Morgunblaðið - 21.09.2009, Qupperneq 3
Íþróttir 3
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. SEPTEMBER 2009
Eftir Kristján Jónsson
kris@mbl.is
KR-ingar gerðu sitt besta til þess að
halda spennu í titilbaráttunni með
7:3 stórsigri á Stjörnunni í mesta
markaleik deildarinnar í sumar. Þó
svo að KR-ingar vinni ekki titil í ár
hafa þeir engu að síður staðið sig vel
á þrennum vígstöðum, deild, bikar
og í Evrópukeppni. Auk þess hafa
þeir leikið á köflum skemmtilega
knattspyrnu. Það var því kannski
viðeigandi að þeir byðu sparkelskum
Vesturbæingum upp á skemmti-
legan leik í síðasta heimaleiknum á
leiktíðinni:
„Ég held að við höfum þakkað
áhorfendum fyrir stuðninginn í sum-
ar með því að gleðja þá. Þetta var
skemmtilegur leikur á að horfa og
mikill fjöldi marka. Við erum ánægð-
ir með þann stigafjölda sem við er-
um með því við erum með fleiri stig
en í fyrra og erum að færa okkur of-
ar í töflunni. Vissulega geta menn
velt sér upp úr einhverjum glötuðum
stigum fyrr í sumar en það hefur lít-
ið upp á sig,“ sagði Logi Ólafsson,
þjálfari KR-inga, í samtali við Morg-
unblaðið að leiknum loknum. Eins
og fyrr segir hefur Loga tekist að
búa til sterkt lið hjá KR og stuðn-
ingsmenn félagsins sungu: „Meist-
arar að ári“ að leiknum loknum: „Jú,
ég get vel tekið undir það en við
sjáum til. Við höfum náð góðum ár-
angri þó að við hefðum viljað ná
lengra í bikarnum. Við erum ánægð-
ir með stigafjöldann í deildinni og
gerðum góða hluti í Evrópukeppn-
inni. Ef okkur lánast að halda sama
mannskap erum við til alls líklegir á
næsta ári. Við eigum reyndar eftir
að sjá hvað gerist varðandi mark-
varðarstöðuna,“ sagði Logi.
Kollegi hans hjá Stjörnunni,
Bjarni Jóhannsson, er einnig nokk-
uð sáttur við leiktíðina í heild sinni:
„Aðal okkar í sumar hefur verið
sóknarleikurinn. Að nýliðar skuli
vera búnir að gera hátt í 50 mörk
hlýtur að vera athyglisvert. En auð-
vitað var þetta skellur og við von-
umst til að vinna síðasta leikinn og
enda mótið með þokkalegri reisn.“
Morgunblaðið/Kristinn
Sigur ekki nóg Jordao Diogo og félagar í KR gerðu það sem þeir þurftu gegn Stjörnunni og gott betur en titillinn er runninn þeim úr greipum.
KR-ingar gerðu sitt besta
Áhorfendur fengu mikið fyrir aurana sína eða 10 mörk Nýliðar Stjörnunnar
hafa skorað 44 mörk í deildinni Óskar Örn Hauksson gerði þrennu fyrir KR
KR-völlur, Pepsi-deild karla, 21. um-
ferð, sunnudag 20. sept. 2009.
Skilyrði: Rigning en nánast logn. Völl-
urinn rennandi blautur og háll.
Skot: KR 14 (10) – Stjarnan 14 (5).
Horn: KR 3 – Stjarnan 4.
Lið KR: (4-4-2) Mark: Andre Hansen.
Vörn: Skúli Friðgeirsson, Grétar Sig-
urðarson, Mark Rutgers, Jordao
Diogo (Gunnar Kristjánsson 63.)
Miðja: Gunnar Jónsson (Ingólfur Sig-
urðsson 80.), Bjarni Guðjónsson,
Baldur Sigurðsson, Óskar Örn Hauks-
son. Sókn: Guðmundur Benediktsson
(Guðmundur Gunnarsson 72.), Björg-
ólfur Takefusa.
Lið Stjörnunnar: (4-5-1) Mark: Bjarni
Halldórsson. Vörn: Bjarki Páll Ey-
steinsson, Guðni Rúnar Helgason,
Tryggvi Bjarnason, Hafsteinn Rúnar
Helgason (Grétar Atli Grétarsson 64.)
Miðja: Steinþór Þorsteinsson (Magn-
ús Björgvinsson 81.), Björn Pálsson,
Daníel Laxdal, Halldór Orri Björnsson,
Jóhann Laxdal Sókn: Þorvaldur Árna-
son.
Dómari: Magnús Þórisson – 3.
Áhorfendur: 1.010.
KR – Stjarnan 7:3
Bein textalýsing frá leiknum
mbl.is | Pepsideildin
1:0 12. Guðmundur Bene-diktsson kom boltanum yfir
marklínuna eftir hornspyrnu Óskars
og skalla frá Baldri.
2:0 33. Bjarni Guðjónsson gafá Björgólf sem gaf fyrir
markið og þar hamraði Bjarni bolt-
ann viðstöðulaust á lofti í netið.
3:0 35. Guðmundur gaf fallegasendingu út á hægri kant-
inn á Gunnar sem gaf fyrir markið.
Þar kom Björgólfur á ferðinni og
náði skoti sem Bjarni varði en Óskar
Örn Hauksson fylgdi á eftir og skor-
aði í opið markið.
4:0 51. Gunnar Örn Jónssonskaut fyrir utan vítateig-
inn hægra megin nokkurn veginn
beint á Bjarna en í netið fór boltinn.
4:1 54. Þorvaldur Árnasonskallaði knöttinn í netið eft-
ir hornspyrnu frá Halldóri Orra.
4:2 57. Steinþór Freyr Þor-steinsson fékk boltann ut-
an vítateigs hægra megin. Lagði
boltann fyrir sig og þrumaði knett-
inum upp í nærhornið.
5:2 58.Óskar Örn Haukssonfór í gegnum vörnina með
þríhyrningsspili við Guðmund, lék á
Bjarna og skoraði.
6:2 60.Björgólfur Takefusaskoraði með vinstri fæti úr
vítateignum eftir undirbúning Bald-
urs.
6:3 67. Þorvaldur Árnasonskoraði með skoti rétt inn-
an vítateigs í vinstra hornið.
7:3 79.Óskar Örn Haukssonfékk boltann á vítateigslínu
og kom honum neðst í hægra hornið.
I Gul spjöld:Björgólfur (KR) 52. (leik-
araskapur), Óskar (KR) 55. (handlék
knöttinn).
I Rauð spjöld: Enginn.
MMM
Enginn.
MM
Bjarni Guðjónsson (KR)
Óskar Örn Hauksson (KR)
Guðmundur Benediktsson (KR)
M
Gunnar Örn Jónsson (KR)
Björgólfur Takefusa (KR)
Þorvaldur Árnason (Stjarnan)
Steinþór Þorsteinsson (Stjarnan)
Þetta gerðist
á KR-vellinum
1:0 27. Scott Ramsay geystistupp vinstri kantinn og náði að
gefa fyrir markið. Hannes Þór, mark-
vörður Fram, stökk upp með hendur á
boltanum en missti hann aftur fyrir
sig og þar lúrði Gilles Mbang Ondo
sem potaði boltanum í markið.
1:1 38. Paul McShane tók hornfrá hægri. Boltinn datt niður
alveg uppi við mitt markið þar sem
Jón Guðni Fjóluson stökk hæst og
skallaði í mitt markið.
1:2 69. Ívar Björnsson fékk frá-bæra stungusendingu frá
Jóni Guðna vinstra megin í vítateiginn,
lék honum aðeins áfram og renndi síð-
an fram hjá Óskari í markinu.
1:3 83. Óskar Pétursson mark-vörður braut klaufalega á
Guðmundi Magnússyni uppi við enda-
mörk hægra megin þegar ekki virtist
hætta á ferð. Dæmt var víti sem Heið-
ar Geir Júlíusson skoraði úr af öryggi,
þrumaði upp í vinstra hornið.
I Gul spjöld:Stamenic (Grindavík) 37.
(brot), Óskar (Grindavík) 83. (brot),
Jón Guðni (Fram) 89. (brot).
I Rauð spjöld: Óskar (Grindavík) 89. (brot).
M
Óli Baldur Bjarnason (Grindavík),
Scott Ramsay (Grindavík), Zoran
Stamenic (Grindavík), Gilles Mbang
Ondo (Grindavík), Jósef Kristinn Jós-
efsson (Grindavík), Kristján Hauksson
(Fram), Auðun Helgason (Fram), Al-
marr Ormarsson (Fram), Jón Guðni
Fjóluson (Fram), Heiðar Geir Júl-
íusson (Fram).
Þetta gerðist á
Grindavíkurvelli
Eftir Stefán Stefánsson
ste@mbl.is
LENGI vel leit út fyrir rólegheit í
Grindavík í gær þegar Fram kom í
heimsókn en það rættist þó úr því – þó
á kostnað heimamanna. Eftir ágæta
byrjun og átakalítið mark misstu
Grindvíkingar að mestu dampinn þeg-
ar Framarar náðu flestum völdum á
vellinum og þremur mörkum í 3:1
sigri. Útslagið fyrir Grindvíkinga var
þegar Óskar Pétursson, markvörður
þeirra, fékk rautt spjald fyrir tvö
klaufaleg brot.
„Við ætluðum fyrst og fremst að
mæta til leiks en í heildina var leik-
urinn eins og lognmolla sem kemur oft
í lok tímabils en við vorum þó betri í
seinni hálfleik og spiluðum vel á köfl-
um,“ sagði Þorvaldur Örlygsson, þjálf-
ari Fram, eftir leikinn en lið hans leik-
ur til úrslita í bikarkeppninni í byrjun
október. „Ég er persónulega ekkert
farinn að velta bikarleiknum fyrir
mér, enda tvær vikur í hann en það
leynir sér ekki að menn eru farnir að
hugsa um hann þó að þeir tali ekki
mikið um hann. Það er nægur tími til
þess og við ætlum bara að gera út um
leikina sem við eigum eftir. Það fór að
vísu mikil orka í leikinn við Fjölni þar
sem við lékum tvo leiki á stuttum tíma
á þungum velli og þó að völlurinn hafi
verið blautur í dag voru mjög góðar
aðstæður. Það er líka jákvætt að við
fáum unga leikmenn til að spila, þeir
eru að stíga sín fyrstu spor og vonandi
að þeir spili stórt hlutverk hjá okkur í
framtíðinni.“
„Farnir að hugsa um bikarleikinn“
Lánleysi Grindavíkur og rautt í 1:3 tapi
Grindavíkurvöllur, Pepsi-deild karla,
21. umferð, sunnudag 20. sept.
Skilyrði: Nánast logn og 11 stiga hiti,
úði og völlur því blautur.
Skot: Grindavík 16 (6) – Fram 10 (7).
Horn: Grindavík 8 – Grindavík 8.
Lið Grindavíkur: (4-4-2) Mark: Ósk-
ar Pétursson. Vörn: Ray Anthony
Jónsson, Zoran Stamenic, Óli Stefán
Flóventsson, Jósef Kristinn Jós-
efsson. Miðja: Scott Ramsay, Orri
Freyr Hjaltalín, Jóhann Helgason, Óli
Baldur Bjarnason (Þórarinn Krist-
jánsson 64.). Sókn: Gilles Mbang
Ondo, Tor Erik Moen (Sveinbjörn
Jónasson 64.).
Lið Fram: (4-5-1) Mark: Hannes Þór
Halldórsson . Vörn: Jón Orri Ólafs-
son, Auðun Helgason, Kristján
Hauksson, Jón Guðni Fjóluson.
Miðja: Heiðar Geir Júlíusson, Hlynur
Atli Magnússon, Halldór Hermann
Jónsson, Paul McShane (Guð-
mundur Magnússon 62.), Almarr
Ormarsson. Sókn: Hjálmar Þór-
arinsson (Ívar Björnsson 62.).
Dómari: Kristinn Jakobsson, KR – 6.
Áhorfendur: 631.
Grindavík – Fram 1:3
Bein textalýsing frá leiknum.
mbl.is | Pepsi-deildin