Norðurland - 29.09.1977, Qupperneq 6
Úr sögu Hjalteyrar
Framhald af opnu
var byggð fyrir erlent lánsfé.
Verksmiðjan var öll hin full-
komnasta, sérstaklega hvað
vélakost snerti. Afköstin voru
mjög mikil, meðalafköst 1943-
1946 voru 200.000 hl. Margir
Kveldúlfstogarar veiddu fyrir
verksmiðjuna auk smærri báta.
Thor, Haukur og Kjartan Thors
dvöldu á Hjalteyri á sumrum og
sáu um reksturinn. Sveinn S.
Einarsson var verksmiðjustjóri
1944-1948 en þá tók Vésteinn
Guðmundsson við og hafði
starfið með hendi til 1966.
Það var mikið áfall fyrir
Arnarneshrepp þegar verksmiðj
an hætti starfsemi 1966. íbúar á
Hjalteyri voru ca. 120 þegar það
gerðist, og höfðu flestir at-
vinnu hjá Kveldúlfi. Fluttu flest
ir burt á næstu árum og hefir
þorpið síðan verið í niður-
níðslu. Vélar voru seldar úr
verksmiðjunni, en Landsbank-
inn yfirtók allar eignir Kveld-
úlfs á Hjalteyri.
Augljóst er, að á Hjalteyri eru
ýmsir möguleikar fyrir hendi.
Vel mætti endurreisa verksmiðj
una og bræða í henni loðnu.
Verksmiðjuhúsin eru lítið sem
ekkert skemmd, aðeins þyrfti að
kaupa nýjar vélar.“
Húsin á
Hjalteyri
í lok ritgerðar sinnar gerir
Egill grein fyrir helstu og
merkustu húsum sem standa
eða staðið hafa á Hjalteyri.
„Knútshús 1 og II. Þessi hús
eru með þeim elstu á eyrinni og
byggð á árunum 1880-86, að
öllum líkindum af Knut Herter-
vig, norskum síldarútgerðar-
manni.
Möllershús, byggt af Óla P.
Möller. Thor E. Thulinius &
Co. keypti allar fasteignir Óla á
eyrinni árið 1912.
Friðrikshús, byggt 1880 af
Friðrik Antonssyni. Kveldúlfur
keypi húsið til niðurrifs árið
1933.
Sigurðarhús 1 og II. Þau voru
byggð árið 1907 af Sigurði
Sigurðarsyni og Sæmundi
Kristjánssyni og búa afkomend-
ur þess fyrrnefnda enn í þeim.
Oddahús 1 og II. Lítil hús,
byggð árið 1884.
Þýskuhús, þyggð á árunum
1907—10. Þýska útgerðarfélagið
Nordsee byggði húsin ásamt
með þremur bryggjum fyrir
neðan þau.
Ásgeirshús, hús Ásgeirs Pét-
urssonar kaupmanns á Akur-
eyri.
Wallen, í daglegu tali nefnt
Vallenshús. Það var byggt af
sænsku fyrirtæki árið 1912 eða
þarumbil. Húsiðvarlenginotað
sem geymsla Kveldúlfs en fyrir-
tækið keypti húsið til niðurrifs
árið 1934. Það mun þó hafa
staðið fram á sjötta áratuginn.
„Dust“, byggt á árunum
1907-12.1 fasteignamati 1918 er
eigandi talinn „Sænskt Qelag í
Gautaborg“.
Gamla hótel, byggt alda-
mótaárið. Mjög stórt hús á
sínum tíma. Sigtryggur Bene-
diktsson rak lengi hótel í því en
lengst af var það í eigu Snorra
Jónssonar kaupmanns á Akur-
eyri sem rak stóra verslun í
húsinu.
Loks ber að nefna stærsta
húsið á Hjalteyri, hús Richard
Thors sem hann lét reisa árið
1915. Richard lét reisa annað
hús úr steinsteypu árið 1938 og
var þá gamla húsinu breytt í
hótel auk þess sem verslun var
rekin í því. Húsið ertyærhæðir,
fimm herbergi í risi, fjórar
stofur niðri og stór kjallari.“
Greinargerð . .
Framhald af 8. síðu
væru þess ekki umkomnir að
nýta allan aflann væri sjálfsagt
að veita öðrum hlutdeild í hon-
um. Var þessari skoðun ekki
mótmælt.
Rækjuveiðin hófst svo 1.
október en í nóvember tilkynnir
ráðuneytið að það neyðist til að
skera niður aflakvótann um 150
tonn og viðraði að auki hug-
myndir um að leyfa bátum frá
Raufarhöfn veiðar í öxarfirði.
Þessum 150 tonnum átti að aka
til Akureyrar og vinna þar.
Á Kópaskeri var haldinn
fundur þar sem þessari ákvörð-
un var harðlega mótmælt og á
Húsavík var einnig fundað og
því lýst yfir að aldrei kæmi til
greina að leyfa flutning á rækju
þaðan til Akureyrar.
En í febrúar sl. frétta öxfirð-
ingar að slíkir flutningar séu
hafnir. Húsvíkingar komu af
fjöllum er þeir voru spurðir um
þessa flutninga og kváðu fyrri
yfirlýsingar sínar standa óhagg-
aðar. Var nú enn boðað til
fundar á Kópaskeri og fyrri mót
mæli ítrekuð. Einnig var þar
vakin athygli ráðherra ofl. á því
„alvarlega ástandi, sem skapast
hefur á Kópaskeri og nágrenni
vegna lokunar rækjumiðanna,
en það hefur ma. leitt af sér
alvarlegt atvinnuleysi, tvo af
þrem bátum sem veiðar stunda
er verið að selja vegna rekstrar-
örðugleika og rækjuverksmiðj-
an að komast í greiðsluþrot af
sömu ástæðu." Var miðunum
lokað vegna aukins seiðamagns
í aflanum.
Þann 5. júlí sl. er aftur fundað
á Kópaskeri um málið og í álykt
un þess fundarsegir ma.: „Fund
urinn vekur athygli á þeim
afleiðingum sem nefndar leyfis-
veitingar hafa nú þegar haft í för
með sér, en nú að lokinni ver-
tíð tala starfsmenn Hafrann-
sóknarstofnunar um að minnka
beri kvótann um hvorki meira
né minna en 40%. Hverjar sem
lokaniðurstöður Hafrannsókn-
arstofnunar kunna að verða
krefst fundurinn þess að við út-
hlutun veiðileyfa fyrir komandi
vertíð, verði aðeins bátum við
Öxarfjörð veitt veiðileyfi, og
aflinn verði unninn á Kópa-
skeri.“
„Að lokum er haldinn fundur
á Kópaskeri 28. ágúst sl. og var
á þennan fund boðið sjávarút-
vegsráðherra, alþingismönnum
og fl. gestum.
Á fundi þessum gerðum við
grein fyrir okkar sjónarmiðum
og kynntum fyrir gestum fundar
ins gerðir okkar og skoðanir, en
allt kom fyrir ekki.
Sjávarútvegsráðherra sá sér
ekki fært að mæta á fundi
þessum en sendi í sinn stað full-
trúa frá ráðuneytinu, og eftir
hans skýrslu trúlega tók ráð-
herra sína ákvörðun.
Við teljum okkur í þessu máli
hafa farið þær leiðir sem við
teljum réttar. Við höfum gengið
um framdyrnar ef svo má segja,
en án nokkurs árangurs, og
ráðherra hefur kosið að enda
sitt kjörtímabil eins og hann
byrjaði það með rækjustríði."
Þannig lýkur greinargerð öx-
firðinganna.
Bautinn fjárfestir
Ýmsar sögur virðast ganga
meðal Akureyringa um aukin
umsvif eigenda matstofunnar
Bautans. Herma sögurnar að
þeir hafi fest kaup á húsnæði
Valgarðs Stefánssonar heild-
sala gegnt Höffnersverslun og
hyggist reka þar diskótek eða
mötuneyti.
Hallgrímur Arason, einn eig-
enda Bautans, staðfesti í viðtali
við NORÐURLAND að þeir
hefðu keypt hús Valgarð6. Hins
vegar kvað hann ekkert hæft í
sögusögnum um veitingarekst-
ur þeirra í húsinu. Húsið verður
leigt út til nokkurra aðila sem
munu starfrækja í því bíla- og
sprautuverkstæði, bílasölu,
skiltagerð og etv. eitthvað
fleira.
Haustlaukar
Mikið úrval. - Gott verð.
Kjörbúðir KEA
N0RÐURLAND
Viltu gerast áskrifandi?
Þá skaltu senda þennan miða á Ritstjóm
Norðurlands, Pósthólf 492, Akureyri.
Árgjaldið er 2.000 kr.
Ég undirrituð(aður) óska eftir að gerast áskrifandi
að NORÐURLANDI
Nafn ..........
Heimilisfang ...
• Um helgina
• Akureyrarkirkja: Messa kl. 2
sd. sunnudaginn 2. okt. Sálmar
289, 367, 336, 420,470. Athugið
breyttan messutíma. - P.S.
• Fundir
• Kvenfélag Akureyrarkirkju
heldur fund í kirkjukapellunni
sunnudaginn 2. október kl. 3
e.h. - Stjórnin.
• Blöð og tímarit
• Dýraverndarinn 1.-2. og
3.-4. tbl. 1977 hefur borist
blaðinu og er nú fitjað upp á
ýmsum nýjungum í efnisvali
tímaritsins. Aðildarfélögum
Sambands dýraverndunarfé-
laga íslands hefur verið
veittur fastur þáttur í blað-
inu og er Dýraverndunar-
félag Akureyrar fyrst til með
sitt framlag, Ijóð og frá-
sagnir af dýrum auk fréttar
um aðalfund félagsins, en
formaður þess er Maríus
Helgason.
Þá hefur verið tekin upp í
ritinu þátturinn „Börnin
skrifa“ og sem nafnið bendir
til er börnum og unglingum
boðin þátttaka í honum með
frásagnir, myndir, vísur og
teikningar.
• Spil
• Bridgefélag Akureyrar:
Þriggja kvölda tvímenningur
hefst þriðjudaginn 4. okt. kl.
20. í Gefjunarsal. Þátttaka
tilkynnist stjórn B.A. fyrir
sunnudag 2. okt., t.d. sími
2-24-68 (Stefán).
• Gjöf til sjúkrahússins
• Nýlega gáfu hjónin Halla
Pálsdóttir og Tómas Bergmann
Barnadeild sjúkrahússins lækn-
ingatæki, - úðatæki til meðferð-
ar við sjúkdóma í öndunarfær-
um. - Stjórn sjúkrahússins
þakkar þeim hjónum góða gjöf.
Torfi Guðlaugsson.
Borinn
fluttur
Framhald af 1. síðu
finna þau 40% sem enn vantar.
- Það er stöðugt verið að
leita. Við Grísará var verið að
leita uppi nýtt vatnskerfi sem
mælingar hafa leitt í ljós að er
þar til staðar en liggur miklu
dýpra en það sem hingað til
hefur verið sótt í. Síðasta holan
sem boruð var við Laugaland
(sú djúpa) tilheyrði reyndar líka
því kerfi. Viðbótarmælingar
sem gerðar voru í sumar sýndu
hita vestan Grísarár en þessar
mælingar náðu til svæðisins
milli Hrafnagils og Kristness
vestan árinnar og frá Lauga-
landi norður fyrir Tjarnir að
austanverðu, sagði Gunnar.
Hann bætti því við að auk
þess sem lausu jarðlögin gerðu
boranir erfiðar væri mun dýrara
að bora niður á þetta djúpstæða
vatnskerfi.
Muniö
alþjóAiegt
hjálparstarf
RauAa
krossins.
Girónúm*r jtWMir ar 90000
RAUOI KROSS ISLANOS W®
6 -NORÐURLAND