Morgunblaðið - 21.09.2009, Síða 8

Morgunblaðið - 21.09.2009, Síða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. SEPTEMBER 2009 Stjörnuliðið hefur gengið í gegnummiklar mannabreytingar á þessu ári. Nokkrir leikmenn yfirgáfu her- búðir liðsins snemma á þessu ári og fleiri hafa fylgt í þeirra fótspor í sum- ar. Enginn hefur gengið til liðs við Stjörnuna frá síðustu leiktíð. Félagið hyggst byggja á ungum leikmönnum sem aldir eru upp hjá félaginu.    Björgvin Hólmgeirsson kvaddiherbúðir Stjörnunnar í vor og gekk til liðs við Íslandsmeistara Hauka.    Varnarmaðurinn sterki, FannarÖrn Þorbjörnsson ákvað í lok leiktíðar í vor að leggja skóna á hill- una, að minnsta kosti um tíma. Fann- ar var næstmarkahæstur hjá Stjörn- unni í fyrra með 60 mörk í úrvalsdeildinni en Vilhjálmur Ingi Halldórsson skoraði mest fyrir liðið, 87 mörk.    Annar sterkurvarn- armaður, Jón Heiðar Gunn- arsson, hætti að leika með Stjörn- unni í vor. Hann gekk yfir í raðir FH-inga. Guðni Már Kristinsson fór á ný yfir til FH-inga eftir að hafa verið lánaður til Stjörnunnar á síð- asta keppnistímabili.    Hrafn Ingvarsson hélt aftur upp íMosfellsbæ til liðs við uppeldis- félag sitt, Aftureldingu. Bjarni Aron Þórðarson fór einnig til Aftureld- ingar í sumar en hann var lánsmaður hjá Mosfellingum á síðustu leiktíð en gekk tímabundið í raðir Stjörnunnar á ný þegar lánasamningur Stjörn- unnar og Aftureldingar rann út.    Ólafur Víðir Ólafsson kom ekkertvið sögu hjá Stjörnunni í fyrra vegna meiðsla. Hann skipti yfir til uppeldisfélags síns, HK, í sumar.    Ólafur Sigurjónsson ákvað aðganga til liðs við Val í sumar eft- ir skamma viðdvöl hjá Stjörnunni.    Sömu sögu er að segja að GunnariInga Jóhannssyni. Hann söðlaði um í sumar og gekk til liðs við bik- armeistara Vals.    SigurðurBjarnason, fyrrverandi lands- liðsmaður í hand- knattleik og leik- maður og þjálfari Stjörnunnar, verður aðstoð- armaður Patreks Jóhannessonar þjálfara. Eftir Ívar Benediktsson iben@mbl.is STJARNAN hafnaði í sjöunda og næstneðsta sæti N1-deildar karla í vor. Eftir þrjá hörkuleiki við Aftur- eldingu tókst Stjörnumönnum að halda sæti sínu í deild þeirra bestu. „Í vor fór ég vel yfir stöðu mála með formanni meistaraflokksráðs í ljósi þess að margir leikmenn yfir- gáfu okkur. Niðurstaðan varð sú að byggja upp nýtt lið á heimamönnum, sýna þolinmæði og fara alls ekki út í það að kaupa til okkar leikmenn frá öðrum liðum. Fyrir vikið er mikið um unga leikmenn í hópnum og fram eftir sumri voru nær eingöngu piltar úr öðrum og þriðja aldursflokki á æfingum. Eftir verslunarmanna- helgi bættust aðeins eldri og reynd- ari menn í æfingahópinn, svo sem Þórólfur Nielsen fyrirliði, Vil- hjálmur Ingi Halldórsson og Björn Friðriksson. Björn er gamall Stjörnumaður með stórt hjarta sem mikilvægt er að fá inn í þennan hóp. Síðan er Roland Valur markvörður ennþá með okkur. Hann er í fínu standi. Tilbúnir að vaða eld og brennistein Af um 20 manna hópi eru tveir að- komumenn, aðrir eru uppaldir hjá Stjörnunni. Þetta vona ég að verði okkar styrkur í vetur, að við höfum leikmenn sem vilja vera í Stjörnunni og eru um leið tilbúnir að vaða eld og brennistein fyrir félagið. Svona hóp- ur hefur ekki verið hjá félaginu síð- an ég og Siggi Bjarna aðstoðarþjálf- ari vorum ungir og með hár,“ segir Patrekur sem er við stjórnvölinn hjá Stjörnunni annað keppnistímabilið í röð. „Við erum með efnilegan hóp ungra leikmanna sem lagt hafa á sig mikla vinnu við æfingar. Ég geri mér grein fyrir því að við eigum ennþá nokkuð í land, það sást meðal annars á Ragnarsmótinu á Selfossi fyrir skömmu og ég fer ekki í graf- götur með að veturinn á eftir að verða okkur erfiður.“ Auk reynslumanna sem fyrr er getið segist Patrekur reikna með að Ragnar Már Helgason bætist í hóp- inn. „Ég er virkilega ánægður með að hann skyldi taka ákvörðun um að vera áfram með okkur. Hann er ekki uppalinn hjá félaginu en ákvað að vera um kyrrt þrátt fyrir erfiðleika. Ragnar fellur vel inn í liðið,“ segir Patrekur. Margir stíga fyrstu skrefin „Það stíga margir leikmanna okk- ar sín fyrstu skref í vetur, það er al- veg ljóst þótt við séum sannarlega með nokkra reynslumenn í hópn- um,“ segir Patrekur og bætir við að það sé að mörgu leyti skemmtilegra og meira krefjandi að þjálfa hóp af þessu tagi. „Nú hefur maður tæki- færi til þess að móta ákveðinn hóp, setja mark sitt á hann í stað þess að þjálfa og leiðbeina mönnum sem hafa þroskast sem handknattleiks- menn.“ Töpum ekki fyrirfram Við gerum okkur grein fyrir að veturinn verður erfiður en við treystum þessum hópi til þess að standa sig. Það er fjarri okkur að tapa einhverjum leik fyrirfram,“ segir keppnismaðurinn Patrekur sem lagt hefur skóna á hilluna og reiknar ekki með að spila í vetur. „Ég reikna með að Stjörnuliðið í vetur verði ungt, ferskt og baráttu- glatt. Þar liggi okkar styrkur og með því náum við betur til bæjarbúa. Um leið vona ég að „superstar“, stuðn- ingsmannahópur Stjörnunnar, styðji jafn myndarlega við bakið á okkur í vetur og hann hefur gert í fótbolt- anum í sumar,“ segir Patrekur Jó- hannesson, þjálfari Stjörnunnar. Byggjum á mönnum með félagshjarta  Stjarnan mætir með ungt lið til leiks  Byggt upp til framtíðar af þolinmæði „Eins og allir vita vorum við í vand- ræðum á síðasta keppnistímabili, sem meðal annars varð til þess að nokkrir leikmenn yfirgáfu okkur á meðan keppnistímabilið stóð yfir. Nú hefur stefnan verið sett á að byggja upp liðið á uppöldum Stjörnumönn- um sem hafa félagshjarta,“ segir Pat- rekur Jóhannesson, þjálfari úrvals- deildarliðs Stjörnunnar í handknattleik karla. Morgunblaðið/Ómar Reynslulitlir Kristján Svan Kristjánsson er kominn í hóp reynslumestu leikmanna Garðabæjarliðsins. um þriggja leikja dansi við fyrstudeildarlið Aftureld- ingar um keppnisrétt í N1-deildinni. Eftir „flóttann“ á síðasta vetri og í vor, sem m.a. er rakinn hér á síðunni, ákváðu Stjörnumenn að herða upp hugann og treysta á þá ungu menn sem deildin hefur alið upp á síðustu árum. Það er vel og verður gaman að fylgjast með framgöngu Stjörnunnar á komandi vetri. Búast má við að leikmenn eigi eftir að fá margar dýfur og eiga erfitt uppdráttar. En að baki þessum unga hópi standa í brúnni reynslumennirnir Patrekur Jóhannesson og Sigurður Bjarnason. Þeir eru eldri en tvævetur í handknattleiknum. Nú reynir á þá að miðla úr brunni reynslunnar til kynslóð- arinnar sem nú hefur verið hent út í djúpu laugina. raunin og segja má að á síðustu leiktíð hafi þessar vonir hrunið nærri því á einni nóttu á sama tíma og Ís- land sigldi inn í bankakreppu og fjármálahrun. Þar með hrundi reksturinn endanlega í fangið á fámennri stjórn deildarinnar. Samningum við leikmenn liðsins var sagt upp. Fljótlega lögðu nokkrir þeirra á flótta og í vor flúðu enn fleiri af hólmi þar sem ljóst að var að þeir yrðu að leika handknattleik fyrir Stjörnuna upp á vatn og brauð vildu þeir halda iðju sinni áfram í Garðabæ. Fyrir félag sem hafði byggt upp drjúgan hluta leik- mannahóps síns á „aðkeyptu vinnuafli“ var þetta mik- ið áfall. Botninn virtist detta úr liðinu sem þó rétt slapp við fall úr N1-deildinni eftir að hafa lent í kröpp- Eftir Ívar Benediktsson iben@mbl.is KARLALIÐ Stjörnunnar í Garðabæ hefur nær alla tíð staðið í skugganum af kvennaliði félagsins í hand- knattleik. Stjarnan hefur lengi verið í hópi fremstu liða landsins í handknattleik karla en aldrei náð að brjóta ísinn og komast alla leið – verða Íslandsmeist- ari, eins og kvennaliðinu hefur margoft tekist. Stjarn- an hefur fjórum sinnum náð að vinna bikarkeppnina í karlaflokki, síðast tvö ár í röð árin 2006 og 2007. Á þeim tíma gerðu menn sér vonir um að upp væri að koma lið hjá félaginu sem gæti tryggt því fyrsta Ís- landsmeistaratitilinn í karlaflokki. Sú varð alls ekki Ungum mönnum hent í djúpu laugina Þjálfarinn Patrekur Jó- hannesson býr sig undir erfiðan vetur í Garðabæ. Handknattleikur: Morgunblaðið kynnir liðin í efstu deild karla, N1 deildinni Björn Friðriksson 27 ára línumaður Daníel Örn Einarsson 21 árs hægri hornamaður Eyþór Már Magnússon 19 ára skytta vinsta megin Guðmundur S. Guðmundsson 23 ára skytta hægra megin Gunnar Örn Arnarson 18 ára vinstri hornamaður Gunnar Gylfason 20 ára skytta hægra megin Hafþór Helgason 19 ára línumaður Jón Arnar Jónsson 19 ára leikstjórnandi Kristján Svan Kristjánsson 27 ára vinstri hornamaður Ragnar Már Helgason 29 ára skytta h. megin/v. hornam. Roland Valur Eradze 38 ára markvörður Sigurður Helgason 19 ára hægri hornamaður Svavar Már Ólafsson 18 ára markvörður Sverrir Eyjólfsson 18 ára línumaður Tandri Már Konráðsson 19 ára línumaður Viktor Alex Ragnarsson 21 árs markvörður Vilhjálmur Ingi Halldórsson 27 ára skytta v. megin/miðjumaður Víglundur Jarl Þórsson 17 ára leikstjórnandi Þorgils Orri Jónsson 22 ára markvörður Þórólfur Nielsen 28 ára leikstjórnandi Leikmannahópur Stjörnunnar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.