Skólablaðið - 01.05.1952, Qupperneq 3
GEFIÐ Ú T í M'ENNTASKÓLANU M í R EYKJAVl K
Maí 1952
5. tölublað
27. órgangur
Grétar Ragnarsson fæddist að Lokinhömrum í Arn-
arfirði 10. janúar 1933. Foreldrar hans voru þau
hjónin Kristín Sveinbjarnardóttir og Ragnar Guð-
mundsson bóndi þar. Ólst hann upp í föðurgarði og
þóti snemma efnispiltur. Var hann því settur til mennta
og lauk landsprófi frá Núpsskóla 1949. Haustið 1950
settist Grétar í 3. bekk Menntaskólans í Reykjavík.
Stundaði hann þar nám, þar til skömtnu fyrir síðustu
áramót, er hann lagðíst inn á sjúkrahús vegna minni-
háttar læknisaðgerðar. En upp úr þeirri legu stóð hann
aldrei, því að brátt kom í ljós, að hann var haldinn
banvænum sjúkdómi. Grétar lézt á Landsspítalanum
þann 13. marz s. 1.
Við mannanna börn skiljum ekki rök tilverunnar.
Við vitum að vísu þá fornu staðreynd, að eitt sinn
skal hver deyja. En þegar dauðinn ber dyra, finnst
okkur samt oftast hann koma að óvörum, og við eig-
um bágt með að sætta okkur við að missa af því, sem
okkur finnst lífið geta veitt. Það er sárt, þegar ungur
piltur, sem framtíðin blasir brosandi við, fellur í
valinn.
En lífið verður ekki mælt í árum einum eingöngu.
Jónas kvað:
Hvað er langlífi?
lífsnautnin frjóva,
alefling andans
og athöfn þörf.
Margoft tvítugur
meira hefur lifað
svefnugum segg,
er sjötugur hjarði.
Og hver veit nema hlutskipti Grétars hafi verið betra
en okkar allra hinna. Hann átti ævina stutta, en göf-
uga.
Þau kynni, sem við höfðum af Grétari voru skamm-
vinn. Þó skilja þau eftir ljúfar minningar. 1 hug okk-
ar hefur greypzt mynd góðs félaga. Hann var prúður
og dagfarshægur og lét lítið yfir sér, en þó greiðvik-
inn og vingjarnlegur. Fyrir þá sök varð öllum hlýtt til
hans. Hann var gæddur góðum gáfum og gekk vel nám-
ið. Svipurinn var bjartur og hreinn og ofur góðlegur.
Við þökkum þér, Grétar, fyrir samfylgdina.
SKÓLABLAÐIÐ 3