Nýtt kvennablað - 01.03.1951, Síða 11
FALLEGT i stól-
setu. Má sauma
hvort heldur sem
er í einum lit eða
rósirnar meS mislit-
um skuggum eins
og sézt óljóst á
myndinni. Eins má
liafa mynztrið í
dúka.
SVAR
TIL HULDUKARLS.
í 2. tbl. 1951.
Hugur flýgur hratt af stað
huldusvein að finna.
Lengi hef ég leitað að
Ijósi augna minna.
Ertu að harma örlög þin
inn í berghöllinni?
Ef til vill er ævin mín
eitthvao svi'puð þinni.
Vonin hjarta vængi fær
við þinn ástarfuna.
Huldusveinninn hjartakær
hlýt ég þig að rnuna.
FríSa.
TIL HULDUKARLS.
Heyr iþú! góði huldukarl,
sem hefur sjóðinn lista.
Unaðsbjóður ertu snjall
í ástarljóði tyrsta.
Ef er þér hnoss að yrða á mig
upp er blossinn runninn,
ástar fossinn falli á þig
og færi þér koss á munninn.
Upp nú sálar yndið mitt,
þó æsku bál sé farið.
í ljóðamáli láttu þitt
ljúfa og þjála svarið.
Gríma.
TIL HULDUKARLS.
Huldukarl minn komdu á kreik,
láttu sjá þig sjálfan.
Ei er mér um ástarleik,
að eiga við þig hálfan.
Þar sem ég ei þekki þig,
landsins sonur kæri.
Ástarljóð eiga ekki við —
á almanna færi.
Ef „huldukarl" ég fangað fa-,
fýsir mig að vita:
Vill hann reisa bú og bæ
báls við hverahita?
Míranda.
NtTT KVENNABLAÐ
Spilararnir, litil veggmynd.
9