Morgunblaðið - 10.09.2009, Blaðsíða 32
32 Minningar
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 2009
✝ Guðmundur Ró-bert Ingólfsson
fæddist á Akranesi
15. mars 1952. Hann
lést á Sjúkrahúsi
Akraness 3. sept-
ember sl.
Foreldrar hans eru
Erla Aðalheiður
Hjörleifsdóttir, f.
29.1. 1934, og Ing-
ólfur Hafsteinn
Sveinbjörnsson, f.
26.3. 1932, látinn.
Fósturfaðir Guð-
mundar Róberts er
Daði Kristjánsson, f. 9.10. 1935.
Systkini Guðmundar Róberts eru
Sigrún Hrönn Daðadóttir, f. 14.8.
1956, og Kristján Þröstur Daðason,
f. 20.10. 1960. Eiginkona Kristjáns
er Friðrika Eygló Gunnarsdóttir, f.
21.3. 1962. Börn þeirra: 1. Finn-
bogi Rúnar, f. 8.5. 1996, 2. Að-
alheiður Kristín, f. 10.3. 2000.
Sambýliskona Guðmundar Ró-
berts er Þórný Sigurjónsdóttir, f.
8.10. 1957. Dóttir Þórnýjar er Sig-
rún Birna Grímsdóttir, f. 19.11.
1978. Börn Sigrúnar eru: 1. Grím-
ur Ingi, 10 ára, 2. Haukur Logi, 6
ára, 3. Bergsteinn
Már, 3 ára.
Guðmundur Ró-
bert, eða Robbi eins
og hann var oftast
kallaður, ólst að
miklu leyti upp hjá
móðurömmu sinni,
Guðrúnu Gunn-
arsdóttur á Akranesi,
sem reyndist honum
mjög vel. Hann var
heimilisfastur hjá
ömmu sinni þar til
hún lést 1996 og
reyndist henni ómet-
anlegur þar til yfir lauk. Robbi
lærði vélvirkjun hjá Skipa-
smíðastöð Þorgeirs og Ellerts á
Akranesi og starfaði þar allan sinn
starfsaldur. Vann hann á þeirra
vegum í ýmsum fyrirtækjum.
Robbi var áhugamaður um tónlist
og var duglegur að safna henni.
Var ósjaldan til hans leitað að vera
plötusnúður á samkomum bæj-
arins.
Útför Guðmundar Róberts fer
fram frá Akraneskirkju í dag, 10.
september, kl. 14.
Meira: mbl.is/minningar
Kæri vinur. Nú skilur leiðir um
sinn, það var sárt að þú skyldir þurfa
að láta í minni pokann fyrir þessum
sjúkdómi, sem allir óttast og tekur
svo marga. En þú trúðir á hið ómögu-
lega og vildir ekki gefast upp, þetta
var alltaf að lagast, en svo fór sem
fór, hetjan varð að gefa eftir. Því er
nú verr, aðeins fjörutíu og sjö ára
gamall.
En af hverju þú? Þú sem hafðir bú-
ið þér fallegt heimili og áttir framtíð-
ina fyrir þér, við hlið þér var yndisleg
kona sem unni þér af öllu hjarta og
bar þig á höndum sér, studdi þig í öll-
um veikindunum, betur en nokkur
annar og mátti aldrei af þér sjá, og
hélt í hönd þér til síðustu stundar.
Þökk sé henni fyrir allt og allt.
Við sem kveðjum þig núna trúum
því að þú sért kominn á leiðarenda.
Þar muni bíða þín margar útréttar
hendur, en þar mun eitt faðmlagið
verða best, faðmurinn hennar ömmu
þinnar, þegar hún knúsar drenginn
sinn, og mun aldrei líta af honum eitt
augnablik. Það er trú mín.
Elsku Robbi minn. Það var alltaf
gaman þegar þú komst til okkar. Við
þurftum svo margt að ræða í gamni
og alvöru og það var alltaf svo létt yf-
ir þér, við hlógum oft dátt að gam-
ansemi þinni, en minningin geymir
það. Þetta eru erfiðar stundir fyrir
okkur sem þekktum þig svo vel,
þennan geðþekka dreng sem öllum
vildir vel. Nú sjáum við þig í huga
okkar, brosi þínu og kímni gleymum
við aldrei.
Ég og fjölskylda mín vottum Þór-
nýju og fjölskyldu hans okkar dýpstu
samúð og biðjum góðan guð að blessa
minningu góðs drengs sem gott var
að eiga að vini.
Blessuð sé minning hans,
Sigvaldi.
Elsku Robbi bróðir. Það er erfitt
að trúa því að þú sért farinn frá okk-
ur. Þetta var mikið áfall fyrir okkur
öll sem söknum þín mikið. Þú varst
einstaklega ljúfur í þér og góður vin-
ur. Og skapbetri mann var varla
hægt að finna. Það er svo margs að
minnast. Tónlistin var stór þáttur í
lífi þínu. Þú hlustaðir mikið á alla tón-
list. Á Bítlaárunum óx plötusafnið
þitt hægt og rólega. Oft leitaði maður
til þín ef eitthvert lag þurfti að finna.
Það var alltaf rólegt og notalegt að
koma í heimsókn og hlusta á tónlist
og skoða þær plötur sem þú varst að
kaupa og þá voru auðvitað vinsælustu
lögin tekin upp á kassettu. Þú eign-
aðist marga vini og kunningja í
tengslum við tónlistina og einnig í
gegnum starf þitt hjá Skipasmíða-
stöð Þorgeirs og Ellerts á Akranesi.
En tíminn leið og fyrir rúmum
tveimur árum kom í ljós að Robbi
greindist með alvarlegan sjúkdóm.
Baráttan var mikil og allan tímann
var hann bjartsýnn á að hann hefði
betur en ekki varð við neitt ráðið. Ég
þakka Landspítalanum og Sjúkra-
húsi Akraness fyrir alla þá umönnun
sem honum var veitt í veikindum sín-
um. Ég votta Þórnýju sambýliskonu
hans mína dýpstu samúð og foreldr-
um mínum.
Minning þín er ljós í lífi okkar.
Kveðja,
Kristján.
Við Guðmundur Róbert eða Robbi
vorum systrasynir, báðir fæddir
1952. Mæður okkar voru systur,
fæddar og uppaldar á Akranesi. Móð-
ir mín fór ung í vist til Reykjavíkur
en alltaf voru góð samskipti á milli.
Við Robbi vorum mjög ungir þegar
samvera okkar hófst. Robbi ólst að
miklu leyti upp hjá ömmu okkar á
Mánabraut 6b, Guðrúnu Gunnars-
dóttur og Ásgeiri Guðmundssyni frá
Ófeigsfirði. Amma starfaði við fisk-
vinnslu hjá Haraldi Böðvarssyni, síð-
ar vann hún við þvotta og ræstingar,
síðast í Sementsverksmiðjunni.
Amma var ráðskona hjá honum.
Robbi var mjög hændur að Ásgeiri
enda var hann mjög vingjarnlegur og
hjálpsamur.
Það var eftirsóknarvert hjá borg-
arbarninu að fara á Skagann. Þar var
allt frjálslegra en á mölinni fyrir
sunnan enda leyndust hættur víða.
Leiksvæði barna í Reykjavík um þær
Guðmundur Róbert
Ingólfsson
✝ Kjartan Kári Frið-þjófsson fæddist í
Reykjavík hinn 21.
mars 1958. Hann var
búsettur í Osló en lést
í Tyrklandi aðfaranótt
14. ágúst síðastliðins.
Foreldrar hans eru
Guðrún Sigurð-
ardóttir tækniteikn-
ari, f. 18. maí 1937 í
Reykjavík, d. 26. sept-
ember 1994, og Frið-
þjófur Max Karlsson
viðskiptafræðingur, f.
6. maí 1937. Systkini
Kjartans eru sammæðra Ástríður S.
Valbjörnsdóttir, f. 30. apríl 1960, og
samfeðra þau Sigurlaug Regína, f.
10. september 1961, og Jónas Gauti,
f. 17. júlí 1966.
Kjartan Kári kvæntist Kjersti
Marie Bergtun 1988 í Sandefjord í
Noregi þar sem þau stofnuðu heim-
ili. Þau slitu samvistir
1992. Börn þeirra eru
Kristín Helene, f. 7.
mars 1988, búsett í
Tromsö, og Kjetil
Andreas, f. 3. janúar
1990, búsettur í Osló.
Sambýliskona Kjart-
ans Kára frá árinu
1998 er Aroon Kiraki-
at, f. 1957, frá Taí-
landi.
Kjartan Kári út-
skrifaðist frá versl-
unardeild Verzl-
unarskóla Íslands en
síðar nam hann rekstrarfræði í Osló.
Síðustu 10 árin starfaði hann hjá
flugfélaginu SAS.
Útför Kjartans fór fram hinn 4.
september sl. í Østre Aker-kirkju í
Osló. Minningarathöfn verður hald-
in í Fossvogskapellu fimmtudaginn
10. september kl. 15.
Kári bróðir er dáinn. Hann lést
langt um aldur fram, 51 árs að aldri,
eftir skyndileg veikindi og eftir sitj-
um við harmi slegin.
Kári lifði svo heilbrigðu lífi að það
er erfitt að skilja af hverju hann var
hrifinn á brott svo skyndilega. Hann
átti kærleiksríkt heimili með Aroon,
sambýliskonu sinni til 11 ára. Börnin
hans tvö frá fyrra hjónabandi, Krist-
in Helene, 21 árs, og Kjetil Andreas,
19 ára, komu til að búa hjá honum
fyrir 10 árum og bæði eiga þau nú um
sárt að binda.
Kári var búsettur í Osló sl. 23 ár,
en hann kom eins oft og hann hafði
tök á til Íslands. Fyrir Kára var land-
fræðileg fjarlægð engin fyrirstaða.
Hann á mestan þátt í því að þau
frændsystkinin, þ.e. börnin hans tvö
og dóttir mín Birta Marlen, kynntust
strax á unga aldri og halda góðu sam-
bandi enn í dag, þrátt fyrir að þau
hafi búið alla sína ævi í sitt hvoru
landinu. Ég geymi dýrmætar minn-
ingar af heimsóknum Kára og krakk-
anna til okkar þegar við bjuggum í
Svíþjóð. Upptökurnar sem Kári gerði
af frændsystkinunum í leik og þar
sem hann og Birta eru að spjalla sam-
an eru mér ómetanlegar.
Eitt það skemmtilegasta sem Kári
gerði var að ferðast og hafði hann far-
ið víðar um heim en flestir mér kunn-
ugir hafa farið á miklu lengri ævi.
Hann spilaði mikið snóker og varð
bæði Íslandsmeistari og Noregs-
meistari í þeirri grein. Kári er enn í
dag í 2. sæti yfir alla þá í Noregi sem
unnið hafa til flestra verðlauna í snók-
er.
Kári hafði einn aðdáunarverðan
hæfileika og það var að lifa í núinu og
hann lét sér aldrei leiðast. Þrátt fyrir
mikið mótlæti á köflum í lífi sínu bar
hann ávallt höfuðið hátt og lét ekki
bugast. Jákvæðni hans og hressleiki í
samskiptum við fólk var áberandi í
fasi hans. Honum þótti vænt um fjöl-
skyldu og vini og ef eitthvað bjátaði á
hjá öðrum þá var hann sem klettur
sem ekkert haggaði og sem allir leit-
uðu til.
Kári var jarðsettur í Osló 4. sept-
ember að viðstöddum hans nánustu
auk fjölda vina og vinnufélaga. Það
voru tilfinningalega þung spor fyrir
okkur systkini Kára, systurson hans,
Kjetil og pabba, sem báru hann síð-
asta spölinn til hinstu hvíldar. Sólar-
geislarnir sem komu fram á þeirri
stundu minntu okkur á að lífið heldur
áfram hversu sár sem söknuðurinn er.
Ég þakka Guði fyrir Kára bróður.
Minningin um góðan dreng lifir.
Sigurlaug Regína
Friðþjófsdóttir.
Ég sendi þér kæra kveðju
nú komin er lífsins nótt,
þig umvefji blessun og bænir
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því,
þú laus ert úr veikinda viðjum
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér,
Kjartan Kári
Friðþjófsson
✝
Útför systur minnar og frænku okkar,
HEIÐU AUSTFJÖRÐ
frá Þórshöfn,
Ægisgrund 19,
Garðabæ,
fer fram frá Áskirkju föstudaginn 11. september
kl. 13.00.
Trausti Örn Guðmundsson
og fjölskylda.
✝
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og
hlýju við andlát systur okkar og mágkonu,
BIRNU M. EGGERTSDÓTTUR
kennara.
Ásta Lóa Eggertsdóttir,
Ingigerður Eggertsdóttir,
Unnur Eggertsdóttir, Hermann Arnviðarson,
Gunnhildur Eggertsdóttir, Óskar Þorsteinsson,
Kolbrún Eggertsdóttir, Arnaldur F. Axfjörð,
Pétur Eggert Eggertsson, Sigurborg Steingrímsdóttir.
✝
Elskuleg móðir okkar,
VILBORG STEFÁNSDÓTTIR
frá Litla-Hvammi,
Mýrdal,
Kleppsvegi 6,
Reykjavík,
er látin.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Fyrir hönd annarra aðstandenda,
Sólrún Jónsdóttir,
Steinunn Helga Lárusdóttir.
Kær móðir okkar,
INGE ELLY JOHNSON,
f. Schepler Eiríksson,
13. maí 1920,
andaðist mánudaginn 31. ágúst.
Kveðjustund verður í Nordic Heritage Museum,
Seattle, laugardaginn 19. september kl. 14.00-18.00.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Robert Carl, Ellen Louise og Kurt Daniel.
✝
Okkar ástkæra frænka,
BIRNA BJÖRNSDÓTTIR,
til heimilis
Laugarnesvegi 40,
Reykjavík,
andaðist á hjúkrunarheimilinu Sóltúni þriðjudaginn
8. september.
Jarðarför verður auglýst síðar.
Fyrir hönd aðstandenda,
Anna Sigrún Björnsdóttir.
✝
Elskuleg móðir mín, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
SIGRÍÐUR MAGGÝ MAGNÚSDÓTTIR,
Prestastíg 11,
Reykjavík,
lést á Landspítala Landakoti þriðjudaginn
8. september.
Guðmundur Baldvinsson, Helga Haraldsdóttir,
ömmu- og langömmubörn.