Norðurland


Norðurland - 07.12.1978, Side 3

Norðurland - 07.12.1978, Side 3
Starri í Garði skrifar: UM BÚLGUR Svo sem elztu sagnir íslenzkar herma, þá hafa frá fyrstu tíð til þessa dags ýmsar tegundir bólgu hrjáð mannfólkið á þessari af- skekktu ey. í fornsögum er talað um að sárið hafi verið sollið, að blástur hafi hlaupið í fótinn o.s.frv. Þegar ég var strákur heyrði ég einkum talað um tvær tegundir bólgu, sem plagaði mannfólkið. Það voru kulda- bólga og lungnabólga. Lungna- bólga var oft banvæn og háði margur harða og tvísýna baráftu við þá bólgu. Kuldabólga var ekki eins hættuleg, en nógu bölvuð samt. Nú er lungnabólga auðveld- lega læknuð með fúkkalyfjum í flestum tilvikum, kuldabólga er sennilega að mestu úr sögunni með bættum húsakynnum, betri klæðnaði og öðru atlæti. Er svo ekki dásamlegt að lifa í bólgu- lausu landi? Skyldi þaðekki vera munur, að emni landlægri plágu er af þjóðinni létt? Ný bólga En guði almáttugum hefir víst fundist þjóðinni fyrir bestu að svipta hana ekki öllum plágum og mótlæti, samkvæmt þeirri speki, að „á misjöfnu þrífist börnin bezt,“ en það kvað vera gamakunn uppeldisaðferð hjá honum blessuðum. Því sendi hann okkur nýja bólgu, annarrar og verri náttúru. Eða þannig myndu þeir, sem á hans forsjón trúa, skýra fyrirbærið. Hinar fyrri bólgur, sem nú hafa lotið í lægra haldi, voru einstaklings- bundnar, sú nýja er hreinræktuð samfélagsbólga sem leggst á sjálf an þjóðarlíkamann. Ekki veit ég hvað sú bólga heitir álatínu, en á íslensku heitir hún Verðbólga. Einkennum þessa sjúkdóms þarf ekki að lýsa, þau þekkja allir, enda hefir enginn sloppið við pestina. Um orsakir gildir öðru máli. Ekki svo að skilja að þeir eru fjölmargir, sem telja sig vita hverjar þær eru, en gallinn er bara sá að engum tveim kemur saman í því efni hvernig ráða skuli niðurlögum plágunnar. Stundum verður bólga þessi óð svo sem kunnugt er og kallast þá Óðaverðbólga. Þetta gerist einkum þegar stjómmálamenn erta við sjúkdóminn með ýmsum ráðum, sem þeir segja miða að því að lækka í henni rostann. Oftast byrja þeir lækninguna á myndarlegri gengislækkun. Þá verður ófreskjan djöfulóð. Ef einhver skyldi leggja allt á minnið og hugleiða, sem stjórn- málamenn vorir og hagspeking- ar hafa um Verðbólguna að segja dag hvern, orsakir hennar og afleiðingar og hvernig hér skuli ráðin bót á, ja, þá yrði sá hinn sami orðinn snarvitlaus að kvöldi. Einn segir það höfuðorsök Verðbólgunnar,, að kaupið sé of hátt, ef það sé ekki látið hækka hjaðni Verbólgan. Annar segir að kauphækkanir séu afleiðing hennar. Einn segir að Verðbólg- an mundi strax hjaðna eins og dögg fyrir sólu, ef komið yrði á Raunvöxtum, (sem sennilega yrðu fljótlega 100% eða þaryfir). Aðrir segja þetta haugalygi, háir vextir séu ein mesta orsök Verð- bólgunnar. Þá eru nú þeir sem telja óhjákvæmilegt upphaf læknisaðgerða gegn bólgu þess- ari gengislækkun. Þeirrar skoð- unar eru flestir landsfeður og peningaspekingar á borð við Nor dal. Hver ný gengislækkun er sönnun þess að nú ætli það kappalið heldur betur í stríð við Ofreskjuna, enda höfðu vinstristjórnarráðherrarnir okkar tæpast tyllt rössum í stól- ana áður en þeir felldu gengið um 15%. Það var þeirra fyrsta stjórnarathöfn. Oðrum þykir sem gengislækkun hverju sinni hleypi meiri vexti í títt nefnda bólgu, en nokkur önnur stjórnar athöfn. A þá er náttúrlega ekki hlustað fremur en títt er um þá, sem tönnlast á einföldum, óum- deilanlegum og hversdagslegum hlutum, sem allir vita, svo sem eins og að tvisvar tveir séu fjórir. Skiptar skoðartir Sumum sýnist það mest heilla ráð gegn Verðbólgu, að gefa verzlunarálagningu algerlega frjálsa, aðrir telja að þá keyri nú fyrst um þverbak. Og ekki má gleyma garminum honum Katli, íslenzkum landbúnaði. Það er nú aldeilis fríður hópur og fjöl- mennur, sem telur allt bjástur bænda við að framleiða mat og iðnaðarhráefni höfuðorsök Verð bólgu, og kemst þessi skoðun líklega næst því að verða hin almenna niðurstaða. Nú eru for- ystumenn bænda að leggja á ráð- in um hvernig helzt væri hægt að láta landbúnaðinn skreppa sem mest saman. Þeir eru komnir langleiðina með að telja bændum trú um að þetta sé aldeilis nauð- synlegt og þeim fyrir beztu. Enn er þó nokkur hópur manna, sem ekki vill skrifa undir þessa vís- dómskenningu um landbúnað- inn. Eins og vindurinn... Svona mætti lengi halda áfram að telja andstæðar full- yrðingar um orsakir og varnir gegn þessari skæðu samfélags- bólgu, sem hver og einn flytur af ástríðuþrungnum sannfæringar- krafti. Það sem nú hefir verið tal- ið er aðeins örlítið brot af þeim fjölskrúðugu fullyrðingum, sem hellt er yfir landslýð dag hvern. Er nokkur furða þótt margur sé orðinn ruglaður á kvöldin og andvarpi undir háttinn íbland við bænir sínar, biðjandi þess að nú komi að morgni einhver lands faðir og segi um Verðbólguna það sama og þekktur íslenzkur stjómmálamaður forðum tíð um auðvaldskreppuna miklu upp r 1930, en hann sagði um það fyr- irbæri: Kreppan er eins og vind- urinn, enginn veit hvaðan hún kemur eða hvert hún fer. , Um eitt eru þó allir sammála, en það er að Verðbólgan sé stór- hættulegur vágestur sem við þurfum fyrst af öllu að losna við, og eins þorir enginn að hugsa þá hugsun til enda hvernig færi fyr- ir honum, ef bólga þessi rynni allt í einu af þjóðarlíkamanum. Það vill nefnilega enginn missa hana. En það segir auðvitað eng- inn upphátt ef aðrir heyra til. Það liggur nefnilega í vitund manna, að ef ekki sé Verðbólga þá komi í hennar stað samdrátt- ur, kreppa og atvinnuleysi. Og þetta er rétt. Hagkerfi auðvalds- ins hefir ekki upp á. annað að bjóða, og sumsstaðar býður það fólkinu upp á hvorttveggja í senn. Hitt er verra, að sá hópur er furðu fámennur, sem gerir sér grein fyrir þessu og að það er að- eins einn kostur fyrir hendi, ein leið út úr ógöngunum: Sósíalskt hagkerfi. En svo aftur sé vikið að orðum stjórnmálamannsins um heimskreppuna, sem hér voru tilgreind, þá hlógu gömlu komm arnir íslenzku að þeirri fávizku og þóttust vita betur. Og þeir vissu betur. Þeir trúðu því ekki heldur, að kreppan væri guðleg ráðstöfun. Þeir sögðu að krepp- an væri skilgetið afkvæmi og af- leiðing auðvaldsskipulagsins, og studdú þá kenningu ósköp skýr- um og einföldum rökum. Þeir sögðu auðvitað að ekki yrði komið i veg fyrir slík ósköp nema með afnámi auðvaldsskipulags- ins og sósíalskir stjórnarhættir upp teknir í þess stað. Eina lcekningin Nú hlýtur hver sá sem ein- hverja nasasjón hefir af sósíal- isma að sjá í hendi sér, að um Verðbólguna, sem þjáir fleiri auðvaldsríki en það íslenzka, gildir nákvæmlega það sama og kreppuna miklu: Orsakir henn- ar felast í auðvaldsskipulaginu, sú eina lækning sem gildir er að nema burt orsökina. Það kallast sennilega fyrirbyggjandi aðgerð. Það er ekki að ástæðulausu þó því sé beint til þeirra er ferð- inni ráða innan Alþýðubanda- lagsins, þess flokks sem við gömlu kommarnir höfum fram til þessa talið okkur trú um, að væri pólitískur arftaki Komm- únistafiokksins og síðar Sósía- listafiokksins, að staldra ögn við og hugsa sinn gang, nú, þegar þeirra menn eru komnir í hvíta læknasloppa við hliðina á skottu- læknum auðvaidsfiokkanna, þar sem krukkað verður líkt og und- angengin ár með skurðarhnífn- um hingað og þangað í óða- verðbólginn þjóðarskrokkinn, en þess dyggilega gætt að reka hann aldrei á kaf í kýlið sjálft. Starri í Garði. LEIKLIST Benedikt Sigurðarson: Frábært afrek Jón Fr. Benónýsson, Karl Hjartarson og Herdís Birgisdóttir í hlut- verkum sínum. Leikfélag Húsavíkur: Heið- ursborgarar eftir Brian Friel Þýðandi: Jakob S. Jónsson Leikstjóri: María Kristjáns- dóttir Leikmynd og búningar: Messíana Tómasdóttir Eftirvæntingarfullir biðu frum- sýningargestir í gamla Sam- komuhúsinu á Húsavík laugar- dagskvöldið 25. nov. Sviðið blasti við og menn börðu það augum í spum. Leikskrá greinir frá sögusviði og tildrögum verks ins og var því enginn í vafa um hvers konar hörmungar atburði i mannlegum samskiptum um yrði fjallað. í leikskrá segir meðal annars: Sögusviðið er Londonderry á Norður-írlandi 1972 - tími borgarastyrjaldar - Kveikjan að leikritinu eru atburðir er gerðust „Hinn blóðuga sunnudag." Það var svalur, sólbjartur sunnudagutr. 20.000 kaþólikkar gengu fylktu liði til miðborgar Londonderry til að mótmæla fangelsun 600 manna, sem grun- aðir voru um að vera í IRA. Aður en fylkingin var komin inn í miðborgina urðu á vegi hennar götuvígi breskra hermanna, sem skipuðu göngumönnum að snúa við til Bogside, kaþólska hverfis- ins í borginni. Mikill meirihluti fólksins hlýddi skipuninni. En um fimmtíu unglingar stöldruðu við og köstuðu grjóti og hrópuðu að hermönnunum. I skjóli bak við herbíla sína og skildi svör- uðu hermennirnir með sínum venjulegu vopnum gegn mót- mælagöngum - táragasi, gúm- kúlum og lituðu vatni úr vatns- fallbyssum. En skyndilega breyttist sviðið. Bresku her- mennirnir yfirgáfu götuvígi sín og réðust til atlögu gegn mót- mælagönguliðinu, sem safnast hafði saman við Free Derry Corner, þar sem Bernadetta Devlin ætlaði að fara að halda ræðu. Þeir skutu beint inn í mannfjöldann og linntu ekki skothríðinni fyrr en eftir 20 mínútur. Þá lágu þrettán manns í valnum, þar af sjö unglingar og sautján voru fluttir sjúkrahús, alvarlega særðir. Bresk yfirvöld gáfu þá skýr- ingu á framferði hermannanna, að leyniskyttur hefðu skotið á þá og árásin hefði verið gerð í sjálfsvörn. Enginn breskur her- maður hafði þó orðið fyrir skoti og allt benti til að skotárásin hefði verið tilefnislaus. Við opinbera réttarrannsókn var herinn sýknaður af öllum ákærum. Heiðursborgarar fjallar um hliðstæðu þess er að framan greinir. Leikurinn gerist í og við ráðhúsið í Derry. í skrifstofu borgarstjóra hafa þrír þátttak- endur í mótmælagöngu leitað skjóls fyrir ofbeldi hersins. Þessi óvænta taka ráðhússins, sem í uppþotinu var óvarið og mann- laust, veldur ringulreið her- stjórnarinnar. Tákn þess valds, sem mótmælendur andæfa, ráð- hús borgarinnar fellur i hendur „óvinanna“ óvænt og bardaga- laust - hvílík ósköp. Sögusagnir um 40-50 manna flokk vopnaðra ofbeldisseggja verða tilefni þeirra aðgerða, sem enda meðþví að þremenningarnir eru skotn- ir. Leikurinn hefst þar sem hinir þrír liggja í valnum úti fyrir ráðhúsinu, blaðamaður og prest- ur birtast og fremja sínar kúnstir, dómari sem er nokkurs konar sögumaður kemur til skjalanna og yfirheyrslur hefjast, en þær eiga að leiða í ljós með hverjum hætti dauða þremenn- inganna bar að höndum. Markmið málsrannsóknarinn ar er að finna út hvort herinn hafi myrt vopnlausa vesalinga eða aðeins skotið vopnaða of- beldismenn. Gangur leiksins er annars vegar það sem fram fer inni í ráðhúsinu áður en ósköpin dundu yfir og hinsvegar vitna- leiðslur varðandi aðgerðir hers- ins í umsátinni og ástand fórnarlambanna eftir skothríð- ina. Auk þess birtast prestur, í stólnum, hermenn og blaða- menn, róni og dr. Dodds (amerískur félagsfræðingur) inn á milli utan, framan og ofan við aðalsviðið. Þannig gerist leikur- inn á ýmsum tímum án þess það sé á nokkurn hátt ruglandi fyrir tímaskynjun áhorfanda. Heiðursborgararnir Lily, Skinner og Michel, sem fyrir tilviljun leita skjóls í ráðhúsinu, eru persónugerfingar jafn margra skoðanahópa meðal ka- þólska minnihlutans. Lily,ellefu barna móðir og eiginkona ör- yrkja skrimtir á skúringavinnu. Hún þekkir ekkert nema fátækt, býr í tveim herbergjum án hreinlætisaðstöðu og eitt ellefu barna er mongólít. Lily „gengur Framhald á síðu 6. NORÐHRLAND- 3

x

Norðurland

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurland
https://timarit.is/publication/784

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.