Norðurland


Norðurland - 07.12.1978, Qupperneq 8

Norðurland - 07.12.1978, Qupperneq 8
NORÐURIAND Fimmtudagur 7. desember 1978 MÁLGAGN SÓSÍALISTA í NORÐURLANDSKJÖR- DÆMI EYSTRA GERIST ÁSKRIFENDUR - Stminn er 2-18-75 - AUGLÝSIÐ I NÖRÐURLANDI - Síminn er 2-18-75 - Rauðsokkar flytja samfellda samskipti karla og kvenna. Aðventu- kerti V með I .dagatali A tu jola margar gerðir KJOR 3LJOIR dagskrá, „! blíðu og stríðu“ um Samtelld dagskrá um hernámið flutt á fundi Samtaka herstöðva- andstæðinga. Að neðan: Anni Haugen flytur ræðu. Baráttufólk meðfundi áAkureyri Fullveldisfundur og Rauðsokkahátíð Tvenn baráttusamtök héldu fundi á Akureyri um síðustu helgi. A laugardaginn héldu rauðsokkar hátíð í Sjálfstæð- ishúsinu í samvinnu við áhugafólk um jafnréttismál á Akureyri og á sunnudag héldu Samtök herstöðvaand stæðinga fund á KEA í tilefni 60 ára fullveldis Islands. Vegna rúmleysis í blaðinu er ekki hægt að segja ítarlega frá fundarhöldunum að þessu sinni og verða myndimar að nægja, en hvorttveggja fór fram einsog áætlað var og áður frá sagt í blaðinu og tókst vel. Fundur herstöðvaandstæðinga var sæmi- lega sóttur, en fleiri hefðu gjarnan mátt koma og njóta frá- bærrar dagskrár rauðsokka og fjömgra umræðna i kaffíhléi. Lceknamiðstöðin á Akureyri fimm ára Þjónustan nær til 15 þúsund manns Um 35 þúsund manns leita árlega læknis á Læknamið- stöðinni á Akureyri og sím- töl við lækna eru að auki um 37 þúsund. Hafa sjúklingar því alls samband við lækna á stöðinni um 72 þúsund sinn- um á ári. Þetta eru ekki nákvæmar tölur, en fundnar samkvæmt skyndikönnunum, sem gerðar hafa verið á aðsókn, að því er segir i fréttatilkynningu frá Læknamiðstöðinni. Auk þessa er leitað upplýsinga og ýmislegr- ar fyrirgreiðslu hjá starfsfólki stöðvarinnar (tímapantanir o.fl.) um 39 þús. sinnum á ári, að lang- mestu leyti í síma. Alls er því leitað til stöðvarinnar uþb. 111 þúsund sinnum á ári. Læknamiðstöðin á Akureyri hefur nú starfað í full fimm ár. Þar er gegnt heimilislækningum fyrir Akureyri og nágranna- byggðir eða alls fyrir um 15.000 manns, auk aðkomumanna við vinnu í bænum, skólanemenda og ferðafólks. Annars staðar á landinu mun ekki jafn fjölmenn- ur hópur sækja slíka þjónustu á einn ig sama stað. Auk þessa annast stöðin símaþjónustu við mæoravemd, ungbamavernd og berklaeftirlit um skiptiborð Læknamiðstöðvarinnar og tals- verð sérfræðiþjónusta fer fram á stöðinni. Aðalvandræði og kvartanir eru um, að erfitt sé að ná í Læknamiðstöðina í síma. Lækna miðstöðin hefur sjö símalínur. Starfsfólk stöðvarinnar álítur, að hér geti verið mjög til hagræðis, að þeir, sem geta, gefi afgreiðslunni upp símanúmer sín og verður þá séð um, að læknir hringi til þeirra. Þeir geta þá vikið úr símanum í bráð, og gefið öðrum tækifæri til þess að ná sambandi við stöðina. Læknamiðstöðin biður að lokum fyrir þakkir til bæjarbúa fyrir stuðning og samvinnu ÍBÚÐIR til sölu! Til sölu íbúðir í smíðum við Smárahlíð 14-16 í Glerárhverfi. Verða seldar tilbúnar undir tréverk. öll sameign frágengin. Væntanleg verslunarmiðstöð í næsta nágrenni. Lán Húsnæðismálastofnunar væntanlega 5.5 milljónir á næsta ári. Tryggið yður íbúð í tíma. Sími (96)21604. BY GGIN G AVERKT AK AR HAFNARSTRÆTI107 AKUREYRI VOlllIM At> TAKA I JPP [JÍRÁ JV \1\ Mií JASMIN AIJSTUULEN/ IJADKAVliRÖLl) VEKJUM ATHYGLI I Á LEIKFANGADEILD ■ vÐfí/ÍD/ SjMI: 25757 HAFNARSTRÆTI 85 OPNUM KL.10 FH.OPIÐ LAUGARDAG TIL KL.16 Aðventutón- leikar í Akur- eyrarkirkju Aðventutónleikar verða haldnir í Akureyrarkirkju sunnudaginn 10. des. nk. kl. 17. A efnisskrá er ein- leikur á flautu, orgeltón- list, blokkflautuhljóm- sveit með söngrödd og strengjasveit Tónlistar- skólans flytur jólalög. Að- gangur er ókeypis. Sl. sunnudag voru haldnir fullveldistónleikar og voru þeir helgaðir íslenskri tónlist og þá ma. frumflutt tónverk eftir Leif Þórarinsson, sem nú kennir við Tónlistarskól- ann. Var tónleikunum mjög vel tekið. Síðasta tónlistarkynning Leifs fyrir jól á strengja- kvartettum Beethovens verður nk. þriðjudagskvöld kl. 20:30 í Tónlistarskólanum og er öllum heimill aðgangur. Málverkasýn- ing Kára Sig- urðssonar Kári Sigurðsson hélt mál- verkasýningu í safnahús- inu á Húsavík 1.-4. des. og sýndi 40 myndir, flestar unnar á sl. ári, en þær elstu frá 1966. Kári notar olíuliti, acryl og svarthvítt og einnig blýants- teikningu. Hann hefur áður haldið einkasýningu 1969 á Vopnafirði og tvisvar tekið þátt í samsýningum. Kári er búsettur á Húsavík, húsa- smiður að mennt, en vinnur nú við afgreiðslustörf hjá Kaupfélagi Þingeyinga. Góð aðsókn var að sýning- unni og 18 myndir seldust. -Ben. Barnaverndar- störf til félags- málaráðs Félagsmálaráði Akureyrar hefur með heimild mennta- málaráðuneytisins verið falin störf barnavemdarnefndar í bænum. Verður bamavemd- arnefnd þá ekki kosin. Efast um af- stöðu LA Samningsuppkast við Leik- félag Akureyrar um leigu á samkomuhúsi bæjarins til þriggja ára var til umræðu hjá bæjarstjórn Akureyrar ný- lega, og kom þar ma. fram, að í því er gert ráð fyrir, að starfsemi „sem tíðkast hefur“ haldi áfram í húsinu þótt það sé á höndum LA. Var td. spurt um leikstarfsemi Leik- félags MA, sem þar hefur haft aðgang í hálfa öld, en ekki alltaf árekstralaust - hvernig yrði leyst úr slíku, og hvað um rétt annarra til að- gangs í húsinu, td. leikfélaga í nágrannabyggðarlögum eða KEA með sína hefðbundnu fundi? Eftir nokkrar umræður var samþykkt að vísa samningn- um aftur til bæjarráðs til frek- ari skoðunar á slíkum atrið- um. Nemabústað FSA breytt í leikskóla Ákveðið er að breyta núver- andi nemabústað við Fjórð- ungssjúkrahúsið (Spítalavegi 11) í leikskóla fyrir FSA. Þarf mjög litlar breytingar að gera á húsinu sjálfu vegna breyttr- ar starfsemi.

x

Norðurland

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurland
https://timarit.is/publication/784

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.