Nýtt kvennablað - 01.03.1951, Page 3

Nýtt kvennablað - 01.03.1951, Page 3
NYTT KVENNABLAD 12. árgangur. 3. tbl. marz 1951. UM BRÉFASKÓLA í marzblaðið í fyrra rilaði dr. Áskell Löve grein, er hann nefndi: Skólar strjálbýlisins, og átti hann þar viS bréfaskóla, eins og lesendum blaSsins mun kunn- ugt. Ég hef svo mikinn áhuga fyrir þessu máli, aS ég get ekki orSa bundizt um þaS, enda þótt ég viti fyrirfram, að greinarstúfur minn verði næsta fátæk- legur. Ég hef þá skoðun, að stofnun öflugs bréfaskóla hérlendis eigi að vera mál málanna í skólamálum í dag. Með því eina móti er hægt á tiltölulega skömm- um tíma að tryggja æskumönnum öllum og raunar fleirum ekki aðeins almenna heldur einnig hagnýta þekkingu í ýmsum greinum. Kostnaðarhliðina þarf naumast að nefna. Það liggur í augum uppi, hvílík- ur reginmunur það er fjárhagslega séð að lesa heima í frístundum sínum, eða verða að sleppa allri vinnu og sækja venjulega skóla. Ég er sveitakona og hugsa því fyrst og fremst um sveitirnar, enda er aðstaða sveitafólks til að afla sér menntunar mun erfiðari en bæjarbúa. MeS stofnun góðs bréfaskóla mundi þeim erfiðleikum verða rutt úr vegi. Hvernig væri að útvarpið okkar ræki bréfa- skóla? Ég fyrir mitt leyti væri því mjög fylgjandi. Ég tel, að byrja ætti með kennslu undir gagnfræða- próf og hagnýta búnaöarfræðslu. SíSan kæmu aðr- ar greinar eftir því, sem skólanum yxi ásmegin. Hvað búnað’arfræðsluna snertir, þá gerum við okk- ur sennilega alls ekki ljóst, hve mikils virði það væri sveitamönnum, bæði bændum og verðandi bændum, að geta tiltölulega fyrirhafnarlítið veitt sér góða hag- nýta þekkingu í búnaðarfræðum og geta jafnóðum notfært sér hana í starfinu. Búnaðarhættir okkar eru áreiðanlega ekki þeir réttu. Þá mundi búskapurinn bera sig betur. Svo er framleiðsla t. d. mjólkurafurða og garðavaxta hvergi nærri nóg til að fylla innanlands- markaðinn, hvað þá meir. Og er slíkt alls ekki vansa- laust. Haldgóð þekking framleiðenda mundi vafalaust bæta hér mikið úr. Um kennslu undir gagnfræðapróf er það að segja. að unglingar á gagnfræðanámsaldri (þ. e. 13—16 ára) eiga mjög erfitt með að nema bréflega án að- halds kennara. I þorpum og þétt'býlum sveitum er auðvelt að koma slíku við, þar geta nemendur óhindr- að mætt hjá kennara sínum. En í meira strjálbýli kemur slíkt ekki til greina. En væri ekki leiS, að kennari kallaði börn þeirra sveita til náms í gegnum Otvarpið? Mundi ekki tslíkur samlestrar — og útskýr- ingartími nægja öllum venjulegum unglingum til að halda áhuga þeirra fyrir náminu vakandi? Mér fynd- ist rétt að reyna þessa leið. í sambandi við þetta vildi ég minnast á, að gaman væri að fá hér í blaðið um- sögn tungumálakennara Útvarpsins um námsárangur ungra nemenda þeirra út um land miðað við árangur nemenda á sama aldri í venjulegum skólum. Gagnfræðamenntun virðist mér afar æskileg öllum almenningi, en það má ekki eyða í hana alltof mikl- um fjármunum. Og svo það, sem e. t. v. er mest um vert, það má ekki ræna heimilin öllum unglingum á gagnfræðanámsaldri. Hvorki vegna heimilanna sjálfra, né heldur unglinganna. Okkur vantar miklu, miklu fleira fólk í sveitirnar. Og bezta ráðið til að tryggja þá fólksaukningu tel ég það, að þroska æskuna í ást og virðingu á sveitinni, störfum hennar, og umfram alll, hún verður að skilja þýðingu sveitanna og framleiðslunnar fyrir þjóðar- heildina. Hún verður að eignast ríka ábyrgðarlilfinn- ingu. Heilbrigt skemmtanalíf og góð menntunarskilyrði heima í eigin sveit er e. t. v. bezta ráðið til að trvggja dreifbýlinu sína eigin æsku. Og sú æska á að vera víð- sýn, djörf og sterk í trú á sjálfa sig og landið. Okk- ur vantar slíka æsku. Landið okkar bíður slíkrar æsku. Og ég er sannfærð um, að slíka æsku getum við auöveldlega eignazt, aðeins, ef þeir fullorðnu þekkja sinn vitjunartíma og skilja hvað þeim ber að gera. Hæfur bréfaskóli gæti áreiðanlega orðiö ríkur þátt- ur í viðreisn sveitanna og því ættu ungmenna- og kvenfélög og raunar þjóðin öll að bera það mál fram .igui... Jngibjörg Damelsdóttir, Bergsstööum. NÝTT KVENNABLAÐ 1

x

Nýtt kvennablað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýtt kvennablað
https://timarit.is/publication/767

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.