Norðurland - 12.11.1976, Side 5

Norðurland - 12.11.1976, Side 5
Húsvíkingar tryggja hráefni með nýjum togara Vinna í frystihúsinu liefur farið niður í 5 hálfum mán. daga í Húsvíkingar hafa nú eignast sinn fyrsta skuttogara, sem hlaut nafnið Júlíus Hafsteen eftir fyrrverandi sýslumanni og bæjarfógeta húsvíkinga um árabil. Mun hann væntan- lega tryggja vinnu í frystihús inu, en Fiskiðjuverið hefur lítið hráefni fengið frá ágúst- lokum og vinna hefur farið niður í að vera 5 dagar á hálf- um mánuði. Skuttogarinn kom til Húsa- víkur í lok október. Júlíus heitinn Hafsteen, sem hann heitir eftir, var mikill áhuga- maður um hafnarmál Húsa- víkur og kunnur af áhuga sin um á landhelgismálum íslend inga. Þótti því vel við hæfi að gefa hinu nýja skipi nafn hans. Togarinn fór í siglingu á flóanum með unga húsvíkinga og höfðu þau gaman af. Var það táknrænn vináttuvottur, þar sem nafni hans Júlíus heitinn og eiginkona hans, Þórunn Hafsteen, voru á sín- um tíma ætíð miklir vinir ungra húsvíkinga. Stærð þessa nýja skips er 284 lestir. Skipið er útbúið til að geta stundað flestar veið- ar, botn- og flottroll, nót, linu og net. Skipstjóri er Benjamín Antonsson, 1. vélstjóri Stein- grímur Árnason og 1. stýri- maður Hermann Ragnarsson. Áhöfnin er öll frá Húsavík nema 3 menn. Á heimleið frá Akranesi til Húsavíkur hreppti skipið slæmt veður fyrir Vestfjörð- um og reyndist það vera hið besta sjóskip. Eigandi og útgerðarfyrir- tæki Júlíusar Hafsteens er Höfði hf. á Húsavík. Stjórnar formaður félagsins er Tryggvi Finnsson framkvæmdastjóri Fiskiðjuvers Húsavíkur. Fram kvæmdastjóri Höfða hf. er Kristján Ásgeirsson. Eignar- aðilar að Höfða hf. eru Fisk- iðjuver Húsavíkur, Húsavíkur bær, Kaupfélag Þingeyinga og önnur félög og einstaklingar á Húsavík. Fleiri ný skip Auk skuttogarans var ný- lega keyptur til Húsavíkur 12 lesta þilfarsbátur og í smíðum hjá Guðlaugi og Trausta á Ak- ureyri er 35 lesta bátur og er hann væntanlegur hingað um áramót. Nýlega var seldur burt frá bænum Grímur ÞH til Stóru- Vatnsleysu á Vatnsleysuströnd og verður hann gerður út frá Júlíus Hafsteen á siglingu við heimahöfnina rétt eftir kornuna Vogum í Gullbringusýslu. Fyrri eigendur hans hafa gert út frá Húsavík í 23 ár sam- fleytt og hefur útgerðin verið mjög happasæl og fengsæl eig endum sínum og atvinnulífi á staðnum. Hættu vegna seiða Tíðarff.r hefur verið fremur óhagstætt til sjósóknar í októ ber og það sem af er nóvem- bermánaðar, einkum er varð- ar línu- og rækjuveiðar. Rækjuvinnsla stöðvaðist um tíma vegna of mikils magns ýsu- og þorskseiða í aflanum. Tóku sjómenn það upp hjá sjálfum sér að stöðva veiðarn ar. Þá hefur veður einnig hamlað mjög veiðum. Rækju- miðin eru í Öxarfirði. í Rækju vinnslunni er unnið á tveim vöktum, 30 manns á hvorri vakt. Fiskiðjuverið hefur lítið hrá efni fengið frá ágústlokum og hefur vinna farið niður í að vera 5 dagar á hálfum mán- uði. í sumar voru gerðir út frá bænum 25—30 opnir bátar, en útgerð þeirra lýkur oftast um miðjan eða í lok september eftir tíðarfari og aflabrögðum. Þessir bátar setja skemmtileg an svip á Húsavík sem útgerð- arbæ. Þá eru einnig gerðir út allmargir þilfarsbátar. - Snær. Iðja á móti breytingum á vinnulóggjöfinni SNdtlUST TiL VARIMAR VERK- FALLS- OG SAIUIMIIMGSRÉTTI Gróf aðför ríkisstjórnarinnar að verkfallsréttinum og samnings rétti einstakra verkalýðsfélaga, sem felst í tillögum hennar um breytingar á vinnulöggjöfinni, hefur hhlotið almenna fordæm- ingu verkafólks. Verkalýðsfélögin um allt land eru nú sem óðast að draga sínar ályktanir af þessu nýja lagafrumvarpi „um stéttarfélög og vinnudeilur“, sem ríkisstjórnin hefur sent Alþýðusambandi íslands til umsagnar og hafa mörg félög þegar mótmælt því opinberlega. Önnur hafa sent ASÍ álitsgerðir sínar, en vinnu- löggjöfin er meðal þess sem fjallað verður um á þingi ASÍ í lok þessa mánaðar. Ekkert stéttarfélag hefur heyrst mæla fyrirhuguðum breytingum ríkisstjórnarinnar bót, en mikið liggur við, að snúist sé hart til varnar þess- um árásum ríkisvalds atvinnu rekenda á verkfallsréttinn og réttinn til sjálfstæðra samn- inga einstakra félaga. Ættu sem flest verklýðsfélög að láta frá sér heyra á opinberum vettvangi og blása þannig til baráttu gegn aðförinni. Alit IÐJU Stjórn og trúnaðarmanna- ráð Iðju, félags verksmiðju- fólks á Akureyri, hefur fjallað um frumvarpið og fer hér á eftir álit félageins eins og það kemur fram í bréfi til ASÍ og „Norðurland“ hefur fengið til birtingar: „Breytingar á lagafrum- varpi þessu miðað við eldri lög sem nú gilda eru sýnilega gerð ar eftir kröfu frá Vinnuveit- endasambandi íslands, og miða flestar að því að skerða rétt verkalýðsfélaganna til að vinna að framgangi mála sinna á félagslegum grund- velli. Hættulegasta breytingin er í 1. grein frumvarpsins, þar sem því er slegið föstu að stétt arfélagasambönd, geti farið með samningsrétt fyrir öll fé- lög innan sambandsins ef sam þykktir þess kveða svo á. Eftir að svona orðalag er orðið að lögum verður knúið fast á um að stéttarfélagasam- bönd nái fram samþykkt um slíka samningsaðstöðu, en slík staða ef upp kemur hefur ver- ið áhugamál atvinnurekenda yfirleitt um mörg undanfarin ár. Sú hætta sem hlýst af þeirri skipan mála er sú, að verka- lýðsfélögin í landinu, sérstak- lega hin fámennari og dreifðu um landið, missa að verulegu leyti starfsgrundvöll sinn og áhuga fyrir velferð stéttarinn- ar í kjaramálum og einnig til almennra mála. Iðja, félag verksmiðjufólks, er því mótfallin þessari breyt- ingu. Félagið er einnig mótfallið breytingu á 10. gr., 12. gr., 18. gr., 25. gr., 29. gr. og 32. gr. Um breytingar á öðrum grein um er lítið um að segja, sumar er hægt að þola, en aðrar horfa frekar til bóta, þótt lítið sé. En yfirleitt er tilgangurinn sá að draga úr aðstöðu og mætti samtakanna í verkfalls- baráttu með auknu valdi og ákvörðunum sáttasemjara, eins og 29. gr. og 32. gr. gefa til kynna, en á hinn bóginn verður þess hvergi vart að rétt arstaða verkalýðsfélaganna sé aukin eða þeim gert auðveld- ara að ná fram rétti sínum, umfram það, sem nú er ákveð- ið í lögum og kjarasamning- unum sjálfum." Verkfalls- rétturinn Þær greinar sem Iðja vísar til og er á móti breytingum á fjalla annarsvegar um trúnað- armenn (10.—12. gr.) og er þar einkum um að ræða stað- festingu á breytingum sem þeg ar hafa orðið í raun með ákvæðum kjarasamninga. Hinsvegar varða þær verkfalls r.éttinn eða öllu heldur skerð- ingu hans (18., 25., 29. og 32. gr.), þar sem gert er ráð fyrir m.a., að félagsmálaráðherra geti frestað í allt að 60 sólar- hringa vinnustöðvun sem tek- ur til 100 félagsbundinna laun þega eða færri og ætla má að stöðvi mikilvæga atvinnu- grein. Einnig, að sáttasemjari geti frestað vinnustöðvun í 5 sólarhringa til að bera fram miðlunartillögu telji hann lík- ur á að deilan sé að leysast. í þessu sambandi er rétt að benda á, að fáir vinnustaðir á fslandi hafa fleiri en 100 starfs menn og að það yrði háð póli- tísku mati ráðherra hvort um mikilvæga atvinnugrein er að ræða. Að því er varðar 5 daga frestun sáttasemjara hefur það hingað til verið verkalýðs- hreyfingin sjálf, en ekki annar aðili, sem hefur metið stöðuna og frestað verkfalli ef líkur hafa verið til að samningar væru að takast. 29. og 32. gr. eru um at- kvæðagreiðslu um miðlunar- tillögur og gert ráð fyrir sam- eiginlegri atkvæðagreiðslu óskyldra félaga hvort sem samninganefndir þeirra eru því sammála eður ei. Þetta hef ur tíðkast sumsstaðar á Norð- urlöndunum og verið gagn- rýnt harðlega, enda vísust leið til að sundra annars góðri sam stöðu verkalýðshreyfingarinn- ar. Þá er gert ráð fyrir breyt- ingum á ákvæðum um þátt- töku í atkvæðagreiðslu, sem eru atvinnurekendum stórlega i hag, td. skilyrði um helmings þátttöku hið minnsta (áður 35%) og endanlegan úrskurð sáttasemjara um vafaatriði varðandi atkvæðagreiðslu. NORÐUKLAND — 5

x

Norðurland

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurland
https://timarit.is/publication/784

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.