Nýtt kvennablað - 01.03.1951, Síða 14

Nýtt kvennablað - 01.03.1951, Síða 14
Þessi púði er til með litaskýringum á Vefnað- arstofu Karólínu Guð- mundsdóttur, Ásvallagötu lOa. Verð á öllu efni er kr. 71.50. Saumist hvort sem vill í dökkbrúnan eða hvítan jafa. Karfa sú, sem birt var mynztur af í Nýju kvennablaði, 8. árg. 4. tölublaði, fæst nú stækkuð með lilaskýringum á sama stað. Jafi dökkbrúnn eða hvítur (fínn). Verð á öllu efni er kr. 91.25, miðað við annað borð. Ef pöntuð eru bæði borð, verða leið- beiningar látnar fylgja, hvernig hægt er að setja húllsaum utanuip púðann og draga svo úr og gera kögur. SUNNUDAGSFÖTIN. M a t ua r SELLERÍSÚPA: 1 sellerí — 11. vatn — 2 tesk. salt — 1 súpuna: 1 matsk. smjör, 1)4 matsk. mjöl, 1)4 L sellerí og kartöflu eða grænm.kraft, 1—2 súputengina, 1 egg, )4 dl. rjómi. Hreinsa sellerí og skera nokkra ferkantaða smábita, sjóða [>á sér. Sjóða afganginn af selleríinu þar til það er alveg meirt og kremja það gegnum sigti, blanda (það með kartöflu- eða grænmetissoði svo það verði 1)4 1. Bræða smjörið, hræra mjölinu í og þynna út, hægt og hægt, með soðinu. Þeyta eggið og rjómann i súpuskálinni og hell súpunni varlega út í og selleríteningana í. — Á þennan hátt er blómkálsúpa búin til. „EPLARIS": 1 bolli hrísgrjón, sjóðandi vatn, 3—4 epli eða ber, 2—3 matsk. sykur. Þvo hrísgrjónin, setja þau út í sjóðandi vatn og láta þau sjóða skarpt í 15 mín. Hella þeim þá í sigti og sprauta yfir þau köldu vatni og láta það renna vel af. Hreinsa eplin og skafa þau saman við og setja sykur eftir smekk. Borið með mjólk eða rjóma. KAFFIBRAUÐ: Smyrjið þunnar franskbrauðsneiðar með smjöri og mjólkurosti og skerið þær í tvennt, setjið þær á plötu í allheitan ofn. Bakist þar til sneiðarnar eru ljósbrúnar og harðar. Er þetta prýðilegt kaffibrauð og fyrirhafnarlítið KOMDU NO MEÐ VORLJÓÐ. Komdu nú með vorljóð, sagði' hún vina mín kær. Vorljóð! Upp á himninum, þar var hlettur skær. Komdu nú með vorljóð! ég kallaði hátt. Komdu! sagði loftið skært og himinblátt og sólina ég leit í loga gylltum hjúpi. Er „ljóðið“ myndin hennar á skyggðu hafsins djúpi? Nei, vorljóðið er unun, sem um þig sjálfa fer. Eftirvænting nokkurs, fyrr en bankað er. Nokkuð út í haganum, háloftinu og blænum, sem heillar þyrsta brjóstið og vefur möttli grænum. — Og rúmið vex hið innra hve voldugt þá að vera. .. . Við veröldina alla ferðu að „kókítera“. G. St. Seiidirt svör við Þessarl spurnlngu: f hvaða stétt eru beztu eiglnmenntrnir? 12 NÝTT KVENNABLAÐ

x

Nýtt kvennablað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt kvennablað
https://timarit.is/publication/767

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.