Nýtt kvennablað - 01.02.1958, Blaðsíða 8
Kápa á
3-4 ára (dreng
eða stúlku)
EFNI: 400 gr. ullar-
garn. Prj. nr. 3.
Bakstykki'ö: Fitjaðar
upp 108 1. og prjónaSir
12 pr. garðaprj. Þá 40 1.
slétt prjón, 2 1. snúanr,
24 1. sléttar, 2 I. snúnar,
og 40 1. sléttar. Á næsta
prjón: slétta prj. snúið
og snúna prj. slétt. Með
5 cm. millibili er tekin úr ein 1. báðum megin 5 sinnum (98).
Er bakið mælist 30 cm. teknar úr fyrir handv. annan hvorn
pr.: 4 1. — 2 I. og tvisvar sinnum 1 1. (82). Er bakið mælist
36 cm. er farið að prjóna snuningsprj.: 1 r., 1 sn. Á fyrsta pr.
teknar úr 16 1. með jófnu millibili (66). Er bakið mælist 43
cm. eru felldar af þrisvar sinnum 7 1. annan hvorn pr., 24 1.
sem eftir eru felldar af.
Vinstra framst.: Fitjaðar upp 68 I., 12 pr. garðaprjón, síðan
slétt prjón, nema 6 1. garðaprj. að framan. Með 5 cm. milli-
bili tekin úr 1 I., 5 sinnum (63). Er boðungurinn mælist 30
cm. tekið úr annan hvorn pr. 4 1. — 3 1. — 2 1. og 1 1. (53).
Er hann mælist 36 cm. er farið uð prj. snúningsprj. 29 1. En
á þessum parti teknar úr á fyrsta pr., með jöfnu millibili 8 1.
Þær 24 1. sem eftir eru á prjóninum prj. sléttar. Er boðungur-
inn mælist 40 cm. eru felldar af í hálsinn annan hvorn pr.
12. 1. — 4 1. — 3 1. — 2 1. og þrisvar sinnum 1 1. Er hann
mælist 43 cm. felldar af fyrir öxlinni, annan hvorn pr. juisvar
s. 7 1. Ilœgri boöungur prjónaður gagnstætt hinum vinstri, en
með átta hnappagötum, sem prj. jiannig: Prjónaðar 3 1., felldar
af 3 1., prjónaðar 9 1., 3 1. felldar af. I næstu umf. eru lykkj-
urnar sem felldar voru af fitjaðar upp að nýju. Fyrstu hnappa-
götin eru prjónuð 14 cm. frá uppfitjun, hin með 8,5 cm. milli-
bili. Ef kápan er á dreng eru hnappagötin prjónuð á vinstra
boðung. — Ermar: Fitjaðar upp 50 1. og prjónaðir 14 pr.
garðaprj. Þá aukið í báðum megin með tveggja cm. millibili
10 sinnum 1 1. (70). Þegar ermin mælist 25,5 cm. tekið úr
annan hvorn pr. 10 sinnum 1 1. Síðan 6 sinnum á víxl 2 1.
og 1 1. Þær 14 1. sem eftir eru felldar af. — Vasalokin: Fitjaðar
upp 2 1. og prj. garðaprjón. Aukið í báðum megin annan hvorn
pr. fjórum sinnum 1 1. (10). Nú er prjónið klofið í miðju og
hvor helmingurinn prj. 7 cm. Þá aftur allar 1. á sama prjón og
tekið úr annan hvorn pr. 4 sinnum 1 1., síðast 2 saman. —
Kraginn: Fitjaðar upp 65 1. prjónað slétt prj. en báðum megin
5 1. garðaprj. (eins og sést á myndinni). Á 5. pr. aukið í 5 1.
(70). Þá aukið í annan hvorn pr. næst garðaprj. 5 sinnum 1 1.
(80). Þegar kraginn mælist 5 cm. prjónaðir 8 pr. garðaprjón
og fellt af. Kraginn festur innan á og hálsmálið látið ganga inn
í kragann, svo hann sitji vel.
PrjóniS og saumiö.
Kafli úr bréfi: Oft öfunda ég þær konur í kaupstöð-
um, sem geta komizt á námskeið til að læra hitt og
þetta, sem hugurinn girnist. Við sveitakonur erum oft
afskiptar hvað sum gæði lífsins snertir, en aftur höf-
um við nokkuð fram yfir kynsystur okkar í kaupstöð-
unum, og það er hin lifandi náttúra í kringum okkur,
sem margar ánægjustundir getur veitt. — Svo þakka
ég fyrir allt skemmtilegt og fróðlegt, sem í blaðinu
birtist. Sérstaklega fyrir mynztrin og prjónauppskrift-
irnar og snið á krakkaföt. Ég á tvær dætur og hef oft
hæði prjónað og saumað á þær upp úr blaðinu, auk
þess saumað í púða og dúka. Sjálfs er höndin hollust,
og mesta ánægju hef ég af því, sem ég hef gert sjálf,
‘hvort sem það er fallegur púði, barnakjóll eða prjónuð
peysa. Ég segi stundum, að allir hafi einhverjar ástríð-
ur, og mín er: öll handavinna, hverju nafni sem nefnist.
M. M.
Með þessari litlu rós má fegra dúka af öllum stærð-
um, með því að sauma hana í horn eða reiti efnis, sem
oft fæst þar til gert í hannyrðabúðunum. — Sjálf rósin
er saumuð í þrem litum, — blöðin í tveim grænum lit-
um og stilkar brúnleitir. — Ath. Stilkurinn til hægri
á að Hggja inn að rósinni, en ekki út frá blöðunum.
í nýútkomnu erlendu tímariti svarar ráðunautur blaðsins
tuttugu og þriggja ára gamalli stúlku upp á spurningu sína:
„Hvort hún gæti ekki neitað að stiga fæti sínum inn til tengda-
foreldranna?“ — Það getið þér auðvitað, en það væri mjög
kuldalegt af yður, þar sem þér elskið manninn, og hann fyiir
sitt leyti ann foreldrum sínum.
6
NÝTT KVENNABLAÐ