Morgunblaðið - 27.04.2009, Page 36

Morgunblaðið - 27.04.2009, Page 36
MÁNUDAGUR 27. APRÍL 117. DAGUR ÁRSINS 2009 »VEÐUR mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 250 ÁSKRIFT 2950 HELGARÁSKRIFT 1800 PDF Á MBL.IS 1700 SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT Morgunblaðið bíður eftir þér þegar þú vaknar á morgnana ÞETTA HELST» Evrópumálin erfið  Evrópumálin voru lauslega rædd á óformlegum fundi forystumanna stjórnarflokkanna í gær. Ljóst er að Samfylkingin vill að farið verði í að- ildarviðræður að ESB sem allra fyrst en VG vill að þjóðin kjósi um hvort fara eigi í slíkar viðræður. Snörp orðaskipti urðu milli for- manna stjórnarflokkanna í umræðu- þætti í Sjónvarpinu í gærkvöldi. Við- ræður halda áfram í dag. »Forsíða Konur aldrei fleiri  Konur hafa aldrei verið fleiri á Al- þingi Íslendinga eða 43% þingmanna skv. niðurstöðum kosninganna á laugardag. Aðeins Rúanda, Svíþjóð og Kúba eru ofar okkur á alþjóð- legum lista yfir hlut kvenna á þjóð- þingum heimsins. »18 Svínaflensa vekur ugg  Ýmsar ráðstafanir voru gerðar víða um heim í gær til þess að hefta útbreiðslu svínaflensuveiru. Stjórn- völd í Bandaríkjunum lýsa yfir hættuástandi. Staðfest er að sex manns í Kanada eru smitaðir af veir- unni. »15 Æfir sig á strákunum  Anna Soffía Víkingsdóttir, júdó- kappi hjá Ármanni, glímir bara við stráka á æfingum og þarf að setja sig í aðrar stellingar þegar hún keppir á móti konum. Hún sigraði í opnum flokki kvenna og -70 kg flokknum á Íslandsmótinu í júdó um helgina. »Íþróttir Bjargað úr sjálfheldu  Þyrla Landhelgisgæslunnar bjargaði 19 ára stúlku úr sjálfheldu á Vífilsfelli í gær. Stúlkan segist hafa verið hrædd og að dvölin á lítilli syllu hafi verið köld en allt fór þó vel að lokum. »2 SKOÐANIR» Staksteinar: Tækifærinu glutrað niður? Forystugrein: Söguleg úrslit Pistill: Aftur á upphafsreit Ljósvaki: Ekki veitir af UMRÆÐAN» Nýttu tímann Velferð varin Refur dró hörpu á ísi Hræðslan við kjósendur og þriðji … Heitast 11°C | Kaldast 1°C Hægviðri og létt- skýjað á Suðvest- urlandi. Víða bjart- viðri. Hlýjast sunnanlands. » 8 Fallegt verk sem býður upp á fag- urfræðilega og skyn- ræna upplifun ásamt andlegri íhugun. Um Limboland. »29 MYNDLIST» Heilmikið sjónarspil FÓLK» Hellti sér yfir útvarps- manninn. »33 Skemmtilegur ninja- kokteill með vatns- bragði. Dómur um leik þar sem reynt er að frelsa Tókýó – og mannkynið. »32 TÖLVULEIKIR» Barist við sníkjudýr MYNDLIST» Koma listsköpun fatlaðra á framfæri. »27 FÓLK» Flugan stakk sér inn hjá Lennon og Baktusi. »28 Menning VEÐUR» 1. Davíð eyðilagði landsfundinn 2. Ráðherra féll af þingi 3. Vopnað rán í Mávanesi 4. Ein lýtaaðgerð til og hún verður … »MEST LESIÐ Á mbl.is Ljósmynd/Helgi Torfason Alþingismaður Ásmundur Einar Daðason, nýkjörinn þingmaður VG í Norð- vesturkjördæmi, er hér að merkja fé í fjárhúsunum á Lambeyrum í Dölum. Eftir Egil Ólafsson egol@mbl.is „ÞETTA verður leyst með ein- hverjum hætti,“ sagði Ásmundur Einar Daðason, sauðfjárbóndi á Lambeyrum í Dalasýslu, þegar hann var spurður hver myndi leysa hann af í sauðburðinum í vor, en Ásmund- ur var kjörinn alþingismaður um helgina. Ekki eru nema 2-3 vikur í að sauðburður hefjist af fullum krafti á Lambeyrum, en það er annasamasti tími ársins hjá sauðfjárbændum. Þegar Morgunblaðið ræddi við Ásmund í gær var hann ásamt föður sínum, Daða Einarssyni, bónda á Lambeyrum, að fara yfir hvernig best væri að skipuleggja vinnuna við sauðburðinn. Daði, Ásmundur og Sunna Birna Helgadóttir, kona hans, eru með um 1.300 fjár. Ásmundur sagði að síðustu dagar væru búnir að vera annasamir hjá sér eins og öðrum frambjóðendum. „Norðvesturkjördæmi er stórt og mikið kjördæmi og við vorum að tala um það undir lok kosningabarátt- unnar að það yrði gott að komast í sauðburðinn,“ sagði Ásmundur bros- andi, en á stórum sauðfjárbúum þarf að hafa sólarhringsvakt í fjárhús- unum meðan á sauðburðinum stend- ur. Ásmundur sagði óljóst hvernig næstu vikur yrðu hjá sér, en hann kvaðst vonast eftir að hann gæti tek- ið einhvern þátt í sauðburðinum. Sofnaði utan þings en vaknaði sem þingmaður Kosninganóttin var spennandi hjá Ásmundi en hann var ýmist úti eða inni á þingi. Hann fór að sofa um hálffimm um nóttina og þá var hann ekki inni á þingi. Þegar hann vaknaði aftur einum og hálfum klukkutíma síðar var hann hins vegar kominn inn á þing. Ásmundur er yngstur þeirra þing- manna sem kosnir voru á þing, en hann er 26 ára gamall. Hann er sömuleiðis eini bóndinn sem náði kjöri á þing. Það er orðið langt síðan Dalamenn áttu þingmann. Síðasti Dalamað- urinn sem sat á þingi sem aðalmaður var Friðjón Þórðarson, fyrrverandi dómsmálaráðherra, sem hætti á þingi 1991. Ásgeir Bjarnason, bóndi í Ásgarði í Dölum, sat einnig á þingi áratugum saman og var um tíma for- seti Alþingis. Sest á þing í sauðburðinum  Ásmundur Einar Daðason, sauðfjár- bóndi í Dölum, er yngstur þingmanna LIZETH Figueroa frá Kólumbíu hafði aldrei dottið í hug að koma til Íslands fyrr en hún ákvað að sækja um skiptinemadvöl erlendis hjá AFS og sá að Ísland var eitt land- anna í boði. „Ég hafði aldrei leitt hugann að Íslandi en grunaði að það gæti orðið gaman að koma hingað,“ segir hún og það reyndist rétt. Lizeth er ein 45 erlendra skiptinema sem komu hingað til lands síðasta sumar á vegum AFS- skiptinemasamtakanna og fer dvöl þeirra hér senn að ljúka. Og ekki var hún tíðindalítil. Að sögn Lizeth varð fjölskylda hennar í Kólumbíu afar áhyggjufull þegar hún frétti af bankahruninu. Sömu sögu má segja um ættingja Thomas Lindenbergs frá Ítalíu. „Þeir höfðu ekki miklar áhyggjur af ástandinu og héldu að það væri ekki eins slæmt og það var. Núna er ástandið hins vegar farið að versna til lengri tíma litið og fjölskyldan mín hefur meiri áhyggjur núna.“ | 16-17 Morgunblaðið/Heiddi Kólumbísk Lizeth Figueroa er ánægð með dvölina á Íslandi. Merkilegt að upplifa ein- stakan tíma í íslenskri sögu „ÞETTA er bara æði, rosalega gam- an,“ segir Stefanía Svavarsdóttir, 16 ára nemandi í Menntaskólanum við Hamrahlíð, sem er nýráðin söng- kona Stuðmanna. Stefanía söng fyrst með hljóm- sveitinni í desember, tveimur dögum eftir að Stuðmaðurinn Jakob Frí- mann hringdi í hana og sagðist vanta söngkonu. „Hann sagði að ég þyrfti kannski að læra einhver lög, en ég sagði honum að ég þyrfti þess ekk- ert af því að ég kunni þau öll.“ | 32 Alin upp við Stuðmenn Er Ásmundur Einar yngsti mað- urinn til að setjast á þing? Nei, margir hafa verið yngri þegar þeir hafa náð kjöri. Yngstur til að vera kjörinn á þing var Gunnar Thor- oddsen, sem var fyrst kjörinn á þing árið 1934 fyrir Sjálfstæðisflokkinn, 23 ára og 177 daga gamall. Næst- yngstur var Birkir Jón Jónsson, sem var kjörinn á þing árið 2003 fyrir Framsóknarflokkinn, 23 ára og 290 daga gamall. Birkir Jón var endur- kjörinn um helgina, en hann verður þrítugur í sumar. Hvaða þingmaður er elstur? Elsti þingmaðurinn á Alþingi er Jó- hanna Sigurðardóttir, forsætisráð- herra og formaður Samfylking- arinnar. Hún er 66 ára gömul. Næstelstur er Þráinn Bertelsson, þingmaður Borgarahreyfingarinnar, en hann er 64 ára. S&S

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.