Norðurland - 08.02.1979, Síða 3
Sósíalistar skemmtu sér sérdeilis vel á Akureyri
ÁRSHÁ TÍÐIN
fór fram með slíkum glæsibrag
að fátt kann til jafnast. Svo
margt var á boðstólum til upp-
lyftingar andanum og hreyf-
ingar magans að líður seint úr
minni akureyrskra sósíalista.
Mjór er mikils vísir. Kvartett Hins Himneska Friðar söng sig inn í
hug og hjörtu áheyrenda við undirleik Soffíu Guðmundsdóttur.
Grafalvarlegir stjórnmálamenn settu upp gamanbrár á góðu móti.
Soffía Guðmundsdóttir, Hilmir Helgason og Kristín Á. ólafsdóttir.
□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□
□ □
Bifreiðaeigendur
NÝKOMIÐ
hjá
Véladeild
SKÍÐA GRINDUR.
LÆST HURÐARHANDFÖNG.
HÁSPENNUKEFLI.
SVISSLÁSAR.
FLAUTUR.
VATNSLÁSAR.
ÞURKUMÓTORAR.
OG MARGT FLEIRA.
SfMAR 21400 & 22 99 7
Enda árshátíðaránægjan enn að
líða úr líkömum kommanna
þegar þetta er skrifað.
Kristín Á. Ólafsdóttir for-
maður ABA setti hátíðina með
stuttu ávarpi, - en síðan tók
Óttar árshátíðartröll Einarsson
við stjórn félaganna. Lukkaðist
stjórnin prýðilega.
Böðvar Guðmundsson flutti
ræðu með gamansömu yfir-
bragði, þarsem alvöruþunginn
sauð og bullaði undir nirðri.
Var ekki örgrannt um að ein-
hverjir fölnuðu undir Böðvars-
tölu á endasprettinum.
Jón Laxdal Halldórsson las
þýðingu sína á sögunni Ame-
ríka er ekki til. Kristín söng
við undirleik Böðvars baráttu-
kvæði um konur og börn. Þá
hvein hetjulega í Kvartett Hins
Himneska Friðar alias: Guðjón
E. Jónsson, Böðvar Guðmunds
son, Steinar Þorsteinsson og
Óttar Einarsson. Kvartettinn
hafði verið í^strangri þjálfun
undir agaðri stjórn Soffíu Guð-
mundsdóttur, sem einnig var
undirleikari. Var það mál
manna að ef fjölgaði röddum
(markvisst og áætlanabundið)
væri hér komið efni í rauðan
karlakór undir stjórn Soffíu á
samkeppnisgrundvelli við
Karlakórinn Geysi innan fárra
ára.
Einar Kristjánsson sagði frá
kosninganótt sl. vor og hlýleg-
um faðmlögum við kratisk
kvendi þá nótt. Þá flutti Guðjón
E. Jónsson frumortan gaman-
brag um saklausa félaga sína í
Alþýðubandalaginu.
Síðan var sungið og dansað
af krapti fram eftir nóttu. Það
höfðu margir á orði, hversu vel
þessi skemmtan fór fram. Sjálf-
sagt hefur það haft siðbætandi
áhrif á fullorðna á þessari hátíð,
að börn og unglingar voru með
fram eftir kveldi. Ættu fleiri að
taka upp þann frjálsræðissið.
Við oftar.
Dansað upp úr skónum. Ragnheiður Pálsdóttir gefur einkunn fyrir
kommapolka. í baksýn sést Jóhannes Hermundarson útskýra
sósíalískt gaungulag fornt, fyrir Brynjari Skaptasyni.
skaldið og framkvæmdastjórinn glotta við tönn. Jón Laxdal Hall-
dórsson og Tryggvi Jakobsson.
Árshátíðarnefndina skipuðu:
Óttar Einarsson, Ragnheiður
Pálsdóttir, Hannveig Valtýs-
dóttir og Brynjar Skaptason.
Virtist hún endurkjörin fyrir
árið 1980 með alþjóðasöng
verkalýðsins um fjegurleytið
aðfararnótt sl. sunnudags.
Gerist ðskrifendur
að N0RDURLAN0I
Það borgar sig því blaðíð fæst ekkert alltof víða
í lausasölu. Áskriftargjaldið er nú kr. 2.500
fyrir hálft árið (rúmlega 20 tölublöð). Fyllið út
áskriftarbeiðni og sendið hana til NORÐ-
URLANDS, Box 492,~602 Akureyri.
Einnig er hægt að hringja ( síma 96-21875 og
biðja um áskrift að blaðinu.
/ z 3 V S é> 7 w. 8 '9 /o /o 2 /2
// /z 9 m /j 9 /7 7 /5 /é l’m 9 /3 1
b 9 /?- /8 9 /s // 9 8 <f 9 /5 irn 7
6' Z///M m 2 20 m mk V 2Z ffm W'Á 6? t'A m.i 9 /3 /0 9
fS /z 7 w/m t/Á/it 23 9 8 u 9 /7 23 9 m 2 wpfii w/i
/7 ///////). m // 5 7 /S 9 Wffi/j rfi /5 tm /8 m 9 á 7
áHi /3 // 27 /s // / a é, W//M m 2 (o // 7 /7
7 wM, /5 /7 // ÍÉf 9 // m 7 // 2/ 9
23 % 2? /S 9 wM S//MÍ 28 /5 9 23 /8 WW// m 9 /5"
WM 8 2S 2 m 'Æíi /o /6> /7 m W0i 27 /8 9 /5 W//4/
26 // 27 ÍL /7 . •5
Krossgáta
Rétt er að taka fram að í þe sari
krossgátu er gerður skýr greinar-
munur á breiðum sérhljóða og
grönnum, t.d. getur a aldrei
komið í stað á, og öfugt.
Stafímir í reitunum undir
krossgátunni mynda manns ■
nafn.
Góða skemmtun!
NORÐURLAND - 3