Morgunblaðið - 21.09.2009, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 21.09.2009, Blaðsíða 5
Íþróttir 5 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. SEPTEMBER 2009 „ÞAÐ var náttúrlega smábónus að skora þessi mörk en það skiptir mig litlu máli,“ sagði Atli Guðnason hógvær eftir að hafa tryggt FH end- anlega Íslandsmeistaratitilinn með báðum mörk- unum í 2:0-sigri á Val, en Atli hefur verið hreint út sagt frábær fyrir FH í sumar. „Mér hefur liðið mjög vel á vellinum í sumar. Ég er náttúrlega í mjög góðu liði, við erum frá- bærir saman, og þegar maður finnur það að sam- herjar manns vita nákvæmlega hvert maður ætl- ar að hlaupa, og öfugt, þá virkar liðið auðvitað mjög vel. Hvort það er ég sem skora eða ekki skiptir engu máli. Það er engin stjarna í þessu liði og við erum bara ellefu góðir fótboltamenn sem gerum þetta saman,“ sagði Atli ánægður með leiktíðina og sína frammistöðu. „Ég hef tekið þátt í þremur titlum en þetta er klárlega mitt besta sumar. Ég hef verið að bæta mig frá því ég kom í FH fyrst 2004 en þá var ég einfaldlega ekki nógu góður. Ég var lánaður í tvö ár og kom svo sterkur til baka og ég held að ég sé ágætis dæmi um leikmann sem elst upp hjá liði og gefst ekkert upp við að berjast um sæti í því. Ég er búinn að vera í FH frá því ég var fjög- urra ára og krakkar sem eru í FH núna sjá að það eru FH-ingar í liðinu og vilja ná því líka. Ég held að það sé miklu skemmtilegra en að vera með lið- ið fullt af aðkeyptum leikmönnum eins og þetta er hjá sumum félögum,“ sagði Atli. sindris@mbl.is „Klárlega mitt besta sumar“ Atli Guðnason Bein textalýsing frá leiknum mbl.is | Pepsideildin Kaplakrikavöllur, Pepsi-deild karla, 21. umferð, sunnudag 20. september 2009. Skilyrði: Rigning en logn. Völlurinn rennandi blautur. Skot: FH 16 (5) – Valur 11 (8). Horn: FH 9 – Valur 5. Lið FH: (4-3-3) Mark: Gunnar Sigurðs- son. Vörn: Pétur Viðarsson, Dennis Siim, Tommy Nielsen, Hjörtur Logi Valgarðs- son. Miðja: Davíð Þór Viðarsson, Tryggvi Guðmundsson (Björn Daníel Sverrisson 77.), Matthías Vilhjálmsson. Sókn: Ólaf- ur Páll Snorrason (Alexander Söderlund 82.), Atli Viðar Björnsson, Atli Guðna- son. Lið Vals: (4-3-3) Mark: Kjartan Sturlu- son. Vörn: Baldur I. Aðalsteinsson (Guð- mundur Viðar Mete 62.), Reynir Leós- son, Atli Sveinn Þórarinsson, Bjarni Ólafur Eiríksson. Miðja: Ian Jeffs, Baldur Bett (Marel Baldvinsson 69.), Sigurbjörn Hreiðarsson. Sókn: Matthías Guð- mundsson, Helgi Sigurðsson, Arnar S. Geirsson (Viktor U. Illugason 85.). Dómari: Erlendur Eiríksson – 5. Áhorfendur: 2.418. FH – Valur 2:0 an sum- gi sem árið i tvö nni á mið- ðsli ar- um l eft- . mikl- fði þolað það að vera með 6-8 leikmenn, og þar af nokkra sem eru nánast undantekn- ingalaust í byrjunarliði, frá keppni í þennan tíma,“ sagði Heimir, sáttur við sumarið. „Við spiluðum frábærlega eftir tapið í Keflavík í fyrstu umferð og skoruðum mikið af mörkum. Það er svo ekk- ert óeðlilegt að á ákveðnum tímapunkti detti menn aðeins niður en við rifum okkur strax upp aftur. Við nýttum landsleikjahléið vel í að undirbúa okkur fyrir þessa leiki við ÍBV og Val og ætluðum okk- ur að tryggja okkur titilinn í þessum leik,“ bætti hann við. sindris@mbl.is vinna þetta mót“ Heimir Guðjónsson Kiel, undirstjórn Alfreðs Gísla- sonar, vann yf- irburðasigur á Dormagen á úti- velli, 34.22, í þýsku 1. deildinni í handknattleik í gær. Kiel hefur unnið þrjá fyrstu leiki sína, rétt eins og Hamburg, Lemgo og Flensburg. Aron Pálmarsson var í liði Kiel en náði ekki að skora. Christian Spren- ger og Filip Jicha voru markahæstir með 5 mörk hvor en mörkin dreifð- ust vel á liðið.    Íslensku fyrirliðarnir, Þórir Ólafs-son og Róbert Gunnarsson, mættust í þýsku 1. deildinni í hand- knattleik í fyrrakvöld og gerðu jafn- tefli 32:32. N-Lübbecke var í heim- sókn í Gummersbach og gerði Þórir 5 mörk fyrir N-Lübbecke og Heið- mar Felixsson 2 en Róbert gerði 3 mörk fyrir Gummersbach og tryggði liði sínu stig með því að gera þrjú af síðustu fjórum mörkum liðsins.    Rúnar Kára-son átti fín- an leik með Füsche Berlín, liði Dags Sig- urðssonar, þegar það heimsótti Flensburg. Loka- tölur urðu 27:24 fyrir Alexander Perersson og félaga í Flensburg. Al- exander skoraði ekki í leiknum en Rúnar gerði sex mörk fyrir Füsche.    Vignir Svavarsson gerði eittmarka Lemgo sem vann Düs- seldorf 26:21 en Logi Geirsson er ekki byrjaður að spila eftir langvar- andi meiðsli. Sturla Ásgeirsson náði ekki að skora fyrir Düsseldorf. Hannes Jón Jónsson gerði eitt marka Burgdorf er liðið tapaði 26:28 fyrir Grosswallstadt. Sverre Jak- obsson skoraði ekki fyrir Grosswall- stadt og Einar Hólmgeirsson er meiddur og því ekki með liðinu.    Gylfi Gylfason skoraði 3 mörkfyrir Minden í gær þegar liðið tapaði fyrir Wetzlar á heimavelli, 22:24. Ingimundur Ingimundarson skoraði ekki fyrir Minden en tók vel á í vörninni og var tvívegis rekinn af velli.    Guðmundur Þ.Guðmunds- son fagnaði sigri sem þjálfari GOG í gærkvöld þegar lið hans vann Vi- borg, 19:17 á úti- velli. Ásgeir Örn Hallgrímsson er ekki byrjaður að spila vegna meiðsla en GOG hefur farið vel af stað og trónir á toppi dönsku úrvalsdeildarinnar í hand- knattleik með 6 stig eftir 3 leiki.    Skautafélag Akureyrar sigraðiBjörninn, 4:2, í fyrsta leiknum á Íslandsmóti karla í íshokkí sem fram fór á Akureyri í fyrra kvöld. Rúnar F. Rúnarsson, Orri Blöndal, Ingvar Þór Jónsson og Andri Freyr Sverr- isson skoruðu mörk Akureyringa en Úlfar Jón Andrésson gerði bæði mörk Bjarnarins.    Íslenska stúlknalandsliðið, 19 áraog yngri, hóf undankeppni Evr- ópumótsins á góðum sigri, 2:0, gegn Portúgölum á laugardaginn. en rið- illinn er leikinn í Portúgal. Þórhild- ur Stefánsdóttir og Kristín Erna Sigurlásdóttir skoruðu mörkin í síð- ari hálfleik. Ísland leikur við Sviss í dag en svissneska liðið vann Rúmen- íu, 5:0, svo þetta er líklega úrslita- leikur riðilsins. Fólk sport@mbl.is r Sindra Sverrisson ris@mbl.is OR varð sparkspekingum landsins rætt um það að Íslandsmeistarabik- nn í knattspyrnu yrði nær örugglega kyrrt í hillu FH-inga eftir að þeir ðu honum aftur af Valsmönnum með amatískum hætti á síðasta ári. Marg- ættu eflaust í vandræðum með að ndla slíkar væntingar en það á inilega ekki við um Hafnarfjarð- iðið sem hefur sýnt frábæra frammi- ðu í sumar og tryggði sér sinn mta titil á sex árum í gær með 2:0 ri á Valsmönnum í næstsíðustu um- ð Pepsi-deildarinnar. Sigurinn í deildinni þetta árið var af- sannfærandi, um það verður ekki lt. Vissulega sáu KR-ingar vonar- ætu núna undir það síðasta eftir örlít- hikst í FH-vélinni en sú glæta varð rei meira en það. FH hefur á köflum spilað frábæra knattspyrnu sem unun er að fylgjast með en skilar jafnframt miklum árangri. Liðið byrjaði mótið á tapi gegn Keflavík í fyrstu umferð en á eftir fylgdu hvorki fleiri né færri en ellefu sigurleikir sem komu FH í svo góða stöðu að þrátt fyrir ýmsa erfiðleika átti það sigur í deildinni alltaf vísan. Atli maður mótsins? Nokkrir leikmenn hafa skarað fram úr í öflugum leikmannahópi Heimis Guðjónssonar þjálfara, sem í gær land- aði sínum öðrum Íslandsmeistaratitli sem þjálfari á tveimur árum, í sumar. Þar má nefna Atla Guðnason sem hefur lagt upp ógrynni marka auk þess að skora þau nokkur sjálfur en hann gerði einmitt bæði mörkin í gær með lag- legum hætti. Enginn yrði hissa yrði hann kjörinn besti leikmaður Íslands- mótsins. Nafni hans Atli Viðar Björnsson hef- ur að sama skapi verið algjörlega frá- bær en hann er markahæstur í deild- inni og var á dögunum verðlaunaður með landsliðssæti. Fleiri mætti svo sannarlega nefna eins og Matthías Vil- hjálmsson og Hjört Loga Valgarðsson auk þess sem Eyjamaðurinn Tryggvi Guðmundsson kom sterkur til baka í liðið eftir að hafa óvænt verið á vara- mannabekknum um tíma snemma móts. Valsmenn höfðu að litlu að keppa í gær en sýndu á tíðum klærnar og voru afar óheppnir að ná ekki að skora í fyrri hálfleik. FH-ingar höfðu hins vegar góð tök á leiknum í seinni hálfleik og sýndu að þeir eru besta lið landsins, og það er alls ekki ólíklegt að það verði þeir áfram á næstu árum. Morgunblaðið/hag eistararnir FH-ingar hafa öðlast góða reynslu í að stilla sér upp með Íslandsbikarinn og þeir voru snöggir að því í leikslok í gær. Frábær frammistaða Atli Guðnason gerði bæði mörkin þegar FH innsiglaði sigurinn á Íslandsmótinu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.