Norðurland - 18.10.1979, Síða 1
NORÐURIAND
4. árgangur Fimmtudagur 18. október 1979 j 24. tölublað
111 1 — ..............— I ■'■■■■■ L. 1 II ■ ■ J 1 ‘-"'l' '
Gröndæla fædd
r-------------n
Hvað varðar
þá um jörðina
sem himininn
eiga?
Nýja ríkis-
stjórnin
á tröppum
Bessastaða.
Gröndæla
fetar í fótspor
Emilíu
frá árinu 1959.
<______________>
Þing Verkamannasambandsins um helgina
Aukin launajöfnunarstefna
Kaupmátt sólstöðusamninganna í gildi
Atök uröu um kjör varaformanns
Stjómarslitin settu svip sinn á þingið
Níunda þing Verkamannasam-
bands íslands var haldið á Ak-
ureyri um síðustu helgi. Guð-
mundur J. Guðmundsson setti
þingið s.l. föstudagskvöld og þá
voru kjörnir forsetar og ritarar
þingsins. Þingið var haldið í
skugga hins óvissa ástands í
stjórnmálum landsins og setti
það óneitanlega verulegan svip
á störf þingsins. Annars vegar
kom það fram í ræðum flestra
þingfulltrúa að þeir óttuðust að
framundan væri erfitt samninga
tímabil við harðskeytt atvinnu-
rekendavald er styddist við vin-
veitt stjórnvöld, hins vegar í
þeim átökum er urðu um kjör
varaformanns sambandsins.
Það varð fljótlega ljóst að
ekki yrði samstaða meðal þing-
fulltrúa um endurkjör Karls
Steinars Guðnasonar formanns
Verkalýðs- og sjómannafélags
Keflavíkur í stöðu varafor-
mannsins en Karl Steinar var
eins og kunnugt er annar af hin-
um svokölluðu guðfeðrum ríkis
stjórnarinnar sálugu. Uppstill-
ingarnefnd klofnaði svo er kom
að tillögu um stjórn. Meiri-
hlutinn stakk upp á Karli Stein-
ari en minnihlutinn, Kolbeinn
Friðbjarnarson frá Siglufirði,
upp á Þórði Óskarssyni úr
Verkalýðsfélagi Hveragerðis og
nágrennis. Fór kosning á þann
veg að Karl Steinar hlaut stuðn-
ing meirihluta þingfulltrúa og
var endurkjörinn með 59 at-
kvæðum gegn 47 en 4 sátu hjá.
Kjaramálaályktun blaðsins
sem birt er í heild í blaðinu í dag
hlýtur að teljast það mikilvæg-
asta sem eftir þingið liggur enda
er hún það veganesti sem farið
verður með í komandi samn-
ingahrotu. Tvö höfuð markmið
eru þar sett fram: annarsvegar
að stefnt skuli að því að ná í
komandi samningum þeim
kaupmætti sem ákveðinn var
með sólstöðusamningunum svo
kölluðu frá árinu 1977 og hins
vegar sú launajöfnunarstefna
sem mörkuð er. Það er lagt tul
að fullar verðbætur skuli reikn-
ast á miðlungslaun en síðan
komi í verðbætur á öll önnur
laun sama krónutala og á miðl-
ungslaunin. Þetta felur í sér að
gerðar eru kröfur um verulega
leiðréttingu á lág laun en að
öðru leyti jöfnun launanna.
Þessa stefnu munu fulltrúar
Verkamannasambandsins á
væntanlegri kjaramálaráð-
stefnu A.S.Í. bera þar upp og
berjast fyrir innan heildarsam-
takanna.
Nokkrar af ályktunum þings-
ins eru birtar hér í blaðinu á bls.
6.
Stjórn Verkamannasam-
bands íslands fyrir næsta kjör-
tímabil er svo skipuð:
Formaður: Guðmundur J.
Guðmundsson, Vmf. Dags-
brún.
Varaformaður: Karl Steinar
Guðnason, Vlf. ogsjómannafél.
Keflavíkur.
Ritari: Þórunn Valdimars-
dóttir, Vkf. Framsókn, Rvík.
Gjaldkeri: Jón Kjartansson,
Vlf. Vestmannaeyja.
Meðstjórnendur: Halldór
Björnsson, Vmf. Dagsbrún,
Rvík. Björgvin Sigurðsson, Vlf.
og sjóm. Bjarmi, Stokkseyri.
Einar Karlsson, Vlf. Stykkis-
hólms. Eiríkur Ágústsson, Vlf.
Eining, Dalvík. Gunnar Már
Kristófersson, Vlf. Afturelding,
Helliss. Hallgrímur Pétursson,
Vmf. Hlíf, Hafnarfirði. Hall-
steinn Friðþjófsson, Vmf.
Fram, Seyðisfirði. Herdís Ólafs
dóttir, Vlf. Akraness. Jón Helga
son, Vlf. Eining, Akureyri. Kol-
beinn Friðbjarnarson, Vlf.
Vaka, Sigluf. Kristján Ásgeirs-
son, Vlf. Húsavíkur. Pétur
Sigurðsson, Vlf. Baldur. ísa-
firði. Ragna Bergmann, Vkf.
Framsókn, Rvík. Sigfinnur
Karlsson, Vlf. Norðfjarðar,
Nesk. Þorsteinn Þorsteinsson,
Vlf. Jökull, Höfn. .
Þing Verkamanna- Leiðari Geir Opið bréf
sambandsins Helga Hallgrímsson til bœjarstjórnar
á Akureyri Guðmundssonar í pistlinum Húsavíkur
bls. 4, 5 og 6 bls. 4 bls. 7 bls. 3
Geríst áskrifendur að Norðurlandi
- ________________________________I