Morgunblaðið - 10.09.2009, Blaðsíða 16
16 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 2009
LEGGJA ber enn meiri áherslu á að fjarlægja og binda
kolefni í jörðu til að berjast gegn loftslagsbreytingum af
manna völdum. Þetta er inntak áskorunar helstu jarðvís-
indamanna heims til þeirra þjóðarleiðtoga er sækja lofts-
lagsráðstefnuna í Kaupmannahöfn í desember næstkom-
andi. Jarðvísindamennirnir sóttu ráðstefnu hérlendis um
helgina um bindingu koltvíoxíðs (koltvísýrings) í jörð.
Í yfirlýsingu vísindamannana segir að binding kol-
tvíoxíðs í andrúmslofti með öruggum hætti neðanjarðar
verði að vera ein þeirra aðferða sem farnar verði til að
koma í veg fyrir loftslagsbreytingar. Mun ódýrara sé að
bregðast við vandræðunum nú en að mæta afleiðingum
hlýnunar jarðar síðar.
Á ráðstefnunni voru kynnt verkefni, sem miða að því
að fanga koltvíoxíð og farga því. Megináherslan var á ís-
lenska CarbFix verkefnið sem gengur út á að fanga kol-
tvíoxíðgas og steingera það neðanjarðar. ben@mbl.is
Vilja aukna áherslu á kol-
efnisbindingu neðanjarðar
Jarðvísindamenn senda
áskorun á loftslagsráðstefnu
HALLDÓR Hall-
dórsson, bæjar-
stjóri á Ísafirði,
ætlar ekki að
gefa kost á sér
sem oddviti sjálf-
stæðismanna í
Ísafjarðarbæ og
bæjarstjóraefni í
sveitarstjórnar-
kosningum árið
2010. Halldór hefur gegnt bæjar-
stjórastarfinu frá vorinu 1998.
Halldór tilkynnti ákvörðun sína á
fundi í bæjarmálafélagi
Sjálfstæðisflokksins í Ísafjarð-
arbæ. Hann segir þetta ekki þýða
að hann sé hættur í stjórnmálum.
Tíminn verði að leiða í ljós á hvaða
vettvangi hann muni starfa í fram-
tíðinni.
Í samtali við Morgunblaðið sagði
Halldór að ekki bæri að skilja orð
sín svo að hann ætlaði að snúa sér
að landsmálunum. Hann kvaðst
telja að menn ættu ekki að vera of
lengi í sama starfi og alls ekki sem
kjörnir fulltrúar.
Forystumenn og áhrifafólk í hópi
sjálfstæðismanna í þremur sveit-
arfélögum hafa haft samband við
Halldór á undanförnum vikum og
falast eftir liðsstyrk hans. „Það er
ekkert nýtt, það gerðist líka 2002
og 2006,“ sagði Halldór. Hann
sagðist ekki hafa tekið neina af-
stöðu til þessara málaleitana enn
sem komið væri. gudni@mbl.is
Falast eftir
bæjar-
stjóranum
Halldór
Halldórsson
Breytingar á Ísafirði
„ÁSTANDIÐ er þannig hjá okkur að við erum í
rauninni algjörlega einangraðar,“ segir Ásgerð-
ur Jóna Flosadóttir, formaður Fjölskylduhjálpar
Íslands. Með þessum orðum vísar hún í slæma
aðkomu að húsinu sem Fjölskylduhjálpin leigir
af Reykjavíkurborg. „Við höfum þolað þetta
núna á sjöunda ár, en nú er þetta farið að vera
erfiðleikum háð. Það er lokað algjörlega á okkur
Eskihlíðarmegin og svo er bara göngustígur
Skógarhlíðarmegin.“ Þetta segir Ásgerður Jóna
verða til þess að þeir sem eru að afhenda vörur
þurfi að leggja við Skógarhlíðina og trilla vör-
unum alla leið þaðan að húsinu. „Þetta er alveg
gríðarlegur burður. Svo er þetta líka mjög slæm
aðstaða fyrir skjólstæðinga okkar,“ segir hún.
Reynt hefur verið að tala við Reykjavíkurborg
af og til vegna aðstæðnanna. „Það hefur bara
ekki gengið,“ segir Ásgerður Jóna. „Það er síðan
verra, að það er alveg gríðarleg fúkkalykt í hús-
inu og hefur verið lengi. Þetta er í rauninni eng-
inn mannabústaður.“
Lausnin, segir Ásgerður Jóna, getur falist í að
fjarlægja gróður austan megin við húsið, þar
sem yrði mögulegt að afferma flutningabíla.
Auk þess er stefnt að því að byggja skjólhýsi fyr-
ir framan húsið til að verja skjólstæðinga fyrir
veðri og vindum. sia@mbl.is
Slæmt aðgengi að húsnæði Fjölskylduhjálpar Íslands
Afhending vöru er erfiðleikum háð
Morgunblaðið/Heiddi
Sigurður Reynir Gíslason jarð-
efnafræðingur, formaður vísinda-
nefndar íslenska CarbFix-
verkefnisins, segir að með áskor-
uninni vilji vísindasamfélagið
senda skilaboð um að nauðsyn-
legt sé að setja aukna fjármuni í
alþjóðlega sjóði svo takast megi
að ýta þessum lausnum áfram.
„Við eyðum ótrúlegri orku í að
skrapa saman fjármuni fyrir verk-
efnið. Það bjargar okkur hvað
Orkuveita Reykjavíkur hefur staðið að baki okkur,
þrátt fyrir erfiðleika hjá þeim.“ Þannig sé t.d. ekki
um auðugan garð að gresja í sjóðum í Evrópu til
verkefna á borð við þetta.
Fé til rannsókna nauðsynlegt
Sigurður Reynir
Gíslason
„SVONA skemmdarverk eru fúl-
mennska,“ segir Garðar Þorbjörns-
son, eigandi verktakafyrirtækisins
Urðar og grjóts. Í fyrrinótt voru
skemmdarverk unnin á vélum og
tækjum verktaka sem vinna að
byggingu Háskólans í Reykjavík við
rætur Öskjuhlíðar. Þegar starfs-
menn Urðar og grjóts mættu til
vinnu í gærmorgun var búið að
skemma vinnuvélar sem þeir voru
með á svæðinu: gröfur, ýtu, hefil og
valtara. Klippt hafði verið á olíu-
slöngur, rafmagnsleiðslur og leiðslur
í vökva- og smurkerfi. Þá höfðu
tankar verið fylltir af sandi og vatni.
„Eftir því sem liðið hefur á daginn
hafa sífellt meiri skemmdir komið í
ljós. Lauslega áætlað er tjón mitt
eitthvað á fjórðu milljón króna og ég
er ótryggður,“ segir Garðar sem tel-
ur ljóst að flokkur manna hafi verið
á ferð sem hafi notað öflug verkfæri
til skemmdarverkanna.
Síðdegis í gær hafði Garðari og
hans mönnum tekist að koma einni
af vinnuvélum sínum í gang til
bráðabirgða og öðrum átti að koma á
verkstæði.
„Ég kem hingað með aðrar vélar
sem ég á svo framkvæmdir stöðvist
ekki,“ sagði Garðar.
Lögregla kom á vettvang við Há-
skólann í Reykjavík gærmorgun; tók
skýrslur og myndir. Ekki fengust
upplýsingar í gærkvöld um fram-
gang rannsóknarinnar.
sbs@mbl.is
Skemmdir unn-
ar og mikið tjón
Morgunblaðið/RAX
Skaði Verktakinn, Garðar Þorbjörnsson hjá Urð og grjóti, varð fyrir miklum skaða af völdum skemmdarvarga.
Stepp ehf Ármúla 32 Sími 533 5060 www.stepp.is stepp@stepp.is
G
ra
fí
k
a
2
0
0
9
GÓLFEFNI ÞEKKING ÞJÓNUSTA
T E P P I Á H E I M I L I Ð