Norðurland - 08.02.1979, Blaðsíða 8
NORÐURtAND
Fimmtudaginn 8. febrúar
MÁLGAGN SÓSÍALISTA
I NORÐURLANDSKJÖR-
DÆMI EYSTRA
GERIST
ÁSKRIFENDUR
- Síminn er 2-18-75 -
AUGLÝSIÐ I
' NORÐURLANDI
- Síminn er 2-18-75 -
Dalvík:
Ihaldið
þorði
ekki
Leikfélag MA
Grísir
gjalda
SIGURBJÖRG ÓF-1
Sl. fímmtudag var nýr 550 lesta
skuttogari sjósettur í Slipp-
stöðinni á Akureyri. Skipið,
sem er hið glæsilegasta, hlaut
nafnið Sigurbjörg ÓF 1. Það
var Guðfínna Pálsdóttir sem gaf
skipinu nafn með sjó af Gríms-
eyjarsundi.
Skipið er hannað af starfs-
mönnum Tæknideildar Slipp-
stöðvarinnar. Mesta lengd skips
ins er 54,98 m, en breidd 10,26
m. íbúðir eru fyrir 17 manns, 6
tveggja manna klefar og 5
einsmanns. Aðalvél er af gerð-
inni BRONS 16GV-H, sem
afkastar 2000 „A“ hestöflum
við 375 sn. /mín. Auk þess
tvær hjálparvélar, SAM-
OFA 6DE10TA.
Áformað er að skipið verði
afhent eigendum, útgerð
Magnúsar Gamalíelssonar hf. á
Ólafsfirði í mars nk. Næstu
vikur verður unnið að ýmsum
lokafrágangi. Það var einmitt
útgerð Magnúasar Gamalíels-
sonar, sem samdi um smíði fyrsta
stálskipsins í Slippstöðinni fyr-
irröskum 14árum. Þaðskipvar
335 lesta og hlaut einnig nafnið
SIGURBJORG og hefur reynst
hið mesta happaskip. Ólafur
Magnússon á Patreksfirði hefur
keypt gömlu Sigurbjörgu.
f þessari viku hófust æfíngar hjá
Leikfélagi Menntaskólans á
Akureyri. Verkefni þessa árs er
splunkunýtt leikrit sem einn
kennari skólans skrifaði sér-
staklega fyrir nemendur. Kenn-
arinn er Böðvar Guðmunds-
son og er þetta 4. leikrit hans.
„Grísir gjalda, gömul svín
valda“ er heiti verksins. Per-
sónur eru u.þ.b. 70 og má þar
nefna sögufræga einstaklinga
eins og Mjallhvíti, Tassan og
indíánann Big Foot. Vísitölu-
fjölskyldan tekur þátt í leiknum
ásamt górillum, kennurum,
bændafólki, kirkjunnar mönn-
um og vörðum laganna, svo ein-
hverjir séu nefndir. Þrátt fyrir
þennan hlutverkaíjölda eru leik
endur aðeins 25 talsins. Mun
fleiri standa að sýningunni, því
hópur nemenda annast gerð
leikmyndar og búninga, tón-
listarflutning o.fl.
Annar kennari Menntaskól-
ans, Sverrir Páll Erlendsson,
hefur samið lög fyrir verkið sem
örn Magnússon nemandi í
M.A. útsetur. Leikstjóri er
Kristín Á. Ólafsdóttir.
Ráðgert er að frumsýna í
Samkomuhúsinu á tímabilinu
20.-26. mars.
Alþýðubandalagið á Dalvík
hélt fund 29. janúar sl. þrjú mál
voru aðallega tekin fyrir á þess-
um fundi. Ákveðið var að setja
á laggirnar leshring um stefnu-
skrá fíokksins. Verða haldin
framsöguerindi á hverju kvöldi,
en áætlað er að taki 7 kvöld að
fara í gegnum gagnið.
Þá var ákveðið að efna til
leikhúsferðar til Akureyrar. Er
hugur í mörgum að berja Stalín
augum til gagns og ánægju nk.
föstudag.
Ameríski herinn var síðan til
umfjöllunar. Kom fram áhugi
að freista þess að halda opinn
fund með áhugasömum her-
stöðvaandstæðingum í hérað-
inu í tilefni þrjátíu ára aðildar
íslands að NATO 30. mars nk.
Áhugi er á að efna til fjöl-
breyttrar dagskrár af þessu til-
efni.
Fjörugar umræður urðu um
herstöðvamálið í heild sinni.
Þess má geta, að sl. haust sendi
Alþýðubandalagið á Dalvík
Sjálfstæðisfélaginu á staðnum
bréf og bauð því að taka þátt í
kappræðufundi um utanríkis-
stefnu Alþýðubandalagsins og
íhaldsins með sérstöku tilliti til
verunnar í NATO. Sjálfstæðis-
menn svöruðu með hjartnæmu
bréfi eins og þeirra var von og
vísa. Afþökkuðu þeir boðið á
þeim forsendum, að Alþýðu-
bandalagið væri nú aðili að
ríkisstjórn með óbreyttri utan-
ríkisstefnu. Styddi sú ríkisstjórn
í einu og öllu þá stefnu í utan-
ríkismálum sem Sjálfstæðis-
flokkurinri hefði átt hvað stærst
an þátt í að móta.
Annað hvort eru þeir að gera
gælur við þá hugmynd að and-
staða frjálsborinna manna við
herstöð á íslandi hafi sofnað
endanlega með því að Alþýðu-
bandalagið lét svæla sig til ríkís-
stjórnarsamstarfs, þar sem ekki
voru uppi neinar kröfur um að
stugga við hernum. Eða þá hitt,
- sem telja verður líklegra, að
þeir hafi ekki treyst sér í um-
ræðu um óskabarn þeirra á
Miðnesheiði (enda var þá barna-
ár í vændum). Alla vega fundust
þess hvergi merki á félögum hér
að hægt væri að rugla andstöðu
Alþýðubandalagsfélaga gegn
hernum og. NATO við stefnu
ihaldsins í þeim málum. í lok
umræðnanna var samþykkt
ályktun um málið, sem birt var í
síðasta tölublaði NORÐUR-
LANDS.
í lok fundarins leiddu bæjar-
fulltrúar sósíalista á Dalvík, -
þeir Óttar og Rafn umræðu um
það sem er á döfinni í bæjar-
stjórn. - Brynja.
TONLEIKAR
Martin Berkofsky píanóleikari
hefur síðastliðinn mánuð hald-
ið tónleika víða um Evrópu og
hlotið lofsamlega dóma gagn-
rýnenda.
Hann dvelur hér á landi dag-
ana 6.-17. febrúar, og leikur á
vegum Tónlistarfélags Akur-
eyrar i Borgarbíói laugardaginn
10. febrúar kl. 17, en daginn
eftir leikur hann á Sauðárkróki
á vegum Tónlistarskólans og
Tónlistarfélagsins þar kl. 16.
Martin leikur einnig í útvarpi og
leiðbeinir á viku píanónám-
skeiði við Tónlistarskólann á
Akureyri.
Á tónleikunum flytur hann
verk eftir Schubert, Debussy,
Hovhannes og List.
Martin Berkofsky hlaut heið
ursverðlaun við Yale-háskól-
ann fyrir 2 árum síðan, en það er
útnefning, sem listamenn eins
og Menhuin, Isac Stern og
Andre Watts höfðu áðurhlotið.
Schubert-tónleika Berkof-
skys og Hagan 26. nóvember
sl., sagði tónlistargagnrýnandi
Washington Post vera eina allra
bestu Schubert-tónleika á því
ári.
Berkofsky hefur leikið inn á
plötur með Sinfóníuhljómsveit
Lundúna undir stjórn Dorati og
einnig með Sinfóníuhljómsveit
Berlínar.
Aðgöngumiðasala á Akur-
eyri fer fram í bókabúðinni
Huld og við innganginn í Borg-
arbíói á tónleikadegi.
Allir
á
Steingrím
Steingrímur Sigurðsson list
málari opnar 42. sýningu
sína að Gallerí Háhóli laug-
ardaginn nk. kl. 3. Þetta er
fjórða sýning Steingríms á
Akureyri, en síðast var
hann hér fyrir 9 árum.
Hann er borinn og barn-
fæddur Akureyringur, eins
og flestir vita og allir sjá, -
og hefur haldið sýningar
heima og erlendis. Lista-
maðurinn hlaut engin lista-
mannalaun að þessu sinni,
en tók því af karlmennsku,
þótt litlu munaði að hann
þyrfti að gefa kúnstina upp
á bátinn í bókstaflegri
merkingu. En hann var
kominn á fremsta hlunn
með að ráða sig á bát frá
Patró. En sýningargyðj-
unni tókst að afstýra þvíog
Steingrímur er kominn í
kufli sínum yfir Kjöl. Hann
heldur aðeins fjögurra daga
sýningu að þessu sinni, sem
þýðir það að Akureyringar
þurfa fljótra fóta við til að
fara Steingrímsverk aug-
um.
Stalín
Enn er Leikfélag Akureyr-
ar að sýna framsæknasta
verk vetrarins Stalín er ekki
hér eftir Véstein Lúðvíks-
son. Sýningar eru orðnar á
annan tug og oftast fyrir
fullu húsi. Fólki er ráðíagt
að draga ekki að sjá þessa
ítnu uppfærslu. Stalínsvík-
ur engan, sem sér. Sýning-
um verður að ljúka um
miðjan mánuðinn. Um
þessa helgi er sýnt á fimmtu
dag, föstudag og laugar-
dag, - en í næstu viku verða
sýningar á þriðjudag, mið-
vikudag og fímmtudag.
Met, met, met
Síðustu misseri hefur gam-
all draugur úr kreppunni, -
maraþondans - verið endur.
vakinn meðal íslensks æsku
lýðs. Akureyrskir ungling-
ar settu um síðustu helgi
„íslandsmet" í þessu
kreppufyrirbæri. 46 munu
hafa byrjað dansinn og sex
krakkar staðið i þessu í yfir
19 klukkustundir. Er von-
andi að unglingunum hafi
ekki orðið meint af þessu
sprikli.
Nýútskrifaðir
sjúkraliðar
Sl. föstudag voru útskrif-
aðir tíu sjúkraliðar frá
Gagnfræðaskólanum á Ak-
ureyri og “ Fjórðungs-
sjúkrahúsinu. Sjúkraliðarn-
ir eru þeir fyrstu sem eru
brautskráðir frá Gag^
fræðaskólanum. Þeir hófu
nám ári ð 1976 og hafa
tveggja ára skólanám að
baki, þar af 34 vikna verk-
legt nám á 5 deildum sjúkra
hússins. Þeir eru allir ráðn-
ir til starfa á FSA. Enginn
karl var meðal hinna ný-
útskrifuðu.