Norðurland - 10.12.1976, Side 4
NORÐURLAND
Málgagn sósíalista í Norðurlandskjördæmi eystra
Ritnefnd: Böðvar Guðmundsson, Helgi Guðmundsson, Soffía Guð-
mundsdóttir, Þórir Steingrímsson, Þröstur Ásmundsson.
Ritstjóri: Vilborg Harðardóttir (ábm.)
Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar: Eiðsvallagata 18, sími 21875
Prentun: Prentsmiðja Björns Jónssonar
Gefið út af kjördæmisráði Alþýðubandalagsins
l\leð hvaða
vopnum
Nýafstaðið ASl þing er boði þess að vænta megi betri tíma
í málum launafólks á íslandi. Ályktun þingsins xun lág-
launamál, þess eðlis að enginn skuli hafa lægri mánaðar-
laun en næmi eitthundrað þúsund krónurn miðað við
núverandi kaupgjald, sýnir kannski betur en margt annað
að skilningur íslensks verkafólks er ekki lengur bundinn
við það að semja um krónur og aura á kostnað annars
starfshóps, heldur að djarfa fyrir nýrri heildarsýn, nýrri
samstöðu og stéttlægri vitund fólks sem hefur nógu lengi
slitið sérnit til arðráns á sultarkjörum. Tilraunir íhalds-
ins til að sundra verkafólki í innbyrðis fjandsamlega hópa
verða líka æ örvæntingarfyllri, og meira í ætt við fasisma
en áður hefur verið. Það gæti ært óstööugan að fara að
telja upp allt þeirra gal og hjal um verkalýðsmál undan-
farið, allt frá fyrirlitningarorðum Péturs Sigurðssonar um
„maóstráka með kventöskur“ til skörulegrar framgöngu
Halldórs Blöndals á nýafstöðnu þingi ASÍ. Enda skal það
ekki tíundað frekar. En án alls gamans væri unnt að
velta því fyrir sér hvað gerðist ef krafan um hundrað
þúsund króna lágmarkslaun yrði sett fram af fullum
Irrafti nú innan skamms. Hvaða þjóðfélagshópar myndu
þar með jafna með sér lífskjörum, hver yrði gagnráð-
stöfun afturhaldsins og hver eru vopn verkalýðsins.
Það er deginum ljósara að þessi ríkisstjórn hefur ekki
hlaðið undir launþega af neinu tagi. Að vísu eru enn
til nokkrir launþegahópar sem hafa bærileg, jafnvel góð,
mánaðarlaun, td. lælcnar, bankastjórar, flugmenn og ráðu-
neytisstjórar. Það mætti kannsld finna nokkra fleiri, en
samanlagt er þetta þó svo lítill hluti launþega að hann
breytir svo til engu af heildarmyndinni. — Hins vegar
hafa verslunareigendur og heildsalar verið verndaðir sér-
staklega síðan 1974. Allt hefur verið gert til að vernda þá,
sömuleiðis hvers konar smákónga í liði íhaldsins, brask-
ara, skattsvikara og þjófa. Það er þessi félegi hópur
sem yrði að láta eitthvað af hendi svo að krafan um
hundrað þúsund króna lágmarkslaun yrði að veruleika.
Jafnvel þótt kaup alha lækna væri fært ofan í þetta lág-
mark myndi það ekki duga til að hækka kaup allra dag-
Iaunamanna eða barnakennara upp að markinu.
Það virðist því liggja í augum uppi að á bak við þessa
kröfu sé samstæður og sterkur vilji um róttæka breytingu
á þjóðfélaginu, breytingu sem raskaði valdahlutfalli veru-
lega, jafnvel snéru því við.
Hvaða vopn eiga verkafólk og launþegar sem duga
til slíkrar breytingar? Verkfall hefur löngum verið hin
eina friðsamlega leið verkalýðs til að ná fram settum
kröfum. Auðvitað yrði að beita því enn einu sinni, þvinga
þessa andstyggðar ríkisstjórn til undanhalds og uppgjaf-
ar. Þetta óttast líka ríkisstjórnarliðið og hefur sér til
bjargar á elleftu stundu sett fram vinnumálafrumvarp
til að geta nú í laganna nafni sigað lögreglu og dómurum
á verkfallsfólk. Það þarf engan stórspeking til að sjá að
þetta frumvarp stjórnarliðsins er sett fram í þeirri von
að lengja enn um skeið eymdarástand launafólks og auka
þannig í sjóði bröskurum og glæpmönnum.
Og ef frumvarpið verður nú ekki að lögum í tæka tíð,
— og ef krafan um Iágmarkslaunin verður sett fram með
voldugri verkfallshótun, — hvað þá? Rætist þá kannski
sú gamla stjórnhyggja Bjarna Benediktssonar að gott sé
að hafa bandarískan her í landinu ef íslendingar hyggja
á ótímabært brölt og skaðlegt? B. G.
Snær.
Jólasvipur á
Húsavík, 9. des. Jólasvipur er
að færast yfir Húsavík. Jörð
er alhvít, en færð allgóð, bæði
fyrir gangandi og akandi.
Verslanir eru búnar að birgja
sig upp af jólavörum og greini
legt, að fól(k er farið að gera
jólainnkaup.
Nóg er á boðstólum, mest
ber auðvi'tað á ýmsum gjafa-
vörum, svosem leikföngum
með lágu álagningunni og
fleira glingri og svo auðvitað
öll'um jólabókunum.
Gæftir hafa verið mjög
stirðar að undanförnu og lítill
afli borist á land. Atvinna hef
Saumastofan Prýði hf. á Húsa
vík hefur ákveðið að greiða
starfsfólki sínu sem svarar ein
um mánaðarlaunum í uppbót
eftir árið. Var þetta samþykkt
á síðasta aðalfundi hlutafé-
lagsins.
— Við höfum verið mjög
heppnir með starfsfólk, sagði
framkvæmdastjórinn Guð-
mundur Hákonarson í viðtali
við fréttaritara Norðurlands.
Þetta geta fyrirtæki gert,
sem búa við traust og gott
starfsfólk, en kannski er þetta
'líka spurning um vilja og
manneskjulegheit við það
fólk, sem vinnur á einhverju
l'élegasta kaupi, sem greitt er
á íslandi í dag.
Gengur vel
Hlutafélagið um saumastof-
una Prýði var stofnað 1971 og
eru hluthafar margir, en þeir
stærstu Húsavíkurbær og
Verkalýðsfélag Húsavíkur.
Guðmundur framkvæmdastj.
sagði reksturinn ganga vel,
einkum 2 síðustu árin. Upp-
haflega var framleiddur í
saumastofunni fatnaður fyrir
Hagkaup, en nú er svotil ein-
göngu framleitt til útflutnings
í samvinnu við SÍS, sem sér
um mest af hönnun þess fatn-
aðar, sem stofan saumar.
Prýði er í samtökum norð-
lenskra sauma- og prjóna-
stofa, en sérstakur fram-
kvæmdastjóri samtakanna sér
um ýmis sameiginleg innkaup,
sölusamninga og önnur sam-
Snær
Karlsson
segir fréttir frá
bænum
ur þyí verið mjög lítil hjá
þeim sem byggja afkomu sina
á vinnu við sjávarafla. Er
hætt við að þröngt sé í búi
hjá mörgu því fólki, enda
vinna hjá því verið stopul í
áldt haust.
Ríkisstjórnin reynir þó að
gleðja þetta fólk og aðra sem
hún getur og er byrjuð að
senda jólapakkana. í þessari
viku fengum við hækkun á
landbúnaðarvörum og er ekki
að efa að hún reynir að sjá til
þes-s, að landslýður fari ékki
sameiginleg vélakaup. Sauma
stofan er í leiguhúsnæði í eigu
Kaupfélags Þingeyinga og er
húsnæðið sæmilega góður sal-
ur og tvö herbergi. Guðmund-
ur segir, að kaupfélagið hafi
reynst mjög liðlegt við sauma
stofuna þótt það eigi þar ekki
neinna beinna hagsmuna að
gæta.
Og svo fyrir rússann
— Sem stendur erum við að
sauma fyrir Evrópumarkað,
sagði Guðmundur, en eftir ára
mót förum við að framleiða
fyrir rússana. Viðskiptin við
þá hafa tryggt okkur mikla
vinnu hér.
Mikil óánægja er ríkjandi með
al húsvíkinga vegna lélegra
móttökuskilyrða þar fyrir
hljóðvarps- og sjónvarpssend-
ingar og samþykkti bæjar-
stjórn Húsavíkur eftirfarandi
ályktun á fundi sínum 2. des.
sl.:
„Bæjarstj. Húsavíkur fagnar
endurbótum á dreifingu sjón-
varps til íbúa á Vestur og NorS
urlandi, vestan Vaðlaheiðar
með tilkomu örbylgjusend-
inga. Jafnframt minnir bæjar-
stjórnin á, að þessar endur-
bætur koma sjónvarpsnotend-
Frá Húsavik — séð yfir hæinn
Míklai
Fiskiðj
Brýnasta verkefnið framund-
an hjá Fiskiðjuveri Húsavík-
ur er að byggja sérstakan sal
fyrir vinnsluvélarnar, draga
úr hávaða og bæta vinnuað-
stöðu verkafólksins að dómi
framkvæmdastj., Tryggva
Finnssonar.
-— Næsti áfangi í bygginga-
málunum, sagði Tryggvi í við
tali við fréttamann Norður-
lands, — er að byggja þennan
sál norðan við Fiskiðjuverið
og flytja vél-arnar úr vinnu-
salnum. Það er orðið mjög að-
kallandi að þetta geti orðið
sem fyr-st, því hávaðinn frá
vélunum er mikill og þreyt-
andi, þar sem oft vill verða
langur vin-nudagur þegar
miki-11 afli berst að. Við höf-
um gert töluvert í að bæta að
stöðuna fyrir fólkið, sagði
hann, en þurfum að gera enn
betur.
í hau-st keyptum við frá Sví
þjóð verksmiðju til að fram-
leiða svokalláðan röraís, sem
þykir mun betri en sá sem við
getum fram'leitt nú og er þar
að auki ódýrari í framleiðslu.
Ka-upverðið á ísverksmiðjunni
var mjög ha-gstætt, hún er að
vísu notuð, en þarfnast ekki
annarra viðgerða og endur-
nýju-nar en þeirra sem starfs-
menn okkar geta framkvæ-mt.
um á Húsavík og þar í grennd,
að takmörkuðu gagni meðan
örbylgjukerfið nær aðeins til
Vaðlaheiðar og því eru mót-
tökuskilyrði fyrir sjónvarp á
Húsavík ennþá léleg, t. d. er
texti tvöfaldur.
Á fundi bæjarstjórnar Húsa
víkur í desember 1973 var
samþykkt harðorð ályktun
vegna ófremdarástands á út-
sendingum hljóðvarps frá end
urvarpsstöðinni á Húsavík.
Nú að þrem árum liðnum er
ennþá notast við sama send-
inn, sem er venjulegur talstöðv
í jóla-köttinn.
„Prýði64 starfar af prýðis
Fá mánaðarlaun í
uppbót á kauplð
eiginleg hagsmunamál, þám.
Öánægja með /é/e{
— Vilja fá sendi fyrir hljóðvarp