Norðurland - 27.09.1979, Síða 6

Norðurland - 27.09.1979, Síða 6
AKUREYRARBÆR AUGLÝSIR Félagsmálanámskeið Félagsmálanámskeið hefst fimmtudaginn 4. okt. kl. 20.30 í Félagsmiðstöðinni í Lundarskóla. Námsefni Æskulr. Ríkisins. Kennslugreinar: Fundarstörf, ræðumennska, félög og félagastjórn, stofnun félags, samkomuhald, kynningarstarfsemi. Námskeiðið er öllum opið. Framhaldsnámskeið Sérnámskeið í gjaldkerastörfum Fyrir starfandi gjaldkera hjá félögum og þá sem vilja kynnasér þettastarf. Hefst laugard. 13.okt. kl. 10f.h. Sérnámskeið í störfum ritara Fyrir starfandi ritara hjá félögum og þá sem vilja kynna sér þetta starf. Hefst 20. okt. kl. 10 f.h. FORMANNA FUNDUR allra æskulýðsfélaga á Akur- eyri. Hefst laugardaginn 27. okt. kl. 10 f.h. Námskeið í ræðumennsku Ætlað öllum er áhuga hafa á ræðumennsku og kapp- ræðutækni. Hefst laugardaginn 10. nóv. kl. 10 f.h. Námskeiðin eru öli ÓKEYPIS og fara fram í Félags- miðstöðinni í Lundarskóla. Innritun og upplýsingar hjá Æskulýðsráði í símum 22722 og 22710. ÆSKULÝÐSRÁÐ AKUREYRAR. Auglýsið í NORÐURLANDI r NORÐURIAND MÁLGAGN SÓSÍALISTA I NORÐURLANDS- KJÖRDÆMI EYSTRA Fréttir af Norð- urlandi. Hressileg póli- tísk umræða. Skrif um listir og menningarmál. Skákþáttur Helga Ólafssonar. Krossgátan. íþróttir. Norðurland er 8 síður og kemur út vikulega. Áskriftargjald inn- heimtist tvisvar á ári. Áskriftargjald fyrir hálft árið er kr. 3.500. Sími 21875 Eiðsvallagata 18 Pósthólf 492 Akureyri Ég undirritaður óska eftir að gerast áskrifandi að NORÐURLANDI: Nafn:________________________________________________ Heimili: Póstnúmer: 1111 6 - NORÐURLAND Ræða Hjörleifs Guttormssonar Framhald af opnu. Ríkisstjórnin beitti sér fyrir því á fyrri hluta þessa árs, að bæta nokkuð samkeppnisað- stöðu innlends iðnaðar með lög- festingu tímabundins aðlögun- argjalds á innfluttar iðnaðar- vörur og um leið var ákveðið að tekjum af því skuli varið til sér- stakra iðnþróunaraðgerða. Um álagningu gjalds þessa náðist samkomulag við EFTA og er gert ráð fyrir innheimtu þess á tímabilinu frá 1. júlí sl. til árs- loka 1980. Málefni einstakra iðngreina eru í sérstakri athugun á vegum iðnaðarráðuneytisins í sam- vinnu við fleiri aðila. Má þar til nefna húsgagna- og innréttinga- smíð, meðal annars m.t.t. út- flutnings, og skipasmíðaiðnað með hliðsjón af þróun hans og verkefnum hér innanlands. Varðandi skipaiðnaðinn er hug- myndin að ná saman heildstæðri áætlun um þau verkefni sem eðlilegt getur talist að leysa hér innanlands, bæði varðandi ný- smíði og viðgerðir, og upp- byggingu aðstöðu og aðbúnað að skipaiðnaðarstöðvum í sam- ræmi við markaða stefnu. Miklu varðar að unnt reynist að ná sem bestri samstöðu milli hags- munaaðila, svo sem iðnaðar og sjávarútvegs um það hvernig að þessum stóru verkefnum skuli vinna, en staða skipaiðnaðarins snertir með ýmsum hætti ýmsar aðrar iðngreinar er honum tengjast og þá öðru fremur málmiðnað í landinu. Hinar svonefndu þjónustu- iðngreinar skipta einnig miklu máli, aðstaða þeirra og skipu- lagning, ekki síst fyrir lands- byggðina og inn í þessa mynd fellur einnig uppbygging iðnað- ar í strjálbýli og sveitum, sem síðasta Alþingi samþykkti þings ályktunartillögu um. Á síðasta Alþingi voru sett lög um sérstaka lánadeild iðn- garða innan Iðnlánasjóðs, og er henni ætlað að veita lán m.a. til sveitarfélaga og félagssamtaka, sem reisa ætla iðnaðarmann- virki í því skyni að efla íslenskan iðnað eða skapa með öðrum hætti starfsaðstöðu til handa iðnfyrirtækjum. - í undirbún- ingi er síðan sérstök löggjöf um iðngarða til að skilgreina nánar markmið með slíku húsnæði og skilyrði, sem eðlilegt er að setja um nýtingu þess, m.a. í sam- bandi við lánveitingar. Hér er um að ræða mál sem samtök sveitarfélaga hafa sýnt áhuga og er ekki að efa að ýmsir munu hugsa sér til hreyfings i þessum efnum. Þar mun fjármagn ekki síst skammta af, hversu hratt verður farið, en reynsla erlendis frá bendir til að fyrirgreiðsla við iðnfyrirtæki á þennan hátt hafi orðið nokkur lyftistöng í iðn- þróun til eflingar byggðaþróun. Jafnvægi og dreifing byggðar í iðnaðaruppbyggingu í land- inu þurfum við að hafa æskilega dreifíngu og jafnvægi í þróun byggðar vel í huga og á því sviði reynir á val verkefna, sam- vinnu og gott skipulag til að vega upp á móti óhagræði, sem rekja má til fámennis og smæð- ar fyrirtækja sem því fylgja. Sú umræða sem hér fer fram á þessum fundi um iðnaðarmál og sá undirbúningur sem kominn er á góðan rekspöl við gerð áætlunar fyrir Norðurland að tilstuðlan Fjórðungssambands Norðlendinga, er mér sérstakt ánægjuefni. Hér hefur samband ykkar verið brautryðjandi með vissum hætti sem ekki er óeðli- legt miðað við forystuhlutverk norðlenskra byggðarlaga og þá alveg sérstaklega Akureyrar undir merki samvinnurekstrar á sviði iðnaðar um langt skeið. Ég vil hér heita stuðningi af hálfu ráðuneytisins við vinnu að þess- ari áætlunargerð, en stofnanir á þess vegum svo sem Iðntækni- stofnun hafa * ásamt Fram- kvæmdastofnun ríkisins lagt nokkurn skerf til hennar. Um- ræður og ákvarðanir á þessum fundi verða væntanlega til að. glöggva fyrir okkur framhaldið og áherslu og óskir af hálfu ykkar heimamanna. Iðnþróun og önnur uppbygg- ing atvinnurekstrar kemur ekki sem nein himnasending eða á silfurbakka frá stjórnvöldum. Þar er eðlilegast að frumkvæði og forysta komi sem mest úr héraði, en jafn sjálfsagt og skylt, er að opinberir aðilar að þjón- ustustofnunum iðnaðarins með- töldum komi til liðs við áhuga og frumkvæði, ekki síst er hlut eiga að máli hinar dreifðu byggðir, sem um margt eiga örðugra um vik en þéttbýlið. Uppbygging þjónustumið- stöðva fyrir iðnrekstur í lands- hlutunum í einhvelju formi, er málefni, sem huga þarf að í tengslum við framkvæmd iðn- þróunaráætlana, en ég ætla ekki að lengja mál mitt með hug- renningu þar að lútandi. Fundinum óska ég árangurs í störfum og vænti þess að margt eigi eftir að vaxa upp af þeirri viðleitni sem hér er á ferðinni til iðnaðaruppbyggingar á Norð- urlandi, þar á meðal efling þess blómlega iðnrelstrar og ein- stakra iðnfyrirtækja sem fyrir eru í norðlenskum byggðum. Óskum að ráða trésmiði og verkamenn strax Mikil vinna. Noröurverk h.f. - Sími 21777 Frá Pósti og síma, Akureyri Staða bréfbera er laus til umsóknar. Laun samkvæmt launakerfi ríkisins. Stö&varstjóri. Frá Mötuneyti Menntaskólans á Akureyri Vakin er athygli á því að allir nemendur sem nám stunda á framhaldsskólastigi á Akureyri eiga þess kost að kaupa mat í mötuneytinu á sömu kjörum og nemendur skólans. Upplýsingar á skrifstofu Menntaskólans á Akureyri á skrifstofutíma kl. 8-12 og 13-16 mánudag til föstudags, sími 2-24-22. Skölameistari. Framkvæmdastjóri Staða framkvæmdastjóra við Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri er laus til umsóknar. Umsóknir er greini aldur, menntun og fyrri störf berist til stjórnar Fjórðungs- sjúkrahússins fyrir 10. okt. n.k. Staðan verður veitt frá 1. nóv. n.k. eða eftir samkomulagi. Umsækjendur skulu hafa menntun í viðskiptafræði eða hliðstæðum greinum og/eða reynslu í stjórnum fyrirtækja. Laun samkvæmt kjarasamningi starfsmanna Akur- eyrarbæjar. Allar nánari upplýsingar veitir stjórnarformaður Stefán Stefánsson bæjarverkfræðingur, sími 96-21000. Stjórn F.S.A.

x

Norðurland

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurland
https://timarit.is/publication/784

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.