Morgunblaðið - 02.09.2009, Qupperneq 30
30 Minningar
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. SEPTEMBER 2009
✝ Agna GuðrúnJónsson (Agne
Gudrun Jensen)
fæddist í bænum Hee
við Ringkøbing í
Danmörku 29. nóv-
ember 1915. Hún
andaðist á Hrafnistu,
Vífilsstöðum, 24.
ágúst síðastliðinn.
Foreldrar hennar
voru Niels Signe
Jensen og Jens Peter
Ley Jensen, úr-
smíðameistari frá
Ringkøbing. Agna
var næstyngst fimm systkina,
þeirra Edith Alfrida Sörensen, Jo-
hannes Jensen, Werner Jensen og
Davidsen. Síðan lærði hún og
vann í nokkur ár sem kokkur á
hinu þekkta veitingahúsi Fras-
catti í Kaupmannahöfn. Haustið
1945 kemur Agna til Íslands og
vann á sumrin á Hótel Garði en á
veturna tók hún að sér veislur,
m.a. fyrir sendiráð og hið op-
inbera. Árið 1955 stofnuðu Agna
og Halldór fyrirtækið Halldór
Jónsson hf. og 1961 fyritækið
Vogafell hf. (Lystadún). Vann
Agna síðan við fyrirtækin með
Halldóri og sá meðal annars um
framleiðslu þess á snyrtivörum.
Agna var virkur þátttakandi í
starfi Thorvaldsensfélagsins og
Den danske kvindeklub, ásamt því
að starfa fyrir Sjálfstæðisflokkinn
á árum áður.
Útför Ögnu fer fram frá Foss-
vogskirkju í dag, 2. september, og
hefst athöfnin kl. 15.
Nanny Sörensen.
Hinn 10. janúar
1948 giftist Agna
Halldóri Jónssyni
stórkaupmanni, f.
16.11.1916, d.
23.2.1977. Foreldrar
hans voru Kristín
Halldórsdóttir hús-
freyja og Jón Sigfús-
son bóndi á Hallfreð-
arstaðahjálegu í
Hróarstungu.
Agna ólst upp í
Hee og stundaði
hefðbundna skóla-
göngu en fór síðan ung til Kaup-
mannahafnar til að læra hjá hinu
virta smurbrauðsfyritæki Oscar
Það var árið 1983 sem við kynnt-
umst Ögnu þegar ég var ráðinn til
starfa hjá Halldóri Jónssyni hf., þá
nýútskrifaður viðskiptafræðingur.
Við náðum strax vel saman og ekki
skemmdi það fyrir þegar hún vissi
að ég væri ættaður austan af Hér-
aði eins og Halldór hennar, enda
þekkti hún vel föðurfólk mitt.
Agna var ákveðin og hafði sterk-
ar skoðanir, bæði á mönnum og
málefnum og var aldrei feimin við
að láta skoðanir sínar í ljós, hver
sem í hlut átti. Mér er minnis-
stætt, þá nýorðinn framkvæmda-
stjóri, þegar Lystadún brann árið
1987 og ég spurði hana hvað við
ættum að gera. Hún svaraði að
bragði: „Við byggjum fyrirtækið
upp aftur.“ Þótt hún væri orðin 71
árs, þá var hún ótrúlega framsýn
og stóð að fullu á bak við áform
okkar um að byggja hús undir
starfsemi fyrirtækjanna að Skútu-
vogi 11 og fluttum við þangað 1.
október 1988.
Agna var meistarakokkur og
voru ófá matarboðin í frikkadellur
eða gúllas í Barðavoginum. Ekki
skemmdi það fyrir að fá einn kok-
teil á undan matnum, enda var
kokteillinn hennar Ögnu frægur
meðal starfsmanna og vina hennar.
Það var ætíð mikið tilhlökkunar-
efni hjá henni þegar eitthvað var
um að vera hjá fyrirtækinu, þá
kom hún alltaf til mín og sagði:
„Verðum við ekki að hafa kokteil?“
Agna var mjög sjálfstæð og kom
keyrandi í fyrirtækið nánast dag-
lega til að athuga hvernig rekst-
urinn gengi og hitta „börnin sín“
en það voru starfsmennirnir í
hennar huga. Hún vildi fylgjast
með og var áhugi hennar á velferð
fyrirtækisins vakandi allt til hinstu
stundar. Reglulega heimsótti hún
Danmörku og keyrði þá sjálf á
bílaleigubíl milli ættingja og vina.
Það var því Ögnu mikið áfall
þegar hún datt og brotnaði í nóv-
ember 2004 og var þar með kippt
út úr sínu daglega lífi, þá 89 ára
gömul og varð upp á aðra komin.
Eftir það fór hún í aðgerð en varð
háð göngugrind og hjólastól upp
frá því. Hún flutti eftir sjúkra-
húslegu í apríl 2005 á Hrafnistu,
Vífilsstöðum.
Hún Agna er farin í sína hinstu
för. Þrátt fyrir háan aldur og að
við vitum það eitt að við munum öll
deyja er þetta samt mjög skrítið.
Agna hefur verið mjög stór þáttur
í lífi okkar fjölskyldu og samskipti
mjög náin sl. 26 ár. Allar ferðirnar
hennar á sunnudögum í heimsókn
til okkar og ferðirnar okkar til
hennar í Barðavoginn og á Vífils-
staði. Alltaf fundum við fyrir miklu
þakklæti og hlýju orðin og brosið
hennar sem tók á móti okkur lifir
með okkur.
Við viljum nota tækifærið og
þakka öllu því frábæra starfsfólki
sem annaðist hana á „miðlaut“ á
Vífilsstöðum fyrir frábæra um-
mönnun. Enda átti hún margar
góðar vinkonur meðal starfsfólks-
ins. Ein þeirra sagði okkur: „Hún
var ein sú eftirminnilegasta, því
hún var sérstakur karakter og hélt
honum allt til hinstu stundar.“
„Hvad er livet? Pust í sivet.“ Hvað
hefur þú ekki sagt þetta oft í gegn-
um tíðina?
Hvað var þetta?
Hvad er livet?
Pust i sivet
Plask i vandet
Og ikke andet.
Já, hvað er lífið annað?
Elsku Agna. Guð geymi þig og
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Kristján og Guðrún.
Kveðja
frá Thorvaldsensfélaginu
Í dag kveðjum við Ögnu Guð-
rúnu Jónsson sem var mæt og góð
félagskona í Thorvaldsensfélaginu.
Agna gekk í félagið 28. október
árið 1970 og vann félaginu vel á
meðan heilsan leyfði.
Hún var vönduð og traust kona
og mikilvirk í sjálfboðastarfi þegar
á þurfti að halda, t.d. við sölu á
jólamerkjum félagsins, sölu á
happdrættismiðum og fleira í þeim
dúr.
Margar og góðar gjafir færði
hún félaginu í vinninga og verð-
laun þegar unnið var að fjáröflun.
Á Thorvaldsensbazarnum vann
hún einnig af mikilli fórnfýsi og
með glöðu geði í mörg ár.
Það fór ekki á milli mála að
henni þótti ákaflega vænt um
Thorvaldsensfélagið og vildi veg
þess sem mestan.
Hún var sönn félagskona sem
tók þátt í fundum og störfum fé-
lagsins af heilum hug.
Thorvaldsensfélagið á Ögnu
mikið að þakka eftir áratugalangt
og farsælt sjálfboðastarf. Við
kveðjum nú heilsteypta og góða fé-
lagskonu með virðingu og þakk-
læti.
Blessuð sé minning hennar.
Sigríður Sigurbergsdóttir
formaður.
Hún varð tæplega 94 ára hún
Agna. Nú er hún farin og gengin
þann veg sem við að lokum leggj-
um öll út á. Við biðjum henni Guðs
blessunar.
Agna var aðdáunarverð kona. Sá
um sig sjálf fram að níræðisaldri,
bjó ein í húsinu sínu, keyrði bílinn
um allan bæ eins og herforingi,
kom daglega í fyrirtækið og fylgd-
ist með. Það voru aðeins síðustu 4
árin sem hún þarfnaðist aðstoðar
og bjó hún á Vífilsstöðum við gott
atlæti sem við erum þakklát fyrir.
Kunnum við starfsfólki Vífilsstaða
bestu þakkir. Hún sagði ávallt að
við starfsmennirnir værum börnin
sín og til marks um það hafði hún
mynd af öllum hópnum fyrir ofan
rúmið sitt. Alla mannfagnaði hjá
fyrirtækinu kom hún á og bjó hún
þá til kokteil fyrir okkur sem er
ómissandi. Og eitt er víst að Ögnu
kokteill verður áfram í heiðurs-
sessi hjá okkur um ókomin ár.
Okkur starfsfólkinu hefur alltaf
liðið vel að starfa hjá Halldóri
Jónssyni enda er starfsaldur hjá
fyrirtækinu óvenju hár og starfs-
andinn til fyrirmyndar.
Agna var sterk kona. Hún varð
fyrir því áfalli að missa mann sinn
snögglega árið 1977, en hún hélt
ótrauð áfram og hún var svo hepp-
in að hafa notið frábærra starfs-
krafta frá stjórnendum fyrirtæk-
isins alveg fram á þennan dag.
Mannlegi þátturinn hefur fengið að
njóta sín sem var að hætti Ögnu og
Halldórs Jónssonar. Bjartsýni var
ávallt höfð að leiðarljósi í lífinu hjá
Ögnu, hún var hugrökk og dugleg.
Viðkvæðið hjá henni var; það þýðir
ekkert að kvarta, maður verður
bara að „hold kjæft og sing med“.
Við starfsmenn Halldórs Jóns-
sonar njótum þess í dag að vinna
hjá þessu góða fyrirtæki sem Agna
og Halldór Jónsson lögðu grunninn
að fyrir 54 árum. Við erum þakklát
fyrir að hafa verið hluti af lífi
hennar. Hún er kvödd af okkur
með virðingu og söknuði.
Guð blessi Ögnu og minningu
hennar.
Fyrir hönd starfsmanna Hall-
dórs Jónssonar ehf.
Ólafía Árnadóttir (Lólý),
Anna Axelsdóttir,
Rósa Rútsdóttir.
Agna Guðrún Jónsson
✝
Okkar innilegustu þakkir til allra sem sýndu samúð
og hlýhug við andlát og útför elskulegs sonar,
föður, stjúpföður og afa,
HARÐAR BARÐDAL,
Brúnastöðum 17,
Reykjavík,
sem lést á Landspítalanum við Hringbraut 4. ágúst.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki krabba-
meinsdeildar 11E fyrir frábæra umönnun.
Sesselja E. Guðnadóttir Barðdal,
Jóhanna I. Barðdal,
Sesselja E. Barðdal,
Bergþóra Fanney Barðdal,
Þórður V. Oddsson, Marta E. Guðmundsdóttir
og barnabörn.
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs
sambýlismanns, föður, tengdaföður og afa,
INDRIÐA ARNARS ADOLFSSONAR
yfirverkstjóra,
Íshússtíg 9,
Keflavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Heimahjúkrunar
Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja fyrir hlýhug og góða umönnun,
einnig til fyrrverandi starfsmanna mötuneytis Varnarliðsins og
starfsfólks Fríhafnarinnar.
Gísli Sigurðsson,
Erlendur Viðar Indriðason, Nazanin Khayatpour,
Eva Yasmin Erlendsdóttir.
✝
Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu
okkur hluttekningu og vinarhug við andlát ástkærs
föður okkar, tengdaföður, stjúpföður, afa og
langafa,
GUÐBJARTS ÞÓRIS ODDSSONAR
málara.
Vilhelm V. Guðbjartsson, Guðrún Ragnarsdóttir,
Ólöf María Guðbjartsdóttir, Jónas Pétur Sigurðsson,
Svanur Guðbjartsson, Ólöf Magnúsdóttir,
Þröstur Guðbjartsson, Patiwat Dipien,
Guðrún Guðbjartsdóttir, Benedikt Bjarni Albertsson,
Unnur Guðbjartsdóttir, Garðar Benediktsson,
Kristín Þóra Guðbjartsdóttir, Sigurður Stefán Jónsson,
Birna Guðbjartsdóttir, Sölvi Rúnar Sólbergsson,
Bára Guðbjartsdóttir, Jón Haukdal Kristjánsson,
Sif Ásthildur Guðbjartsdóttir,
Örn Guðjónsson, Sigurósk Garðarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Lokað
Vegna útfarar SIGURÐAR K. ODDSSONAR þjóðgarðsvarðar á
Þingvöllum verða Fræðslumiðstöð og Upplýsingamiðstöð
þjóðgarðsins lokaðar eftir hádegi í dag.
Þjóðgarðurinn á Þingvöllum.
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð, hlýhug og vináttu vegna andláts og útfarar
ástkærs eiginmanns, sonar, föður, tengdaföður,
afa, bróður og mágs,
HJALTA EINARSSONAR.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á Landspítala við
Hringbraut fyrir góða umönnun.
Gunnhildur K. Kristinsdóttir,
Þorbjörg Valdimarsdóttir,
Ragnheiður Erla Hjaltadóttir, Sigurður H. Jóhannesson,
Viktor Snær Sigurðsson,
Sunna Valdís Sigurðardóttir,
Baldvin Einarsson, Ingibjörg Sigurjónsdóttir.
Elsku amma.
Það var gott að eiga
þig að líka, eins og þú
sagðir við okkur dag-
inn áður en þú fórst.
Þitt starf var farsælt, hönd þín hlý
og hógvær göfgi svipnum í.
Þitt orð var heilt, þitt hjarta milt
og hugardjúpið bjart og stillt.
(Höf. ók.)
Kristín Þorláksdóttir
✝ Kristín Þorláks-dóttir fæddist á
Skútustöðum í Mý-
vatnssveit 8. maí
1920. Hún lést á
Landspítalanum í
Fossvogi 20. ágúst sl.
og fór útför hennar
fram frá Dómkirkj-
unni 26. ágúst.
Meira: mbl.is/minningar
Kossi föstum kveð
ég þig,
kyssi heitt mitt
eftirlæti,
fæ mér nesti fram
á stig, –
fyrst ég verð að
kveðja þig.
Vertu sæll! og mundu
mig
minn í allri hryggð
og kæti!
Kossi föstum kveð
ég þig
kyssi fast mitt
eftirlæti.
(Jónas Hallgrímsson.)
Nú færðu loksins að hitta afa aft-
ur. Þín
Kristín Auður.
Morgunblaðið birtir minningar-
greinar alla útgáfudagana.
Skilafrestur | Ef birta á minn-
ingargrein á útfarardegi verður hún
að berast fyrir hádegi tveimur virk-
um dögum fyrr (á föstudegi ef útför
er á mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað get-
ur birting dregist, enda þótt grein
berist áður en skilafrestur rennur
út. Greinar, sem berast eftir að út-
för hefur farið fram, eftir tiltekinn
skilafrests eða ef útförin hefur ver-
ið gerð í kyrrþey, eru birtar á vefn-
um, www.mbl.is/minningar. Æviá-
grip með þeim greinum verður birt
í blaðinu og vísað í greinar á vefn-
um.
Minningargreinar