Norðurland - 01.11.1979, Blaðsíða 3
Jón Aðalsteinsson.
bandalaginu eða Framsóknar-
flokknum atkvæði sitt.
Varðandi verkalýðsmálin, þá
hefir eitt orð verið einkennandi
fyrir baráttu verkalýðsins und-
anfarna áratugi: Orðið „varn-
arbarátta“.
Þá hlýtur að vakna spurning-
in: Hverskonar sóknarbaráttu
væri hægt að reka? Nú hafa
allar félagslegar umbætur á
undanförnum áratugum orðið
til fyrir baráttu verkalýðsins.
Að vissu leyti má nefna það
sóknarbaráttu. En sú sókn er
hæg og íhaldið hrekur hana
alltaf til baka í hvert sinn sem
það sest að völdum, eftir því
sem það þorir og telur fært.
Höfum við ekki fleiri og áhrifa-
meiri valkosti til sóknar?
Um kosningaundirbúning er
ekki margt að segja. Þar verður
að reyna á framkvæmdina. En
ég tel mikilvægt að við komum
okkur fljótt upp áætlun, og
baráttan verði sóknarbarátta.
- Hvað finnst þér um þetta
nýja starf, nokkrar hugmyndir í
því sambandi?
- Sama og um kosningaundir
búninginn: Þar verður að reyna
á.
Sigurður Hallmarsson sem Tevye mjólkurpóstur.
Ljósm.: Einar Ólason.
Metaðsókn á Fiðlarann
Leikritið hefur uerið sýnt 30 sinnum
Ég undirritaður óska eftir að gerast áskrifandi að
NORÐURLANDI:
Nafn:_______________________________________________
NORÐURLAND ræddi ádög-
unum við Jón Aðalsteinsson,
nýkjörinn formann Kjördæmis-
ráðs, og fer viðtalið hér á eftir:
- Hvað finnst þér um útkom-
una af kjördæmisþinginu?
- Þetta þing bar nokkuð
bráðan að, var haldið viku fyrr
en upphaflega var til boðað.
Auðvitað bar þingið nokkurn
keim af þessu, betri undirbún-
ingur hefði verið æskilegur.
Þrátt fyrir þetta vannst vel og
þýðingarmikil mál voru af-
greidd.
Umræða á að snúast um mál-
efni fremur en menn og það
gerði hún á þessu þingi. Að
sjálfsögðu voru skiptar skoðan-
ir. Það er jú forsendan fyrirum-
ræðu. Umræðurnar voru góðar
í heild og leiddu til samstöðu og
í þessu er okkar meginstyrkur
fólginn.
- Hvað vilt þú segja tim
ályktanir þingsins?
- Það voru gerðar ályktanir
um forval, útgáfumál, stjórn-
mál og undirbúning kosninga.
Viðvíkjandi forvali virtust
allir hlynntir því og töldu það
skref í lýðræðisátt. Hinsvegar
komst þingið að þeirri niður-
stöðu að ekki ynnist tími til að
framkvæma forval fyrir kosn-
ingarnar nú í desember.
Reglur um forval voru sam-
þykktar og þær munu viðhafð-
ar eftirleiðis. Mín skoðun er sú
að með forvali sé skrefið í
lýðræðisátt ekki eins stórt og í
fljótu bragði virðist.
Hið raunverulega lýðræði
liggur á öðru sviði. Það byggist
á því að fólk almennt myndi sér
skoðanir og geti komið þeim á
framfæri. Sá, sem er vel máli
farinn hefir meiri möguleika á
að hafa áhrif, en skoðanir hans
þurfa ekki að vera jafn vel
grundvallaðar og hins, sem
skortir einurð eða kunnáttu til
að tjá sig. Þarna gætu félags-
málanámskeið eða önnur nám-
skeið, er örvuðu fólk og auð-
velduðu því að yfirstíga þann
þröskuld að viðra skoðanir
sínar, vafalaust orðið til bóta.
Viðvíkjandi forvalsreglum
virðist mér í fljótu bragði að vel
hafi tekist til. það er gott að
kjörstjórn hafi frjálsar hendur
hverju sinni í sambandi við
kosningu á kjörstað eða bréf-
lega kosningu eða hvoru-
tveggja. Reglurnar voru birtar í
síðasta ,,Norðurlandi“ og ég
hvet alla félaga til að kynna sér
þær rækilega og ræða þær á
fundum. Vonandi bera ekki
þarnæstu kosningar svo bráðan
að, að ekki vinnist tími til að
sníða af forvalsreglunum van-
kantana ef einhverjir koma í
ljós.
Viðvíkjandi útgáfumálum,
þá er ,,Norðurland“ ómissandi
tengiliður milli félaganna á
Norðurlandi. Það er auðsætt að
vissir erfiðleikar eru að halda
útgáfustarfseminni gangandi.
Nauðsynlegt er að ráðstafanir
þær, sem samþykktar voru til
að bæta fjárhag og útbreiðslu
blaðsins komi sem fyrst til fram-
kvæmda.
Um árangurinn vil ég engu
spá en hvetja áskrifendur og
aðra stuðningsmenn til að duga
vel.
Um stjórnmálaályktunina er
það að segja, að ég hefði viljað
leggja meiri áherslu á viss atriði,
og á ég þar við orkumál og
verkalýðsmál. Við lifum í heimi
þar sem orkuþörf og orku-
skortur vex ótrúlega hratt.
Verði Sjálfstæðisflokkurinn í
meirihluta eftir kosningar get-
um við búist við að orkan okkar
verði seld ódýrt útlendum auð-
kýfingum í einni eða annarri
mynd. Ástandið, sem við þetta
mundi myndast er geigvænlegra
en ég í fljótu bragði get sett mér
fyrir sjónir.
Það er mikil nauðsyn að þau
öfl, sem vilja nytja auðlindir
okkar í þágu okkar sjálfra fái
meirihluta á Alþingi. Þessi öfl er
fyrst og fremst að finna í Al-
þýðubandalaginu, en einnig í
framsókn. Hinn „þögli meiri-
hluti“ framsóknar. Hið athygl-
isverða er, að innan íhaldsins er
einnig sterkur þjóðlega sinnað-
ur hópur. Þessvegna finnst
mér, að við ættum að hvetja þá
íhaldsmenn, sem vilja auðlindir
íslendinga í þágu okkar sjálfra
til að ljá annaðhvort Alþýðu-
■■■■■■■■■■■■■■■■■■
Leikritið „Fiðlarinn á þakinu“
hefur verið sýnt þrjátíu sinnum
á Húsavík en sýningar hófust í
fyrravetur. Leikfélag Húsavík-
ur hefur um árabil verið eitt
metnaðarfyllsta áhugamanna-
leikfélag á landinu og þótt víðar
væri leitað en engin sýning hef-
ur þó áður gengið jafn lengi og
þetta. Helgi Bjarnason á Húsa-
vík sagði blaðinu að mikið hefði
verið um það að undanförnu að
hópar kæmu langt að til að sjá
sýninguna.
Leikritið verður sýnt öll
kvöld nú um helgina. Leík-
stjóri er Einar Þorbergsson leik-
húsmenntaður maður.
MÁLGAGN SÓSÍALISTA
I NORÐURLANDS-
KJÖRDÆMI EYSTRA
Fréttir af Norð-
urlandi.
Hressileg póli-
tísk umræða.
Skrif um listir og
menningarmál.
Skákþáttur Helga
Ólafssonar.
Krossgátan.
íþróttir.
Norðurland
er 8 síður og
kemur út
vikulega.
Áskriftargjald inn-
heimtist tvisvar á ári
Áskriftargjald fyrir
hálft árið er kr. 3.500.
Sími21875
Eiðsvallagata 18
Pósthólf 492
Akureyri
NORÐURIAND
Forval ekki eins lýðræðislegt
og í fljótu bragði virðist
Hrefna Jónsdóttir (Golda) og Sigurður Hallmarsson (Tevye).
Póstnúmer:.
III!
I
NORÐURLAND - 3