Skólablaðið

Volume

Skólablaðið - 01.05.1952, Page 9

Skólablaðið - 01.05.1952, Page 9
og sögðu að fyrst yrði hann að kjósa. Þeir gáfu hor- um vindil og konjak og lítill maður og grannur hélt ræðustúf og spurði, hvort hann vildi ekki kjósa ákveðinn flokk. Hann jankaði því strax, honum stóð nákvæmlega á sama um alla þessa flokka. Einu sinni sem oftar þegar hann hafði verið atvinnulaus hafði hann kosið flokk, sem þóttist ætla að veita öllum atvinnu. En nú var hann búinn að vera atvinnulaus í mörg ár, svo að hann var orðinn úrkula vonar um atvinnu þaðan! Svo fór hann upp í sveit, en kom víst allt of fljótt aftur: daginn fyrir kosningar. Að minnsta kosti urðu þeir að aka honum aftur upp á skrifstofu á kosningardaginn og opna umslagið, sem atkvæðið hans var geymt í. Hann brosti með sjálfum sér. Þá höfðu þeir verið stimamjúkir þessir fínu herrar og gefið honum vindla og vín. Síðan hafði hann ekki bragðað almennilegt vín svo heitið gæti. Hann var nú kominn til bæjarins. Hér var ekki eins hvasst. Honum hafði hitnað á görigunni, svo hann hneppti frá sér frakkanum. Brátt kom hann að húsi kunningja síns. Hann gekk upp stórar tröppur, gegnum myrkan gang og staðnæmdist fyrir framan dyr innarlega í ganginum og drap á dyr Enginn anzaði. Hann bankaði aftur, en allt fór á sömu leið. Hann gekk út þungum skrefum. Nú fyrst var hungrið byrjað að kvelja hann verulega. Þetta var ljóta lífið. En ekki var það betra á hælinu vínlaus. Samt gátu þeir stundum snuðað starfsfólkið. Hann brosti þrátt fyrir sullinn, þegar honum varð hugsað til þesis, er hann gekk sæt- kenndur í hálfan mánuð samfleytt um hælið án þess að nokkur tæki eftir. Af gömlum vana gekk hann niður á höfn. Við bryggjuna lágu skipin ferðbúin. Bara hann mætti nú sigla með þeim einu sinni enn og njóta þeirrar ánægju, sem sjómennskan hefur fram að bjóða. Hann gekk fram á bryggjusporðinn og leit niður í sjóinn. Hvítfextar öldurnar teygðu armana upp til hans, en náðu samt ekki alla leið. Gamalkunnugt gljáfrið í öldunum hafði sefjandi og áfeng áhrif á hann og honum fannst það hljóma eins og tungutak í eyrum sér. Var ekki einhver að kalla á hann? Þar var kyrrt og þyturinn í storm- inum var eirisog hátt fyrir ofan hann. Hann starði á öldutoppana, sem smám saman tóku á sig nýjar mynd- ir. Hann sá nú móður sína gömlu, föður og systkini, veðurbitna sjómenn, sviðknæpu í stórborg, gamla og nýja kunningja, barnið sitt og eiginkonu ,sem breiddi út faðminn á móti honum og hvíslaði svo undurblítt eins og í fjarska: komdu. Hann rétti fram höndina og hugðist faðma allt að sér. Öldurnar skvettust hærra upp á bryggjuna og urðu enn hvítfextari en áður. c/uni ( byltingarljóð) Kaldir era frostsins fjötrar. falla þétt að harðri foldu. Storðin fyrir stormum nötrar. starir máni á dauðans ríki, glottir kalt við gróðurs líki, grösum, er ei hjarnið þoldu og hjáfra skelfd að fósturmoldu. Dýra og jurta þyrping þynnist. þögnin fyllir sviðið auða. Línhvít jörð við myrkur minnist, mœtast kraftar lífs og dauða, því heiflar eldur undir funar upp mót lofli trylltur brunar: fjötur hvern á foldu að sprengja, er fjöri jarðar andann þrengja. Freðna skurn í sundur slítur, slengir björgum hátt í geiminn. Klakasteyptar borgir brýtur. byltir, tœtir feigðarheiminn, Dauðamörk í djúpið sogar, í dýrðarbjarma foldin logar, nú jarðarkraftur jrelsi fagnar með fimbulraust um ríki þagnar. Dæmon. Síðan hvarf allt í samt lag aftur. Ekkert hljóð heyrðist utan gljáfrið í öldunum, smellirnir þegar skipshliðarn- ar slógust upp að bryggjunni og garg í máfum. Ægir hafði gleypt son sinn. En vonandi aka góðfúsir veg- farendur um vegi himnaríkis, sem kasta tómum flösk- um úr glöðum hóp handa gömlum karli að tína. E. II. E. SKÓLABLAÐIÐ 9

x

Skólablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.