Norðurland


Norðurland - 27.09.1979, Blaðsíða 1

Norðurland - 27.09.1979, Blaðsíða 1
NORÐURLAND 4. árgangur Fimmtudagur 27. september 1979 21. tölublað Öfugsnúningur á Húsavík Biðstaða er nú hjá hitaveitunni Á fundi á miðvikudaginn í síðustu viku ákvað hitaveitustjórn að stöðva tengingar við hitaveitu um stundarsakir. Þetta var gert vegna seinkunar á efni, einkum dæium og búnaði í sambandi við þær og einnig vegna óvæntra óhappa. Eitt óhappið varð þegar byrj- að var að dæla úr nýjustu hol- unni á Laugalandi fyrir rúmri viku. Þá komst sandur í clæluna og stórskemmdi hana. Aður en önnur dæla verður látin niður þarf að hreinsa holuna og er verið að loftdæla úr henni þessa dagana í þeim tilgangi. Einnig hefur viðgerð á holu á Ytri- Tjörnum dregist úr hömlu og er ekki séð fyrir endann á því verki ennþá. Reikna má með óbreyttu ástandi að minnsta kosti út októbermánuð. Ný hús sem reiknuðu með hitaveitu verða þó tengd. Þessar ráðstafanir eru gerðar til að tryggja nægjanlegt vatn handa þeim sem þegar hafa það, hvernig svo sem viðgerðum reiðir af. Hvað viðvíkur áfram- haldandi vatnsöflun er unnið við borholur í landi Reykhúsa og Grýtu og ný hola áformuð á Ytri-Tjörnum. B.I.S. Snurvoðarbátar uppi í fjöru- steinum, en trillur úti á Flóa Nú síðustu daga hafa sjö bátar frá Húsavík verið að fiska í sunurvoð á svæði sem hingað til hefur verið lokað fyrir öðrum bátum en trillum. Þetta er svæði sem takmarkast af línu sem hugsast dregin frá Skálavík að vestan og Lundey í Héðinshöfða að austan. Þessar veiðar eru heimilaðar af sjávarútvegsráðu- neytinu í níu daga. Þetta mun varið með því að um kolaveiðar sé að ræða og að kolann verði að veiða í þetta veiðarfæri. Minna mun hafa orðið úr veiði en ætlað var og bátarnir farnir að færa sig út aftur en þeir voru að fiska uppundir landsteina í nokkra daga, meðan trillurnar urðu að sækja lengst út á flóa. Þeir voru að skrapa hér uppundir fjörusteinum, maður sagði bara að það væri gott meðan þeir strönduðu ekki upp í fjöru sagði Hreiðar Jósteins- son sjómaður á Húsavík þegar blaðið bar þetta mál undir hann. Hefur þetta verið leyft áður? Mig minnir að þetta hafi líka verið leyft í hitteðfyrra. Hver tekur ákvörðun um þessa leyfisvei tningu? Það hlýtur að vera eitt af afreksverkum sjávarútvegsráð- herrans okkar. Einhver þrýstingur hlýtur að koma frá heimamönnum? Jú, það er vitað mál, en það vill nú helst enginn vita hvaðan hann kemur. Hafið þið þá verið aðgerðar- lausir á tri/lunum? Nei, menn hafa nú reyndar farið út á flóa með hörkunni en þegar snurvoðin er notið þá útilokar hún öll önnur veiðar- færi á því veiðisvæði. Og ekki nóg með það þeir eru búnir að eyðileggja fyrir okkur þetta svæði sem þeir hafa verið að skrapa alla vega næstu vikurnar ef ekki lengur það er ekki branda eftir handa okkur. Nú er sá tími þegar fiskur er ekki á göngu þannig að við hefðum mátt búast við nokkuð jöfnum afla. Er það stór hluti sjómanna á Húsavík sem hefur framfœri af trilluútgerð? Já, það er mikil trilluútgerð héðan. Það eru fleiri menn sem eru á trillum en á stórum bátunum. Þess skal getið að lokum að á árunum 1954 til 1965 varSkjálf- andaflóinn algjörlega lokaður fyrir dragnót en síðan hafa mörkin verið að færast inn. Ekki mun leyfisveitingin nú hafa verið borin undir sjómanna- félagið á staðnum. Hliðarfjall orðið alþjóðlegt keppnissvæði Mjög góð aðstaða fyrir allar alpagreinar segir norðmaðurinn Sverre Lasse-Urdal frá F.I.S. Forsvarsmenn íþróttamála á Akureyri hafa unnið að því að fá Hlíðarfjall viðurkennt sem al- þjóðlegan keppnisstað fyrir alpa- greinar en svo nefnast einu nafni svig stórsvig og brun. Það er alþjóðaskíðasambandið F.I.S. sem veitir þessa viðurkenningu og hefur umsókn þar að lútandi legið hjá sambandinu um hríð. Á þriðjudaginn var norðmaðurinn Svere Lasse-Urdal frá F.I.S. í fjallinu og athugaði aðstæður. Niðurstaða hans var sú að í Hlíðarfjalli væri mjög góð aðstaða fyrir alpagreinarnar og þar með hefur Hlíðarfjall hlotið víðurkenningu sem alþjóðlegur keppnisstaður. Lasse Urdal sagði frétta- mönnum er þeir hittu hann í gærmorgun að harðar reglur giltu um þessi mál, skíðaíþrótt- in væri hættulegt sport ef aðstaðan væri léleg. Hann tók út tvær brautir sem hann sagði fullnægja mjög vel þeim kröfum sem gerðar eru af F.I.S. til svig og stórsvigsbrauta og einnig sagði hann að gera mætti ágæta brunbraut. Framkvæmdir eru á döfinni í Hlíðarfjalli sem miðast við að bæta aðstöðuna með aukna keppni i huga einnig til að bæta aðstöðu þeirra sem stunda skíðaíþróttina sér fyrst og fremst til heilsubótar. Verður að vona að ekki verði gengið á hlut þeirra þótt alþjóðlegar keppnir haldi nú innreið sína í Hlíðarfjall. Helgi Fyrirburður í Sundahöfn Erindi Pistilinn skrifar Guðmundsson eftir Hjörleifs Guttormssonar Erlingur skrifar leiðarann Böðvar Guðmundsson á Fjórðungsþinginu Sigurðarson Bls. 4 Bls. 3 í opnu BIs. 7 Gerist áskrifendur að Norðuriandi

x

Norðurland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norðurland
https://timarit.is/publication/784

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.