Endajaxl - 03.11.1924, Síða 3
ENDAJAXL
3
18. Kleppur (belja í andaheimum).
19. Bóki (geldhani).
20. Gásbjörn (asni, eyrbeskur).
21. Jóli (sæhestur).
22. Knuzi (óborgaður afsláttarhest-
ur).
Moggastöðum, 30. okt. Anno 1930.
Oki Berlinisson.
----o----
Fððnrleg hirting.
til Árna Árnasonar frá Höfðahólum.
Nú er svo komið, Ámi minn, að eg
er orðinn ritstjóri eins og Tryggvi vin-
ur minn og fleiri.
Mér finst því mál til komið að lækka
rostann í þér eins og öðrum kjapta-
skúmum Danska Mogga. 1 Mogga ger-
ir þú einu sinni að umtalsefni, samúð
Tímans og Alþýðublaðsins, og nefnir
það blíðubrögð. Ekki er nú svo að skilja,
að eg haldi að Tryggvi og Hallbjörn
geti ekki svarað fyrir sig, en það er nú
svoleiðis, að þegar andinn kemur yfir
mig, þá skamma eg það sem ábótavant
er í þjóðfélaginu.
þú talar um það í Mogga, hvað
skringileg séu læti katta, er þeir séu
breima; þetta get eg vel skilið, enda
munu kettir og önnur slík kvikindi hafa
verið aðalbústofn þinn, og ef dæma skal
eftir afkomu þinni í búskapnum, þá hef-
ir þú víst haft nægan tíma til slíkra
athugana. Eg lái þér því ekki þó þú
leitaðir þér betri atvinnu en að ganga
á mála hjá Fenger og Berleme, það
hefði eg seinast gert; þú ert líka sjá-
legur eða hitt þó heldur, þegar þú veð-
iur áfram á gulu skyrtunni og í gömlu
gráu fötunum með 20 ára gamla ská
á fótunum, og með Engeyjar-Björn á
hælunum, þvaðrandi um Viðeyjarfisk
og annað því um líkt, sem þú hefir ekk-
ert vit á. Hvem fjandann ætli þú hafir
vit á þorski, þú sem aldrei hefir m....
í salt vatn, nei, Ámi minn, annað mái
væri þó eg ritaði um slík málefni, því
þar er eg þér vitrari eins og í fleim.
Eg, sem er mesti og glæsilegasti rit-
stjóri þessa lands, vil nú miskunna mig
yfir þig, og bíð þér hérmeð að vinna á
skrifstofu „Harðjaxls“ við afgreiðslu-
störf eða annað þvíumlíkt. Geta vil eg
þess, að ekki mega starfsmenn blaðsins
fara á fyllirí, ekki liggja í „delerium
tremec“ og vera sem minst á privatinu
á Skinnastöðum.
Að síðustu vil eg alvarlega vara þig
við að reyna að svara grein minni, þv£
þá mun eg ekki rétta þér hjálparhöná
framar og þá kveð eg þig alveg í kút-
inn ásamt Fjólesen & Moðhaussen. —
Annars hefir síra Tryggvi vinur minn
og collega sagt mér, að Berléme ætli að
slagta þeim um áramótin og ætlaði eg
því að láta greyin í friði.
---o---
FRUMVARP
til reglugerðar um kattahald í Gríms-
staðaholtsborg.
1. gr.
Bæjarstjórn hefir yfirumsjón með
kattahaldi í bænum og má enginn hafa
kött á kaupstaðarlóðinni neroa bæjar-
stjórn samþykki með 4/6 hlutum
greiddra atkvæða leyfisbeiðni þar að
lútandi.