Morgunblaðið - 02.09.2009, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. SEPTEMBER 2009
Það er800 7000 • siminn.is
E
N
N
E
M
M
/S
ÍA
/N
M
38
95
5
Aukinn hraði
og meira
gagnamagn
INTERNET SÍMANS
Internet Símans er annað og meira en venjuleg nettenging
Þú hefur möguleika á hraðari nettengingu, meira gagnamagni, öruggri gagnageymslu,
Sjónvarpi Símans með fjölda sjónvarpsstöðva og vídeóleigu heima í stofu. Auk þess
fylgir Netvarinn öllum áskriftarleiðum. Skráðu þig í eina af nýju leiðunum.
Nýjar og betri áskriftarleiðir
Eftir Grétar Júníus Guðmundsson
gretar@mbl.is
STJÓRN Hf. Eimskipafélags Ís-
lands leggur til að nafni félagsins
verði breytt í A1988 hf. á hluthafa-
fundi hinn 8. sept-
ember næstkom-
andi. Stjórnin
leggur einnig til
að heimildir
hennar til að
framselja allar
eigur félagsins til
skiparekstrar til
dótturfélagsins
Eimskip Ísland
ehf. verði stað-
festar. Hlutafé
þess félags verði þannig hækkað og í
staðinn fáist sem gagngjald hluti í
Eimskip Ísland ehf. Jafnframt er
lagt til að hluthafafundurinn stað-
festi heimild til stjórnar félagsins að
framselja þessa hluti í Eimskip Ís-
land ehf., ásamt öllum öðrum eignum
félagsins, að frátöldum 51% hlut í
Eimskip Tango ehf., til félagsins
L1003 ehf. gegn afhendingu hluta í
L1003 ehf.
Engin sérstök merking
Sindri Sindrason, stjórnarformað-
ur Eimskipafélagsins, segir að
skipafélagið muni bera nafnið Eim-
skipafélag Íslands. Gamla móður-
félaginu sé hins vegar ætlað að lifa
þangað til búið verður að ganga frá
ákveðnum hlutum. Að því loknu
muni það sem eftir standi í því renna
inn í skipafélgið. Hann segir að nafn-
ið A1988 hafi enga sérstaka merk-
ingu.
„Þetta snýst um að verja gamla
nafn Eimskipafélags Íslands, en ekki
að það verði á skúffufyrirtæki sem
ætlað er að ganga frá lausum endum.
Skipin og bílarnir munu því sigla og
aka undir nafni Eimskipafélagsins.
Þetta snýst um að viðhalda nafninu á
réttri starfsemi,“ segir Sindri.
Í tilkynningu frá Eimskipafélag-
inu segir að framangreind tillaga sé
gerð sem liður í fjárhagslegri end-
urskipulagningu félagsins í fram-
haldi af samþykkt nauðasamnings
félagsins sem staðfestur var þann 28.
ágúst 2009 af Héraðsdómi Reykja-
víkur. „Í samningum sem gerðir
voru í tengslum við nauðasamnings-
frumvarp félagsins var gert ráð fyrir
að skiparekstur félagsins yrði færð-
ur til nýs félags, L1003 ehf. (sem síð-
ar mun fá nafnið Eimskipafélag Ís-
lands ehf.). Samkvæmt
nauðasamningi félagsins munu
kröfuhafar þess fá hluti í L1003 ehf.
sem greiðslu á kröfum sínum á hend-
ur félaginu,“ segir í tilkynningunni.
Miklar breytingar
Eignarhald Hf. Eimskipafélags
Íslands breyttist mikið í september
árið 2003 í tengslum við miklar hrók-
eringar í íslensku viðskiptalífi.
Landsbankinn og tengdir aðilar,
Björgólfsfeðgar og Magnús Þor-
steinsson, náðu þá yfirráðum yfir fé-
laginu. Í kjölfarið var félaginu skipt
upp í tvennt, í flutningaarminn Eim-
skip og fjárfestingaarminn Burðar-
ás. Í janúr 2004 var sjávarútvegs-
armur Eimskipafélagsins seldur og í
mars sama ár var nafni Hf. Eim-
skipafélags Íslands breytt í Burðar-
ás hf. Dótturfélagið Eimskip fékk þá
nafnið Eimskipafélag Íslands.
Í lok maí 2005 keypti eignarhalds-
félagið Avion Group, sem Magnús
Þorsteinsson var stærsti hluthafinn
í, Eimskipafélagið af Burðarási. Í
nóvember 2006 var svo ákveðið að
breyta nafni Avion Group í Hf. Eim-
skipafélag Íslands.
Tap Eimskipafélagsins á síðasta
rekstrarári var mikið. Í júní s.l. ósk-
aði félagið eftir nauðasamningum.
Eimskipafélagið
verður áfram
Sindri
Sindrason
Í HNOTSKURN
» Landsbankinn og tengdiraðilar náðu yfirráðum yfir
Eimskipafélaginu 2003. Var
því skipt upp í tvö félög.
» 2004 var nafni Eimskipa-félagsins breytt í Burðar-
ás. Dótturfélagið Eimskip
varð Eimskipafélagið.
» 2005 keypti Avion Eim-skipafélagið.
» 2006 var Avion breytt íEimskipafélag Íslands.
Ljósmynd/Lárus Karl Ingason
Goðafoss Skipafélagið mun bera nafnið Eimskipafélag Íslands um ókomna
framtíð að sögn Sindra Sindrasonar, stjórnarformanns félagsins.
TAP á rekstri
VBS Fjárfesting-
arbanka nam á
fyrstu sex mán-
uðum ársins 4,3
milljörðum
króna. Á sama
tímabili í fyrra
var 880 milljóna
króna tap á
rekstri bankans.
Mikið munar um virðisrýrnun út-
lána og annarra eigna upp á 5,2
milljarða króna, en í fyrra nam
rýrnunin 1,1 milljarði. Eiginfjár-
hlutfall er 15,2%.
Þá vekur athygli að í reikningi
fyrirtækisins er að finna 2,2 millj-
arða króna tekjufærslu, sem m.a. er
sagður hagnaður sem myndast hafi
í skuldauppgjörum við lán-
ardrottna bankans. Í samtali við
Morgunblaðið segir Jón Þórisson,
forstjóri VBS, að um sé að ræða
einskiptisfærslu. „Við vorum í við-
skiptum við banka, sem ekki eru
lengur starfandi. Voru þessi við-
skipti gerð upp og seldum við eign-
ir í því skyni. Þessar eignir höfðu
þegar verið virðisrýrðar í bókum
okkar, en þar sem söluhagnaður af
eignunum var meiri en við höfðum
gert ráð fyrir gekk þessi virð-
isrýrnun að nokkru til baka. Þá
höfðum við gjaldfært vaxtakostnað
vegna þessara viðskipta, sem einn-
ig gekk til baka eftir að þau voru
gerð upp.“ bjarni@mbl.is
Fjögurra milljarða tap
Jón Þórisson