Norðurland - 01.11.1979, Blaðsíða 8
NORÐURIAND
Fimmtudagur 1. nóvember 1979
MÁLGAGN SÓSlALISTA
f NORÐURLANDSKJÖR-
DÆMI EYSTRA
GERIST
ÁSKRIFENDUR
- Síminn er 2-18-75
AUGLÝSIÐ I'
NORÐURLANDI
- Síminn er 2-18-75 -
Heyskapur á veturnóttum
„Ég sló það síðasta á síðasta
sumardag og náði því upp sama
dag,“ sagði Jóhannes Sigfússon
á Gunnarsstöðum í Þistilfirði er
NORÐURLAND hafði sam-
band við hann á dögunum.
Þurrkarnir núna undanfarið
hafa verið þeir bestu sem kom-
ið hafa í sumar.. Það eru nú allir
búnir að hirða sín hey, en fyrir
þetta síðasta þurrktimabil voru
allmargir sem áttu helming
heyja sinna úti. Verkun var all-
góð á því heyi sem slegið var í
september og má segja að dæm-
ið hafi snúist verulega við nú um
veturnæturnar hvað varðar
horfur fyrir bændur í Norður-
Þingeyjarsýslu.“
Þetta breytir því þó ekki að
um verulegt tjón er að ræða
fyrir flesta bændur. Dilkar eru
miklu lélegri en í meðalári og
aðeins það veldur tekjurýrnun
upp á milljónir á stærri fjárbú-
um. Töluverð heykaup hafa átt
sér stað, um 150 tonn hafa verið
keypt sunnan úr Rangárvalla-
sýslu fyrir milligöngu Búnaðar-
félags fslands. Deilist þetta hey
niður á þrjá hreppa, Svalbarðs-
hrepp, Sauðaneshrepp og
Skeggjastaðahrepp. Jóhannesi
var ekki kunnugt um á hvaða
kjörum þetta hey væri fengið en
sagði að verðið væri hátt. Auk
þess er það hey sem þegar er
fengið varla nóg.
Heimtur hafa verið slæmar
en verulegir fjárskaðar hafa
ekki orðið nema á tveim bæjum,
Kollavík og Borgum, en afrétt
þeirra, Seljaheiði, liggur sam-
an við afrétt Núpsveitunga. Þar
mun fé hafa farist í stórum stíl
vegna krapelgs í Ormarsá.
Fækkun á búfé mun varla
verða eins veruleg og áður var
talið vegna hins síðbúna þurrks.
Þess ber þó að geta að víða hafa
bændur ekki sett á eitt einasta
lamb svo eðlileg endurnýjun á
sér ekki stað þetta árið.
Prófkj örsdansinum lokið
Þá er lokið prófkjöri Alþýðuflokksins hér í kjördæminu.
Úrslitin hafa vissulega komið á óvart og eru ekki í samræmi
við það sem gert var ráð fyrir í þessum pistli í síðustu viku.
Sitthvað vekur athygli við niðurstöðu prófkjörsins og þá
fyrst það hversu miklu færri tóku þátt í þvíen í prófkjöri fyrir
síðustu kosningar. Fái flokkurinn ekki meira fylgi í kosning-
unum í desember en fram kom í prófkjörinu þá getur verið
fullkominn vafi á hvort hann kemur yfirleitt nokkrum manni
að úr Norðurlandskjördæmi eystra. Þaðernefnileganokkuð
öruggt að ekki hafa allir sem tóku þátt í prófkjörinu áhuga
fyrir því að styðja flokkinn í kosningunum, ekki síst eftir þessi
úrslit. Alþýðuflokksmenn hafa eftir þessa lotu enn minni
ástæðu til að vera bjartsýnir á framgang sinn í komandi kosn-
ingum en fyrir. Málefnastaðan er hæðin svo ekki sé fastar að
orði kveðið og prófkjörið hefur í för með sér djúpstæðan
klofning meðal stuðningsmanna flokksins.
Haft er eftir Árna Gunnarssyni í Vísi nú á dögunum að
úrslitin séu eins konar sigur fyrir aðkomumenn. Þessi barna-
lega staðhæfing er kannski til marks um það hversu fárán-
leg málefnabarátta hefur farið fram milli keppinautanna.
Sigurvegaranum er það efst í huga að slagnum loknum að
honum hafi tekist að vinna andstæðing sinn þrátt fyrir að
hann neyddist til að veifa vitlausu fæðingarvottorði. Hér hafa
ekki tekist á menn með mismunandi sjónarmið, ekki er um
það spuft með hvaða hætti frambjóðendurnir vilja bera
baráttumál flokksins fram til sigurs, ekki kemur fram að þeir
hafi verið ósammála um neitt sem máli skiptir. Þeir eru hins
vegar fæddir og uppaldir sitt á hvoru landshorni og baráttan
snérist um ágæti og galla þess að mati sigurvegarans.
Því er haldið fram að prófkjörin séu lýðræðislegust að-
ferð til að velja frambjóðendur. Kann að vera. En ef stað-
reyndin er sú að prófkjörsbarátta frambjóðendanna snýst um
svo einskisverða hluti eins og fæðingarstað og búsetu þá er
ástæða til að halda að prófkjörin séu lítið annað en sýndar-
lýðræði.
Um hvað voru þeir menn ósammála sem voru að takast á í
prófkjöri Alþýðuílokksins? Þeir fjórir sem komu til greina í
fyrsta og annað sætið voru ekki ósammála um neitt ef marka
á þau plögg sem þeir létu frá sér fara á meðan áslagnum stóð.
Eini blæmunurinn á skoðunum þeirra er sá að Jón Helgason
formaður Einingar mun ekki hafa greitt atkvæði með stjórn-
arslitunum í flokksstjórn Alþýðuflokksins eins og hinir.
Úrslit þessa prófkjörs er ekki sigur neins yfir einhverjum.
Kjósendurnir áttu ekki kost á að greiða atkvæði um menn
með mismunandi sjónarmið. Allt annað er harla lítils virði í
þessu sambandi. Úrslitin eru ekki vísbending um annað en að
kjósendurnir hafa valið á milli hægri manna, viðreisnar-
postula og andstæðinga síðustu ríkisstjórnar, en þetta þrennt
áttu þeir allir sameiginlegt, í fyrsta sætið.
Að fenginni niðurstöðu i prófkjöri Alþýðuflokksins eru
umræður um hugsanleg kosningaúrslit hér í kjördæminu
mjög á dagskrá meðal manna.í prófkjörsdansinum hafa sjálf
stjórnmálin fallið í skuggann. Áhugi fólks hefur í svo ríkum
mæli verið bundinn við þá einstaklinga sem til greina hafa
komið í prófkjörunum. Framboðslistar allra flokkanna hafa
nú verið birtir annað hvort að hluta eða að fullu. Hefur þar
með skýrst hverjir það verða sem líklegir eru til þess að verða
fulltrúar kjördæmisins á Alþingi fslendinga næsta kjörtíma-
bíl. í síðustu kosningum fengu framsókn og Sjálfstæðis-
flokkur tvo þingmenn hvor og Alþýðuflokkur og Alþýðu-
bandalag sinn hvorn. Þar að auki var svo annar maður á lista
Alþýðuflokksins, Árni Gunnarsson, landskjörinn þing-
maður.
Samkvæmt skoðanakönnun Vísis virtist líklegast að
framsókn og Sjálfstæðisflokkur bættu nokkru við sig og
Alþýðubandalagið héldi sínu og Alþýðuflokkurinn tapaði
verulega.
Skoðanakönnun er að sjálfsögðu aldrei fullkomlega rétt
mynd af afstöðu fólks. Eigi að síður hefur reynslan staðfest
að skoðanakannanir sem síðdegisblöðin hafa framkvæmt,
hafa gefið býsna rétta vísbendingu um vilja kjósenda. Þess
vegna er með ærnum rökum hægt að fullyrða að skoðana-
könnun Vísis sé bending um þær pólitísku breytingar sem
verða kunni nú í vetur. Þegar könnunin fór fram voru
framboðsmál óleyst hjá öllum og þess vegna ekki komið í ljós
hvaða áhrif breytingar á framboðslistum kynnu að hafa á
vilja kjósenda. Nú liggur hins vegarfyrir í þessu kjördæmi, að
þar verða fimm listar í kjöri eins og síðast. Fimmti listinn nú
þ.e.a.s. listi Jóns Sólness kemur örugglega til með að hafa
veruleg áhrif á niðurstöðu kosninganna, sennilega meiri en
atkvæðamagn hans gefur tilefni til að ætla. Skýringin er sú að
með þessu framboði eiga hægri sinnaðir kjósendur einum
valkosti fleiri en áður. Þar að auki mun svo andrúmsloftið hjá
stuðningsmönnum Braga Sigurjónssonar vera þannig eftir
ósigurinn í prófkjörinu að einhver hluti þeirra sér ekki neina
skynsamlega ástæðu til að koma Árna Gunnarssyni á þing,
alveg eins gott sé að greiða Sólnes atkvæði. Því er alveg
ljóst að hið margumrædda framboð Jóns veldur mikilli
óvissu um endanleg úrslit hér. Spádómar manna eru á ýmsa
vegu. Allt frá því að listinn fái ekki nema par hundrað
atkvæða upp í tólf, fimmtán hundruð. Hér skal engu um það
spáð en eitt er alveg víst að miklar likur benda til að mjótt geti
orðið á mununum á milli þrðja manns framsóknar, annars
manns Sjálfstæðisflokksins og annars manns á lista Alþýðu-
bandalagsins. Eru þá lagðar til grundvallar niðurstöður
Vísiskönnunarinnar og reynt að taka tillit til þeirra sérstöku
aðstæðna sem eru hér í kjördæminu.
Þrándur.
Leikfélagið
undir
vopnum
Nýlega varð sá fáheyrði
atburður í Vélsmiðju Stein-
dórs að starfsmaður þar
hnaut um ókennilegan hlut
innan um annað brotajárn.
Hugði hann betur að og var
ekki um að villast, þarna
var komin fallbyssa mikil
og forn. Sérfræðingar um
hernaðarsögu Akureyrar
voru kvaddir á vettvang og
framkvæmdu þeir skyndi-
athugun á gripnum en ekki
kom þó til þess að fall-
stykkið yrði hlaðið í það
skipti. Það var samdóma
álit sérfræðinganna að
þarna væri komið það
vopn sem frægast hefur
orðið með Akureyringum
og notað var af beinskeytt-
um leikhúsmönnum til að
kveðja menn í leikhús með
fallbyssuskotum. Síðast
mun hólkurinn hafa verið
notaður til að kalla penn á
frumsýningu á „Útilegu-
mönnum“ séra Matthíasar
sem lengi var klerkur hér á
Akureyri eins og frægt er
orðið. Á föstudagskvöldið
þegar Akureyringar heyra
þrjár fallbyssudrunur þáer
ekkert að óttast, rússinn er
ennþá langt undan, hins
vegar stendur þá fyrir dyr-
um frumsýning á leikriti
Arnar Bjarnasonar,
„Fyrsta öngstræti til
hægri". Ennfremur skal
tekið fram að hlaupi byss-
unnar verður beint út á Poll
en ekki að leikhúsgestum.
Sjófarendur verða ekki í
bráðum voða því einungis
verða notuð púðurskot.
• • . og heldur
í víking
Leikfélagi Akureyrar hefur
verið boðið að taka þátt í
norrænu móti atvinnuleik-
húsa utan höfuðborga.
Mun leikhópurinn sem tek-
ur þátt í „öngstrætinu"
fara óvopnaður utan og
sýna leikritið á mótinu sem
haldið verður í örebro í
Svíþjóð dagana 3.-9. des.
n.k. Vegna þessarar ferðar
frestast sýningum á „Pún-
tila og Matta“ fram yfir
áramót.
„Ég er eins
og jólatré“
Ekki linnir kosninga- og
prófkjaravísum enn. Rögn-
valdur Rögnvaldsson gauk
aði þessum vísum að skrif-
urum NORÐURLANDS.
Sú fyrri er til orðin vegna
ummæla Sólness í sjón-
varpi þann 30. okt. s.l.:
Sólnes þannig sagði frá
sjálfur núna í vikunni.
Eg er betri armur á
íhaldsljósastikunni.
Hin þarfnast ekki neinn-
ar skýringar:
Fer um landið falinn eldur,
fúnir reynast margra
bekkir.
Kjósandinn nú krossar
heldur
„kratann" sem hann ekki
þekkir.