Skólablaðið

Ukioqatigiit

Skólablaðið - 01.05.1952, Qupperneq 10

Skólablaðið - 01.05.1952, Qupperneq 10
Drengir Sviplcijtur. Tveir drengir ganga hægt eftir götunni fram dalinn, þeir fara sér hægt og staðnæmast öðru hvoru til að lesa sér blóm, sem vaxa á vegarbrúninni. Snöggvast hefur dregið ský fyrir sólu, og annar drengurinn lítur upp og deplar augunum, hann virðir fyrir sér skugg- ann af skýinu, sér hann líða eftir mýrinni niðrí dalinn og inní dalbotninn, samsamast gráum melum og dökk- um holtum og hverfa að lokum inní svarta hamranna sem girða dalinn. Glókollurinn litli, sem hafði horft á þessa undrasjón frá sér numinn, sneri sér að leik- bróður sínum og sagði: — Sigvarður! En hve ég óska þess, að við mættum svifa á svona skugga langt í burtu, þar sem enginn amaðist lengur við leikjum okkar. Dregurinn þeldökki horfði tindrandi augum á fé- lagasinn ogsvaraði: — Það er til einskis að æskja þess, sem ekki fæst, Ólafur minn! Við verðum að þola okk- ar fjötra, þangað til við getum farið burt — ekki á skugga, sem ekkert er — heldur fallegu skipi, sem ber okkur yfir höfin. Sá sem kallaður var Sigvarður var nokkrum árum eldri og lífsreyndari, hann hafði einu sinni verið í annarri sveit og þekkt annan dreng. Fólkið gæti að minnsta kosti látið okkur í friði, svaraði glókollur og brosti við fögru blómi, sem hann hafði komið auga á. Við megum leika okkur í frí- tímunum eins og við viljum? Megum við það ekki? Við ættum að mega það, svaraði hinn stuttur í spuna. Og við þurfum engan að spyrja að því. Við höf- um unnið dyggilega alla vikuna. Glókollur var setztur á vegbrúnina, spennti greipar um hnén og horfði blíðlega á vin sinn: Og nú er sunnu- dagur. Allt fólkið er farið í messu að hlusta á prest- inn og syngja sálma. En ég vildi miklu frekar vera með þér, ganga útí sólskininu og hlusta á fuglasönginn. Hlusta á þig tala og halda í sterku höndina á þér. Sigvarður leit til hans og sneggvast brá fyrir angur- værum glampa í augum hans: Komdu og lof mér finna höndina á þér. Glókollur þokaði sér um set til vinar síns, horfði í hið svarta djúp augna hans og smeygði lítilli hendi sinni í lófa hans, þar sem hann lá aftur á bak í gras- inu og tuggði strá. Ég var hræddur, sagði hann svo feimnislega. Ertu hræddur við mig? spurði Sigvarður og horfði rannsakandi á drenginn sem skotraði augunum undan. Nei, ég er hræddur við hana. svaraði hann og greip þéttar um hönd vinar síns. Hún var að stríða mér í morgun, áður en hún fór í kirkjuna með mömmu sinni. Hún eagði að ég væri hræddur við hestana og kýrnar, og væri svo óduglegur, að pabbi hennar ætlaði að láta mig fara. Og hún sagði, að fullorðna fólkið hlæi að mér að vera alltaf með þér. Skiptu þér ekki af því, sem fólkið segir, hreytti dökki pilturinn útúr sér. Og allra sízt, hvað hún segir. Hann var nokkrum árum eldri og lífsreyndari og hafði verið í annarri sveit og þekkt annan dreng. Það var satt, sem hún sagði. Ég er hræddur við hestana og kýrnar. Og hún sagði, að pabbi hennar segði, að það ætti að senda annan hvorn okkar i burtu. Langt í burtu, svo við sæumst ekki framar. Glókollur var farinn að snökta og hjúfraði sig að vini sínum: og þú ert sá eini, sem hefur verið mér góður. Eini í heiminum. Það má ekki taka mig frá þér. Slíkt hefur komið fyrir áður, sagði Sigvarður sam- anbitnum vörum og horfði eitthvað langt út í fjarsk- ann. Hann vafði hinn grátandi vin sinn örmum og þrýsti honum fast að brjósti sér. Heitar varir hans snertu allra snöggvast mjúkan hálsinn á drengnum og hann fann til svimandi sælu, þegar glókollurinn fór fálmandi höndum um brjóst hans. Ský dró fyrir sólu, og skugginn af því leið yfir mýr- arnar og inn í dalbotninn samsamaðist gráum melum og dökkum holtum og hvarf að lokum inní svarta hamrana, sem luktu dalinn. -----I fjarska heyrðist jódynur á veginum. Kirkju- fólkið var á heimleið. Narcissus. 10 SKÓLABLAÐIÐ

x

Skólablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.