Norðurland - 09.06.1978, Síða 1
NORÐURIAND
Reitur til áskriftarmeFkingar
21. tölublað
Föstudagur 9. júní 1978
3. árgangur
Framboðsfundir
í fulhun gangi
Fimmtudaginn 1. júní hófust sameiginlegir framboðs fundir allra flokka sem bjóða fram til al-
þingis í Norðurlandskjördæmi eystra. Var fyrsti fundurinn haldinn í Hrísey en næstu daga var
þingað í Þelamerkurskóla og Laugaborg þar sem þessi mynd var tekin. Fundirnir ha fa verið bæri-
lega sóttir og mælst vel fyrir. Á miðvikudag var fundur á Húsavík en næstu fundir verða sem hér
segir: í kvöld, fimmtudag, að Laugum, föstudag á Grenivík, laugardag í Ólafsfirði, mánudag á
Dalvík, þriðjudag á Kópskeri, miðvikudag á Raufarhöfn og næsta fimmtudag á Þórshöfn.
Síðasti fundurinn verður svo á Akureyri en dagsetning hans hefur enn ekki verið ákveðin,
sennilega verður hann í kringum 20. júní.
Afgreiðsla, ritstjórn og auglýsingar
í Eiðsvallagötu 18, sími 96-21875
Frystihús Ú. A.
skilaði 100 milj.
en togararnir átu þœr upp
Útgerðarfélag Akureyringa hélt
aðalfund sinn á mánudaginn
var. Þar kom fram aðhagnaður
af rekstri félagsins nam á
síðasta ári tæplega 6.9 milljón-
um króna. Tap var á rekstri
þriggja togara félagsins en
hagnaður á tveimur. Mestur
varð hagnaðurinn þó af frysti-
húsinu, liðlega 100 milljónir
króna.
Heildartekjur og gjöld félags-
ins voru uþb. fjórir miljarðar
króna. Launagreiðslur félags-
ins námu tæplega 1.2 miljörð-
um króna á árinu og alls voru
799 landmenn og 315 sjómenn á
launaskrá.
Þeir togarar sem skiluðu
hagnaði voru Harðbakur og
Sólbakur og skilaði hvor um sig
hátt á sjöundu miljón. Tapið á
Svalbaki nam 14 miljónum
króna, á Kaldbaki 24 miljónum
og á Siéttbaki tæplega 49
miljónum. Þá er tapið á gamla
Harðbaki sem liggur bundinn
við bryggju metið á 1.5 miljónir
Þá er tapið á saltfiskverkun
félagsins tæplega 20.
Á hinn bóginn skilaði skreið-
arverkun tæplega 8.7 miljónum
króna í hagnað. En eins og áður
segir varð mestur hagnaður á
rekstri hraðfrystihússins og
nam hann 101 miljón króna.
Stingur sú tala óneitanlega í
stúf við hina háværu kveinstafi
frystihúsaeigenda, sem hafa
mest verið notaðir til réttlæt-
ingar því kaupráni sem ríkis-
stjórnin hefur stundað undan-
farna mánuði. Því er svo við að
bæta að þessi hagnaður af
rekstri félagsins kemur fram
eftir að eignir þess hafa verið
afskrifaðar um 284 miljómr
króna á árinu.
Áætlað er að 2 miljónir
króna renni í varasjóð en arður
er áætlaður tæpar 6 miljónir
króna.
Akureyri
Áfram vinstra sam-
starf 1 bæjarstjóm
Strax að loknum bæjarstjórnar-
kosningum á Akureyri höfðu
Framsóknarflokkurinn og Al-
þýðubandalag frumkvæði að
samræðum vinstri flokkanna
um áframhaldandi meirihluta-
samstarf í bæjarstjórn. Viðræð-
ur hófust um miðja síðustu viku
og var þeim lokið á laugardag
en samkomulagið var undirrit-
að á sunnudag.
Fyrsti bæjarstjórnarfundur
eftir kosningar var svo haldinn
á þriðjudaginn. f upphafi las
Helgi Bergs bæjarstjóri upp
kjörbréf en aldursforseti bæjar-
stjórnar, Sigurður Hannesson,
stýrði fundi. Sigurður Óli Bryn-
jólfsson kvaddi sér hljóðs og las
upp málefnasamning meirihlut-
ans. Er hann birtur í opnu
blaðsins.
Að því loknu var gengið til
kosninga. Forseti bæjarstjórn-
ar var kjörinn Sigurður Jó-
hannesson, 1. varaforseti Soffía
Guðmundsdóttir og 2. varafor-
seti Ingólfur Árnason. Gildir
þessi kosning til eins árs.
í bæjarráð voru kjörin: Sig-
urður Óli Brynjólfsson, Freyr
Ófeigsson, Soffía Guðmunds-
dóttir, Ingólfur
Gísli Jónsson.
Árnason og
Bæjarstjóri var kjörinn Helgi
M. Bergs með 11 samhljóða
atkvæðum,
Síðan var kosið í hinar ýmsu
nefndir bæjarins og verður
greint nánar frá því síðar hér í
blaðinu.
Kosningaundirbúning-
urinn kominn í gang
Kosningaundirbúningur í Norðurlandskjördæmi eystra er hafinn og hefur Angan-
týr Einarsson skólastjóri á Raufarhöfn verið ráðinn kosningastjóri Alþýðu-
bandalagsins. Hann hefur aðsetur í Eiðsvallagötu 18 en á baksíðu er að finna
auglýsingu um kosningaskrifstofur og umboðsmenn G-listans í kjördæminu.
G-listinn hvetur stuðningsmenn sína til að fylgja eftir sigri flokksins í
sveitarstjórnarkosningunum. Þá fengu ríkisstjórnarflokkarnir áminningu. í
þingkosningunum þurfa þeir að fá refsingu. Þess vegna má enginn láta sitt eftir
liggja þessa dagana.
G-listann vantar sjálfboðaliða við ýmis undirbúningsstörf.
G-listann vantar starfsfólk í kjördeildum og á kosningaskrifstofunni á
'1
■
I
■
I
■
I
■
I
■
I
■
I
■
I
■
I
■
i
Húsavík
Dalvík
Viðræður
við
Framsókn
Alþýðubandalagið á Dal-
vík vann glæsilegasta kosn-
ingasigurinn í kjördæminu
í byggðakosningunum,
bætti við sig einum fulltrúa
og ríflega þrefaldaði fylgi
sitt. Að kosningum loknum
hófust viðræður Alþýðu-
bandalags og Framsóknar-
flokks um myndun meiri-
hluta í bæjarstjón Dalvík-
ur og er þeim ekki lokið.
Að sögn Óttars Proppé
bæjarfulltrúa Alþýðubanda
lagsins standa þessar viðræð-
ur enn yfir og miðar vel. Ekki
treysti hann sér til að segja
hvenær þeim lyki en hann
var vongóður um að fyrsti
bæjarstjórnarfundur eftir
kosningar yrði haldinn innan
tíðar.
Framsókn og Alþýðu-
bandalag hafa samtals fimm
fulltrúa í bæjarstjóm Dalvík-
ur en Sjálfstæðisflokkurinn
tvo. Á síðasta kjörtímabili
hafði sameiginlegur listi
Framsóknar og Samtakanna
- 1-listinn - meirihluta í bæj-
arstjóm en Samtökin tóku
ekki þátt í kosningunum
nuna.
B-listinn ekki með
í vinstra samstarfi
Eins og fram kom í síðasta blaði
vann K-listi Alþýðubandalags
og óháðra á Húsavík stórsigur í
bæjarstjórnarkosningunum á
dögunum og er hann nú stærsti
flokkurinn í bænum. Það var
því eðlilegt að hann ætti frum-
kvæði að umræðum um mynd-
un meirihluta í bæjarstjórn. Við
slógum því á þráðinn til Krist-
jáns Ásgeirssonar og inntum
hann eftir því hvernig viðræður
gengju.
- Þær standa enn yfir, sagði
Kristján. Alþýðuííokkurinn
féllst á tillögur oíckar en Fram-
sókn ekki og er viðræðum okk-
ar og Framsóknar lokið. Við-
ræður okkar og Alþýðuflokks
við Sjálfstæðisflokkinn hófust í
gær (miðvikudag) og lögðum
við okkar tillögur fyrir fulltrúa
hans. Við kynntum okkar sjón-
armið og þeir hafa þau nú til at-
hugunar. Væntum við svars frá
þeim fljótlega.
- Er þá samstarf vinstri flokk-
anna þriggja endanlega úr sög-
unni?
Framhald á bls. 7.
•§£ Dagný verður tæplega seld Pistillinn fjallar um póli- „Nýsköpunarstjórn“ á
til Raufarhafnar - Sjá frétt tískar jarðarfarir - Sjá Siglufirði í mótun - Sjá bak-
á bls. 3 bls. 7 síðu