Organistablaðið - 01.11.1981, Blaðsíða 9
1 2. grein.
Heiðursfélaga má kjósa á aðalfundi, ef sérstök ástæða er fyrir hendi.
Heiðursfélagar mega aldrei vera fleiri en sjö á hverjum tíma. Stjórninni einni er
heimilt að bera fram tillögur um kjör heiðursfélaga, og þó því aðeins að hún sé öll
samþykk kjörinu.
13. grein.
Lögum þessum má aðeins breyta á aðalfundi og þarf til þess % greiddra atkvæða.
Lagabreytinga hafi verið getið í fundarboði.
LAUNAMÁL
í Organistablaðinu, 1. tbl. 1980, er að finna upplýsingar um laun
organista. Félagið samdi fyrir organista í Reykjavíkurprófastsdæmi 14.
maí 1975. Samkomulagið er að finna í 1. tbl. 8. árg. Organistablaðsins
1975.
Ég geri hér tillögu um greiðslufyrirkomulag fyrir þá félagsmenn, sem
spila ekki við guðsþjónustur á hverjum sunnudegi.
Til grundvallar legg ég laun organista sem tekur 52% laun skv. 16.
launafl. B.S.R.B., spilar á hverjum sunnudegi og hefur reglulegar
kóræfingar.
Fyrir fjórar messur í mánuði (meðaltal á ársgrundvelli) greiðast 52%.
Þá er eðlilegt að reikna hverja messu ásamt kóræfingum 13%. Fyrir 2
messur greiðast þá 26% og fyrir 3 messur 39% launa.
Hmsvegar skal greiða 4 stundir (sbr. reglur i 1. tbl. 13. árg.
Organistablaðsins 1980) fyrir einstakar messur, sem spilað er við í
forföllum. Organleikari á að sjálfsögðu rétt á 8.33% orlofi eða greiddum
orlofsmánuði.
Organleikari á rétt á veikindaleyfi og gilda þar um sömu reglur og um
opinbera starfsmenn. Organleikari á að fá greitt umsamið kaup þó
messufall verði.
Kristján Sigtryggsson.
LEIÐRÉTTING
í síðasta blaði var getið um inntöku nýrra félaga í F.Í.O., m.a. Pálmars
Eyjólfssonar en heimilisfangið hans var ekki rétt.
Hið rétta er:
Pálmar Þ. Eyjólfsson,
Skipagerði,
825 Stokkseyri
Þetta leiðréttist hér með og er beðist velvirðingar á mistökunum.
ORGAIMISTABLAÐIÐ 9