Norðurland - 10.12.1976, Blaðsíða 1

Norðurland - 10.12.1976, Blaðsíða 1
NORÐURIAND 5. tölublað Föstudagur 10. des. 1976 1. árgangur Dagvístunarmál á Dalvík Tekjur af útsvari mæðr- anna nálgast framlagið Vinsælt blað Við lauslegan útreikning sem félagsmálaráð Dalvíkur lét gera á tekjum bæjarfélagsins af útsvari kvenna, sem eiga börn á dagheimili bæjarins, kom í ljós að þær slaga hátt í þá upphæð sem bærinn ætlar til dagvistunarmála á fjár- hagsáætlun sinni. Rétt rúmar tvær milljónir eru á fjárhagsáætlun bæjar- ins til dagvistunarmála, en tekjum af útsvörum mæðr- anna, miðað við atvinnutekj- ur þeirra í októbermánuði sl. X Ý t I x X I Nýja biaðinu okkar, Norðf urlandi, hefur verið feykif vel tekið síðan það hóff , V göngu sma fyrir manuði.v v Margir hafa hringt og látf ið í ljós ánægju sína meðf stækkun, breytt útlit ogf umfram allt meira ogf v betra efni og heillaóskirf hafa borist víða að, ma.f alla leið frá Svíþjóð. Enf það sem segir kannskif mest um móttökurnar erf aukin áskrifendatala ogf hefur vart liðið svo dagurj* að ekki hafi komið nýr‘| áskrifandi. f ♦:♦ Þetta er að sjálfsögðuf hvatning fyrir okkur sem|* að blaðinu stöndum. Enf betur má ef duga skal.v Því er ekki að leyna, að;|; það er fjárhagslega erfitt* að koma út slíku mál-f gagni og því heitum viðf á þá félaga og stuðnings-*|* menn Alþýðubandalags-f ins í kjördæminu, semf ekki hafa enn gerst áskriff endur að láta verða af þvíf hið fyrsta. - vh f 4 mættu hjá Lárusi Sem kunnugt er hélt Stefán Jónsson alþingismaður þrumu fund með hjalteyringum í haust, þar sem flestir þorps- búar mættu. Síðan þetta gerðist hafa íhaldsmenn setið heldur gneyp ir og þar kom, að ákveðið var að bæta úr betur og boðaði Lárus Jónsson alþm. til ann- ars fundar á Hjalteyri fyrir nkömmu. Þann fund sóttu fjórir! mundu verða 1.7—1.8 millj. króna yfir árið, sem aftur töp uðust bænum ef konurnar ynnu ekki úti vegna vöntunar á dagheimili. Sem sjá má er hér aðeins reiknað með tekjum mæðr- anna, en útsvör feðranna ekki te'kin með í reikninginn né hverjar tekjur töpuðust bæn- um ef þeir hættu að vinna og sætu heima yfir börnunum. 25 þegar flest er Rekstur dagheimilis allt ár- ið hófst í fyrrahaust, en áður hafði verið rekið dagheimili í skólanum á sumrin. Nú er skátaheimilið leigt til þessara nota. Það er nokkuð stórt hús, en fremur óheppilegt, sérstak- lega lóðin, sem er eitt forar- svað þegar rignir auk þess sem ekki hefur fengist heim- ild til að reisa nógu háa girð- ingu kringum hana. Samkvæmt normi mennta- málaráðuneytisins ættu börn- in á heimilinu að vera 17, en þau eru þar nú 25 þegar flest er í einu, eftir hádegið, en að- eins 8—10 eru allan daginn, hin annaðhvort á morgnana eða síðdegis. Á biðlista eru að eins 8 sem stendur, en væru líklega fleiri ef fólk teldi nokkra möguleika á að koma börnum að. Forstöðukona heimilisins er Margrét Vallý Jóhannesdóttir og gaf hún Norðurlandi þess- ar upplýsingar. Hún sagði erfitt að fá fóstrur til starfa úti á landi vegna verri að- stöðu og af því að þaðan væri erfitt að fylgjast með nýjung- Framhald á bls. 6. Konur á Kópaskeri á kafí í rækjunni Mikil atvinna hefur verið á Kópaskeri síðan rækjuveiðar voru hafnar í haust, en þaðan eru nú gerðir út 3 bátar, Þing ey, Frosti og Kópur og hafa aflað uppundir 100 tonn síðan í byrjun október. Ásókn er geysimikil á þessi nýju rækjumið, sem eru inn- arlega í Öxarfirðinum, að heita má alveg uppundir land- steinum, og sækja þangað bæði húsvíkingar og akureyr- ingar auk heimamanna. Rækj - an er sérstaklega stór og góð og það svo, að hún mun notuð í auglýsingaskyni til að afla markaða erlendis. Gæðin má þakka því, að miðin eru ný- fundin, þá er rækjan venju- lega best. Við liggur, að sumum þyki atvinnan um of, húsmæður kvarta yfir að komast varla yfir verkin heima og kaupfé- lagið hefur átt í erfiðleikum með að fá kvenfólk í slátur- gerðina, sem hefur verið mikil undanfarna vetur. Flestar kon urnar í rækjunni vinna hálfan daginn, en sumar allan og stundum er vinnan frá 8 að morgninum til 11 á kvöldin, því alltaf verður að vinna allt upp þarsem rækjan þolir illa geymslu. 8 hús í byggingu Mikið hefur verið byggt undanfarið ár og eru nú 8 hús í byggingu á Kópaskeri og reyndar flutt í sum, þótt þau séu ekki fullkláruð. Færð er leiðinleg um þess- ar mundir og vegir slæmir í námunda við Kópasker, enda ékkert gert sl. ár þeim til við- halds. Fyrir uþb. hálfum mán uði hlóðst upp á veginum bleytusnjór og honum hefur ekki verið ýtt af. í sumar voru byggðar 3 brýr í stað þeirra sem eyðilögðust í jarðskjálft- unum og þýkir víst þarmeð nóg að gert í vegamálun- um. — Ragnar. Tímamót Nýafstaðið ASÍ þing markar tímamót í sögu íslenskrar verkalýðshreyf ingar. Með því var hafið tímabil sóknarbaráttu í stað varnar og það sem meir er inn vert, hafið á ný tímabil pólitískrar kjarabaráttu. Um ASÍ þingið er fjall- að bæði í leiðara blaðsins og pistli vikunnar í dag, en hér að ofan er svip- mynd frá þinginu: Magn- ús L. Sveinsson kynnir Eðvarði Sigurðssyni for- seta þingsins og Birni Jónssyni forseta ASÍ nið- urstöður sögulegs mið- stjórnarkjörs. Æfa fyrir jólin Ólafsfirði, 8. desember. — Félagslíf glæðist þessar vik- urnar og er nú Karlakór Ólafs fjarðar farinn að æfa og ætlar að halda konsert um jólin. Frank Herlufsen stjórnar. Kon ur undirbúa hnisvegar basar. Þær hafa styrkt elliheimilis- bygginguna og vinna nú að fjáröflun fyrir Sólborg á Ak- ureyri. — Björn Þór. Skóladagheimili starfar á Akureyri frá áramótum Það fyrsta utan Reykjavíkur Svo sem fram hefur komið í fréttum undanfarið, festi Ak- ureyrarbær fyrir nokkru kaup á húseigninni Brekku- götu 8 í því skyni að reka þar skóladagheimili, og mun fé- lagsmálaráð Akureyrar fara með yfirstjórn þess. Um þessar mundir eru dag- vistunarmál nokkuð í brenni- depli umræðna, og hefur ver- ið gert myndarlegt átak af hálfu starfshópa til þess að kynna ahnenningi í landinu ástand og horfur innan þess málaflokks. Skóladagheimili á Akur- eyri er það fyrsta, sem tekur til starfa utan Reykjavíkur, og verður að teljast góður áfangi í dagvistunarmálum þessa bæjar, en þau hafa sem kunnugt er verið fjarri því að geta talizt í viðunandi horfi. Forsaga þessa máls er sú, að haustið 1975 urðu ýmsir for- ystumenn skóla og heilbrigð- ismála á Akureyri til þess að vekja athygli á því, að brýn þörf væri á skóladagheimili hér í bænum. Reyndist vel Þá um áramót var hafinn tilraunarekstur skól'adag- heimilis í leiguhúsnæði að Oddeyrargötu 32 og stóð til vors. Starfræksla þess ama reyndist vel og lofaði góðu, en ekki var unnt að halda áfram óslitið haustið 1976, þar eð húsnæðið var einungis til bráðabirgða. Nú í júní 1976 fór Félags- málaráð þess á leit við bæjar- ráð Akureyrar, að kaup á hús eigninni Brekkugötu 8 yrðu könnuð, og síðar kom einnig fr’am, af hálfu Menntamála- ráðuneytisins, að það teldi þetta húsnæði einkar heppi- legt til þess að reka þar skóla- dagheimili. í lok október var svo geng- ið frá kaupunum, og til stend- ur, að skóladagheimili taki til starfa upp úr áramótum, og hefur Félagsmálastofnun aug- lýst eftir starfsfólki. Skól'adagheimili þetta er ætlað börnum á skólaskyldu- aldri, og er áætlað, að það verði starfrækt fimm daga vikunnar frá kl. 8.00 til kl. 17.00 þann tíma árs, sem skól- ar eru starfandi. Tilgangurinn Tilgangur heimilisins er fyrst og fremst sá að jafna aðstöðu barna og unglinga til náms, annarsvegar með því að veita börnum athvarf og að- hlynningu, sem ella væru ein síns liðs að degi til vegna úti- vinnu foreldra, en væntanlega er öllum kunnugt, að ein fyrir vinna nægir ekki til fram- færslu meðalheimilis hvað þá stærri á þessum síðustu og verstu' tímum. Hins vegar er Framhald á bls. 6.

x

Norðurland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norðurland
https://timarit.is/publication/784

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.