Norðurland


Norðurland - 09.06.1978, Page 3

Norðurland - 09.06.1978, Page 3
Blinda eða blekkingariðja ? Vegna vandræðalegra bollalegginga í íslendingi frá 30.5. varðandi niðurstöðu bæjarstjórnarkosninganna á Akureyri birtum við hér eftirfarandi samanburðartöflu um fylgi flokkanna við þrennar síðustu bæjarstjórnarkosningar hér í bæ og miðum að sjálfsögðu við fjölda gildra atkvæða hverju sinni. Listi 1970 1974 1978 Viðbót frá 1974 Viðbót frá 1970 B 31.69% 30.73% 24.93% + 5.80% + 6.76% D 30.29% 40.09% 28.14% - 11.95% + 2.15% G 9.80% 12.50% 15.30% + 2.80% + 5.50% A 14.36% 21.51% + 7.15% F 13.86% 10.12% + 3.74% J 16.68% (+ 14.95%) Samt 100 100 100 0 0 Þar sem listarnir A og F rugluðu saman reitum sínum 1974 er við- miðunin í sviganum nokkuð hæpin. Furðuleg er sú fullyrðing ís- lendings að Sjálfstæðisflokkurinn hafi nú aðeins tapað hluta af fylgisaukningu sinni frá 1974. Fylgisaukning Alþýðubandalagsins á Akureyri er veruleg, þó að íslendingur segi að hún sé engin, og það mega íhaldsöflin vita að á bak við hana er meiri festa en sú sem birtist í þeim öldugangi sem er í liðsflutningunum milli borgaraflokkanna. Gjafir Svanhildi Pálsdóttur, Hóla- braut 15, kr. 10.000. Hlutavelta barna: Anna, Lilja og Hugrún Framhald á bls. 7. til FSA Að undanförnu hafa Fjórð- ungssjúkrahúsinu á Akureyri borist eftirtaldar gjafir: Frá Grími Valdemarssyni og Jónínu Ásg. Jakobsdóttur, Geislagötu 9, kr. 50.000. Gjöf frá S. Á. kr. 25.000. Ágóði af hlutaveltu barna, Eddu, Lindu og Rut kr. 4.850. Gjöf frá N. N. kr. 45.000. Til minningar um Klöru Gísladóttur frá dætrum hennar, Heiðdísi, Hólmfríði og Sigríði Eysteinsdætrum kr. 40.000. Til minningar um Sæ- mund Guðmundsson frá Fagra- bæ frá eiginkonu hans Guð- rúnu Jónsdóttur kr. 100.000. Frá öskudagsliði Grjót og aska kr. 1.524. Frá Öskudagsliði Sverris Árnasonar, Beykil. 7, kr. 2.143. Gjöf til barnadeildar frá ungum stúlkum kr. 12.000. Til minningar um Sigrúnu Berg mann Tómasdóttur til barna- deildarfrá M. kr. 25.000. Hluta- velta barna til barnadeildar frá Hrönn, Guðrúnu og Heiðdísi kr. 5.671. Gjöf frá Ingveldi Hrísey Nægur afli Hrísey 7/6 - Björgúlfur frá Dal- vík landar hér 30 tonnum af Fiski í dag og á miðvikudag í síðustu viku landaði Snæfellið 130 tonnum. Er því næg atvinna við að gera að þessum afla. Sjómannadagurinn gekk fyr- ir sig hér með hefðbundnum hætti. Hann hefst yfirleitt með messu en síðan er farið í sigl- ingu í grennd við eyna og er það einkum gert börnunum til skemmtunar. í eftirmiðdaginn er venjan að hafa eitthvað af léttu skemmtiefni útivið en það féll niður núna. Hins vegar var að venju selt kaffi í félags- heimilinu og um kvöldið var dansað. Hér var kosið óhlutbund- inni kosningu til hreppsnefnd- ar. í slíka kosningu vantar vita- skuld þessa pólitísku spennu sem fylgir kosningum þó auð- vitað geti hún verið spennandi á annan hátt. Guðjón. Orðsendingar frá Dýravernd- arfélagi Ak. NORÐURLANDI hafa borist nokkrar orðsendingar frá Dýraverndunarfélagi Akureyrar og fara þær hér á eftir: Ökumenn: Nú fer að líða að því, að lömbin verði í veg- köntunum, og eru enn óvön allri umferð um vegina, vin- samlega sýnið því fyllstu að- gætni þegar þið sjáið fé við vegina. Kattaeigendur: Vinsamlega gætið katta ykkar vel, nú eru smáfuglarnir í görðunum fara að unga út. Hafið því helst kettina í bandi þegar þið viðrið þá. Einnig er nauðsynlegt að merkja kett- ina, svo þeir komist aftur í ykkar hendur, ef þeir villast frá heimili sínu, eða týnast. Hundaeigendur: Nauðsyn- legt er að hafa hunda ykkar merkta, svo hægt sé að koma þeim í hendur réttra eigenda ef þeir sleppa út og týnast. Jafnframt minnum við á, að það er skylda að láta skrá alla hunda í bænum, en um- fram allt hafið þá vel merkta. Ökumenn og aðrir vegfar- endur: Vinsamlegast sýnið öllum dýrum og fuglum sem á vegi ykkar verða fyllstu nærgætni. Samborgarar góðir: Gerum það að metnaði okkar, að sýna þrifnað og góða um- gengni hvar sem við förum um landið. Minnumst þess, að hreint land er fagurt land. Fréttabréf frá Raufarhöfn Skuttogarinn Dagný frá Siglufirði sem Raufarhafnarbúar hafa sóst eftir að fá keyptan er ekki falur. Dagný er ekki föl Atuinnumál í ólestri fram í ágúst L Raufarhöfn 7/6 - Atvinnumál eru í miklum ólestri hér og er fyrirsjáanlegt að ekki rætist úr fyrr en togarinn Rauðinúpur landar hér aftur. Viðgerðar- samningur á togaranum stend ur til 20. júní en líklegt er að viðgerð dragist þar til fram í miðjan júlí eða jafnvel eitt- hvað lengur þannig að varla verður stöðug vinna aftur í frystihúsinu fyrr en í ágúst- mánuði. Meirihluti hreppsnefndar ásamt stjórn Jökuls tók þá ákvörðun fyrir hreppsnefnd- arkosningar að reyna að fá togarann Dagný frá Siglufirði keyptan. í Degi nú fyrir skömmu birtist frétt um að verið væri að ganga frá þess- um kaupum. Sú frétt fæst ekki staðfest hér heima. Hins vegar hef ég það eftir forstjóra Jök- uls að eigendur Dagnýjar séu tregir til að selja hana. Munu Siglfirðingar sjálfir ætla að reyna að fá togveiðileyfi fyrir hana og gera hana út þaðan. Núna eru 12 manns á at- vinnuleysisskrá hr, þar af 11 konur. Húsmæður láta þó fæstar skrá sig atvinnulausar þannig að raunverulega eru mun fleiri konur sem myndu koma til vinnu ef hún byðist. Grásleppuvertíð hefur gengið nokkuð vel og hafa ver- ið verkuð hér rúmlega eitt þús- und tonn af grásleppuhrogn- um. í saltfiskverkunarstöð Jóns Einarssonar hafa boristá land rúm 220 tonn af fiski frá áramótum og verið verkað í tæp 73 tonn af saltfiski. í salt- fiskverkunarstöð Guðmundar Friðrikssonar og co. hafa frá áramótum borist 212 tonn af fiski og verið verkað í 70 tonn af saltfiski. Þann 1. júní var leikskóli fyrir börn opnaður í barna- skólanum. Hann starfarfrá kl. 13-19 yfir sumarmánuðina og eru nú rúmlega 20 börn þar. Sennilega bætist við þann íjölda þegar næg atvinna fæst fyrir húsmæður. Á sjómannadaginn var hér vegleg hátíð. Ýmislegt var til skemmtunar, svo sem fótbolti milli skipstjóra og háseta, handbolti eiginkvenna sjó- manna og landmanna, reip- tog, boðhlaup og koddaslag- ur. Einnig var björgunarsveit- in með sýningu. Líney. Úr Hunangsilmi, Sigurveig Jónsdóttir, Gestur E. Jónasson og Kristín Á. Ólafsdóttir í hlutverkum sínum L A sýrdr Hunangsilm og Galdraland syðra f tilefni af Listahátíð 1978 sem nú stendur sem hæst í Reykja- vík hefur Leikfélag Reykjavík- ur boðið Leikfélagi Akureyrar að sýna tvö leikrit í Iðnó um og eftir næstu helgi. Hér er um að ræða leikritin Galdraland eftir Baldur Georgs og Hunangsilm eftir Shelagh Delaney. Fyrsta sýning á Galdralandi verður á sunnu- daginn en Hunangsilmur verð- ur sýndur á þriðjudags-, mið- vikudags- og fimmtudagskvöld. Sýningum er nú lokið á Hun- angsilmi hér nyrðra en leikend- ur í því eru Kristín Á. Ólafs- dóttir, Gestur E. Jónasson, Sigurveig Jónsdóttir, Aðal- steinn Bergdal og Þórir Stein- grímsson. Leikstjóri var Jill Brooke Árnason og hlaut hún mjög lofsamlega dóma fyrir sitt hlutverk og sama er að segja um leikendur, einkum þó Kristínu. Galdraland er hins vegar enn í gangi. Fyrir skömmu var farið með þetta fjölskylduleikrit í leik ferð um Norðausturland og sýnt á Húsavík, Raufarhöfn, Þórshöfn og Vopnafirði við ágæta aðsókn. Leikendur í Galdralandi eru þau Gestur, Aðalsteinn og Ása Jóhannes- dóttir. Baldur Georgs, höfund- ur leikritsins, kemur fram í sýn- ingunni, ræðir við vin sinn Konna og sýnir töfrabrögð. NORÐlíftLAND - 3

x

Norðurland

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Norðurland
https://timarit.is/publication/784

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.