarðarför. Við storminn mega stofnar háir glíma, þó stráin falli. Allt hefur sinn tíma. (Davíð Stefánsson skáld frá Fagra- skógi). Sértu kært kvödd, elsku systir, Egill Eðvarðsson. Elsku Anna Dóra mín. Það var sjokk þegar ég fékk hring- ingu frá Veigu minni og hún sagði mér að þú værir látin. Það er margt hægt að segja en ég vil bara segja, það var yndislegt að þekkja þig í öll þessi ár. Ég vil þakka þér. Til Önnu: Þú átt hug, þú átt hjörtu. Hugur minn vermi þig. Vind- ur hvíslar í eyrum mínum, Anna mín, þú færð frið. Við vottum Veigu, Mörtu, Hjör- leifi og barnabörnum samúð okkar. Margrét Esther og börn. Anna Dóra Harðardóttir Morgunblaðið birtir minningar- greinar alla útgáfudagana. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Engin lengdarmörk eru á greinum sem birtast á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síð- una. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.