Norðurland - 01.11.1979, Page 6

Norðurland - 01.11.1979, Page 6
Hvers vegna? .ullCM., GEGN VÍMUEFNUM Síðastlíðin vika var „vika gegn vímuefnum“. Hvað skyldi nú þetta eiga að boða? Hvers skyldu nú vímuefnin eiga að gjalda? Vímuefni hafa verið þekkt og notuð frá alda öðli, og þau sem slík gera engum manni meín. Það þarf annað til, til þess að vímuefni verði skaðsöm og valdi böli. Það þarf að vera manneskja sem neytir þeirra. Vissulega er bölið mikið og engin ástæða til að gera lítið úr því, en hver er hin raunveru- lega ástæða fyrir því að fólk neytir vímuefna í óhófi? Hún er ekki nema að litli leyti sú að efni þessi eru á boðstólum og auð- fengin. Bölið á rót sína að rekja til þeirra þjóðfélagslegu • að- stæðna og þess umhverfis sem við búum við. Lífsgæðakapp- hlaupið er orðið svo gegndar- laust, að manneskjan sem til- finningavera gleymist og menn trúa því orðið í æ ríkara mæli að gleðina og vellíðanina sé ein- ungis hægt að kaupa fyrir pen- inga. Það verður sífellt stærri og stærri sá hópur manna og kvenna sem gefast upp á álaginu sem smáborgaralegur hugsana- háttur og mat á lifnaðarháttum þvingar inn á fólk. Umhverfi okkar er orðið svo gegnsósa af gerfiþörfum að við erum hætt að sjá hvers eðlis þær eru, þær eru að verða fastur þáttur í okk- ar daglega lífi. Hverjum er þetta svo til góða? Þeim sem gerfi- þarfirnar búa til og græða á þeim. Við erum hætt að sjá hina raunverulegu ástæðu fyrir löng- un (og e.t.v. þörf) okkar til að gleyma okkur og því umhverfi sem við lifum í. Það er oft á tíð- um eðlilegt að við sjáum ekki ástæðurnar, vegna þess að þær eru hluti umhverfis okkar, en umhverfið gerir oft gífurlegar kröfur sem við teljum okkur þurfa að uppfylla, og ef okkur mistekst það æ ofan í æ, viljum við að lokum gleyma því. Ég tel að hverjum manni hvort heldur hann er háður vímuefnum að meira eða minna leyti eða ekki sé hollt að staldra við og spyrja sjálfan sig spurn- inga eins og t.d. Hverju vil ég gleyma? Hver gerir til mín kröfur? Eru þessar kröfur nauð- syn? Þarf ég að uppfylla þær? Hvað vil ég? Þetta er nú kannske hægara sagt en gert en tilraunin er þess virði að hún verði gerð. Nú þekki ég ekki þau samtök sem vinna með fólki sem hefur orðið t.d. ofneyslu áfengis að bráð, enda hafa þau sig ekki mikið í frammi opinberlega. Ég tel hinsvegar, að það vanda- mál sem ofneysla vimuefna orsakar verði einungis leist með því að ráðast að rótum þess er veldur því, nefnilega neyslu- þjóðfélaginu sjálfu. Kröfurnar sem þetta þjóðfélag gerir til þegna sinna eru svo óraunsæar og ómanneskjulegar að á með- an því verður ekki breytt vinnum við ekki bug á neinum þeim vandamálum sem eru fylgi kvillar þess. Hólmfríður Guðmundsdóttir. SÖLUBÖRN NORÐURLAND óskar eftir börnum til aö selja blaðið á föstudögum. NORÐURLAND ATLAS SNJÓDEKK í flestum stærðum. Véladeild og Gúmmíviðgerð - ____._______________________-) MEÐ GRACE FROÐUHREINSUN er leikur einn aí þrífa frystihúsitS, sláturhúsitS, og fiskibátinn. GRACE ÞRÍFUR ALLT. Hringdu og vií komum og sýnum hva$ autS- veld öll þrif vertSa. - Froðuhreinsun er framtíðin. » Einkaumboð á íslandi. K. JÓNSSON & CO. HF. HVERFISCATA 72 - REYKIAVIK - ICELAND - PHONE 1 2452 - P.O- BOX 5189 NLF vörur Nýkomið úrval af margskonar hollustuefnum. Komið og skoðið. MATVORUDEILD HAFNARSTRÆTI 91 Frá Iðnaðardeild SIS Getum bætt við starfsfólki á dagvakt og kvöldvakt. Upplýsingar gefur starfsmannastjóri sími 21900 (23) Sýning Myndhópsins NORÐLENSKT MYNDLISTARFÓLK Móttaka verka á sýningu félagsins verður í Hlíðarbæ, fimmtudaginn 15. nóvember nk. kl. 17 til 19. Þátt- tökugjald greiðist við afhendingu verka. Sýningarnefndin. AKUREYRARBÆR AUGLÝSIR Félagsstarf aldraðra Síðdegisskemmtanir verða í Sjálfstæðishúsinu kl. 3 eftirtalda sunnudaga til áramóta: 19. nóvember 9. desember Þeir sem óska eftir að verða sóttir heim, hringi í síma 22770 kl. 13.00 - 14.00 samdægurs. „Op/'ð hús“ hefur starfsemi sína að Hótel Varðborg miðvikudaginn 31. október nk. kl. 15.00. Geymið auglýsinguna. Félagsmálastofnun Akureyrar Frá Yfirkjörstjórn Norðurlandskjördæmis eystra Framboðslistum vegna Alþingiskosninganna 2. og 3. desember 1979 ber að skila til formanns Yfirkjör- stjórnar Norðurlandskjördæmis eystra Ragnars Steinbergssonar, hrl., Geislagötu 5, Akureyri, fyrirkl. 24.00 miðvikudaginn 7. nóvember 1979. Framboðs- listunum skulu fylgja tilskilin gögn svo og nöfn um- boðsmanna listans. Yfirkjörstjórnin kemursaman að Geislagötu 5, Akur- eyri, fimmtudaginn 8. nóvember 1979 kl. 13.00 til þess að fjalla um listana. í Yfirkjörstjórn Norðurlandskjördæmis eystra, 26. október 1979. Ragnar Steinbergsson Jóhann Sigurjónsson Freyr Ófeigsson Haukur Logason Jóhannes Jósepsson 6 -NORÐURLAND

x

Norðurland

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Norðurland
https://timarit.is/publication/784

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.