Nýtt kvennablað - 01.03.1951, Side 6

Nýtt kvennablað - 01.03.1951, Side 6
Játning læknis Ejtir A. J. Cronin, höjund Borgarvirkis og jleiri merkra skáldsagna. Ungir læknar eru venjulega ekki sérlega trúræknir. Og þeg- ar ég stundaði læknisfræðinám við húskólann í Glasgow, var ég ekki að neinu leyti frábrugðinn skólabræðrum mínuin og félögum í þessu tilliti. Þegar við fláðum og skárum eftir öllunt kúnstarinnar reglum í líkskurðarstofunum, eins og lög mæltu fyrir, þá leit ég á líkama mannsins eins og afar merkilega vél. Ég fann ekkert við krufningarnar, sem gæti sannfa'rt mig um að maðurinn hefði ódauðlega sál. Og þegar mér varð hugs- að til guðs, þá fékk ég aldrei varizt því að brosa borginmann- lega. Það átti að sýna djúpa fyrirlitningu mína fyrir hinni æva- fornu og gauðslitnu helgisögn. Seinna meir lenti ég sem lækn- ir í fátæku námuhéraði í Suður-Wales. Hér komst ég í nánari kynni við mannlífið sjálft. Ég fékk að sjá, hvernig fólkið, ná- nngar mínir tóku andstreymi lífsins með ódrepandi hugrekki og þrautseigju, hverju sem að höndum bar. í fyrsta skipti stóð ég augliti til auglitis við eitthvað, sem ég gat ekki vísað á htig með iþóttafullu brosi og lífeðlisfræðilegri skýringu. Þegar ég var viðstaddur fæðingar, sjálft undrið, leyndardóni lífsins, og þegar ég sat við sóttarsæng deyjandi manns og beið eftir síðasta andvarpi hans, þegar ég heyrði lágan hvininn frá sigð dauðans, þennan miskunnarlausa þyt nálgast, þá var ég ekki öruggur lengur. Það rann upp fyrir mér, að lífið bjó yfir stærri og torveldari gátum en þeim, er námsbækur mínar höfðu fjallað um og reynt að ráða. í stuttu máli sagt: Ég missti sjálfsöryggið — en það er fyrsta sporið á veginum til Drottins. En það skildi ég ekki þá. íbúar héraðs þessa voru almennt trúrækið fólk, og trúin lýsti sér í flestum verkum þeirra. Það leið sjaldan sú vika, að eitthvað bæri ekki við, er sýndi mér fram á hið innilega guðs- traust margra þessara óbreyttu manna. Ég gleymi því aldrei, þegar stórkostleg sprenging varð í kolanámunni og gróf fjórtán menn niður í jörðinni. I fimm daga voru iþeir innikróaðir þarna niðri, og allt fólk i þorpinu bað fyrir þeim. En er björg- unarsveitin með járnkörlum sínum, hökum og skóflum ruddi sér braut í gegnum jarðlögin, heyrðu þeir, er í sveitinni voru djúpt inni í samanhrundu námugöngunum óma af sálminum: „Ó, guð mín hjálp og stoðin styrka." Þannig höfðu hinir inni- byrgðu námumenn haldið hugrekkinu uppi. Og er að lokum tókst að frelsa þá og þeir komust upp á yfirborð móður jarð- ar, örmagna, en óskaddaðir, þá byrjaði allur mannfjöldinn að syngja hinn forna sálm. Ómur þúsund radda, og sálmurinn barst eins og fagnaðaróður gegnum þröngan dalinn. Þegar ég kom upp úr námubrunninum ásamt þeim, er hafði verið bjarg- að, hreif hið volduga tónahaf mig eins og flóðbylgja — eins og lifandi sönnun trúarinnar, sem verður eigi túlkuð með orðum. Ári síðar fékk ég annað hérað í Mommouthshire. Það var litilfjörleg staða og afleit skilyrði. Ég vann mjög mikið með hjúkrunarkonu héraðsins, systur Olwen eins og hún var nefnd Hún var ákaflega blátt áfram og venjuleg kona að ytra útliti, sterklega byggð og farin að verða talsvert hrukkótt I andliti. En í skærum, gráum og grcindarlegum augum hennar var ró og gleði, sem varpaði ljóma á ófriða og hversdagslega andlits- drætti. I nærri því tuttugu ár hafði hún verið ein um að hjálpa þeim sjúku í þessu byggðarlagi. Það var erfitt starf. Vinnu- dagur, sem svo að segja tók engan enda. Það var ekki venju- legur stofugangur í sjúkrahúsi, heldur tuttugu kílómetra leið á degi hverjum. Ég dáðist að hugprýði hennar og þolinmæði og ódrepandi glaðlyndi. En grunntónninn í persónuleika henn- ar og allri framkomu var frábær fórnfýsi og óeigingirni. Hún átti aldrei svo annríkt að hún gæfi sér ekki tíma til að segja hluttekningar og uppörfunarorð. Hún veigraði sér aldrei við að fara á fætur um miðjar nætur, ef einhver þurfti á hjálp hennar að halda. Laun þau, er systir Olwen bar úr býtum, voru hlægilega lág i samanburði við hið mikla starf og erfiði, og kvöld nokkurt síðla, þegar við höfðum átt óvenjulega erfiðan og annasaman dag, tók ég rögg á mig og hóf máls á þessu, meðan við fengum okkur tesopa. — Hvers vegna farið þér ekki fram á meiri laun fyrir starf yðar, systir Olwen — sagði ég. — Þér ættuð að fá miklu hærri laun. Guð veit, að þér eruð þess verð og eigið það skilið. Það varð augnahliksþögn. Systir Olwen brosti, en í augum hennar logaði kraftur, sem gerði mig forviða. — Ef guð veit, að ég er þess verðug — þá er það nóg — madti hún. Ég skildi samstundis, að allt líf hennar, öll hjálpsemi hennar og fórnfýsi var eins og lrfandi vitnisburður um trú hennar á guð. Og eins og leiftri brigði fyrir skildi ég, hve auðugt líf hennar var, og hve tómt og tilgangslaust mitt í samjöfnuði við hennar. Námuslys og tilsvar frá venjulegri líknarsystur í sveita- liéraði opnaði augu mín og dró mig upp úr kviksyndi efasemd- anna upp á hinn fasta grundvöll sannrar trúar. Ég er hér að tala um trúna á guð, ósköp einfalt og blátt áfram. Og það er meiri ástæða til þess að vekja máls á henni nú heldur en nokkru sinni áður frá því saga mannkynsins hófst. Helmingur allra jarðarbúa er blindaður af guðsafneit- unarkenningum og fjandskap gegn allri guðstrú og guðsdýrk- un, jafnvel gegn þeirri hugmynd, að guð sé til. Og við, hinn helmingurinn, erum svo sljó og sinnulítil gagnvart guðdóminum og lífsins dýpstu meining, að við veitum enga athygli þeirn hræðilegu hættum, er steðja að öllu okkar andlega lifi. Það er ekki hægt að sanna tilveru guðs á sama hátt og reikningsformúlu. En ef við athugum veröldina með öllum hennar undrum og stórmerkjum, ef við gefum gaum að reglu- hundnu lögmáli náttúrunnar og óskiljanlegum flækjum og gegndarlausri bruðlunarsemi hennar, sem hlýtur að vekja lotn- ingu, þá munum við eiga örðugt með að losa okkur við þá hugmynd, að til sé guð og skapari alls þessa. — Ilver getur á kyrru haustkvöldi horft upp í himinhvolfið með hinum ótelj- andi stjörnuskara, án þess að beygja kné sín í lotningu og auð- mýkt og sannfærast um, að þessi takmarkalausa fjölbreytni hlýtur að eiga sér eitthvert annað upphaf en blinda tilviljun. Og okkar eigin jörð, sem svífur gegnum geiminn eftir sinni föstu og ákveðnu braut, þar sem vor fylgir jafnan vetri, svo að aldrei skeikar. Ætti hún að vera aðeins vígahnöttur, sem einhverntíma hefur losnað frá sólinni af einskærri tilviljun? Látum okkur viðurkenna, að frásögn biblíunnar um sköpun heimsins, þegar guð skapaði heiminn á sex dögum, sé helber heilaspuni og vitleysa. Látum svo vera, að við viðurkennum framþróunarkenninguna með öllum sínum kennisetningum Eft- ir verður samt ávallt hin óleysanlega gáta. Þvi að hvernig get- ur nokkuð orðið til af engu. 4 NÝTT KVENNABLAÐ

x

Nýtt kvennablað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt kvennablað
https://timarit.is/publication/767

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.