Norðurland - 17.06.1994, Page 9
NORÐURLAND- 9
ÞJOÐHATIÐ
Á AKUREYRI
1 / . jum IV
og sumaryl
Nánari dagskrá í
Akureyrarkróniku (
Þj óðhátíðarnefnd
xxxxxxxx>oo, xxxxxxxxxxxxxxxxxxxxx
Sendum
landsmönnum öllum
heillaóökir á 50 ára
afmaeli lýðveldisins
Hótel Laugar
650 Laugum
skiptir milljónum króna en slys
urðu ekki á mönnum...Víða úti
um land urðu líka miklar
skemmdir í veðurofsanum, þök
tók af húsum og rúður brotnuðu.
Varð til dæmis tilfinnanlegt tjón
af þessum sökum á Akureyri.
/
Fróður Islend-
ingur í París
íslenskur arkitekt, Gunnar Her-
mannsson, hefur vakið mikla at-
hygli í Frakklandi fyrir frammi-
stöðu sína í spumingaþætti í
franska sjónvarpinu. Var hann
samfleytt ósigrandi í þætti þessum
í sex mánuði eða þangað til hann
ákvað sjálfur að hætta, en and-
stæðingar hans voru þá ekki orðn-
ir neinir hálfdrættingar á við hann.
Hafði Gunnar liðlega eina milljón
franka upp úr krafsinu.
Gunnar hefur dvalist í Frakk-
landi í 15 ár. Hann er ættaður frá
Húsavík, stúdent frá MA en
stundaði síðan nám í arkitektúr í
París og hefur starfað þar síðan, ef
undan er skilið eitt ár sem hann
starfaði hér heima hjá ráðhús-
nefndinni.
1967:
Kísilveg lokað
28.08: Náttúruverndarráð óskaði
eftir því fyrrihluta ágústmánaðar
við menntamálaráðuneytið, að það
beitti sér fyrir því .að stöðva fram-
kvæmdir við Kísilveginn svo-
nefnda, þ.e. nýja veginn, sem ver-
ið er að leggja milli Húsavíkur og
Mývatns. ...Gerðardómur komst
að þeirri niðurstöðu 08.09 að Kís-
ilvegur skuli lagður þrátt fyrir
friðlýsingu Náttúruvemdarráðs.
Heimtir úr helju
31.08: Ólafsfirðingar fögnuðu í
dag er þeir heimtu úr helju 12
skipbrotsmenn af vb. Stíganda,
sem fórst á síldarmiðunum um
700 sjóm. norðaustur af Höfn-
um...Þrettán skip sigldu fram hjá
skipbrotsmönnum í björgunarbát-
um þeirra áður en þeir fundust eft-
ir fimm daga volk. Gífurleg leit
var gerð af skipbrotsmönnum en
það var áhöfnin á Snæfugli sem
heimti þá úr helju.
1969:
Stórbruni á
Akureyri
04.01: Um klukkan hálf tíu í gær-
kvöldi kom upp mikill eldur í
verksmiðjuhúsi Iðunnar á Akur-
eyri. ...Hvasst var á norðan og
mikið frost...40 slökkviliðsmenn
börðust við eldinn í 16 klukku-
stundir í tólf stiga frosti og hvass-
viðri. Gífurlegt tjón varð á verk-
smiðjuhúsum SÍS í brunanum og
urðu 500 manns atvinnulausir af
völdum brunans....Engin slys
urðu á mönnum í þessum mikla
bruna. Eftir að slökkviliðsmenn á
Akureyri höfðu barist við eldinn í
16 tíma barst þeim aðstoð sex
slökkviliðsmanna úr Reykjavík.
Eyðilegging í
veðurofsa
06.03: Klukkutíminn milli klukk-
an 12 og 13 í gærdag verður
mörgum Akureyringum minnis-
stæður. Veðurofsinn sem þá gekk
yfir skall á mjög snögglega og
skildi eftir sig gífurlega eyðilegg-
ingu. Mest var tjónið í Súkkulaði-
verksmiðjunni Lindu, en þar tók
af þakhæð hússins og vörubirgðir
fyrir milljónir króna eyðilögðust.
...Tveggja tommu stálbitar héldu
þakinu uppi, en þeir vöfðust upp
eins og tvinnaspottar, og 12 mm.
járn, sem steypt var í veggi, rifn-
aði upp.
1970:
Virkjun mótmælt
19.07: Hátt á þriðja hundrað
manns lagði upp á 80 bílum frá
Húsavík klukkan 13 í gær í mót-
mælaför til Akureyrar vegna
virkjunarframkvæmda við Laxá
og Laxárbændur hafa haftð lög-
bannsmál gegn.... Ýmsir bílar í
bílalestinni báru áletraða borða. Á
þeim stóð m.a.: Laxárdal verður
ekki sökkt.
Stífla sprengd
28.08: Um klukkan 19 í gærkvöldi
söfnuðust á annað hundrað manns
úr Mývatnssveit og víðar úr Þing-
eyjasýslu saman við stíflu Laxár-
virkjunar í Miðkvísl milli Amar-
vatns og Geirsstaða....Hópurinn
rauf 6-8 metra skarð í stífluna og
notaði við það skóflur, dráttarvél-
ar og dýnamit, sem var í eigu Lax-
árvirkjunnar, en hafði legið í hell-
um þama í 10 ár.... Tvær yfirlýs-
ingar, önnur undirrituð af 88
mönnum og hin af 82 mönnum,
voru lagðar fram við dómsrann-
sókn, þar sem þeir sögðust allir
hafa stuðlað að framkvæmd stíflu-
brotsins.
1971:
65 ákærðir
12.01: Saksóknari ríkisins hefur
ákært 65 menn fyrir að hafa með
dráttarvélum, skóflubúnaði og
dýnamíti, handverkfærum og
handafli, sprengt upp stífluna í
Miðkvísl í Laxá að kvöldi 25.
ágúst síðast liðinn... .Saksóknari
krefst skaðabóta... Bóndi einn í
Mývatnssveit, Kristján Þórhalls-
son, er ekki í ákæruskjalinu, og
hefur hann krafist þess að komast
á það.
Esjan afhent
13.05: í gær afhenti Slippstöðin á
Akureyri m.s. Esju, síðasta strand-
ferðaskipið, sem stöðin smíðar
fyrir Skipaútgerð ríkisins. Hitt
skipið, Hekla, var afhent fyrir
nokkrum mánuðum. Esjan nýja er
um 700 tonn.
1973:
Atvinnuleikhús á
Akureyri
06.03: Sú nýbreytni verður hjá
Leikfélagi Akureyrar næsta vetur,
að þá hefst rekstur þess með fast-
ráðnum leikurum...A hálfrar aldar
ferli félagsins hefur starfsemi þess
fyrst og fremst byggst á vinnu
áhugafólks.
Sigur sprengju-
manna
22.05: Stjórn Laxárvirkjunnar,
Landeigendafélag Laxár og Mý-
vatns og forsætisráðherra fyrir
hönd ríkisstjórnarinnar hafa gert
með sér samning, sent bindur
enda á deilumál þau, sem uppi
hafa verið um virkjunarmál Lax-
ár....Bændur aflétta lögbanni og
fá fébætur fyrir land...Gerðar-
dómur skal skera úr um skaða-
bótakröfur landeigenda...felld
verða niður málaferli þau, sem ris-
ið hafa í sambandi við virkjun
Laxár og deilur í því sambandi.
1975:
Berklar í MA
08.02: Umfangsmikil berklaleit
fer nú fram á Akureyri vegna
berklatilfella meðal nemenda og
starfsfólks Menntaskólans á Akur-
eyri. Þar hafa 30 manns reynst ný-
smitaðir, en aðeins einn þeirra
veikst....Smituppsprettan er
ófundin.
200 mílna landhelgi
15.10: Fiskveiðilögsaga íslands
var færð út í 200 mílur á miðnætti
síðastliðnu.... I ávarpi til þjóðar-
innar í tilefni útfærslunnar segir
Geir Hallgrímsson, forsætisráð-
herra: Annaðhvort munum við
semja til sigurs, eða ef það verður
hlutskipti okkar, berjast til sigurs.
1976:
Jarðskjálfti á
Kópaskeri
14.01: Klukkan 13.30 í gærdag
reið mjög harður jarðskjálfti yfir
Norðausturland. ...Afleiðingar
hans voru þær að mörg hús á
Kópaskeri eyðilögðust eða stór-
skemmdust...Tjónið á Kópaskeri
er ntjög mikið og nemur ekki að-
eins milljónatugum, heldur að lík-
indum á annað hundrað milljónir
króna.
Krafla veldur
hneyksli
30.01: Fjórir þjóðkunnir jarðvís-
indamenn leggja til að fram-
kvæmdum við Kröflu verði hætt.
Stórorðasti gagnrýnandinn segir
fullum fetum að „Kröflumál séu
fjármálahneyksli af áður óþekktri
stærð“. ...Þegar eldgos hófst í
Leirhnjúk nú í desembermánuði,
aðeins 3 km. frá Kröflu, horfði
óvænlega með framkvæmdir þar.
...Jón G. Sólnes, alþingismaður
og formaður Kröflunefndar, er
harðlega gagnrýndur vegna virkj-
anaframkvæmdanna.
Hola í höggi
16.07: Björgvin Þorsteinsson, ís-
landsmeistari í golfi, hefur farið á
kostum að undanfömu. Hann hef-
ur sigrað með yfirburðum á golf-
mótum hér, og nýlega gerðist það
í allharðri keppni að hann átti 42
högga forskot á næsta mann, á
fyrsta degi meistaramóts Golf-
klúbbs Akureyrar.
1977:
Grímseyingum
fjölgar
15.09: Hjónunum á Sólbrekku í
Grímsey fæddust þríburar í gær, allt
drengir. Við þríburafæðingu þessa
fjölgaði íbúum Grímseyjar á átta
mínútum úr 92 í 95 eða um 3,26%.
1979:
Sólnes í sérframboð
Jón G. Sólnes, þingmaður Sjálf-
stæðisflokksins í Norðurlands-
kjördæmi eystra, býður fram sér,
eftir að honum var ekki boðið sæti
á lista tlokksins fyrir komandi
kosningar.
Kalt sumar
08.09: Sumarið hefur verið óvenju
kalt um allt land, eitt hið kaldasta
á þessari öld. Meðalhiti sumar-
mánuðina á Akureyri var aðeins
7,4 stig.
1980:
Kona forseti
30.06: Vigdís Finnbogadóttir leik-
hússtjóri var í gær kosin forseti Is-
lands með 43.530 atkvæðum, og
fékk hún rúm 1.900 atkvæði um-
fram Guðlaug Þorvaldsson. Kjör
Vigdísar hefur vakið mjög mikla
athygli erlendis, enda er hún
fyrsta konan, sem kosin er þjóð-
höfðingi í lýðræðislegum kosning-
um. ...Strax og úrslitin lágu nokk-
um veginn fyrir safnaðist hópur
fólks saman við heimili hennar að
Aragötu 2 og beið hennar
þar...Vigdís sigraði með 33,6 pró-
sentum atkvæða og varð fjórði
forseti íslenska lýðveldisins.
Byggt á Öldinni okkar
Mannfjöldi fagnar kjöri Vigdísar Finnbogadóttur, fjórða forseta lýðveldisins, fyrir utan heimili hennar.