Skólablaðið

Årgang

Skólablaðið - 01.05.1952, Side 8

Skólablaðið - 01.05.1952, Side 8
ur, tautaði hann hálfhátt, um leið og hann sneri sér við. Hann settist ekki aftur, heldur lagðist fyrir á bekknum og reyndi að kúra. En hann var blautur og svangur og auk þess ekki syfjaður. Brátt reis hann upp við dogg, seildist með höndina undir bekkinn og greip þaðan stóra flösku. Þetta var vafalaust í hundraðasta skipti, sem hann bar tóma flöskuna upp að vörunum. Hann varp öndinni mæðulega: ekki einu sinni lögg til þess að hressa sig á í þessum kulda. Þetta var ljóta lífið að eiga hvergi heimili og flakka svona um. En þannig hafði þetta verið í fjöl mörg ár og þannig hlaut það að vera; öðru vísi gat það ekki verið. Hann lagðist út af aftur og breiddi vendilega yfir sig vota ábreið- una. Já, svona hafði þetta verið lengi. Nú var óralangt um liðið, síðan hann yfirgaf æskustöðvar sínar að fullu og öllu, en samt fannst honum, nú orðið, þelta alls ekki vera svo langur tími. Það var svo undarlegt, hvað hann var farinn að hugsa mikið um æsku sína nú upp á síðkastið. Það var honum nautn að rifja upp gamlar minningar, einkanlega um móður sína og bernskuheimili. Þar hafði honum liðið vel og flestir verið honum góðir. Atvik sem hann hafði löngu gleymt, birtust nú skýr og heillandi á blikfleti meðvitundarinn- ar. Hann mundi bezt eftir móður sinni, þar sem hún stóð í eldhúsinu og sýslaði við mat. Hann og hin börn- in léku sér í kringum hana með ærslum og hlálri. í þá daga þurfti hann aldrei að svella. Hungrið skar hann nú enn sárar að innan, þegar hann minntist mat- ar, og hann var kominn á fremsta hlunn með að rísa á fætur og halda til bæjarins. En minningar báru hann aftur ofurliði, og hann hélt áfram að seiða löngu liðna atburði fram í hugann. Þær birtust, stöldruðu við andartak og hurfu síðan út í rökkrið og veðurgnýinn. Hann mundi ekki eins vel eftir föður sínum og móður sinni; honum hafði alltaf staðið einhver stuggur af hon- um. Faðir hans hafði janfan verið dulur og fáskiptinn og aðeins talað við hann endrum og eins og þá alltaf um eitthvað hversdagslegt. Nú datt honum í hug fyrrta sjóferðin, sem hann hafði farið einn. Það var þegar hann var pínulítill labbakútur og stalst út á sjó á bátskrifli einn síns liðs og komst með mestu naumind- um í land. Faðir hans varð foxareiður og hýddi hann ærlega. Þá hafði móðir hans tekið hann í faðm sér, þerrað tárin á svuntunni sinni og talað svo blíðlega til hans. Já, þá leið honum vel. En nú var móðir hans löngu komin undir græna torfu. Hann hnipraði sig fastar saman undir teppinu, ætlaði þessu bannsettu veðri aldrei að létta. Nú fór að sortna yfir minning- unum eftir því sem hann kom nær nútímanum. Faðir hans hafði sent hann til Revkjavíkur gegn hans eigin vilja til að læra. Sjómennskan var alltaf hans draum- um. Eftir að hann fór til Reykjavíkur, sá hann móður sína aldrei. Ókunn kona kom í staðinn og við hana voru tengdar allt aðrar minningar en móður hans. Þær minningar voru sárari og tregafyllri. Hann sá hana fyrir sér á dansleikum, þar sem þau hittust fyrst. Hann ryfjaði upp kvöldið góða, giftinguna og allt það. Það fór öðru vísi en hann hafði vonað, en ekki tjóaði að hugsa um það núna. Nú var sulturinn farinn að þjá hann ónotalega. Hann varð að lalla í bæinn og reyna að hitta einhvern kunningjanna. Teppið, sem hann hafði ofan á sér, var orðið rennvott, og gamli maðurinn reis á fætur. Ofan af snaga tók hann gamlan frakka, klæddi sig í og gekk að dyrunum. En sem hann ætlaði að opna hurðina staðnæmdist hann. Það var einsog hann væri að hugsa sig um, hvort hann hefði ekki gleymt ein- hverju. Hann sneri við og gekk að kistlinum. Hann opn- aði kistilinn og tók úr honum fimmkrónaseðil. Það sakaði ekki að taka hann með. Síðan breiddi hann teppið vandlega yfir bekkinn, slökkti á olíuvélinni og gekk út. Hann bisaði nokkra stund við að koma stór- um steinum fyrir dyrnar, svo vindurinn feykti ekki upphurðinni, á meðan hann væri í burtu. Svo sveipaði hann frakkadruslunni fast að sér og arkaði af stað áleiðis til bæjarins. Hann var fjandi hvass núna. Sterkar blés hann samt oft á sjónum í eina tíð. En þá var hann ungur og enn í fullu fjöri. Og gaman hafði verið í hafnarbæjunum úti, þá gat maður þó drukkið reglulegt vín, en þurfti ekki að þamba þetta óyndisspritt. Stúlkurnar voru líka skrambi fjörugur á stundum. Hann mundi vel eftir kránum. Þar var oft gleði og glaumur og siðprýðin ekki allt af í sem beztu lagi. Nú minnlist hann einnig kerlinganna, sem höfðu í fyrra hýst hann og viljað fá hann til að elbka guð og frelsast. En hann hafði aldrei viljað þýðast guð og aldrei beðið til guðs. Kannske var hann honum reiður. Annars var bezt að hugsa sem minnst um guð. Það gat enginn skilið í honum nema prestar og lærðir menn. Gamli maðurinn öslaði áfram í bleytu og aur. Skórnir hans voru og gegnsósa af vatni og það bullaði í við hvert skref. Stór bíll ók fram hjá og slétti út frakkann hans. Gamli maðurinn brosti. Þeir höfðu ekki skvett svona á hann í fyrra fyrir kosn- inguna, þegar þeir komu og tsóttu hann. Það var hálf- um mánuði fyrir kosningu, að maður hafði komið til hans' og spurt, hvort hann vildi fá vinnu upp í sveit. Jú, hvort hann vildi það. Síðan óku þeir honum í lúxusbíl, fóru með hann inn á einhverja skrifstofu 8 SKÓLABLAÐIÐ

x

Skólablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.