Norðurland - 29.04.1983, Síða 1
NORÐURLAND
8. árgangur Föstudagur 29. apríl 1983 7. tölublað
Gefið út af stjórn kjördæmaráðs Alþýðubandalagsins í Norð-
urlandskjördæmi eystra.
Ritnefnd:
Helgi Guðmundsson (áb), Erlingur Sigurðarson, Þröstur Ás-
mundsson, Steinar Þorsteinsson, Steingrímur J. Sigfússon.
Aðsetur: Eiðsvallagata 18, Akureyri, sími 21875
Pósthólf 492, 602 Akureyri.
Prentsmiðja Björns Jónssonar.
FORYSTUGREIN:
Hugsjónir og
daglegt líf
Pólitísk umræða hefur undanfarna mánuði fyrst og
fremst snúist um hinn sígilda efnahagsvanda með
verðbólgu, kjaraskerðingu og okurvöxtum, sem
slíku fyrirbrigði fylgja.
í öllu því endalausa þvargi hefur lítið farið fyrir
röddum, sem segja að mannlífið snúist ekki
eingöngu um krónur og aura, að fleiru þurfi að
hyggja.
Peningar eru að sönnu afl þeirra hluta sem gera
skal, því að án verðmætasköpunar í formi margvís-
legrar framleiðslu, verður harla lítið eftir fyrir
andann. En þegar peningar og öflun þeirra verður
markmið í sjálfu sér, líður ekki á löngu þar til
mannleg samskipti koðna niður í ómerkilega
keppni um það, hver sé með stærstan skörunginn
að skara eld að sinni köku. í þjóðfélagi þar sem
vonin um fjárhagslegan hagnað er drifkraftur fram-
faranna, verður ekkert rúm fyrir umhyggju
gagnvart þeim sem sjúkir eru og aldnir, og naumt
skömmtuð gleði fyrir þá, sem ekki geta borgað.
Undanfarin ár hafa þau öfl, sem mæla verðmætin
hvað ákafast á mælistiku peninganna, verið afar
athafnasöm í íslenskri þjóðmálaumræðu. Efna-
hagskenningar, sem taka ekkert tillit til félagslegs
öryggis mannfólksins, hugmyndir, sem telja
atvinnuleysi sjálfsagðan hlut í þjóðfélagsgerðinni,
óaðskiljanlegan hluta af efnahagsstjórninni, hafa
eignast öfluga málsvara í Sjálfstæðisflokknum,
með þeirri nýju kynslóð stjórnmálamanna sem
ætlar að skipa fyrir verkum á þeim bæ á næstu
árum. Þeir sækja hugsjónir sínar til þeirra furðu-
fugla í hagfræði og fjármálavísindum, sem telja
efnahagslegan ójöfnuð jafn sjálfsagt náttúrulög-
mál og að einn sé svarthærður, annar Ijóshærður,
þriðji rauðhærður o.sv.frv. o.sv.frv.
Kosningar eru nýafstaðnar, og myndun ríkis-
stjórnar stendur fyrir dyrum. Sjálfstæðisflokkurinn
á nú mikla möguleika á að setjast í ríkisstjórn, því
enginn gerir því í alvöru skóna, að takast megi að
sameina alla aðra til ríkisstjórnarmyndunar, enda
næsta hæpið að slík ríkisstjórn yrði á vetur
setjandi.
Verkalýðshreyfingin berst fyrir hugsjónum um
jöfnuð í þjóðfélaginu, hugsjónum sem stríða gegn
grundvallarhugmyndum þeirra manna, sem mestu
ráða nú um stefnumótun Sjálfstæðisflokksins.
Verkalýðshreyfinguna varðar því miklu, hvers-
konar stjórn verður mynduð og hver verður
málefnaleg niðurstaða stjórnarmyndunarviðræðna.
Eiga launþegar von á fyrirskipunum stjórnar-
herranna, um að hafa sig hægan og taka á sig
niðurskurð félagslegrar þjónustu? Á verkafólk von
á því, að nú verði hugmyndin um „hæfilegt
atvinnuleysi“ að veruleika, í þeirri ríkisstjórn sem
Sjálfstæðisflokkurinn kann að leiða? Um þessi
atriði skal engu spáð hér. Hitt má þó öllum Ijóst
vera, að verkalýðshreyfingin á framundan vanda-
söm verkefni, að verja lífskjör almennings og
tryggja að úrlausn í efnahagsmálum verði ekki á
kostnað þeirra sem minna mega sín.
hágé.
NORÐURLAND
sendir allri alþýðu
baráttukveðjur
1. maí
' Jte.' 'sn aíjv ■
' é'Z
Þessa mynd af gömlum verkamanni gerði Kristinn Eiríkur Hrafnsson.