Norðurland - 18.10.1979, Qupperneq 3
Ágæt sýning á Galdrakarlinum í Oz
Sl. föstudag var frumsýnt hjá
Leikfélagi Akureyrar barna-
leikritið Galdrakarlinn í Oz eftir
L. Frank Baum undir leik-
stjórn Gests E. Jónassonar.
Sjálfsagt hefði natinn leik-
stjóri getað notað leikritið til að
fitja upp á mórölskum boðskap
til að messa með yfir börnunum
en umrædd sýning var bless-
unarlega laus við slíkar tilraun-
ir. Verð ég að viðurkenna að þar
er ég grimmilega sammála leik-
stjóranum. Áherslan er hins
vegar öll lögð á leikinn sjálfan.
Hins vegar hefði að ósekju mátt
ríkja meiri spenna í sýningunni.
Leikritið býður upp á mikla
möguleika sem ekki eru að fullu
nýttir. Þrátt fyrir það er sýn-
ingin unnin af fullri virðingu
fyrir viðfangsefninu. Þýðing
Helgu Valtýsdóttur á texta leik-
ritsins var að mínu áliti vel úr
garði gerð. Hið sama má segja
um þýðingu Kristjáns frá Djúpa
læk á söngtextum. Þeir voru
mjög vel skiljanlegir en á slíkt
vill oft skorta í sýningum sem
þessum. Búninga og leikmynd
gerði Ragnar Lár. Þrátt fyrir að
nokkuð skorti á tæknilegan
búnað hússins varð ekki betur
séð en að tæknileg vandamál
væru leyst af hugvitsemi að
undanskildu ferðalagi hússins.
Sólveig Halldórsdóttir lék
Dóróteu, litla stúlku. Henni
tókst ótrúlega vel að gæða hlut-
verkið lífi og sjarma þrátt fyrir
þann mun sem er á aldri hennar
og persónunnar sem hún leikur.
Ég hefði þó engu að síður kosið
að sjá yngri manneskju í þessu
hlutverki. Vinnumennirnir
Kristján Ármarmsson, Kópaskeri:
Opið bréf til bæj arstj órnar
Presthólahreppi er nálægt því
að vera sem nemur heildar
skatttekjum allra íbúa í Prest-
hólahreppi. Á 10 mánuðum
hafa Húsvíkingar svipaðar tekj-
ur og íbúar í Presthólahreppi á
einu ári. Augljóst ætti því að
vera að þó „einn hlekkur" af um
50 bresti, þarf það ekki að boða
slíkt hallærisástand sem þið vilj-
ið vera láta. öðru máli gegnir
þar sem hlekkirnir eru aðeins
þrír, það getur reynst erfitt að
láta slíka keðju hanga saman.
Hvað liggur að baki þessari
dæmalausu ályktun ykkar skal
ég ekki fullyrða, en ekki verður
því trúað að hún spegli skoðun
almennings á Húsavík.
En að tefla í tvísýnu afkomu-
möguleikum og búsetuskilyrð-
um nágrannabyggðalags, með
ómerkilegum blekkingum, er
ykkur til lítils sóma.
Það væri vissulega ástæða til
að fara fleiri orðum um mál
þetta, rekja að nokkru fram-
komu sumra fulltrúa rækju-
hagsmuna á Húsavík, sem vissu
lega er á sinn hátt alvarlegra mál
en barnaleg ályktun ykkar, en
það verður gert á öðrum vett-
vangi.
Að lokum góðir bæjarfull-
trúar vona ég að þið athugið
vandlega hvað þið eruð að gera,
hvaða tjóni þið eruð að valda,
kynnið ykkur málavexti og
farið að eigin samvisku og
dómgreind, en hlaupið ekki upp
vegna upphrópana manna sem
halda að sólin skíni aðeins fyrir
þá og sjá ekki út fyrir eigin
borðstokk.
Kópaskeri 11/10 1979
Kristján Ármannsson.
Húsavíkur
Ágætu bæjarfulltrúar, það er
von mín að eftirfarandi upplýs-
ingar megi verða ykkur nokkur
huggun harmi gegn, í baráttu
ykkar við þá eymd og það vol-
æði sem yfir bæjarfélagi ykkar
hvílir, því slæmt hlítur það
ástand að vera, sem knýr ykkur
til samþykktar sem þeirrar um
rækjuveiði í öxarfirði nú ný-
verið.
Sá tölulegi rökstuðningur
sem þið grípið til, lýsir annað
tveggja fádæma fljótfærni og
óvönduðum vinnubrögðum eða
lágkúruhætti, nema hvoru-
tveggja sé. Þessum tölum sem
voru um hlutfallshækkun út-
svara hjá Húsavíkurbæ annars
vegar og Presthólahrepps hins
vegar, var ætlað að sýna nauð-
syn þá sem Húsvíkingum væri á
að fá nú helming hins skerta
rækjukvóta í öxarfirði, því ella
væri vandséð hvernig gengi að
tóra af veturinn á Húsavík, á
sama tíma sem íbúar í Presthóla
hreppi hefðu nóg að bíta og
brenna.
En hvað segja svo þessar
tölur ykkar? Af einhverjum
ástæðum kemur ekkert fram
um það í ályktun ykkar, þær
segja m.a. að þrátt fyrir veru-
lega aukningu útsvarstekna í
Presthólahreppi, sem að sjálf-
sögðu eiga fyrst og fremst rætur
í tekjuaukningu bænda í hreppn
um, þá voru eftir þessa hækkun
meðaltekjur í Presthólahreppi
kr. 3.132.330. - en á Húsavík kr.
3.546.456. - Hvað segja tölur
ykkar um hlutdeild rækjuveiða í
öxarfirði í atvinnumálum og
tekjum einstaklinga í hvoru
sveitarfélagi. Heildarskatttekj-
ur á Húsavík voru krónur
3.964.938.882. -, en í Presthóla-
hreppi kr. 535.628.370. -oghlut
deild þessara veiða og vinnslu í
atvinnumálum og tekjum á
Húsavík um 2% en í Presthóla-
hreppi um 18% og sé miðað við
Kópasker væru hlutföllin um
35% á Kópaskeri á móti 2% á
Húsavík.
Af þessu má sjá að mismunur
meðaltekna á Húsavík og í
Skrifið í Norðurland
Geir Rögnvaldsson
skrifar um
leiklist
Tómas, Pétur og Leó ásamt
fuglahræðu, pjáturkarli og ljóni
léku þeir Þráinn Karlsson, Við-
ar Eggertsson og Theodór
Júlíusson, og verður það um þá
alla sagt að þeir stóðu sig með
miklum ágætum. Verður það
sama sagt um Bjarna Stein-
grímsson í hlutverki dyravarð-
arins Hinriks og Galdrakarls-
ins. Ungfrú Vestan og Vestan
norn lék Sigurveig Jónsdóttir
og þræddi þar bilið að vera
vond án þess að hræða börnin.
Góðu nornina lék Svanhildur
Jóhannesdóttir mærðarlaust og
af smekkvísi. Hannes Arason,
Ingimar Eydal og Karl Jónat-
ansson sáu um flutning tón-
listar og sá síðasttaldi um út-
setningar. Ekkikannaðistégvið
þessa tónlist fyrirfram og skal
ég því ekkert um útsetningar
segja en hvimleiðir voru þeir
erfiðleikar sem leikarar og und-
irleikarar áttu við að stríða
þegar um var að ræða að vera
samstíga í flutningnum.
Ég undirritaður óska eftir að gerast áskrifandi að
NORÐURLANDI:
Nafn:_______________________________________________
Póstnúmer:
MÁLGAGN SÓSÍALISTA
I NORÐURLANDS-
KJÖRDÆMI EYSTRA
Fréttir af Norð-
uriandi.
Hressileg póli-
tísk umræða.
Skrif um listir og
menningarmál.
Skákþáttur Helga
Ólafssonar.
Krossgátan.
íþróttir.
Norðurland
er 8 síður og
kemur út
vikulega.
Áskriftargjald inn-
heimtist tvisvar á ári.
Áskriftargjald fyrir
hálft árið er kr. 3.500
Sími 21875
Eiðsvallagata 18
Pósthólf 492
Akureyri
N0RÐURLAND
NORÐURLAND - 3