Morgunblaðið - 21.09.2009, Side 4

Morgunblaðið - 21.09.2009, Side 4
4 Íþróttir MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. SEPTEMBER 2009 Spánverjarurðu í gær Evrópumeistarar í körfuknattleik karla er liðið lagði Serba 85:63 í úrslitaleiknum í Póllandi. Pau Ga- sol var maður leiksins, og raun- ar mótsins, en hann gerði 18 stig og tók 11 fráköst í leiknum. Spánverjar höfðu séð af meistaratitilinum í nokkur ár, en nú kom loks að því hjá þeim, en Spánverjar eru einnig heimsmeistarar og fengu silfur á síð- ustu Ólympíuleikum.    Rafael Cabrera-Bello, spánskurkylfingur, átti ótrúlegan síð- asta hring á Opna austurríska mótinu í golfi sem lauk í gær. Hann lék á 60 höggum í gær, eða 11 högg- um undir pari. Kappinn fékk 11 fugla á hringnum og sjö pör. Reynd- ar var hann mjög stöðugur í mótinu, fékk alls 25 fugla, 42 pör og fimm skolla á hringjunum fjórum. Annar í mótinu varð Benn Barham frá Eng- landi sem lék á 19 höggum undir pari alls, en Spánverjinn var á 20 höggum undir pari. Barham lék illa í gær því hann var á tveimur höggum undir pari. Þetta er fyrsti sigur Cabrera-Bello á mótaröðinni, en þar er hann á sínu þriðja ári.    Ungverskiframherj- inn David Disztl sá um að tryggja KA sigur á HK, 3:2, í lokaumferð 1. deildar karla á Kópavogsvelli á laugardaginn. Disztl skoraði þrennu fyrir norðanmenn sem þó urðu að sætta sig við að enda í fimmta sætinu. Stefán Eggertsson skoraði bæði mörk HK og fór jafn- framt í markið á lokamínútunum þegar Gunnleifur Gunnleifsson landsliðsmarkvörður fór meiddur af velli. HK hélt þriðja sætinu þrátt fyrir tapið því Fjarðabyggð gerði jafntefli gegn Víkingi í Ólafsvík.    Haukar knúðu fram sigur gegnÞór á Akureyri, 3:2, þrátt fyr- ir að þeir lentu tvisvar undir í leikn- um. Eiríkur Viljar Kúld, lánsmaður frá FH, skoraði sigurmarkið 12 mín- útum fyrir leikslok. Haukar, sem urðu að vinna stórt ef Selfoss tapaði gegn ÍA til að verða meistarar 1. deildar, kórónuðu frábæran enda- sprett þar sem þeir fengu 10 stig í síðustu fjórum leikjunum og leika í úrvalsdeild næsta sumar.    Jökull I. Elísabetarson skoraðitvívegis fyrir Víking úr Reykja- vík sem vann langþráðan sigur, 4:1, á ÍR. Þetta var eini sigur Víkinga í síðustu níu leikjum sínum í deildinni og þeir urðu að gera sér 10. sætið að góðu.    Björn Berg-mann Sig- urðarson, hinn 18 ára gamli Skagamaður, skoraði jöfn- unarmark Lille- ström gegn Bodö/Glimt í norsku úrvals- deildinni í knattspyrnu í gær, 2:2. Björn kom inn á sem varamaður í lok fyrri hálfleiks. Stefán Logi Magnússon lék í marki Lilleström.    Þórarinn Kristjánsson, hinn gam-alreyndi markaskorari frá Keflavík, var í nýju hlutverki hjá liði Grindavíkur á lokamínútunum gegn Fram í úrvalsdeildinni í knattspyrnu í gær. Þórarinn fór þá í markið eftir að Óskari Péturssyni, markverði Grindvíkinga, var vísað af velli. Fólk sport@mbl.is Eftir Sindra Sverrisson sindris@mbl.is „ÞETTA var auðvitað ekki galla- laust sumar hjá okkur en heilt yfir sýndum við bara og sönnuðum að við erum með besta mannskapinn, bestu þjálfarana og bara besta batteríið ef svo má segja, og við áttum þetta svo sannarlega skilið,“ sagði Eyjamað- urinn Tryggvi Guðmundsson sem fagnaði sínum fimmta Íslandsmeist- aratitli í gær og þeim fjórða með liði FH. „Þetta er náttúrlega alltaf sætt þótt ég verði nú að viðurkenna að sigurinn í fyrra hafi kannski verið aðeins sætari því þá komumst við svona bakdyramegin á toppinn. En þetta er alveg ótrúlega gaman.“ Tryggvi átti að vanda stóran þátt í sigri FH-inga á Íslandsmótinu en hann spilaði þó minna en hann hefði kosið framan af móti. „Þetta var mjög sérstakt sumar, ég verð að viðurkenna það. Ég var fyrirliði liðsins í 2. umferð í fyrsta skipti í alvöruleik hjá FH. Tveimur umferðum seinna var ég kominn á varamannabekkinn og það var líka í fyrsta skiptið sem ég prófa það, þannig að það er ljóst að skjótt skip- ast veður í lofti í þessum bransa,“ sagði Tryggvi. „Að mínu mati var ég alltof lengi á bekknum en ég hélt bara áfram að æfa og lét þetta ekkert pirra mig þrátt fyrir mikla pressu frá fjöl- miðlum. Þegar ég fékk „sénsinn“ nýtti ég hann svo vel og hef haldið sætinu mínu. Ég er örugglega mest umtalaði varamaður Íslandsmótsins. Það eru oft læti í kringum mig og því fylgir auðvitað smá rugl og vitleysa en ég býð náttúrlega upp á það, það verður að viðurkennast,“ bætti Tryggvi við. Þótt það sé vandgreint á knatt- spyrnuvellinum varð Tryggvi 35 ára í sumar en hann segist hvergi nærri hættur. „Ég elska þetta. Ég held mér í mjög góðu formi og vona að fólk sé sammála mér í því að ég sé nógu góður fyrir þetta Íslandsmót. Ég sé alla vega enga ástæðu til að hætta í bráð en auðvitað er þetta líka spurn- ing um hvort FH telur sig hafa not fyrir mig. Ég er alla vega með samn- ing út næsta ár,“ sagði Tryggvi sem kann vel við sig sem miðjumaður eft- ir að hafa lengst af verið sóknar- maður. „Ég kann mjög vel við þetta en ég verð að viðurkenna að mér líður allt- af betur í vítateig andstæðinganna.“ Morgunblaðið/hag Verðlaunaafhendingin FH-ingar á verðlaunapallinum og Tryggvi Guðmundsson fremstur í flokki. „Þetta var mjög sérstakt sumar“  Tryggvi fagnaði fimmta titlinum  Hvergi nærri hættur Eftir Guðmund Karl sport@mbl.is JÓN Steindór Sveinsson, fyrirliði Selfoss, hefur leikið með Selfyssingum undanfarin tíu ár. Hann og Hjörtur Júlíus Hjartarson voru einu leikmennirnir í 16 manna hópi Selfyssinga gegn ÍA í lokaumferðinni á laugardag- inn sem ekki eru uppaldir hjá félaginu. Selfoss vann ÍA, 4:2, og gulltryggði sér sigurinn í 1. deild og Jón tók við bikarnum í leikslok. Jón hefur marga fjöruna sopið í vínrauða búningnum en hann er á því að liðið í ár sé besta Selfosslið sem hann hefur spilað með. „Við höfum oft verið með gott lið en ekki náð að stilla saman strengina. Síðustu þrjú árin hefur verið frábær stemning hérna og liðið mjög gott. Við vorum tæpir á að fara upp í fyrra og þrátt fyrir að hafa misst menn fyrir tímabilið í ár þá sáum við það fljótlega eftir að mótið hófst að við værum í sama pakka og í fyrra. Menn áttu kannski ekki von á þessu fyrir mót en við erum með þétt og gott lið og erum búnir að æfa þvílíkt mikið. Það er það sem er að skila árangri,“ sagði Jón eftir leikinn gegn ÍA. Fyrirliðinn er á því að árangur Selfoss sé mikil lyfti- stöng fyrir samfélagið. „Þetta snýst ekki bara um knatt- spyrnudeildina eða Selfyssinga því þetta er stór dagur fyrir allt Suðurland. Sama hvert maður fer þá eru menn að tala um árangur Selfossliðsins.“ Skagamenn voru mun sterkari framan af leiknum gegn Selfossi og komust verðskuldað yfir í fyrri hálfleik með marki Andra Júlíussonar. Á 69. mínútu jafnaði Henning Jónasson úr vítaspyrnu og Selfyssingar söltuðu Skaga- menn svo ofan í tunnu á síðustu tuttugu mínútunum með þremur mörkum til viðbótar áður en ÍA minnkaði muninn í 4-2 á lokamínútunni. „Við vorum værukærir í upphafi enda mikil spenna í loftinu. Menn voru stressaðir og fyrri hálfleikur var hrikalega slakur hjá okkur. Við sýndum það hins vegar í seinni hálfleik að við erum með vel spilandi lið og rúll- uðum sannfærandi yfir þá,“ sagði Jón Steindór Sveins- son. Ljósmynd/Guðmundur Karl Meistarar Sævar Þór Gíslason og Jón Steindór Sveinsson hefja 1. deildar bikarinn á loft og félagar þeirra fagna. Stór dagur fyrir Suðurland 1:0 11. Atli Guðnason náði bolt-anum á sínum eigin vall- arhelmingi, fór fram hjá tveimur Valsmönnum og sendi knöttinn á Ólaf Pál sem gaf hann aftur á Atla og hann skoraði með hnitmiðuðu skoti rétt utan vítateigsins. 2:0 45. Tommy Nielsen sendilanga sendingu fram völl- inn á Matthías Vilhjálmsson sem skallaði knöttinn fyrir fætur Atla Guðnasonar. Atli sýndi mikla yf- irvegun þegar hann fór framhjá Kjartani markverði og skoraði svo í tómt markið. I Gul spjöld:Arnar Sveinn (Val) 34. (brot), Baldur Aðalsteinsson (Val) 44. (brot), Atli Sveinn (Val) 50., Viktor Unnar (Val) 90. I Rauð spjöld: Enginn. MMM Enginn. MM Atli Guðnason (FH) M Gunnar Sigurðsson (FH) Hjörtur Logi Valgarðsson (FH) Tryggvi Guðmundsson (FH) Kjartan Sturluson (Val) Ian Jeffs (Val)  FH-ingar fögnuðu að vonum stíft í leikslok eftir að hafa orðið Íslands- meistarar en þegar þeir voru komnir upp á verðlaunapallinum fannst Gunnari Sigurðssyni eins og ein- hvern vantaði. „Hvar er Matthías Guðmundsson? Náið í Matta!“ kall- aði Gunnar en Matthías fór einmitt frá FH til Vals í sumar. Hann var hins vegar farinn í sturtu.  Landsliðsþjálfarinn Ólafur Jó- hannesson var að sjálfsögðu mættur til að fagna titlinum en hann á stóran þátt í velgengni FH síðustu ár því hann þjálfaði áður liðið. Þetta gerðist í Kaplakrika „ÉG bjóst alls ekki við að vera svona mikið með. Ég var náttúr- lega á láni hjá Víkingi í fyrra en Heimir hringdi í vor og vildi að ég yrði hér. Svo voru einhver meiðsli á undir- búningstíma- bilinu sem gáfu mér tækifæri í lið- inu og það gekk bara mjög vel þannig að ég hélt sætinu eftir það,“ sagði Pétur Viðarsson, 22 ára varn- armaður FH, sem varð í gær Ís- landsmeistari í fyrsta sinn. „Þetta er náttúrlega hrikalega skemmtilegt og það verður ekkert betra en að vinna titilinn á fyrstu leiktíðinni sem maður spilar með liðinu,“ bætti Pétur við og hann vonast eftir svipuðu áframhaldi. „Við skulum bara vona alla vega að þetta haldi svona áfram. Þetta er ansi gaman svona.“ sindris@mbl.is „Heimir hringdi í vor“ Pétur Viðarsson „ÉG held að leikmennirnir eigi bara stærsta þátt í þessu því þeir stóðu sig virkilega vel í s ar,“ sagði Heimir Guðjónsson, þjálfarinn ung hjá FH, eftir sigurinn á Valsmönnum í gær s tryggði liðinu Íslandsmeistaratitilinn annað í röð. Heimir hefur einmitt þjálfað liðið þessi ár og því skilað 100% árangri í úrvalsdeildin sínum stutta ferli sem þjálfari. „Það var mikið afrek að vinna þetta mót m að við áföllin sem við lentum í varðandi meið og annað. Við sýndum mikla samstöðu og ka akter og ég tek bara ofan hattinn fyrir þessu drengjum,“ sagði Heimir sem hefur fylgt vel ir árangri Ólafs Jóhannessonar sem þjálfari Hann var ánægður með hvernig liðið tók á m um meiðslavandræðum í sumar. „Það er ekkert annað lið á Íslandi sem hef „Mikið afrek að v Eftir sind Í VO tíðr arin um náð dra ir æ hön gre arli stöð fimm sigr ferð S ar s deil glæ ið h aldr Me F A

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.