Morgunblaðið - 10.09.2009, Page 37

Morgunblaðið - 10.09.2009, Page 37
Dagbók 37 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 2009 Sudoku Frumstig 5 1 8 6 4 1 3 3 4 5 7 8 2 6 5 6 2 3 9 4 9 7 4 4 1 7 9 3 6 4 8 3 4 2 9 1 5 8 6 9 3 5 9 8 4 7 7 5 4 9 1 2 6 6 8 7 4 2 1 1 8 2 4 6 9 3 7 3 2 7 8 2 5 3 6 4 9 7 1 9 7 3 2 1 5 6 4 8 6 1 4 8 9 7 2 3 5 7 5 6 9 3 1 8 2 4 3 9 8 4 7 2 1 5 6 1 4 2 6 5 8 3 9 7 4 3 9 5 8 6 7 1 2 5 8 1 7 2 9 4 6 3 2 6 7 1 4 3 5 8 9 9 4 8 3 7 6 1 2 5 5 1 6 2 4 8 7 9 3 3 2 7 5 1 9 6 8 4 6 3 2 4 8 1 9 5 7 7 8 5 9 6 2 4 3 1 4 9 1 7 5 3 2 6 8 2 5 3 1 9 7 8 4 6 8 7 9 6 3 4 5 1 2 1 6 4 8 2 5 3 7 9 4 7 8 2 5 6 1 9 3 9 6 2 3 1 7 5 8 4 5 3 1 9 4 8 2 7 6 1 2 3 7 8 4 6 5 9 6 8 4 5 3 9 7 2 1 7 5 9 6 2 1 4 3 8 2 9 5 1 6 3 8 4 7 3 4 6 8 7 2 9 1 5 8 1 7 4 9 5 3 6 2 Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig töl- urnar 1-9 og aldrei má tví- taka neina tölu í röðinni. Í dag er fimmtudagur 10. september, 253. dagur ársins 2009 Orð dagsins: Þú hefur breytt eftir mér í kenningu, hegðun, ásetningi, trú, langlyndi, kærleika, þolgæði. (Tím. 3, 10.) Rétt eins og mörg góð mál vinn-ast ekki nema með starfi sjálfboðaliða er hlutverk líkn- arfélaga mikilvægt. Það gildir ekki síst um þessar mundir, enda sverf- ur kreppan að á mörgum heimilum. Fjölmiðlar hafa að undanförnu – eins og oft áður – birt viðtöl við einstæðar mæður sem leita ásjár hjá Fjölskylduhjálp og Mæðra- styrksnefnd hvar þær lýsa því hví- lík glerbrotaganga það getur verið að fæða og klæða börnin og tryggja að fjölskyldan eigi bærilegt líf. Sú spurning leitar hins vegar oft á Víkverja þegar viðtöl þessi birtast hvar feður barnanna séu. Hví létta þeir ekki undir svo móðir og börn geti lifað með reisn? Hvar eru hinir ábyrgu feður? x x x Samkennd má láta í ljós meðýmsu móti. Þeim er veikjast eða slasast – og aðstandendum þeirra – er oft sýndur samhugur í verki með fjársöfnunum og víst er slíkur stuðningur mörgum kær- kominn. Hitt ber þó að hafa í huga að velferðarkerfi stéttarfélaga, líf- eyrissjóða og hins opinbera er þokkalega þéttriðið svo hjálp með öðru móti gerir ekki síður gagn. x x x Í nærumhverfi okkar allra er fólksem þarfnast stuðnings, sem er þeim sem fullfrískir eiga að teljast útgjaldalaus. Að líta inn í heimsókn hjá þeim sem er einmana, rabba við viðkomandi um daginn og veg- inn, skjótast fyrir viðkomandi í búðina, fara í bíltúr og svo fram- vegis. Og umfram allt að gefa sér tíma. Allt er þetta innlegg í þá ei- lífðarbaráttu að skapa fallegt og gott samfélag. Þegar efnahagurinn er slakur kemur margt gott í ljós manna á meðal. Kreppan hefur breytt gild- ismati þjóðarinnar og breyti ein- hver með þeim hætti sem hér að framan er lýst telur Víkverji dags- ins að tímabundnir efnahagserf- iðleikar okkar verði öllum til góðs þegar upp er staðið. víkverji@mbl.is Víkverjiskrifar Krossgáta Lárétt | 1 lítt hagg- anlegur, 8 tíðindi, 9 end- urgjald, 10 stórfljót, 11 lét, 13 landspildu, 15 vinna, 18 raki, 21 grein- ir, 22 fiskurinn, 23 flón, 24 afbrotamaður. Lóðrétt | 2 vanfær, 3 varkárni, 4 örugg, 5 nef, 6 eldstæðis, 7 klettanef, 12 dreitill, 14 borða, 15 vers, 16 örlög, 17 hafa upp á, 18 sveinstaula, 19 hamingju, 20 sjá eftir. tuðra, 20 grín, 21 árás. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 hikar, 4 fátæk, 7 pipra, 8 rifta, 9 róm, 11 reit, 13 haki, 14 ærnar, 15 flár, 17 ágæt, 20 grá, 22 álfur, 23 rætið, 24 innan, 25 sinna. Lóðrétt: 1 hopar, 2 kippi, 3 róar, 4 farm, 5 tafla, 6 krani, 10 ógnar, 12 tær, 13 hrá, 15 fjáði, 16 álfan, 18 gætin, 19 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 Skák Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is 1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Rc3 Rf6 4. d4 exd4 5. Rd5 Rxd5 6. exd5 Bb4+ 7. Bd2 De7+ 8. Be2 d3 9. cxd3 Bxd2+ 10. Rxd2 Rd4 11. 0-0 Rxe2+ 12. Kh1 0-0 13. He1 He8 14. Re4 Rf4 15. Rf6+ gxf6 16. Hxe7 Hxe7 17. Df3 Rg6 18. Dxf6 a5 Staðan kom upp á Skákþingi Ís- lands, landsliðsflokki, sem lýkur á morgun í Bolungarvík. Davíð Ólafsson (2.327) hafði hvítt gegn Degi Arn- grímssyni (2.396). 19. d6! cxd6 20. f4! Svartur getur nú ekki varist liðstapi. Framhaldið varð eftirfarandi: 20. … Ha6 21. f5 d5 22. Dg5 f6 23. Dg3 Kg7 24. Hf1 d4 25. h4 Kf7 26. fxg6+ hxg6 27. Df4 b5 28. Dh6 Bb7 29. Dh7+ Kf8 30. Dh8+ Kf7 31. Hf2 f5 32. h5 Hf6 33. h6 g5 34. Dg7+ og svartur gafst upp. Hvítur á leik Brids Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Margs að gæta. Norður ♠Á ♥Á85 ♦653 ♣ÁKG1073 Vestur Austur ♠D1094 ♠6532 ♥G10973 ♥D62 ♦ÁD98 ♦74 ♣– ♣D984 Suður ♠KG87 ♥K4 ♦KG102 ♣652 Suður spilar 3G. Sagt er að mikilvægt sé að hugsa áð- ur en látið er í fyrsta slaginn. Það er al- veg rétt, en næstu slagir eru líka mik- ilvægir. Hér þarf að stíga varlega til jarðar í upphafi. Útspilið er ♥G. Á að taka á ♥K heima eða á ásinn í borði? Það er fyrsta viðfangsefnið. Í betri legu skiptir það ekki máli, en í þessu tilfelli má alls ekki taka fyrsta slaginn heima, því þá fer ♠K fyrir lítið. Sem sagt, upp með ♥Á. Síðan er ♠Á lagður niður til að opna kóngnum leið. En verkinu er ekki lokið. Nú er lauf- ið innkomulaust til hliðar, sem þýðir að gefa verður slag á drottninguna án þess að glata sambandinu í litnum. Eina örugga leiðin til þess er að spila ♣G og svo aftur litlu laufi, ef austur dúkkar. Ekki má spila svo mikið sem einu hálaufi fyrst. (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Notfærðu þér hæfileika þinn til þess að láta frásagnir annarra opna þér nýja heima. En ekki er allt gull sem glóir. (20. apríl - 20. maí)  Naut Þú þarft að veita smáatriðunum at- hygli því ef þú horfir framhjá of mörgum leiðir það bara til vandræða. Gættu þess líka að vanrækja ekki þína nánustu. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Það jafnast fátt á við skemmti- legar samræður, sérstaklega þegar góður vinur er viðmælandinn. Með festu tryggir þú frama þinn. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Þú hefur verið að velta fyrir þér ákveðnum hlutum og nú er komið að því að láta til skarar skríða. Reyndu að leysa þau skipulega og án þess að annar stað- urinn sé tekinn framyfir hinn. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Þeir eru margir sem vilja hitta þig að máli svo þú átt erfitt með að skipuleggja tíma þinn. Farðu því varlega. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Umhverfi og tímasetning dýpka orð og gefa gjörðum þýðingu. Gerðu það sem í þínu valdi stendur til að láta þér líða sem best. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Láttu ekkert verða til þess að þú standir ekki við áætlun þína varðandi fjárhaginn. Samt ertu núna yfir þig hrif- inn af nýjungum sem berast þér í fal- legum umbúðum. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Sporðdrekinn lendir í kapp- hlaupi við klukkuna – eða það er það sem aðrir í liðinu hans halda. Settu markmið þín og væntingar á blað. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Rausnarskapur gagnvart maka og nánum vinum gerir vart við sig í dag. Tilfinningar hans þurfa ekki endilega að tengjast veraldlegum auðæfum, en gætu gert það. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Það er engin skömm að því að skipta um skoðun ef öll rök hníga til þess. Láttu þetta ekki slá þig út af laginu, þú hefur ekkert að fela. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Yfirmaður þinn eða annar yf- irboðari gæti komið þér að óvörum í dag. Talið við maka ykkar, gangið frá fjármál- unum og óleystum deilumálum. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Það er betra að eiga sér góðan trúnaðarvin en byrgja allt innra með sér, því það getur verið skaðlegt. En þú kem- ur meiru í verk ef þú einbeitir þér að verkinu sem skiptir öllu. Stjörnuspá 10. september 1908 Í þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort „lögleiða skuli bann gegn aðflutningi áfengra drykkja“ var bann samþykkt með 4.900 atkvæðum gegn 3.218. Inn- flutningsbann tók gildi 1. jan- úar 1912 og framleiðslubann 1915. Sagt var að Ísland hefði þar með orðið fyrsta þurra landið í heiminum. Áfeng- isbannið var afnumið 1935. 10. september 1942 Þýsk sprengjuflugvél skaut á tvo bæi í Breiðdalsvík og að fimm vélbátum úti fyrir Aust- urlandi. Skemmdir urðu á hús- um og bátum en fólk sakaði ekki. 10. september 1993 Hamborgarastaður McDonalds í Reykjavík var opnaður. Framkvæmdir tóku 22 vikur. 10. september 1998 Háhyrningurinn Keiko var fluttur með stórri herflutn- ingavél frá Bandaríkj- unum til Vest- mannaeyja þar sem hon- um var kom- ið fyrir í Klettsvík. Keiko hafði verið fang- aður hér við land tæpum tveimur ára- tugum áður, en hann varð frægur þegar hann kom fram í kvikmyndum. Keikó drapst við Noreg í des- ember 2003. Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson Þetta gerðist … Guðrún Sím- onardóttir frá Stokkseyri, Hagamel 25, Reykjavík, er 95 ára í dag. Hún verður að heim- an á afmælisdag- inn en mun eyða deginum í faðmi fjölskyldunnar. 95 ára „ÉG ætla að fara í bæinn í kvöld því börnin ætla að bjóða mömmu sinni út að borða. Ég verð bara með börnunum mínum og þetta verður því makalaust partí,“ segir Ingimunda Guðrún Þorvaldsdóttir sem fagnar áttræðisafmæli sínu í dag. „Hvorki eiginmaður, tengdabörn né barnabörn fá að fara með,“ segir Ingimunda, hæstánægð með að eiga notalega stund með börnunum í vændum. Hún á alls sex börn og eru þau öll búsett á Íslandi utan eitt sem býr í Noregi. Ingimunda málar nú olíumyndir sér til ánægju en hún saumaði mikið á sínum yngri árum. Helst keypti hún aldrei föt á börnin nema þá á útsölum, allt hefði verið heimasaumað. „Ég var með stórt heimili og hef aldrei unnið meira en á meðan ég var heimavinnandi. Þó hef ég unnið víða eins og í fiski, sláturhúsi og sjúkrahúsi,“ segir Ingimunda. Hún hefur búið á Selfossi ásamt eiginmanni sínum, Sigmari Karli Óskarssyni, um langt skeið og unir því vel. „Á laugardaginn ætla ég að vera með opið hús frá tvö til sex heima hjá mér að Grænumörk 2,“ segir Ingimunda. Veislan muni standa yfir frá 14-18. Hún hvetur vini og ættingja til að koma við og þiggja veitingar. jmv@mbl.is Ingimunda Guðrún Þorvaldsdóttir 80 ára Makalaust partí í kvöld Nýbakaðir foreldrar? Sendið mynd af barninu til birtingar í Morgunblaðinu Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda mynd af barninu með upplýsingum um fæðingarstað, stund, þyngd, lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig má senda tölvupóst á barn@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.