Norðurland


Norðurland - 09.06.1978, Page 5

Norðurland - 09.06.1978, Page 5
stri r- útivistar og stuðningur aukinn við íþróttafélög og viðræður teknar upp við þau um bygg- ingu og rekstur íþróttamann- virkja. Fræðslumál. Stofnuð verði nefnd á vegum bæjarins sem fjalli um skipan framhaldsskóla á Akureyri og taki starf nefndarinnar til allrar menntunar á framhaldsskóla- stigi og háskólastigi, sbr. lög um skólakerfi nr. 55/1974. Fjalli nefndin sérstaklega um verk- menntun, fullorðinsfræðslu og námsflokka og geri tillögu um rekstur sérskóla í bænum. Skal leitað samstarfs við félagasam- tök og nágrannnabyggðir um þessi mál eftir því sem unnt er. Hraðað verði smíði nauðsyn- legra skólahúsa og sérstök áhersla lögð á aðstöðu fólks með sérþarfir og félagsaðstöðu í skólunum. Félagsmál. Áfram verði unnið að bættri félagslegri þjónustu í bænum. Lokið skal smíði dagvistunar- stofnana í Lundarhverfi og Hlíðarhverfi innan tveggja ára. Að tveimur árum liðnum skal liggja fyrir endurskoðuð áætlun um dagvistunarmál þar sem samræmis verður gætt við skóla byggingar og skipulag íbúða- hverfa. í þeirri áætlun verði m.a. tekið tillit til þarfa fjölfatl- aðra barna fyrir dagvistun og þjálfunaraðstöðu. Áfram skal haldið smíði leiguíbúða og verkamannabú- staða á vegum bæjarins. Skipulagsmál, náttúruvernd, landnýting. Stöðugt verði unnið að endur skoðun á aðalskipulagi og ráðinn skipulagsfulltrúi sem verði framkvæmdastjóri skipu- lagsnefndar. Lokið verði við deiliskipulag miðbæjarins. Stuðla skal að fegrun bæjar- ins og náttúruvernd þar sem leitast verði við að raska ekki sérkennum landsins eða rýra gæði þess. Gerð verði áætlun um nýt- ingu bæjarlandsins. Samvinna verði höfð við nágrannabgggðir um skipulags- mál, m.a. með stækkun lög- sagnarumdæmis Akureyrar í huga. Heilbrigðismál. Beitt verði áhrifum til að hraða framkvæmdum við FSA. Athugun verði gerð á því að koma á fót tannlæknaþjónustu í skólum bæjarins. Heilbrigöiseftirlit verði eflt. Unnið skal að bættri sorp- hreinsun. Gatnagerð. Lokið verði við að leggja bundið slitlag á götur bæjarins á næstu íjórum árum og áhersla verði lögð á að ganga frá gangstéttum og opnurn svæð- um. Skal aflað lánsfjár til þessara framkvæmda. Strætisvagnar. Lokið verði við nýtt leiða- kerfi. Gerð verði áætlun um framtíðarskipan og rekstur strætisvagna á Akureyri, þar sem stefnt verði að bættri þjónustu við bæjarbúa. ★ Gerð verði framkvæmdaáætlun til fimm ára sem endurskoða skal árlega. Liggi sú endur- skoðun fyrir við gerð fjárhags- áætlunar hverju sinni. Ráða skal starfsmann (hagsýslufull- trúa bæjarins) til að vinna að gerð framkvæmdaáætlunar, eftir nánari fyrirmælum bæjar- stjórnar. ★ Bæjarfulltrúar samstarfsflokk- anna haldi fundi til undirbún- ings málum í bæjarstjórn. Til- löguflutningur skal að jafnaði vera í nefndum. Tryggja skal stöðuga atvinnu í bænum . . . Keflavíkurgangan Á laugardaginn kemur, þann 10. júní, efna Samtök her- stöðvaandstæðinga til Kefla- víkurgöngu. Slíkar göngur hafa löngu áunnið sér vegleg- an sess í hugum herstöðvaand- stæðinga sem hafa tekið þátt í þeim svo þúsundum skiptir. Stundum hefur verið brugð- ið út frá hinni hefðbundnu gönguleið frá Keflavík til Reykjavíkur en svo verður ekki að þessu sinni. Verður lagt upp frá hliði Keflavíkur- flugvallar kl. 8.30 um morgun- inn og gengið sem leið liggur til Reykjavíkur en þegar inn í borgina kemur verður gengið Kringlumýrarbraut, Miklu- braut, Rauðarárstíg, Lauga- veg, Bankastræti á Lækjar- torg þar sem haldinn verður fundur kl. 22 um kvöldið. Á leiðinni verður áð á nokkrum stöðum. Þar verður matast, hvílst, sungið og hlýtt á ávörp. Á fundinum á Lækj- artorgi flytja þeir ávörp Magnús Kjartansson og Ás- mundur Ásmundsson formað- ur miðnefndar Samtaka her- stöðvaandstæðinga. Sólborg, vistheimili fyrir þroskahcfta á Akureyri. Alyktanir um mál- efiii þroskaheftra I lok aprílmánaðar efndu Styrktarfélag vangefinna á Norðurlandi og Foreldrafélag barna með sérþarfir á Akureyri til fundar um mál- efni þroskaheftra. Framsögu á fundinum hafði Margrét Margeirs- dóttir félagsráðgjafi og fjallaði hún um málefni þroskaheftra almennt og kynnti fyrir fundarmönnum hlutverk og tilgang Lands- samtakanna Þroskahjálp. Síðari fundardaginn var fjallað um foreldrasamstarf. Þennan fund sóttu um 40 manns og voru gerðar ályktanir þær sem hér fara á eftir. NORÐURLAND biðst afsökunar á þeim drætti sem orðið hefur á birtingu ályktananna en það stafar af plássleysi sem aftur stafar af kosningunum. „I. Fundurinn telur að ekki verði lengur unað því ófremdar- ástandi sem ríkir í málefnum þroskaheftra hérlendis. Skortur á samræmdri heildarlöggjöf um málefni þessa öryrkjahóps hef- ur staðið allri eðlilegri þróun á þessum vettvangi fyrir þrifum og gert það að verkum, að við stöndum nú langt að baki ná- grannaþjóðum okkar á þessu sviði. Fundurinn átelur harðlega þann seinagang sem einkennt hefur allar aðgerðir stjórnvalda til úrbóta og skorar á viðkom- andi ráðuneyti að skipa nú þeg- ar fulltrúa sína í nefnd þá, sem ákveðið er að koma á fót til að vinna að nýrri lagasetningu. Fundarmenn líta það mjög al- varlegum augum ef nefndar- skipun þessi dregst enn á lang- inn og engu öðru þá um að kenna en áhugaleysi og ósam- lyndi þeirra ráðuneyta sem hlut eiga að máli.“ „2. Fundurinn lýsir yfir áhyggjum sínum vegna þeirrar óvissu sem ríkir í menntunar- málum þroskaheftra. Þráttfyrir útkomu nýrrar reglugerðar um sérkennslu skortir mikið á, að þessir nemendur njóti þeirrar kennslu og þjálfunar, sem reglu- gerðin gerir ráð fyrir. Mennta- málaráðuneytið tekur ekki nema að nokkru leyti þátt í þeim kostnaði sem rekstur þjálf unarskóla fyrir vangefna hefur í för með sér. Rekstur skólanna hvílir því þungt á þeim stofnun- um, sem þeir eru tengdir, en þær eru flestar reknar á ábyrgð áhugamannafélaga, sem hafa engan fastan tekjustofn, en eru háð gjafmildi og stuðningi al- mennings. það getur engan veg- inn talist eðlilegt eða viðunandi. að afmarkaður hópur nemenda sé þannig settur hjá og njóti ekki þeirra sjálfsögðu réttinda að fá sótt skóla sem kostaðir eru af almanna fé, eins og aðrar menntastofnanir. Fundarmönnum er kunnugt um, að stjórn Visth. Sólborgará Akureyri hefur séð sig tilneydda til að lýsa því yfir, að ekki verði lengur rekinn skóli á Sólborg á hennar ábyrgð ef ekki verði breyting á rekstrargrundvelli hans. Þessi ákvöðun var til- kynnt menntamálaráðuneytinu i lok síðasta árs og þá óskað eftir viðræðum um framtíð skólans. Þeirri ósk hefur ekki verið sinnt og allt á huldu um fyrirætlanir ráðuneytisins. Fundurinn skorar á mennta- málaráðuneytið að taka þegar upp viðræður við stjórn Visth. Sólborgar um mál þetta og tryggja þeim nemendum. scm hér um ræðir eðlilega skóla- vist." INOKDl RLANI) - 5

x

Norðurland

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Norðurland
https://timarit.is/publication/784

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.