Morgunblaðið - 02.09.2009, Side 33
Dagbók 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. SEPTEMBER 2009
Sudoku
Frumstig
6 7
3 2
1 3 5
7 5 4 9 6
6 7
5 2
2 8 4
4 1
9 3
1 7
8 3 7
5
7 4 1 2
4
6 8 3
6 9 4
2 1
7 5 8 3
2 8 1
7 3 9 6 5
5 3 1 7
5 8 3
9
7 8 2
3 4 1
8 7
4 3 1 7 6 8 2 9 5
5 7 8 9 4 2 6 1 3
2 6 9 3 5 1 4 7 8
3 1 2 4 7 9 8 5 6
9 5 7 8 2 6 1 3 4
8 4 6 1 3 5 9 2 7
6 8 3 2 9 7 5 4 1
1 9 4 5 8 3 7 6 2
7 2 5 6 1 4 3 8 9
2 1 7 8 4 3 6 5 9
3 4 9 7 5 6 1 8 2
6 5 8 1 2 9 4 7 3
1 6 4 2 7 5 9 3 8
7 3 5 9 8 4 2 1 6
9 8 2 3 6 1 5 4 7
8 2 1 4 9 7 3 6 5
4 7 6 5 3 2 8 9 1
5 9 3 6 1 8 7 2 4
6 1 2 7 5 8 4 9 3
8 3 4 2 1 9 5 7 6
9 7 5 6 4 3 8 2 1
1 8 3 4 2 7 6 5 9
7 2 6 3 9 5 1 4 8
4 5 9 1 8 6 2 3 7
3 4 7 5 6 1 9 8 2
5 6 8 9 7 2 3 1 4
2 9 1 8 3 4 7 6 5
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er miðvikudagur 2. september,
245. dagur ársins 2009
Orð dagsins: En hvert tré þekkist af
ávexti sínum, enda lesa menn ekki
fíkjur af þistlum né vínber af þyrni-
runni. (Lúkas 6, 44.)
Eitt sinn voru tveir kostir þegarfinna þurfti áningarstað norð-
an Holtavörðuheiðar, Brú og Staðar-
skáli. Nú er bara einn og hann ber
nafnið Staðarskáli. Þegar Víkverji
kom þangað í sumar var staðurinn
eins og umferðarmiðstöð, fullt af
fólki og vart þverfótað fyrir vinum
og ættingjum. Nýi Staðarskáli er
hins vegar fremur óaðlaðandi og hef-
ur fyrir utan nafnið ekkert fengið af
sjarma þess gamla, sem hafði með
sér að vera eins og þar hefði tíminn
numið staðar fyrir nokkrum áratug-
um þannig að í hvert sinn sem þang-
að var komið rifjuðust upp fjöl-
skylduferðalög bernskunnar. Nú er
Staðarskáli bara enn ein vega-
sjoppan og að auki voru pulsurnar
súrar kvöldið, sem Víkverji átti leið
um.
x x x
Veðrið í höfuðborginni hefur veriðmeð gott í sumar. Víkverji hef-
ur oft brugðið sér út fyrir borgina á
undanförnum vikum og reyndar yf-
irleitt verið í ágætisveðri, en alltaf
reyndist hlýrra og sólríkara í
Reykjavík. Eina helgina dvaldi Vík-
verji í rigningu á Sauðárkróki á með-
an sólin skein í Reykjavík og aðra í
roki á Snæfellsnesi á meðan blanka-
logn var í Reykjavík og átján stiga
hiti.
x x x
Íslenska kvennalandsliðið stóð sigmeð prýði í Finnlandi þótt upp-
skeran yrði rýr í stigum talið. Liðið
var í sterkasta riðlinum á mótinu og
hefði ugglaust fengið meira út úr
leikjum sínum hefði það lent í öðrum
riðli. Ekki þýðir að sýta það, heldur
blása í herlúðra fyrir riðlakeppnina
fyrir næsta heimsmeistaramót.
Næsti leikur verður gegn Eistum á
Laugardalsvelli fimmtudaginn 17.
september. Hins vegar verður
spennandi að fylgjast með því hvern-
ig hinum liðunum þremur í riðlinum,
Þjóðverjum, Frökkum og Norð-
mönnum, sem öll komust áfram,
mun vegna í átta liða úrslitum. Það
skyldi aldrei fara svo að þrjú lið úr
dauðariðlinum verði í fjögurra liða
úrslitum? víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 höggs út í loft-
ið, 8 öldu, 9 þoli, 10
grænmeti, 11 veiða, 13
vísa veg, 15 skammt, 18
mælieining, 21 hestur,
22 ósanna, 23 ungbarn,
24 óhemja.
Lóðrétt | 2 duglegar, 3
tilbiðja, 4 iðinn, 5 æli, 6
áll, 7 ósoðna, 12 liðin tíð,
14 málmur, 15 svengd,
16 reiki, 17 fell, 18 vaxin,
19 héldu, 20 keyrir.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 topps, 4 burst, 7 síðan, 8 teppi, 9 nýt, 11 apar,
13 bali, 14 úrill, 15 barm, 17 Ægir, 20 úti, 22 lýsir, 23
losti, 24 arðan, 25 neiti.
Lóðrétt: 1 tuska, 2 peðra, 3 senn, 4 bætt, 5 rupla, 6 teiti,
10 ýmist, 12 rúm, 13 blæ, 15 bylta, 16 ræsið, 18 gusti, 19
reiki, 20 úrin, 21 ilin.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. e4 c5 2. Rc3 e6 3. f4 d5 4. Rf3 dxe4
5. Rxe4 Rc6 6. d3 Rh6 7. g3 b6 8.
Bg2 Bb7 9. Bd2 Rf5 10. O-O Be7 11.
Rf2 Dc7 12. c3 O-O 13. Rg5 Bxg5 14.
fxg5 Re5 15. Bf4 Bxg2 16. Kxg2
Dc6+ 17. Kh3 Rg6 18. Re4 Had8 19.
Df3 Dd5 20. Had1 Dxa2 21. Dh5
Dxb2 22. Bc1 Dc2 23. Hd2 Db3 24.
Rf6+ gxf6 25. gxf6 Dxc3 26. Hdf2
Hxd3 27. Bb2
Staðan kom upp á opnu móti sem
lauk fyrir skömmu í Olomouc í Tékk-
landi. Lenka Ptácníkova (2258) hafði
svart gegn Dominic Freyberg (2191)
frá Þýskalandi. 27… Hxg3+! og hvít-
ur gafst upp enda mát í næsta leik.
Íslandsmótið í skák, landsliðsflokkur,
hófst í gær í Bolungarvík og eru
skákir mótsins sýndar í beinni út-
sendingu á netinu. Nánari upplýs-
ingar eru á www.skak.is.
Svartur á leik
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Ástin er blind.
Norður
♠4
♥Á863
♦Á754
♣Á732
Vestur Austur
♠ÁK107 ♠DG932
♥G95 ♥1072
♦K9 ♦G8
♣DG85 ♣K104
Suður
♠865
♥KD4
♦D10632
♣96
Suður spilar 5♦.
Bridsspilarar vita manna best að
ástin er blind. Hver hefur ekki orðið
ástfanginn af hundunum sínum og
meldað eins og vitlaus maður? „Ég var
svo hrifinn af skiptingunni, makker?“
er þekkt viðbára þegar illa fer. Suður
var alvarlega ástfanginn. Vestur vakti
á grandi og austur yfirfærði í spaða.
Vestur sagði 3♠ og nú doblaði norður
til úttektar. Einhverra hluta vegna féll
suður fyrir skiptingunni og stökk í 5♦.
Út kom ♠K og ♣D í öðrum slag.
Hvernig á nú að halda lífi í ástinni?
Sagnhafi var sannur riddari: Hann
tók á ♣Á, spilaði hjarta fjórum sinnum
og henti laufi heima. Var þá með
trompleguna að ofan í huga: ♦Kx í
vestur og ♦Gx í austur. Það er sama
hvor mótherjinn trompar fjórða hjart-
að – tígulslagurinn fellur dauður niður
eins og skorinn dreki.
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Þú hefur orðið fyrir vonbrigðum
og þarft því að gera þér grein fyrir
hvaða væntingar þú gerir til annarra. Þú
mátt eiga von á einhverri þróun í sam-
skiptum þínum við hitt kynið.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Það hefur verið mikið álag á þér að
undanförnu svo þú hefðir gott af því að
komast út úr bænum um helgina.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Nú ertu kominn með lausn á
vandamáli sem hefur verið að naga þig
að undanförnu. Reyndu að finna jafn-
vægi svo þú getir heyrt svar hjarta þíns.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Vinir fara yfir strikið í einlægri
viðleitni sinni til þess að hjálpa þér. Ein-
beittu þér að þeim verkefnum sem fyrir
liggja og þá sjá aðrir þínar bestu hliðar.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Þú hefur lagt hart að þér og ert
þreytt/ur og vilt helst að aðrir taki við
ábyrgðinni. Styrkur þinn mun leiða þig
áfram og ryðja öllum hindrunum úr vegi.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Þetta er góður dagur til félagslífs,
sérstaklega til að leika sér við börn.
Náðu valdi á lífi þínu í dag með afdrátt-
arlausri yfirlýsingu.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Enginn veit að óreyndu hvern mann
annar hefur að geyma. Gefðu þér tíma til
þess að fara rækilega í gegnum málin og
gerðu viðeigandi ráðstafanir.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Þú ert að skilja hvað skiptir
þig mestu máli. Sýndu öðrum í fjölskyld-
unni þolinmæði og mundu að allar fjöl-
skyldur ganga einhvern tímann í gegn-
um erfiðleika.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Það er upplagt að nota dag
sem þennan til þess að velta fyrir sér
hvernig maður skuli halda áfram. Aðal-
málið er að vera sáttur við sjálfan sig.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Þegar verkefnaskráin er orðin
hlaðin eins og hjá þér er nauðsynlegt að
forgangsraða. Vertu fyrirmyndar læri-
faðir með því að leiðbeina en ekki gagn-
rýna.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Þú stendur þig ekkert endi-
lega betur þótt þú undirbúir þig rosalega
mikið. Skyldan kallar svo þú þarft að
gera þitt besta í stöðunni.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Þig langar að kaupa eitthvað
verulega fallegt í dag, jafnvel einhvern
dýran munað. Flestar breytingar verða
vegna hversdagslegra hluta.
Stjörnuspá
2. september 1876
Kveikt var á fyrsta götu-
ljóskerinu í Reykjavík. Þetta
var steinolíulukt á allháum
stólpa neðst í Bakarabrekku,
sem nú heitir Bankastræti.
2. september 1932
Fossvogskirkjugarður í
Reykjavík var vígður þegar
öldungur og ungur drengur
voru jarðsettir. „Einkennileg
og hrífandi jarðarför,“ sagði í
Morgunblaðinu. „Var þar sam-
an kominn múgur manna.“
2. september 1958
Freigátan Eastbourne tók níu
varðskipsmenn af Þór og Mar-
íu Júlíu sem höfðu staðið
breska togarann Northern
Foam að ólöglegum veiðum.
Eastbourne hafði Íslend-
ingana í haldi í ellefu sólar-
hringa.
2. september 1967
Brúin yfir Jökulsá á Breiða-
merkursandi var vígð. Þetta
var önnur lengsta hengibrú
landsins, 110 metra löng. Þar
með komust Öræfingar í ak-
vegasamband við aðra lands-
hluta þó enn væru nokkrar ár
óbrúaðar á leiðinni frá Höfn.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist…
Ásta María
Eggertsdóttir,
fyrrverandi
framkvæmda-
stjóri Svæðis-
skrifstofu, nú-
verandi dreifing-
araðili Herbalife,
er 70 ára í dag,
miðvikudaginn 2.
september. Í tilefni þess verður hún
með opið hús, í kaffi og afmælis-
knús, í safnaðarheimili Fella- og
Hólakirkju í dag. Hún afþakkar
blóm og gjafir.
70 ára
STEINDÓR Andersen, kvæðamaður og fyrrver-
andi sjómaður, ætlar ekki að halda upp á afmæl-
isdaginn þar sem hann segist ekki gera neinn
greinarmun á honum og öllum öðrum dögum. „Ég
var alveg búinn að gleyma afmælinu. Mundi
reyndar eftir því fyrir nokkrum dögum en þú
varst að minna mig á það núna,“ segir hann þegar
blaðamaður slær á þráðinn til hans.
Það er því ekki til neins að spyrja Steindór um
eftirminnilega afmælisdaga en auðveldara reynist
að spjalla við hann um hans aðaláhugamál; vísna-
gerð, kvæðalög og gömlu rímnalögin. Steindór
hefur gefið út geislaplötur, bæði einn síns liðs og í samvinnu við Sigur
Rós og Hilmar Örn Hilmarsson, og segist nú vera að leggja drög að
nýrri plötu. „Annars hef ég verið að reyna að fá einhvern til að gefa
út gamlar hljóðritanir frá Kvæðamannafélaginu Iðunni. Það er svo
viðamikið verk að það þarf styrki í það en við gáfum út árið 2004 heil-
mikið rit og fjóra diska sem voru hljóðritanir frá 1935-6. Það þarf að
gefa út annað eins einhvern tímann þegar ríkið opnar budduna en það
verður nú seint,“ segir Steindór. „Það er ekki mikill áhugi á því að
halda þessari gömlu menningu lifandi.“ ylfa@mbl.is
Steindór Andersen kvæðamaður 55 ára
Gleymdi afmælisdeginum
Nýbakaðir
foreldrar?
Sendið mynd af
barninu til birtingar í
Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt
að senda mynd af barninu
með upplýsingum um
fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum
foreldra. Einnig má senda
tölvupóst á barn@mbl.is